Morgunblaðið - 03.10.1998, Blaðsíða 76
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SlMI 5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Ekki tekið af skarið um eignarrétt lífsýna í nýju lagafrumvarpi
Upplýst samþykki sjúk-
lings verði ekki áskilið
UPPLYST samþykki er ekki skilyrði þess að þau
lífsýni, sem tekin eru úr sjúklingum sem sjálfír
leita læknisaðstoðar, verði vistuð í lífsýnasöfnum,
samkvæmt frumvarpi til laga um lífsýnasöfn,
sem ríkisstjórnin samþykkti í gær að leggja fyrir
Alþingi. I frumvarpinu er eignarréttur lífsýna
ekki skilgreindur nákvæmlega. Tekið er fram að
leyfishafí lífsýnasafns teljist ekki eigandi sýn-
anna en að hann hafi umráðarétt og beri ábyrgð
á meðferð þeirra.
í frumvarpinu er gerður greinarmunur á sýn-
um sem safnað hefur verið vegna svonefndra
þjónusturannsókna, þ.e. þegar sjúklingar leita
læknisaðstoðar, og sýnum, sem safnað er vegna
vísindarannsókna, þ.e. þegar visindamaður óskar
samstarfs við sjúklinga.
Ætlað samþykki
í síðarnefnda tilvikinu er áskilið samkvæmt
frumvarpinu að leitað sé eftir „upplýstu, óþving-
uðu samþykki þess sem sýnið gefur,“ eins og
segir í 1. mgr. 7. greinar. „Hafí sýnum verið
safnað vegna þjónusturannsókna má ganga út
frá ætluðu samþykki sjúklings fyrir því að sýnið
verði vistað á lífsýnasafni," segir í 2. mgr. 7.
greinar.
í 8. grein frumvarpsins segir að lífsýni skuli
tryggilega geymd og merkt en varðveitt án per-
sónuauðkenna og tengsl við persónuauðkenni
skuli varðveitt á þann hátt sem tölvunefnd metur
fullnægjandi.
„Sýni skulu að jafnaði ekki notuð í öðrum til-
gangi en þeim sem ætlað var þegar sýnið var tek-
ið. Undantekningar frá þessu eru þó leyfilegar í
þágu vísindarannsókna ef vísindasiðanefnd veitir
slíka undanþágu," segir í frumvarpinu.
Þar kemur einnig fram að aðgang vegna vís-
indarannsókna skuli aðeins heimila að fengnu
samþykki tölvunefndar og að fenginni rannsókn-
aráætlun, sem hlotið hefur samþykki vísindasiða-
nefndar eða siðanefndar viðkomandi heilbrigðis-
stofnunar.
Morgunblaðið/Kristján
Skoðanakönnim Félagsvísindastofnunar HI fyrir Morgunblaðið
Fylgi eykst
við Framsókn
Fylgi stjórnmálaflokka
í kosningum 1995
og í skoðanakönnunum
í maí og september '98
Spurt í september 1998:
Hvað myndu menn kjósa í alþingiskosningum nú?
22,3
1
3,3
Alþýðu-
flokkur
Sjálfst,-
flokkur
Alþýðu-
bandalag
Kvenna-
listi
Samfylking
jafn.manna
1
Frjáls-
lyndir
3,1
I
Vinstri
menn
Forsætisráðherra
Afsláttur
við hluta-
fjárkaup
er kostur
DAVIÐ Oddsson forsætisráðherra
segir að ríkisvaldið geti beitt sér
með formlegum og óformlegum
hætti fyrir því að almenningur eign-
ist hlut í sjávarútvegsfyrirtækjum.
Hann telur koma til greina að ríkis-
valdið bjóði sérstakan afslátt vegna
hlutafjárkaupa.
„Við, sem fórum fyrir ríkisstjóm-
inni, teljum að í öllum meginatriðum
hafí fiskveiðistjómunarkerfí okkar
verið hagstætt að því leyti að sjávar-
útvegsfyrirtækin hafa náð að hag-
ræða og styrkjast. A hinn bóginn er
vitað að meðal þjóðarinnar hefur ver-
ið óánægja með vissa þætti og ákveð-
in tortryggni verið uppi,“ sagði hann.
„Fyrir mér vakir að við náum að
halda sátt um sjávarútveginn; hann
nái að eflast eins og hann hefur verið
að gera á undanfömum ámm, tor-
tryggni verði eytt og menn telji að
sanngjarnrai- lausnar hafí verið leit-
að,“ sagði Davíð Oddsson.
■ Kemur til greina/10
---------------
Aðalverktakar
Aðrar
aðalstöðvar
ÍSLENZKIR aðalverktakar hafa
ákveðið að koma sér upp öðmm aðal-
stöðvum í Reykjavík vegna þeirrar
starfsemi fyrirtækisins, sem fram
fer utan varnarsvæða.
Akvörðun um þetta er m.a. tekin
vegna dráttar á að flotastjóm Banda-
ríkjanna komist að niðurstöðu um
hvemig haga beri flutningi athafna-
svæðis verktakafyrirtækja á Kefla-
víkurflugvelli út fyrir vallargirðingu.
■ Aðaiverktakar bíða/39
FRAMSÓKNARFLOKKUR bæt-
ir við sig fylgi og fengi 20,1% at-
‘kvæða ef gengið yrði til alþingis-
kosninga nú, samkvæmt niðurstöð-
um skoðanakönnunar Félagsvís-
indastofnunar Háskóla Islands fyr-
ir Morgunblaðið. I síðustu tveimur
könnunum stofnunarinnar var fylgi
flokksins 17,4%, en fylgi hans í
kosningunum 1995 var 23,3%.
Fylgi Sjálfstæðisflokks sígur lít-
illega frá síðustu könnun; hann fær
42,9% en hafði 44,7% í könnuninni,
sem gerð var um mánaðamót apríl
og maí. Kjörfylgi flokksins var
37,1% árið 1995.
Breytingar á fylgi stjórnarflokk-
anna frá síðustu könnun era innan
skekkjumarka. Þeim, sem nefna
samfylkingu jafnaðarmanna þegar
þeir era spurðir hvað þeir myndu
kjósa ef kosið yrði nú, fjölgar hins
vegar fjórfalt; úr 5,5% í maí í 22,3%
nú. Erfitt er að meta líklegt kjör-
fylgi samfylkingarinnar vegna þess
tað margir nefna flokkana þrjá, sem
að samfylkingunni standa; 4,1% Al-
þýðuflokk (11,8% í maí), 3,1% Al-
þýðubandalag (15%) og 0,6%
Kvennalista (3,1%). Samanlagt er
fýlgi samfylkingarinnar og flokk-
anna, sem að henni standa, 30,1%.
Könnunin hófst 18. september,
tveimur dögum eftir að málefna-
skrá samfylkingarinnar var kynnt,
og lauk 29. september.
Óháðir og frjálslyndir
fengju um 3% hvorir
Þeir, sem sögðust myndu styðja
hugsanlegt framboð Steingríms
Sigfússonar, Ögmundar Jónasson-
ar, Hjörleifs Guttormssonar og
fleiri sem era yzt á vinstri vængn-
um, vora 3,1% þeirra, sem afstöðu
tóku í könnuninni. Sé þessu fylgi
bætt við fylgi samfylkingarinnar
og flokka hennar fá vinstrisinnuð
framboð 33,2%. I síðustu könnun
stofnunarinnar var samanlagt fylgi
sameiginlegs framboðs, Alþýðu-
flokks, Alþýðubandalags, Kvenna-
lista og Þjóðvaka hins vegar
37,8%.
Frjálslyndi flokkurinn, undir
forystu Sverris Hermannssonar,
fær nú 3,3% fylgi en enginn nefndi
hann í síðustu könnun, enda hafði
stofnun hans þá ekki verið til-
kynnt.
Félagsvísindastofnun telur ólík-
legt að flokkur Sverris nái manni á
þing. Séu niðurstöður könnunar-
innar notaðar óbreyttar fyrir
Reykjavík og Reykjanes en fylgi á
landsbyggðinni skipt hlutfallslega
milli kjördæma, fengi samfylkingin
20 þingmenn og tapaði þremur,
miðað við núverandi fjölda þing-
manna stjórnarandstöðunnar.
Framsóknarflokkur fengi 14 menn
og tapaði einum en Sjálfstæðis-
flokkur fengi 29 menn og ynni
fjóra.
Könnunin náði til slembiúrtaks
1.500 manna 18 ára og eldri um allt
land. Nettósvöran er 68,5%.
Skýrslu Félagsvísindastofnunar
má lesa í heild á Fréttavef Morg-
unblaðsins, www.mbl.is/frettir/.
Lagfært
í Dalvíkur-
höfn
ÞAÐ eru mörg handtökin í
kringum þjónustu við sjávarút-
veg hér á landi. Meðal þeirra
sem hafa atvinnu af slíku er
Birgir Aðalsteinsson hjá Haftæki
á Akureyri, sem brá sér upp í
mastur til að lagfæra siglinga-
tæki og -ljós á smábáti í Dalvík-
urhöfn.
Dýr lönd-
un fram
hjá vigt
SKIPSTJÓRI og útgerðarmaður
Hafnarbergs RE voru í gær dæmd-
ir fyrir að landa 227 kílóum af
humarhölum fram hjá hafnarvigt-
inni í Sandgerði í ágúst sl. Ætluðu
þeir að sögn að skipta aflanum á
milli áhafnar skipsins þar sem þeir
töldu humarinn óhæfan til vinnslu.
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi
mennina hinsvegar fyrir brot á lög-
um um nytjastofna sjávar og ber
þeim að greiða 400 þúsund króna
sekt hvorum um sig. Það samsvarar
3.524 krónum fyrir kílóið af þeim
humri sem landað var fram hjá vigt.
Saksóknari í málinu og yfírmaður
efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglu-
stjóra segir lítið eða ekkert svigrúm
í lögum um vigtun sjávarafla og því
sé niðurstaða dómsins þessi.
■ Dæmdir fyrir að/24
------♦♦-♦----
Tveir flug-
vallarstjórar
STOFNAÐ hefur verið sérstakt
embætti forstjóra Flugstöðvar Leifs
Eiríkssonar og sú starfsemi tekin
undan embætti flugvallai-stjórans á
Keflavíkurflugvelli.
Pétur Guðmundsson er að láta af
starfi flugvallarstjóra og hefur emb-
ættið, sem hér eftir annast daglegan
rekstur flugvallarins, verið auglýst
laust til umsóknar. Hins vegar hefur
Ómar Kristjánsson, fyrrum aðaleig-
andi og framkvæmdastjóri Þýsk-ís-
lenska og Metró, verið skipaður for-
stjóri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar
til eins árs, án auglýsingar.
■ Settur sérstakur/22