Morgunblaðið - 03.10.1998, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 03.10.1998, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1998 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ FÉLAG fréttamanna á Ríkisút- varpinu undirbýr málshöfðun á hendur RÚV til að fá hnekkt þeirri ákvörðun stofriunarinnar að endur- nýja ekki samning við Jón Gunnar Grjetarsson fréttamann um áfram- haldandi störf við fréttastofu Ríkis- sjónvarpsins. Félagið hefur jafh- framt leitað til Bandalags háskóla- manna í ví skyni að fá ákvörðuninni hnekkt. í ályktun stjórnar félagsins segir að stjóm Félags fréttamanna h'ti svo á að RÚV hafi með uppsögn ráðningarsamnings, gerð tímabund- ins verksamnings og ákvörðun um að endumýja enga samninga frekar við Jón Gunnar brotið ákvæði laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins og gildandi kjarasamning. „Stjóm FF telur með öllu óviðun- andi að RÚV skuli æ ofan í æ sýna lausráðnum fréttamönnum þá lítils- virðingu og í rauninni óheiiindi, að óska eftir starfskröftum þeirra ár- um saman, eins og dæmi era um; og segja þeim síðan upp störfum. I tilviki Jóns Gunnars virðast vinnu- brögð RÚV einkennast af tilraun- um til þess að sniðganga lög og bera eðlilegan rétt hans fyrir borð,“ segir í ályktun stjómarinn- ar. „Þetta er því furðulegra sem fréttastofa Sjónvarpsins hefur nú notið starfskrafta hans í nærri tvö og hálft ár, fréttastjórar mælt með því að stofnunin fái að njóta starfs- krafta hans áfram og yfirstjórn RÚV haft á orði að taka upp nýja og bætta starfsmannastefnu," seg- ir í ályktuninni. Morgunblaðið/Sigurður Fannar GRÓÐURHUSIÐ er 2.400 fermetrar að flatarmáli og beindust áhyggj- ur eigendanna mest að rdsunum, sem sködduðust vegna reyks. Rafn Emilsson einn eigenda Lands og sona. Ríkisstjórnin veitir 80 milljónir til þróunar- og nýsköpunarverkefna Fyrir svæði án uppbygg- ingar virkiana og stóriðju RÍKISSTJÓRNIN samþykkti í gær tillögu Finns Ingólfssonar, iðn- aðar- og viðskiptaráðherra, um að ráðstafa 80 milljónum króna til að styrkja verkefni á sviði atvinnuþró- unar og nýsköpunar í atvinnulífinu, eins og heimild er fyrir í fjárlögum ársins. í frétt frá iðnaðar- og við- skiptaráðuneytinu kemur fram að einkum sé um að ræða verkefni á landsvæðum, sem ekki njóti góðs af atvinnustarfsemi sem tengist upp- byggingu á orku- og stóriðjusviði. Alls er um 60 verkefni að ræða. Styrkimir eru veittir samkvæmt tillögum stjórnar „Átaks til atvinnu- sköpunar". Auglýst vai- eftir um- sóknum um styrki og einnig haft samráð við Fjárfestingarstofu Is- lands og atvinnuráðgjafa lands- byggðarinnar. Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið segir að rauði þráðurinn í tillögun- um sé „að veita styrki, í samstarfi við stofnanir, sveitarstjómir, íyrir- tæki og frumkvöðla, til einstakra verkefna er líkleg eru til að skapa atvinnu og virðisauka á landsbyggð- inni. Mörg verkefnanna tengjast vöruþróun og sérstökum stuðningi á þeim svæðum sem nú búa við einsleitt atvinnulíf. Þai' á meðal era mörg verkefni sem tengjast ferða- þjónustu. Nokkur verkefnanna tengjast erlendri fjárfestingu. Þau eru bæði almenns eðlis, þ.e. tengj- ast markaðssetningu Islands sem fjárfestingarkosts, en einnig er þar um að ræða stuðning við tiltekin verkefni á tilteknum svæðum.“ Jarðhitaleitarátak á köldum svæðum fær hæstan styrk Hæstan styrk fær jarðhitaleitar- ásatak á köldum svæðum, eða 10 milljónir króna. Þá fara 6,5 milljónir til forhagkvæmniathugunar á möguleikum orkufreks iðnaðar í Norðurlandskjördæmi vestra og sex milljónir til samstarfsverkefnis prjóna- og saumastofa í iandinu. Af öðram verkefnum, sem fá meira en milljón króna í styrki, má nefna samstarfsverkefni um eflingu úrvinnsluiðnaðar úr léttmálmum, forhagkvæmniathuganir á polyol- verksmiðju á íslandi, uppbyggingu ferðaþjónustuverkefnisins „á Njáluslóð“, farfundakerfi, netteng- ingu og samþættingu á starfsemi þeirra, sem stunda leiðsögn og þekkingarmiðlun til fyi'irtækja um allt land, bætta tækni við fram- leiðslu á hnökkum, beizlum og skeif- um og samræmingu og eflingu - markaðsaðgerða erlendis, kynningu á aðferðum til orkusparnaðar vegna rafhitunar, áframhaldandi þróun hörvinnslu, endurnýjun kynningar- efnis um Island sem fjárfestingar- kost, eflingu viðskipta við austur- strönd Kanada og Bandaríkjanna er nýtzt gæti íslenzkum jaðarsvæðum og stofnun „uppeldisseturs“ í lík- ingu við það sem gerist t.d. í Nova Scotia. Bílaverk- stæðið Kirkjubæj- arklaustri sýknað HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur sýknað eiganda Bílaverk- stæðisins Kirkjubæjarklaustri og Sjóvá-Almennar af kröfum við- skiptavinar, sem krafðist að sér yrðu greiddar 419 þúsund krónur, vegna kostnaðar sem hann lagði út vegna bilaðrar bílvélar. Taldi stefn- andi að stefndi bæri ábyrgð á því að vélin, sem stefndi setti í bifreið stefnanda, hefði bilað daginn eftir afhendingu úr viðgerð og eyðilagst stuttu síðar Stefnandi fór í mál við verkstæðið á þeim forsendum að vélin sem sett var í bílinn var ekki af réttri stærð og taldi verkstæðið vera bótaskylt. Sagði stefnandi að starfsmenn verk- stæðisins hefðu ekki aðgætt hvers- konar vélarstærð um væri að ræða og látið sig panta 360 vél í stað 318 eins og var í bifreiðinni þegar hún fór á verkstæðið. Komst dómurinn að þeirri niður- stöðu að meðferð stefnanda sjálfs á bifreiðinni eftir viðgerðina hefði valdið þvi að vélin bræddi úr sér. Þótti ósannað að stefndi hafi við ísetningu vélar í bifreið stefnanda gerst sekur um mistök sem gerðu hann bótaskyldan. Morgunblaðið/Ásdís Alþjóðadagur kennara á Hótel Borg ALÞJÓÐADAGUR kennara verður haldinn hátíðlegur hér á landi í annað sinn nk. mánudag 5. október. í tilefni dagsins munu KÍ, HÍK og Félag ís- lenskra leikskólakennara standa fyrir menningardagskrá á Hótel Borg. Þema dagsins er „Kennarar móta framtíðina“. UNESCO ákvað 1994 að einn dagur á ári skyldi helgaður kennurum í heiminum. Stofn- unin hefur leitast við að vekja athygli á stöðu kennara, starfs- aðstöðu, launakjörum og ímynd kennara. í ár ákvað stofnunin að láta kanna sérstaklega ímynd kennara í bíómyndum. A síðasta ári útbjó stofnunin fræðsluefni sem innhélt m.a. viðtöl við kennara alls staðar að úr heiminum þar sem fjallað var um aðbúnað þeirra og að- stöðu þeirra til að sinna starfi sínu. A dagski'ánni á Hótel Borg, sem hefst kl. 20:30 flytja Petra Óskarsdóttir flautuleikari og Ingunn Hildur Hauksdóttir pí- anóleikari tónlist. Margrét Gunnarsdóttir Schram fer með ljóð eftir leikskólabörn. Pétur Jónasson flytur gítartónlist. Egill Egilsson rithöfundur verður með upplestur. Þá mun Jenný Gunnarsdóttir syngja við undii'leik Jóhanns Ólafs Ingva- sonar. Ræðumaður kvöldsins er Kári Arnórsson, fyrrverandi skólastjóri. Dagskránni lýkur með söng Elísabetar F. Eiríks- dóttur við undirleik Elínar Guðmundsdóttur. MS-bandið mun auk þess flytja létta tón- list. Allir sem koma fram utan einn eru kennarar. Svaladrykkur HÚN virtist fegin að geta svalað þorstanum, hnátan sem varð á vegi Ijósmyndarans í grasagarðinum í Laugardal þar sem hún saup af vatnspósti í garðinum. 20 milljónir söfnuðust SÖFNUN SÍBS fýrir endurhæf- ingu á Reykjalundi hófst með beinni sjónvarpstútsendingu í gær og höfðu safnast um 20 milljónir króna skömmu fyrir miðnætti í gær. Ingólfur Garðarsson, fram- kvæmdastjóri söfnunarinnar, sagði að söfnunin hefði gengið ágætlega miðað við það að bilun hefði orðið í stöð hjá Landssímanum þannig að ekki hefði náðst samband inn á Reykjalund í um klukkustund. Söfnunin stendur út helgina. Fréttamenn vegna Jóns Gunnars Grjetarssonar Málshöfðun undir- búin á hendur RUV Bruni í gróðurhúsi SKAMMHLAUP í rafkerfi er talið hafa valdið eldsvoða í einu gróður- húsa þar sem fram fer rósarækt hjá Landi og sonum á Flúðum í fyrr- inótt. Enginn meiddist í brananum. Tilkynnt var um eldinn kl. 4.24 og börðust eigendumir við eldinn uns slökkviliðið á Flúðum kom á vett- vang. Miklar rafmagnssprengingar kváðu við og logaði upp úr þakinu á einum stað í húsinu þegar slökkvilið hóf slökkvistarf. Vöknuðu íbúar í nærliggjandi húsum við kraftmik- inn sprengignýinn og sló rafmagi út í brananum með þeim afleiðiní um að rafmagn fór af öllum húsui á Flúðum að sögn slökkviliðsmanni Ljóst er að tjónið er umtalsvert gróðurhúsinu, en mestar áhyggjn höfðu eigendurnir af rósunum, sei mikill reykur umlukti í eldinun Voru þær famar að hanga um mið, an dag í gær, en ekki er víst hvers mikinn skaða þær bera fyrr en eft: nokkra mánuði að sögn eins eiganc ans, Emils Gunnlaugssonar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.