Morgunblaðið - 03.10.1998, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 03.10.1998, Qupperneq 12
12 LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Golli Sópað og prýtt ÞEIR gengu rösklega til verks á lóð Austurbæjarskólans í Reykjavík þessir ungu verka- menn. Strákarnir sópuðu og prýddu skólalóðina og fórst það allt vel úr hendi í blíðviðrinu. Enga truflun við hátíðlega athöfn LÖGREGLAN bannaði tólf nátt- úruverndarsamtökum og útivist- arfélögum og tugum listamanna að koma saman á Austurvelli og lesa ættjarðarljóð meðan á þing- setningu stóð á fimmtudag. Beiðni hafði komið frá náttúru- verndarsamtökunum um að setja upp hátalarakerfi og pall við styttu Jóns Sigurðssonar frá klukkan 13-15. Ástæðan fyrir banninu var einfóld að sögn Jón- mundar Kjartanssonar yfirlög- regluþjóns í Reykjavík. „Við lít- um á alþingissetninguna sjálfa og gönguna frá Dómkirkjunni yf- ir í alþingi sem hátíðlega athöfn og töldum ljóðalestur í hátalara- kerfi vera truflun á henni. Okkur þótti þetta einfaldlega ekki fara saman,“ sagði Jónmundur. Að sögn Jónmundar báðu náttúru- verndarsamtökin ekki um að fá að lesa ættjarðarljóð á öðrum tímum á fimmtudaginn en milli klukkan 13 og 15. FRÉTTIR Hugsanlegt flóð úr Langjökli Gæti dregið úr lax- og silungsveiði næsta sumar Fjöldi veiddra laxa 1975 Laxveiði á vatnasvæði Ölfusár / Hvítár m IVeitt á stöng ] Veitt i net 1980 1985 1990 1995 11 11 1 Stangveiði í Hvítá Stangveiði í Öifusá 1975 1980 1985 1990 1995 EF flóð kemur úr Langjökli í kjöl- far framhlaups Hagafellsjökla, eins og Helgi Björnsson jöklafræðingur leiddi líkur að í viðtali við Morgun- blaðið sl. miðvikudag, gæti aurburð- urinn dregið úr lax- og silungsveiði á stöng á vatnasvæði Ölfusár og Hvítár næsta sumar. Einnig gætu áhrifin komið fram í minni veiði næstu ár á eftir. Magnús Jóhannsson, deildar- stjóri Veiðimálastofnunar á Suður- landi, segir að geysilegur aurburður hafi verið allt sumarið í kjölfar flóðsins sem varð úr Langjökli árið 1980 og hafi þá mjög dregið úr stangveiði því fiskurinn hafi ekki getað séð beituna. Til dæmis veidd- ust þá aðeins 299 laxar á stöng í Hvítá miðað við 1.028 sem veiddust árið áður. I Ölfusá veiddust sex lax- ar miðað við 103 árið áður. Ahrif- anna gætti einnig að nokkru leyti sumarið eftir. „Ef flóðið verður eitthvað í lík- ingu við það sem gerðist 1980 er einnig líklegt að hrogn og seiði skaðist þannig að veiði verði minni af þessum völdum að nokkrum ár- um liðnum," segir Magnús. „Fyrir 1980 voru ekki til mælingar á seið- um þannig að við vitum ekki ná- kvæmlega hver áhrifin urðu þá. Nú höfum við stundað reglulegar mæl- ingar á seiðabúskapnum allt frá ár- inu 1985 þannig að það verður auð- veldara að fylgjast með því.“ Magnús segir að miklu máli skipti varðandi áhrifin hvenær ársins flóð verður, ef það kemur meðan fiskur er ekki að ganga í árnar verði áhrif- in minni. Magnús bendir á að enn sé ekkert hlaup komið og ekki vitað hvenær það komi eða hversu mikið það verður, því séu vangaveltur um áhrif í raun ótímabærar á þessu stigi. Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna tapar máli vegna sölu á Gelmer-verksmiðjunum Ekki ólögmæt slit samningaviðræðna Ekki gert að greiða stefndu bætur Eins og sagt var frá í síðustu viku var ekki fallist á kröfur SH í málaferlum fyrir verslunar- réttinum í París. Lögmenn fyrirtækisins binda þó miklar vonir við áfrýjun. Páll Þórhallsson kynnti sér dóminn. SOLUMIÐSTOÐ hraðfrystihús- anna (SH) tapaði í síðustu viku máli sem félagið höfðaði fyrir verslunarréttinum í París í kjölfar þess að frönsku Gelmer-verksmiðj- urnar, með höfuðstöðvar í Bou- logne sur Mer, gengu félaginu úr gi'eipum, en SH var tilbúin að greiða rösklega 500 milljónir ís- lenskra króna fyrir hlutabréf La- noy-fjölskyldunnar. SH hafði haustið 1997 átt í viðræðum við La- noy-fjölskylduna og fyrirtækið SA IDIA, eigendur SA Gelmer, um kaup á verksmiðjunum. Þegar við- ræðumar voru á lokastigi söðluðu seljendur um og gengu til samn- inga við Islenskar sjávarafurðir. SH taldi að þama hefði réttur ver- ið brotinn á sér. Viðræðumar hefðu verið komnar það langt að ekki yrði aftur snúið, að minnsta kosti ekki með þeim hætti sem raun bar vitni. Þannig hafi samn- ingar verið tilbúnir til undirritunar eftir strangar viðræður, búið hafí verið að fastsetja dagsetningu og tíma undirritunar og ávísanir og fleiri skjöl sem nauðsynleg vom til að kaupin gætu farið fram vom til- búin. En þegar til átti að taka hefðu seljendur ekki mætt til und- ii-ritunarinnar og í ljós hefði komið að þeir vom búnir að söðla um. Kröfugerð SH byggðist á því ann- ars vegar að gildur kaupsamningur hefði í raun verið kominn á en til vara á því að samningaviðræðum hefði verið slitið með ólögmætum hætti. TiIIit til viðsemjanda Fyrra sjónarmiðið er vel þekkt í íslenskum rétti, þ.e.a.s. að þegar samkomulag hefur náðst um alla meginþætti kaupsamnings hafi stofnast gildur og bindandi samn- ingur og skiptir ekki máli hvort hann sé skriflegur eða munnlegur. Síðara sjónarmiðið um bætur fyrir ólögmæt slit samningaviðræðna er öllu meira framandi. Víkjum nánar að þessu. I frönskum rétti eins og íslenskum er samningsfrelsið meg- inreglan. Menn geta því að megin- stefnu shtið samningaviðræðum án þess að baka sér bótaábyrgð. Hins vegar geta menn samkvæmt frönskum rétti ekki hegðað sér al- veg eins og þeim sýnist að þessu leyti. Mönnum ber að taka visst til- lit til hagsmuna viðsemjandans, og hann kann að eiga bótarétt í und- antekningartilvikum. Þau atriði sem mæla með því að bótaréttur geti verið fyrir hendi eru a) hversu samningaviðræður eru langt komnar, b) sveigjanleiki aðilja, ef til dæmis annar aðilinn hefur fallist á mismunandi kröfur hins, sem fellur svo að ástæðulausu frá samn- ingi þá er um ólögmæt slit samn- ingaviðræðna að ræða, c) kostnað- ur sem aðiljar hafa lagt í viðræð- umar, d) ófyrirleitni, ef annar aðil- inn svo að segja skellir hurðinni á hinn, þá styður það bótarétt. Þótt þessi sjónarmið hafi ekki verið orðuð í íslenskum rétti er rétt að geta þess að vissulega getur framferði manna í samningavið- ræðum verið það ábyrgðarlaust að bótaábyrgð kæmi til álita eftir al- mennum skaðabótareglum, t.d. ef menn vísvitandi eða af skeytingar- leysi draga annan út í kostnaðar- samar viðræður án þess að hugur fylgi máli. Kröfugerðin Málið var höfðað gegn eigendum SA Gelmer og kaupandanum, Is- lenskum sjávarafurðum. Þess var krafist aðallega að a) viðurkennt yrði að gildur samningur hefði stofnast hinn 13. október 1997 milli SH og eigenda hlutabréfanna í Gel- mer um kaup á bréfunum fyrir 43.925.000 FF, b) að ógild yrði sala á greindum hlutabréfum til ís- lenskra sjávarafurða, c) lagt yi'ði fyrir stefndu eigendur hlutabréf- anna að undirrita sölusamninga til stefnanda á hlutabréfunum að við- lögum dagsektum 100.000 FF á dag, d) að stefndu yrði gert að greiða bætur að fjárhæð 1.000.000 FF fyrir hvem mánuð fram yfir 14. október 1997 sem tafist hefði að efna samninginn. Til vara í því til- viki að ókleift væri að efna kaup- samninginn krafðist stefnandi þess a) að seljendur hlutabréfanna greiddu 3.102.250 FF í bætur fyrir kostnað við undirbúning samnings- ins, b) bætur sem næmu mun um- samins kaupverðs til Islenskra sjáv- arafurða og verðsins sem sam- komulag hafði tekist um milli stefn- anda og seljenda vegna þess hagn- aðar sem Lanoy-fjölskyldan leysti út með sinnaskiptum sínum, c) 3.000.000 FF í miskabætur og d) 10.000.000 FF í bætur vegna ágóða- missis fyrir að verða af kaupunum. Til þrautavara krafðist stefnandi þess að viðurkennt yrði að stefndu, seljendur bréfanna, hefðu með ein- hliða og ólögmætum hætti slitið samningaviðræðum. Bæri þeim að greiða sömu bætur og greint var í varakröfu. títilokunarsamningur runninn út í dómi verslunarréttar Parísar sem féll 22. september síðastliðinn er aðal- og varakröfu hafnað með þeim rökum að stefnandi hafi ekki sýnt fram á að fullkominn sölu- samningur hafi stofnast milli aðilja að kvöldi hins 13. október 1997. Þau símbréf og skjöl sem gengu á milli aðilja eða lögmanna þeirra feli ekki í sér frágenginn samning með þeim hætti að eining hafi náðst um alla þætti kaupanna. Þrautavarakröfu er hafnað með þeim orðum að samkomulag sem aðilar hafi gengist undir um útilok- un annarra viðsemjenda hinn 4. september 1997 hafi runnið út 3. október 1997. Ekki hafi verið sýnt fram á að seljendur hafi rofið þenn- an einkaréttarsamning fyrir þann tíma. Þótt í augum stefnanda kunni slit samningaviðræðnanna og það hve seint Francis Lanoy lét vita að hann kæmi ekki til undirritunarinn- ar kl. 16 hinn 14. október að sýnast skyndileg og jafnvel ófyrirleitin þá verði sú háttsemi ekki álitin ólög- mæt. Ekki hafi verið lögð fyrir rétt- inn nein gögn sem sýndu að um ná- kvæma og óvefengjanlega skuld- bindingu af hálfu F. Lanoy hafi ver- ið að ræða að fylgja samningavið- ræðunum eftir innan tiltekins tíma. Stefnandi var dæmdur til að greiða málskostnað, 50.000 FF til handa SA IDIA, 100.000 FF til handa Lanoy-fjölskyldunni og 65.000 FF til handa íslenskum sjávarafurðum. Ekki er hins vegar rétt að SH hafi verið dæmt til að greiða stefndu bætur eins og fregnir hermdu í síðustu viku. Áfrýjun Fram hefur komið að SH hyggst áfrýja dómnum. Tvö dómstig eru fyrir ofan verslunarréttinn, áfrýj- unardómstóll Parísar og síðar Co- ur de Cassation. Franskir lögmenn SH segjast binda miklar vonir við áfrýjun enda sýni nýleg dómafram- kvæmd Cour de Cassation að strangar kröfur séu gerðar til þess að menn slíti ekki samningavið- ræðum á ófyrirleitinn hátt. Þá und- irstrika þeir að í verslunarréttinum sitji leikmenn, þ.e.a.s. menn af við- skiptasviðinu, en ekki löglærðir dómarar. Lögmaður ÍS í Frakk- landi vísaði þessu sjónarmiði á bug í samtali við Morgunblaðið. Það væri ómaklegt að gera lítið úr verslunarréttinum með þessum hætti, tölur sýndu að dómar hans væru ekkert frekar endurskoðaðir af æðri dómstólum en dómar lög- lærðra, auk þess væri það alþekkt víða um lönd að leikmenn kvæðu upp dóma, án þess að nokkur héldi því fram að réttlætinu væri þar síð- ur fullnægt.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.