Morgunblaðið - 03.10.1998, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1998 29
NEYTENDUR
Lífræn mjólk mætti seljast betur
LIFRÆNAR mjólkurvörur frá
Mjólkursamsölunni.
SALA á lífrænni mjólk hefur
ekki gengið eins vel og ýmsir
hugðu í upphafi. Einar Matthí-
asson hjá Mjólkursamsölunni
varð fyrir svörum þegar spurst
var fyrir um þetta mál og fleiri
sem varða sölu á lífrænum
mjólkurvörum. „Sala á lífrænni
mjólk hefur kannski ekki geng-
ið illa en við hefðum viljað sjá
hana seljast betur, því ekki er
alveg fullnýtt það magn sem
fellur til af lífrænni mjólk,“
sagði Einar í samtali við Morg-
unblaðið.
Hveijar telur Einar ástæð-
urnar fyrir þessari þróun?
„Kannski hafa ekki allir áttað
sig á hvers eðlis sú mjólk er,
sem þarna er um að ræða. Ein
af ástæðunum er að lífræn
mjólk er lítill liluti af mjólkur-
neyslunni og því geta ekki allar
verslanir haft hana á boðstól-
um. Geymslutími þessarar
mjólkur er ekki nema sex dag-
ar rétt eins og á hefðbundinni
mjólk, verslanirnar eiga því
erfiðara með að stýra innkaup-
um á lífrænu mjólkinni. Síðan
er sjálfsagt önnur ástæða sú að
mjólk þessi er ekki fitusprengd og
það er hlutur sem neytendur þurfa
að venjast. Við vonumst til að þró-
unin verði upp á við er tímar líða.
Það er erfíðara að vinna þessa
mjólk því hún má ekki blandast
saman við aðra vinnslu og verðum
við því að hafa sérstakan búnað við
vinnslu heimar. Að öðru leyti er
hún eins í vinnslu og ömiur mjólk -
nema hvað hún er ekki fitusprengd.
Um 100 þúsund lítrar verða til af
lífrænni mjólk hjá framleiðendum -
sem er innan við 0,3% af
heildarmagni mjólkur. Mjólk-
ursamsalan sendir á markað
75% af þeirri lífrænu mjólk
sem til fellur frá bændum. I
lítrum talið gætu það verið
um 70 til 80 þúsund h'trar.“
Mikil eftirspurn eftir
lffrænni AB mjólk
Hvað með aðrar lífrænar
mjólkurvörur? „Við erum
einnig með lífræna AB mjólk
sem framleidd er á Selfossi og
þar er eftirspum meiri en
framboðið, en sú vara hefur
lengra geymsluþol og því auð-
veldara að vera með hana í
öllum verslunum. Ekki er
áætlað að setja fleiri vörur af
þessu tagi á markað meðan
framboð á lífrænni mjólk er
ekki meiri en raun ber vitni.
Ef um þetta ætti að verða að
ræða þá þyrftu bændur að
breyta framleiðsluháttum sín-
um sem er kostnaðarsamt.
Fóðrið þarf að vera h'frænt,
ekki má nota tilbúinn áburð
við ræktun túna og grænmet-
is. Loks þarf að vera aðstaða
fyrir lausagöngu kúa sem get-
ur kallað á breytingu á húsum og
annarri aðstöðu.“
Hvernig hoi-fir þetta mál við í
öðrum löndum? „Erlendis neyta
menn víða lífrænna afurða og vilja
með því móti stuðla að meiri sjálf-
bærri framleiðslu. Þetta á sérstak-
lega við í löndum þar sem er mikið
land er notað undir landbúnaðar-
framleiðslu, eða álag vegna fram-
leiðslunnar er mikið. Erlendis hefur
sala á lífrænni mjólk aukist veru-
lega á undanfórnum áium, sérstak-
lega í Danmörku, en þessi þróun
hefur verið hægari í öðrum Norður-
löndum sem búa við lík skilyrði og
við hér á Islandi. Við horfum já-
kvæðum augum á þessa þróun hér á
landi og teljum að um áhugaverða
nýbreytni geti verið að ræða fyrir
ákveðinn hóp neytenda - þ.e. þá
sem aðhyllast þessa tegund af fram-
leiðslu," sagði Einar Matthíasson að
lokum.
Áhugi fólks á lífrænum
vörum vaxandi
Yggdrasill selur lífrænar vörur
af ýmsu tagi. Hvernig skyldi sú
sala ganga? „Við erum nær ein-
göngu með lífrænar vörur og salan
gengur vel,“ sagði Hildur Guð-
mundsdóttir hjá Yggdrasil. „Við
erum nýlega komin með lífræna
mjólk og seljum hana ásamt líf-
rænni AB mjólk. Salan á þessum
mjólkurtegundum hefur gengið
nokkuð vel það sem af er. Mest er
keypt hjá okkur af kornvörum,
hrísgrjónum, sykurlausu kexi, líf-
rænt ræktuðu grænmeti og ávöxt-
um svo eitthvað sé nefnt. Áhugi
fólks á Iífrænum vörum virðist fara
vaxandi," sagði Hildur enn fremur.
KiUfl
Smint
myntur
á markað
NÝLEGA voru settar hér á markað
sykurlausar Smint myntur. í frétta-
tilkynningu frá Danól, umboðsaðil-
anum sem flytur mynturnar inn,
segir að þeim sé ætlað að stuðla að
betri tannheilsu og hafi fengið við-
urkenningar frá samtökum tann-
lækna í Finnlandi, Svíþjóð og Nor-
egi.
Ennfremur segir að það sem gefi
Smint sérstöðu sé að í þær sé ein-
göngu notað Xylitol sætuefni sem
framkalli frískandi áhrif með því að
lækka hitastig í munni. Xylitol er
náttúrulegt efni sem „hindrar
myndun tannsýkla, dregur úr skað-
legum sýrum sem valda tannátu og
stuðlar að uppbyggingu nauðsyn-
legra steinefna í tönnunum," eins og
segir í fréttatilkynningunni.