Morgunblaðið - 03.10.1998, Page 58

Morgunblaðið - 03.10.1998, Page 58
58 LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Þórður Kristján Runólfsson fæddist í bænum Efri-Hrepp í Skorradalshreppi 18. september 1896. Hann lést á Sjúkra- húsi Akraness 25. september sfðastlið- inn. Foreldrar hans voru Ingibjörg Pét- ursdóttir, f. 22. júní 1868 á Ytri-Brekku í Andakílshreppi, d. 6.6. 1950, og Run- ólfur Arason, f. 13.11. 1863 að Syðstu-Fossum í Andakíls- hreppi, d. 3.8. 1940. Systkini Þórðar eru: 1) Pétur, f. 7.5. 1893, d. 3.5. 1972, 2) Ari, f. 3.12. 1894, d. 22.9. 1986. 3) Ingólfur, f. 28.9. 1898, d. 5.6. 1970. 4) Engilbert, f. 8.11. 1899, d. 14.6. 1996. 5) Laufey, f. 9.9. 1901, d. 4.6. 1933. 6) Lára, f. 30.9. 1903, d. 22.9. 1934. 7) Haraldur, f. 15.3.1906, d. 3.11.1965. 8) Vikt- oría, f. 18.12. 1908, d. 19.6. 1994. 9) Hörður, f. 7.4.1911. Barn að aldrei fluttist Þórður með foreldrum sinum að Háls- um í Skorradal og ólst þar upp. Árið 1913 fór hann sem vinnu- maður að Efstabæ í Skorradal og var þar í fjögur ár en fór þá að Fitjum í sömu sveit og var það önnur fjögur ár og einnig í vinnumennsku. Sonarkveðja Við komum hér og þökkum það sem var. Sá þungi er leggst á rúmrar aldarbil er saga manns sem byrðar sínar bar og brást ei því sem fáir vita á skiL Við kveðjum öldung, munum mann sem batt svo mikla tryggð við eigin heimasveit að aldrei brást Hann sagði öllum satt um sína tryggð við þennan harða reit. Sú stund er þekkt að verður orða vant og við því engin svör sem um er spurt. I vanda manns er vert að skoða grannt þá vegleysu sem nú er horfin burt. Hver minning sígur hægt í djúpan hyl þess horfna, í okkar breytta samfélag. Og margt af því sem tíminn hnikar til fer taumlaust inn í nýjan reynsludag. Og núna er hér lokið langri ferð í ljúfum friði eftir dagsins strið. I striti bóndans bjó að fyrstu gerð þau býsn er sagan geymir alla tíð. Ó. Þórðarson. Þessa kyrru haustdaga skartar Skorradalurinn sínu fegursta lit- skrúði. Lyng og runnar birta okk- ur litróf haustsins sem sjaldan hefur verið fegurra en einmitt núna. Þessa fegurð haustsins í Skorradal hafði bóndinn í Haga oftar litið augum en samferða- menn hans. Og meðan laufin falla til jarðar kveður hinn aldni bóndi og felur sig móður jörð sem svo sannarlega hafði brauðfætt hann á meira en aldarlöngum lífsferli. Það er tómarúm í huga mínum þegar hinn aldni vinur minn, Þórð- ur Runólfsson, kveður þessa jarð- vist. Tilvist hans hefur verið hluti af lífinu og því borgfirska um- hverfi sem hann tilheyrði. Hinn 1. maí 1920 kvæntist Þórður Halldóru Guðlaugu Guðjónsdóttur, f. 8.10. 1891, d. 13.5. 1982. Börn þeirra eru: 1) Óskar, f. 5.6. 1920, kona hans Svanfríður Ömólfs- dóttir. Börn þeirra: Amþór, f. 19.2. 1947, d. 26.5. 1994, andvana drengur f. 27.12. 1950, Svandís Ósk, f. 7.7. 1954, og Ársæll, f. 26.8. 1960. 2) Dóra, f. 26.4. 1925, hennar maður Teit- ur Damelsson, f. 12.10. 1924, d. 15.8. 1992. Synir þeirra: Þór- hallur, f. 7.4. 1949, Daníel, f. 15.8.1950, Grímar, f. 17.2.1952, Guðmundur, f. 21.1. 1954, og Auðunn, f. 6.1. 1957, d. 24.9. 1982. Þórður og Halldóra byijuðu búskap á Draghálsi í Svinadal á vordögum 1921 og voru þar í eitt ár en fluttu þá að Svanga í Skorradal (nafni breytt síðar í Haga), þar bjuggu þau siðan og Þórður þar einbúi í 14 ár eftir lát konu sinnar. Annan október 1996 flutti hann á Davlarheimil- ið í Borgarnesi. Hafði þá búið í Haga í 74 ár. Utför Þórðar fer fram frá Hallgrímskirkju i Saurbæ í dag og hest athöfnin klukkan 14. Þórður var þjóðkunnur maður, enda þótt hann gerði ekki víðreist um ævina. Hann var einstakur kjarkmaður sem komst oft í hann krappann og var þekktur fyrir harðfylgi og dugnað. Kona hans, Halldóra Guðjónsdóttir, stóð við hlið bónda síns í 62 ár. Saman unnu þau hörðum höndum myrkr- anna á milli af ótrúlegri þraut- seigju og nægjusemi á harðbýlli, óræktaðri kotjörð með litlu hús- næði. Þau létu ekki baslið buga sig en héldu ótrauð áfram að rækta jörðina þótt oft væri á brattann að sækja. Þau áttu það sameiginlegt að vera heiðarleg og orðheldin. Þórður sagði stundum: „Það stendur sem ég hef sagt.“ Og átti við að ekki þyrfti sérstaka pappíra fyrir hlutunum. Þórður var meðalmaður á hæð, grannur vexti og afburða léttur í spori. Hann lét sig ekki muna um að hlaupa langar bæjarleiðir, jafn- vel í næstu sveitir þegar þess gerðist þörf. Enda þótt hann hefði misst sjón á öðru auga af slysför- um hafði hann skarpa sjón. Fram- an af ævi stundaði hann vinnu ut- an heimilis með búskapnum og var eftirsóttur fyrir dugnað og ósér- hlífni. Hann var greindur maður, stálminnugur og þekktur fyrir frá- sagnargáfu sína, sem var einstök. Til dæmis mundi hann viðburði sem gerðust í byrjun aldarinnar, eins og þeir hefðu gerst í gær. Til hinstu stundar hlustaði hann á út- varp og fylgdist með fréttum. Hann sagði að það hefði verið erfitt að búa í Haga og ekki fyrir hvern sem var. Mestu máli skipti að hafa góða heilsu, og Þórður var sannarlega heilsuhraustur. „Það er dýrmætt að vera laus við allar pestir,“ sagði hann oft. Hann stundaði búskap í Haga samfellt til 100 ára aldurs, lengur en nokkur annar bóndi í þessu landi, en brá þá búi, eftir 74 ára bú- skap, og fluttist á dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi. Hann lést á Sjúkrahúsi Akraness eftir fárra daga vist, nýlega orðinn 102 ára. Eg kynntist Þórði fyrst 1962, þegar við hjónin, ásamt tengdafor- eldrum mínum, fengum að setja niður lítið sumarhús í landi hans. Þá hófust okkar fyrstu kynni og vinátta, sem aldrei bar skugga á. Það var notalegt að heimsækja þau hjónin heim í Haga. Halldóra hellti upp á könnuna og bauð flatkökur og kleinur, sem hún gerði öðrum betri. Þórður sagði fréttir og ræddi málin, hafði skoðanir á öllu og var ómyrkur í máli um menn og mál- efni. Einnig sagði hann sögur og rifjaði upp liðna tíma. Hann fræddi okkur um líf og störf fólksins á fyi-ri tíð og kunni ógrynni af sögum af samferðafólki. Hann sagði frá slarksömum ferðum sem hann hafði lent í. Svo sem lífsháska þeg- ar hann bjargaðist kaldur og hrak- inn úr Skorradalsvatni. Þá lenti hann í húsbnina þar sem hann bjargaðist á lítt skiljanlegan hátt. Stundum kom fyrir að sama sagan var sögð oftar en einu sinni, en aldrei skeikaði nákvæmni frásagn- arinnar, tímasetningar og lýsingar breyttust ekki þótt endurtekið væri með nargra ára millibili, þar var nákvæmnin eins og lesið væri af bók. Eg minnist hans við sláttinn, hann sló með orfi og Ijá, múgamir hlóðust upp svo undrafljótt í ljáfar- inu. Og við heyhirðinguna, þegar hann hnýtti baggana með hross- hársreipunum sínum og lyfti þeim léttilega eins og hann hefði fis í hendi. Einnig minnist ég margra stunda er hann kom í bústaðinn til okkar. Hann var léttstígur þegar hann koin upp á pallinn við bústað- inn, lyfti sér á tæmar, en það var háttur hans, og heilsaði glaðlega. Oft hafði hann meðferðis eitthvert góðgæti, svo sem egg í fötu, rjóma- pelaý sokk eða silung í soðið. „Ég lifi af því sem landið gefur,“ sagði hann stundum. Það mátti að vissu leyti til sanns vegar færa. Hann lagði net í vatnið og veiddi silung, ræktaði kartöflur, bjó til skyr og smjör úr mjólkinni. Kjötið hafði hann af kindum sínum og hænsnum. Þá spann hann gam úr ullinni og prjónaði sjálfur eigin sokka, svo nokkuð sé nefnt. Sem sannur bóndi taldi hann landbún- aðarafurðimar allra meina bót. Háan aldur sinn og góða heilsu þakkaði hann því að þær vora aðal- fæða hans. Á hundrað ára afmæli Þórðar, 18. september 1996, héldu ættingj- ar og vinir honum veislu í skáta- skálanum í Skorradal. Á afmælis- daginn skartaði Skorradalurinn sínu fegursta í haustlitum sem áttu engan sinn Hka. Sólin lét heldur ekki sitt eftir liggja og sendi hlýja geisla yfir dalinn. Á annað hundrað manns komu í veisluna. Þórður mætti á staðinn með bros á vör. Hann gekk heim að húsinu, beinn í baki og studdist við stafinn sinn. Gestimir fógnuðu honum með söng og lúðrablæstri. Þórður var hress og erfitt að hugsa sér að þar væri aldargamall maður að fagna með vinum sínum. Þegar Iitið er til baka, að lokn- um löngum starfsdegi Þórðar í Haga, minnumst við hins þrautseiga bónda sem aldrei gafst upp á hverju sem gekk. Sjálfstæð- ur vildi hann vera og sem minnst af öðram þiggja, eins og Bjartur í Sumarhúsum. Hins vegar stóð hann ekki einn. Fjölskylda hans og vinir reyndust honum afburða vel og best þegar hann var orðinn einbúi í Haga. Þær vora harðsótt- ar margar vetrarferðirnar sem Óskar sonur hans, sonarsynir og vinir Þórðar lögðu á sig til þess að flytja gamla bóndanum vistir. Síð- ustu tvö árin dvaldi Þórður á dval- arheimili aldraðra í Borgarnesi. Þar leið honum vel og naut ein- stakrar umhyggju og velvildar starfsfólks heimilisins. Með Þórði í Haga er genginn einn elsti bóndi þessa lands. Hann lifði öld mikilla breytinga, án þess að láta þær hafa of mikil áhrif á líf sitt, og hélt ótrauður áfram með sínu lagi, sem reyndist honum vel. Við Elín og okkar fjölskyldur höfum átt góða daga í skjóli Þórðar og Halldóra. Að leiðarlokum þökk- um við áralanga tryggð og vináttu og vottum fjölskyldu þeirra inni- lega samúð. Við biðjum vini okkar, Þórði í Haga, allrar blessunar. „Vertu ævinlega blessaður og sæll,“ en það vora hans kveðjuorð. Bragi Þórðarson. Góður maður er genginn. Þórð- ur Runólfsson bóndi í Haga í Skorradal andaðist 25. sept. síð- astliðinn, viku eftir 102 ára afmæl- isdaginn í sjúkrahúsinu á Akra- nesi. Við sem þessar línur ritum áttum því láni að fagna að kynnast þessum öðlingi og eiga með hon- um mörg ár í dalnum hans fagra. Þórður var vinmargur og þjóð- kunnur. I tilefni 100 ára afmælis hans 1996 kom út bók um hann, „Þórður í Haga, 100 ára einbúi“, sem Óskar sonur hans ritaði ásamt fleirum. Fréttamenn af báðum sjónvarpsstöðvunum, Rík- issjónvarpinu og Stöð 2 tóku við hann mörg viðtöl. Þórður hafði frá mörgu að segja, og kom þá glögg- lega fram rík frásagnargáfa og af- burðagott minni. Þórður sagði oft sögur allt frá aldamótunum og framundir það síðasta. Hann fylgdist vel með fréttum í útvarp- inu og íslensku efni sem boðið var upp á hverju sinni. Þegar við spurðum hann fyrir um ári hvort hann fylgdist ekki með fréttum í útvarpinu sagði hann: „Nei, ég er hættur að hlusta, þetta er orðið mest frá útlöndum." Á sjónvarpi hafði Þórður engan áhuga. Margar góðar minningar eigum við um Þórð. Löngum stundum sátum við í baðstofunni í Haga og hlýddum á sögumanninn, oft kom hann til okkar í hjólhýsin gang- andi, kominn undir tírætt, eða hann hljóp við fót sem oftar var. Þórður var jákvæður maður. Hann unni landi sínu og þjóð, og öllu sem íslenskt er. Hann var mikill verkmaður og stundaði bú- störfin af natni, braut land og breytti koti í dágóða bújörð. Hann starfaði mikið utan heimilis við vegagerð, skógrækt og margt fleira sem til féll, og oft var vinnu- dagurinn langur. Þórður stóð ekki einn, hann átti góða konu sem stóð við hlið hans í blíðu og stríðu. Hún hét Halldóra Guðlaug Guðjóns- dóttir mikil búkona, verklagin og dugleg. Þau eignuðust tvö börn, Óskar rafvirkja og rithöfund, og Dóra bónda á Grímarsstöðum í Andakílshreppi. Halldóra andaðist 1982 og saknaði Þórður hennar mjög. Hann talaði ávallt um hana með mikilli hlýju og virðingu. Það er margs að minnast og gaman væri að rifja upp ýmislegt úr frásögnum hans og lífi. Það verður ekki gert í þessum fáu minningabrotum. En til þess að lýsa eljusemi hans langar okkur þó til að segja frá þegar vatns- leiðslan frá vatnsbólinu fór í sund- ur. Þegar þetta gerðist var Þórður á 94. aldursári. Hann tók sér skóflu í hönd, og gekk uppfyrir bæinn og byrjaði að grafa niður á leiðsluna sem lá í jörð á um eins metra dýpi. 50 metra gróf hann áður en bilunin kom í ljós og hægt var að gera við. Mikill söknuður er að Þórði bónda í Haga. í okkar huga hefur dalurinn breyst og verður aldrei samur. Við biðjum algóðan guð að blessa minningu þessa góða vinar, og vottum öllum ættingjum hans samúð. Steinn og Anna, Eyjólfur og Svava. Formáli minningargreina ÆSKILEGT er að minningargreinum fylgi á sérblaði upplýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dá- inn, um foreldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í grein- unum sjálfum. ÞORÐUR KRISTJAN RUNÓLFSSON Nú látinn er eftir langa ævi Þórður langafi minn í Haga í Skorradal. í Skorradalnum bjó hann þangað til fyrir aðeins um tveimur áram, þegar hann fór á dvalarheimiii aldraðra í Borgar- nesi. Hann vildi ekki heyra minnst á elliheimili iyrr en þá, því honum fannst eUiheimili vera fyrir gamalt fólk og hann taldi sig ekki tilheyra þeim hópi. Hann bjó einn eftir að amma dó árið 1982 og naut hann aðstoðar margra góðra manna. Afa fannst Skorradalurinn fegursti staður á landinu og alltaf fannst honum besta veðrið þar, jafnvel þótt rigndi dögum saman, en þegar loksins stytti upp þá hrósaði hann veðurblíðunni í dalnum. Margar minningar á ég úr Skorradalnum. Einnig hef ég heyrt þaðan margar sögur, einkum frá pabba mínum sem dvaldi þar í góðu yfirlæti hjá afa og ömmu löngum stundum og öll sumur frá þriggja ára aldri. Hann var þeirra elsta barnabarn og tóku þau honum eins og sínum eigin syni, dekruðu við hann og létu hann komast upp með ótrú- lega hluti. Það sýndi sig best þegar hann fór að fullorðnast hvað hann bar sterkar tilfinningar til þeirra. Hann bar alltaf hag þeirra fyrir brjósti og hugur hans var ávallt hjá þeim. Öll sumur dvaldi ég og fjölskylda mín mikið í Skorradaln- um. Þegar við voram komin í okk- ar eigin sumarbústað kom afi yfir- leitt labbandi á morgnana um kl. átta til að vekja fólkið úr Reykja- vík, því það þurfti jú að sinna bú- störfunum. Eitt sinn man ég eftir því að við fjölskyldan fóram í tjaldferðalag og við krakkarnir vorum mjög spenntir að fara í tjald en sælan stóð ekki lengi. Pabbi hafði fylgst með veðurfréttunum og spáð var þurrki í Skorradalnum og máttum við taka saman tjaldið og halda áleiðis í Skorradalinn og bjarga „verðmætum" eins og svo oft var sagt. Afi kom eitt sinn og heimsótti okkur og gisti yfir nótt þegar við bjuggum í Stykkishólmi í stuttan tíma. Hvað hann skemmti sér vel í samræðum við fólkið, því gaman þótti honum að spjalla og segja sögur. Minnugur var hann mjög, og átti hann inni nokkurra áratuga heimboð á Snæfellsnes sem hann lét verða af að þiggja í þessari ferð. Voram við nú hrædd um að maður- inn sem bauð honum væri látinn en eftir eftirgrennslan um það héldu þeir afi og pabbi í heimsóknina og skemmti afi sér mjög vel. Þegar við vöknuðum um morguninn fóram við að athuga með afa og hafði þá sá gamli bragðið sér út á „hlað“ til að kasta af sér vatni, svona rétt eins og hann var vanur í sveitinni. Ekki kom afi oft til Reykjavíkur en síðast kom hann árið 1994 til að vera við jarðarför pabba, það var mikið áfall fyrir afa að missa Addó sinn. Sagðist hann þá hafa misst sinn besta vin. Allir sem til hans þekktu vissu um þrjósku hans og ákveðni og erfitt var að hagga því sem hann hafði ákveðið. Hann var mikil félagsvera og gaman fannst honum að fá heimsóknir. Gaman fannst honum að gantast við bömin mín. Oft þegar við voram að kveðja hann eftir dvöl í bústaðnum okkar spurði hann þau hvort þau vildu verða eftir hjá sér í sveitinni, vit- andi hvert svar þeirra yrði og svo hló hann við. Hann naut aðstoðar margra góðra manna og má þar að öðram ólöstuðum nefna fjölskylduvininn Mása. Reyndist hann honum mjög vel alveg fram á síðasta dag. Afí hefur án efa fengið góðar móttökur á himninum þar sem pabbi og Hall- dóra amma biðu hans. Hvíl í friði, afi minn. Aðeins sá, sem drekkur af vatni þagnarinnar, mun þekkja hinn volduga söng. Og þegar þú hefiir náð ævitindinum, þá fyrst munt þú hefja Qallgönguna. Og þegar jörðin krefst líkama þíns, muntu dansa í fyrsta sinn. (K. Gibran.) Dagný og fjölskylda.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.