Morgunblaðið - 03.10.1998, Side 67

Morgunblaðið - 03.10.1998, Side 67
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1998 67 FÓLK í FRÉTTUM ERLENDAR Ólöf Pétursdóttir þýðandi fjallar um nýjustu breiðskífu Céline Dion „S’il suffisait d’aimer". 'k'k'k'i Fágun og fag- mennska - fransk- ir konfektmolar TIL ER tónlist sem knýr sálina líkt og lækurinn mylluhjól. Hvaða tónlist? Það ræðst af smekk og skapgerð hvers og eins. Hingað til hafa dægurlagasöngkonur yfirleitt ekki verið ofarlega á blaði hjá mér og þar eru helstu undantekning- arnar þær Siouxsie, Nina Hagen og Björk. Ekki datt mér í hug að Céline Dion ætti eftir að slæðast í þann hóp. Céline Dion heitir kanadísk söngkona sem nú er orðin heimsfræg fyrir dæg- urlagasöng. Mönnum er kannski ferskast í minni titillagið úr Tit- anic, en afrekaskrá stúlkunnar er nú þeg- ar orðin býsna glæsi- leg. Céline varð fyrst þekkt austan Atl- antsála þegar hún keppti fyrir hönd Lúxemborgar í Evróvisjón fyrir um áratug. Sýndist sitt hverjum um það, að atvinnusöngkona úr annarri heimsálfu skyldi koma fram sem fulltrúi evrópsks smá- ríkis, ekki síst þegar hin unga Cé- line kom, sá og færði Lúxemborg- urum sigurinn á silfurfati, ýmsum tapsárum spiladósum til sárrar gremju. Gangi einhver enn með þá grillu að Evróvisjónsigur sé topp- urinn á snarbröttum tindi frama í dægurtónlist nægir að líta á feril Céline til að sannfærast um að svo er ekki. Hjá henni var í mesta lagi um að ræða stökkpall sem hún hefði þess vegna getað látið eiga sig að stíga á. Hún naut þá þegar góðs orðstírs heima fyrir og annar eins söngfugl og dugnaðar- forkur hefði slegið í gegn á heims- vísu hvort sem var. Reyndar muna kannski fæstir aðdáenda söngkonunnar eftir framlagi hennar í Evróvisjón, enda höfðar sú keppni ekki endilega til sama markhóps og Céline. Céline fæddist í Québec, frönskumælandi hluta Kanada, fyrir þrjátíu árum. Það sama ár kom de Gaulle, forseti Frakk- lands, í opinbera heimsókn og þótti storka stjórninni í Ottawa freklega er hann hrópaði til mannfjöldans: Lifi frjálst Québec! Tiltækið vakti gífurlega hrifningu franska minnihlutans og hressti rækilega upp á hvekkta þjóðern- iskennd hans. Það er einmitt sá hópur sem nú er hvað stoltastur af sigurgöngu Céline og aftur er þjóðerniskenndinni dillað. Loks- ins komst Québee á blað, frönsku- mælandi, kanadísk stúlka er nefnd í sömu andrá og ekki ómerkari kerlingar en Barbra Streisand og Whitney Houston frá þeim stóru Bandaríkjum. Það hefur líka fært Céline heimsfrægð að róa á sömu mið og fyrrnefndar stórsöngkonur, hún hefur gert út á tiltölulega fastmótaðan dægur- lagamarkað, þann sem er rang- lega kallaður alþjóðlegur. Diskurinn sem hér er til um- fjöllunar heitir S’il suffisait d’ai- mer. Hann er gjörólíkur öllu því sem ég hef áður heyrt með söng- konunni. Céline syngur hér lög og texta eftir hinn kunna, franska söngvara og lagasmið, Jean- Jacques Goldman, sem annast „Afurðin er víðs fjarri amerískri fjöldamenningu, allt önnur deild, mér liggur við að segja annað sólkerfi.“ jafnframt útsetningar. Þetta er annar diskurinn sem þau Goldm- an og Dion vinna að saman. Þarna fær Céline Dion að sýna á sér nýja og óvænta hlið og lyfta sér upp á æðra plan. Afurðin er víðs fjarri amerískri fjöldamenn- ingu, allt önnur deild, mér liggur við að segja annað sólkerfi. Hér minnir Céline hvorki á Streisand né Houston - hvaða grýlur eru það og hvað vilja þær upp á dekk? - heldur miklu fremur á Arethu Franklin og rennir það enn stoðum undir þann saman- burð hvað tónlist Goldmans er ríkulega blús- og gospelskotin. Súrsæt röddin svífur yfir nost- urslegum en fremur lágstemmd- um útsetningum, hún rís og hníg- ur í heillandi og þéttum laglínum og leikur þvílíka loftfimleika á köflum að manni þykir nærri því nóg um. Líkt og Aretha virðist Céline geta sungið hvað sem er átakalaust og raddir þeirra eru ekki ósvipaðar, báðar hafa þenn- an skæra og ferska, ögn hvella tón, báðar virðast alveg þindar- lausar. Céline skortir að vísu hlýju og sprengikraft Arethu en hún bætir það upp með eigin per- sónueinkennum, fjarlægri og dá- lítið kuldalegri fágun. Textar Goldmans eru ljóðrænir og ljúfsárir og skila sér vel í flutn- ingi Céline. Diskurinn S’il suffisait d’aimer er vel heppnað samvinnuverkefni þar sem summa tveggja lista- manna verður að margfeldi, óður til fagmennsku og fullkomnunar. CÉLINE Dion og Jean-Jacques Goldman. c MYNDBÖNP Tilvistar- vandi 10 ára drengs Glaðvakandi (Wide Awake)_______ Fjölskyldumynd kk Leikstjöri og handritshöfundur: M. Night Shyamalan. Aðalhlutverk: Jos- eph Cross, Rosie O’Donnell, Dana Delany og Denis Leary. (93 mín.) Bandarísk. Skífan, september 1998. Öllum leyfð. HINN 10 ára gamli Joshua er skarpur og heimspekilega þenkjandi drengur sem á erfitt með að sætta sig við fráfall afa síns. Hann gengur í kaþólskan drengjaskóla og veltir þar fyrir sér lífsins gátum og leitar sannleikans um tilvist Guðs. Glaðvakandi er nokkuð innihalds- rík af bandarískri barnamynd að vera. Unnið er með ýmsar heimspekilegar spumingar og persónuleg mál sem böm og fullorðn- ir geta þurft að glíma við. Um leið er myndin viðburðarík, skemmtilega sposk og almennt ágætlega leikin. Að- alleikarinn, Joseph Cross, er hins veg- ar (líkt og 90% bandarískra bama- stjama) hálfgert gerpi, sem verður verulega pirrandi á köflum. Hann veldur hlutverki sínu reyndar vel og er góður sögumaður, en ofleikur herfi- lega í tilfinningahlöðnum atriðum. Þetta verður til þess að væmnin fer töluvert yfir strikið, en burtséð frá því er hér um ágætismynd að ræða. Heiða Jóhannsdóttir Hljómsveitin Saga Klassl ■ Frábær danstónlist frá kl. 23.30 með hljómsveitinni Saga Klass og söngvurunum Sigrúnu Evu Ármannsdóttur og Reyni Guðmundssyni Ladcli og félagar fara á kostum í ferðabrausanum GLEDI.SONCUR OG FULLT AF GRÍNIISÚLNASAL Honda Civic 1.5 LSi VTEC 1.550.000,- Umboðsaðilar: Akureyri: Höldur, s: 461 3014 • Akranes: Bílver, s: 431 1985 • ísafjörður: Bílasala Jóels, s: 456 4712 Keflavík: B.6. Bílakringlan, s: 421 1200 • Egiisslaðir: Bila og Búvélasaian, s: 471 2011 HOIMDA Traustur bíll fyrir ungt fólk á öllum aldri 115 hestöfl Fjarstýrðar samlæsingar 4 hátalarar Hæðarstillanlegt ökumannssæti Sjálfskipting 100.000,- Verð á götuna: 1.435.000.- Sjálfskipting kostar 1 00.000,- HONDA Sími: 520 1100 1400cc 16 venlla vél með tölvustýrðri innsprautun4 Loftpúðar fyrir ökumann og farþega4 Rafdrifnar rúður og speglart ABS bremsukerfil Samlæsingar 4 14" dekk4 Honda teppasett4 Ryðvörn og skráning 4 Útvarp og kassettutæki4

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.