Morgunblaðið - 20.10.1998, Síða 4

Morgunblaðið - 20.10.1998, Síða 4
I I I I ! 4 ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1998 h MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Ný rannsókn á vörslu lögreglunnar í Reykjavík á ffkniefnum Hálft kiló af amfetamíni hvarf úr skrifborðsskúffu DÓMSMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur sett Ragnar H. Hall sem ríkislögreglustjóra til þess að efna til frekari rannsóknar á því hvað varð um fíkniefni, sem lagt hafði verið hald á og talið er að týnst hafi í vörslum lögreglunnar í Reykjavík. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins beinist rannsóknin að því hvað varð um 500 grömm af hreinu am- fetamíni sem hurfu úr skrifborðsskúffu lögreglu- manns fyrir nokkrum árum. I maí á síðasta ári lauk rannsókn sem Ragnar H. Hall vann sem settur ríkislögreglustjóri. I henni kom í Ijós að ekki fengust skýringar á því hvað orðið hefði um 3,5 kg af fíkniefnum í vörslum lögreglustjórans í Reykjavík. Pví máli lauk með þvi að Böðvari Bragasyni lögreglustjóra var veitt formleg áminning en hann var talinn bera stjóm- unarlega ábyrgð á vörslum fíkniefnanna. Að sögn Bjargar Thorarensen, skrifstofustjóra í dómsmálaráðuneytinu, hefur ráðuneytið nú ákveðið að skipa Ragnar settan ríkislögreglu- stjóra að nýju til þess að rannsaka nýjar upplýs- ingar sem fram eru komnar og tengjast því sem til rannsóknar var í fyrri rannsókninni. Hún vildi ekki tjá sig um það hvers eðlis upp- lýsingamar væra en samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins er um það að ræða að lögreglumaður hefur nýlega gefíð skýrslu um að hálft kíló af am- fetamíni, sem geymt var í ólæstri skrifborðs- skúffu á lögreglustöðinni, hafi horfíð með tOtekn- um hætti fyrir nokkram árum. Um hafi verið að ræða óvenjulega hreint amfetamín sem hafi mátt drýgja allt að því þrefalt fyrir sölu þannig að um gæti hafa verið að ræða 1,5 kg. í sölu á götunni. Björg sagði að skýringin á því að skipaður væri sérstakur ríkislögreglustjóri væri sú að Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri hefði um skeið verið varalögreglustjóri í Reykjavík og því væri hann formlega vanhæfur til að rann- saka málið. Ragnar hefði verið settur þar sem verksvið rannsóknarinnar væri hið sama og í fyrri rannsókninni. Ragnar H. Hall sagðist í samtali við Morgun- blaðið í gær vera byrjaður að skoða málið en rannsókn þess væri ekki hafin. Hann sagðist áætla að rannsóknin tæki ekki lengri tíma en eina tO tvær vikur. Þorsteinn Pálsson dómsmálaráðherra sagði ekki tOefni til þess að hann gæfi út yfirlýsingar vegna frétta um að rannsóknin nú tengist á ein- hvem hátt aðför að Böðvari Bragasyni lögreglu- stjóra. „Þetta er mál sem settur ríkislögreglu- stjóri er að skoða og það er ekki tilefni til þess að fjalla um það fremur en önnur mál sem eru tO skoðunar," sagði dómsmálaráðherra. Meirihluti bæjarráðs Hafnaríjarðar Hætt verði þátttöku í Jarðgufu- félaginu MEIRIHLUTI bæjarráðs Hafnarfjarðar hefur samþykkt að leggja til við bæjarstjóm að hætt verði þátttöku í Jarð- gufufélaginu svo fljótt sem verða má. Iðnaðarráðuneytið og Reykjavíkurborg standa að félaginu ásamt Hafnarfjarðar- bæ og er því ætlað að undirbúa jarðgufuveitu til iðnaðar við Straumsvík. I tillögu meh-ihluta bæjar- ráðs er gert ráð fyrir að bæj- arstjóra og bæjarlögmanni verði falið að slíta samstarfinu. I greinargerð með tillögunni segir að árangur af starfi Jarð- gufufélagsins valdi vonbrigð- um og að þeim fjármunum, sem bæjarfélagið leggi til verkefnisins, sé betur varið með öðram hætti. Bent er á að í undirbúningi sé endurskoðun á orkumálum almennt í bæjar- félaginu og að við þá endur- skoðun sé nauðsynlegt að hafa óbundnar hendur. Minnihluti bæjarráðs bókaði að hann stæði ekki að tdlögu meirihluta enda hafi málið ekki verið kynnt í bæjarráði. Jarðgufufélagið var stofnað árið 1996 og var gert ráð fyrir að undirbúningskostnaður væri 18 milljónir það ár sem skiptist jafnt á milli aðilanna þriggja en ljóst var að kostn- aður næstu tveggja ára yrði 200 milljónir. .... Morgunblaðið/Yann Kolbeinsson BJARTMÁFUR meö hvítmáf fyrir aftan sig á sjónum við Laugarnes. Farfuglarnir að yfirgefa landið NÚ ER sá tími kominn þegar allir farfuglar yfirgefa landið og halda suður á bóginn til meginlands Evrópu og Afríku. Sílamáfurinn er eina máfateg- undin sem yfirgefur landið en hins vegar er hann fyrsti far- fuglinn sem kemur hingað eftir dvölina í suðlægari löndum og sést hann yfirleitt fyrst í febrú- ar. Sílamáfarnir fara til V-Evr- ópu allt suður til Portúgals, en í staðinn fyrir silamáíinn kem- ur hins vegar önnur máfateg- und til landsins á veturna. Það er bjartmáfurinn sem ekki verpir hér á landi. Varpstöðvar hans eru á Grænlandi og ís- hafseyjum Kanada. Bjart- máfarnir eru mjög líkir hvít- máfum sem verpa hér á landi, en aðalmunurinn felst í því að bjartmáfurinn er fínbyggðari og minni. UNGUM sflamáfum svipar mjög til annarra ungra máfa. FULLORÐINN sflamáfur við Tjörnina í Reykjavík. Sjöfaldur pottur í lottó í fyrsta sinn Enginn með fímm rétta í FYRSTA sinn í sögu lottós á Islandi er potturinn sjöfaldur, en fyrsti vinningur gekk ekki út um síðustu helgi, þegar potturinn var sexfaldur. Að sögn Bolla Valgarðsson- ar hjá Islenskri getspá átti það ekki að geta gerst sam- kvæmt tölfræðilegum útreikn- ingum að enginn hlyti fyrsta vinning. „Miðað við þann fjölda raða sem keyptur var hefðu tæp- lega tveir átt að hljóta fyrsta vinning. „En svona er lottó, maður veit aldrei hvað gerist," segir Bolli. Fékk stálbita í höfuðið MAÐUR var fluttur á slysadeild eft- ú slys, sem átti sér stað í Vesturvör í Kópavogi um hádegi í gær. Slysið vai-ð með þeim hætti að vörubifreið sem var ekið eftir Vesturvör rakst á stálbita sem stóð aftur úr húsi kyrr- stæðrar vörubifreiðar í innkeyrslu í götunni. Náði bitinn út á götuna og við höggið þeyttist hann í höfuð öku- manns kyrrstæðu vörubifreiðarinn- ar, sem stóð við hana. Við skoðun kom í ljós að hann hlaut heilahristing og fékk að fara heim að lokinni að- hlynningu á slysadeild. --------------- Játa að hafa skotið eina álft HÆGT virðist þokast í rannsókn sýslumannsembættisins á Hvolsvelli vegna álftaveiðanna í Þykkvabænum í haust. Játning liggui- fyrir frá hin- um grunuðu, sem eru fjórir, um dráp á einni álft, en á þessu stigi er ekki Ijóst hvort höfðað verði mál gegn veiðimönnunum, m.a. vegna skorts á sönnunargögnum. Vitni að skothvellum veiðimann- anna era tvö tfl þrjú að sögn fulltrúa sýslumanns og búið er að yfirheyra önnur vitni sem gefið hafa sig fram. Rannsókn verður haldið áfram. ------♦“♦“♦---- Reykur í íbúðarhúsi SLÖKKVILIÐIÐ í Reykjavík var kallað út vegna mikils reyks í íbúðar- húsi við Hverfisgötu 106 á fimmta tímanum í gær. Þar hafði framleng- ingarsnúra brunnið vegna of mikfls álags og reykurinn myndast vegna þess. Engan sakaði og engar skemmdir hlutust af, en slökkviliðið reykræsti húsið. | Islenska járnblendifélagið hf. á Grundartanga Lokun vegna orkuskorts frestað til 1. névember Búnaðarbanki veiti aðgang' að minnisbókum BÁDIR bræðsluofnar íslenska járnblendifélagsins hf. verða í rekstri út október þar sem Lands- virkjun hefur frestað áður boðaðri skerðingu á afgangsorku gagnvart félaginu frá 20. október til 1. nóv- ember. Að óbreyttu verður því slökkt á báðum ofnunum frá og með næstu mánaðamótum, að sögn Bjarna Bjarnasonar, framkvæmda- stjóra Jámblendifélagsins. I fréttatilkynningu frá Lands- virkjun kemur fram að fyrirtækið hefur endurskoðað áður ákveðna skerðingu á afgangsorku til stór- iðju með hliðsjón af nokkrum bata sem átt hefur sér stað í vatnsbú- skapnum. Ástæðurnar eru aðallegá þær að meiri úrkoma hefur verið að undanförnu og minna álag frá almenningsrafveitunum og Norð- uráli en fyrri áætlanir gerðu ráð fyrir. Jafnframt hefur Landsvirkjun ákveðið að draga á svipaðan hátt úr skerðingu á afgangsorku til ISAL og Áburðarverksmiðjunnar hf. á þessu ári. Enn ekki skerðing á orku til almenningsrafveitna „Enn hefur ekki reynst nauðsyn- legt að láta koma til skerðingar á ótryggðu raímagni til almenningsraf- veitna, enda hefur verðið á slíku raf- magni verið hækkað í samræmi við gildandi gjaldskrá, sem hefur dregið úr eftirspum," segir í fréttatilkynn- ingunni frá Landsvirkjun. HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur staðfesti í gær fyrri úrskurð úr- skurðarnefndar um upplýsingamál þar sem Búnaðarbanka íslands hf. er gert skylt að veita Hauki Hólm, fréttamanni Stöðvar 2, aðgang að minnisbókum sem hafa að geyma upplýsingar um þá sem hafa haft af- not af íbúð Búnaðarbankans í Lund- únum, til og með 31. desember 1997. Búnaðarbanki íslands óskaði eftir ógildingu úrskurðar nefndarinnar, þar sem bankanum er gert skylt að veita Hauki aðgang að minnisbókun- um. Héraðsdómur hafnaði ósk Bún- aðai'bankans á þeim forsendum að með lögum nr. 50/1996 hafi almenn- ingi verið veittur aðgangur að gögn- um sem stafa frá stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga og einnig þeim einkaað- ilum sem hefur verið falið opinbert vald tfl að taka ákvarðanir um rétt eða skyldu manna sbr. 1. gr. laganna. Dómurinn segir yfírstjórn Búnaðar- bankans í höndum viðskiptaráðherra j og bankaráðs. Þar með fellur bank- p inn undir stjórnsýslu ríkisins og upp- lýsingalögin, að mati dómsins. Dómurinn telur minnisbækurnar sem um ræðir falla undir ákvæði 3. greinar upplýsingalaga og fellst því ekki á ósk Búnaðarbankans um að þær falli undir lög nr. 121/1989 um meðferð og skráningu persónuupp- lýsinga. Ekki er fallist á þá kröfu Búnaðarbankans að aðgangur að upplýsingunum skuli vera takmark- aður samkvæmt 5. gr. upplýsinga- laga, þar sem um sé að ræða afnot af íbúð á hendi opinbers aðila.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.