Morgunblaðið - 20.10.1998, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 20.10.1998, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1998 LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Blóðugur tarfur í beljufans Vaðbrekku, Jökuldal - Mikil átök eru í hreindýrahjörðunum um fengitíma hreindýranna þegar blóðug barátta stendur milli tarf- anna um að gagnast sem flestum kúm. Tarfarnir eru misjafnlega illa leiknir eftir átökin, ekki er óalgengt að þeir hljóti skinn- sprettur svo blóðið lagi úr. Einnig kemur fyrir að þeir hornbrotna í átökunum, jafnvel eru þess dæmi að hornin þver- kubbist niður við rót og þarf ekk- ert smáátak til að brjóta homin þar sem þau eru svemst. Einnig eru dæmi til um að greinar brotni af efst á krúnunni svo ljóst er að tarfarnir sjást ekki fyrir í hatrammri baráttu um kýrnar um fengitímann. Tarfarnir horast einnig mikið á fengitímanum. Þeir era feitir eftir að hafa safnað fituforða um sumarið, en eftir að fengitíminn byrjar hafa tarfarnir ekki tíma til að éta svo neinu nemi vegna þess að þeir em svo uppteknir af að berjast um kýrnar. Fengitím- inn gengur jafnvel svo nærri elstu törfunum að þeir lifa hann ekki af og drepast af vannæringu og sárum er þeir hljóta í átökun- um um kýrnar. Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson HIÐ nýja hús ísfirsku björgunarfélaganna. Isfírskar björgunarsveit- ir eignast nýtt húsnæði HJÁLPARSVEIT skáta á fsafirði, Karladeild Slysavarnafélags ís- lands og Kvennadeild Slysavarnafé- lags íslands hafa keypt nýtt hús- næði á Sindragötu 6 sem þau hyggj- ast nota sameiginlega undir starf- semi sína. Um er að ræða eignarhluta sem keyptur eru af Byggðastofnun, Fjárfestingabanka atvinnulífsins hf., Arnari G. Hinrikssyni hdl., Landsbanka íslands hf. og Gunn- vöru hf., alls 250 fm á neðri hæð og 617 fm á efri hæð, samtals 867 fm. Er hér um helmingsstækkun að ræða frá núverandi húsnæði félag- anna þar sem Sigurðarbúð, húsnæði slysavarnadeildanna, er um 220 fm og húsnæði Hjálparsveitarinnar um 200 fm. Um 210 fm af húsnæðinu eru tilbúnir til notkunar en það sem eftir er aðeins fokhelt. Skipuð hefur verið sérstök byggingarnefnd til að sjá um lokafrágang á því sem eftir er og standa vonir til að hægt verði að taka húsnæðið allt í notkun ekki síðar en næsta vor. Öll aðstaða fyrir félögin mun stórbatna og leiða til aukinnar hagræðingar í rekstri. Auk hefðbundinnar tækjageymslu á neðri hæð verða á efri hæð stór sal- ur, eldhús, stjómstöð vegna björg- unaraðgerða og ýmis önnur aðstaða fyrir félögin og félagsmenn. Formleg sameining áformuð á næsta ári Á sama tíma skrifuðu Hjálpar- sveit skáta á ísafirði, sem er með- limur í Landsbjörg, og Karladeild Slysavarnafélags ísafjarðar, sem er meðlimur í Slysavamafélagi Is- lands, undir samstarfssamning sín á milli sem tók gildi strax við undir- ritun og mun gilda þar til félögin sameinast formlega á næsta ári. í samstarfssamningnum er kveðið á um að félögin muni beita sér fyrir stofnun nýs Björgunarfélags á Isa- firði síðai' í mánuðinum sem verði utan aðildar að landssamtökum þar til annað verði ákveðið og að núver- andi félagsmenn Hjálparsveitar og Karladeildar verði sjálfkrafa með- limir hins nýja félags. Nýja félagið mun síðan taka á leigu öll tæki, áhöld, vélar og fasteignir í eigu Hjálparsveitarinnar og Karladeild- arinnar og reka í sínu nafni. Með því náist strax fram einföldun og hagræðing í starfi björgunarsveit- anna. Nýja félagið mun ennfremur yfirtaka samning Karladeildarinnar við Slysavarnafélag íslands vegna reksturs björgunarskipsins Gunn- ars Friðrikssonar og reka það áfram á sama hátt og verið hefur. Ennfremur mun hið nýja félag hafa yfirumsjón með Unglingadeild Slysavarnafélagsins á Isafirði, Haf- stjörnunni, í umboði Karladeildar- innar. Síðan er kveðið á um það að þegar allri formlegri undirbúningsvinnu sé lokið og afstaða landssamtakanna til þeirra mála sem fyrir þeim liggja er ljós verði félögin sameinuð og þá ekki síðar en 31. ágúst 1999. Fagleg um- hverfísumræða Egilsstöðum - Hópur frá Noregi kom og heimsótti Egilsstaði og fjall- aði um umhverfismál. Þetta voru fimmtán manns frá „Fylkeskomm- unalt miljöfaglig nettverk" sem er fagfélag sem starfar við umhverfis- og skipulagsmál í fylkjum Noregs. Félagið stendur fyrir árlegum kynnisferðum um umhverfismál og varð Island fyrir valinu að þessu sinni. Þegar leitað var eftir tillögum frá umhverfisráðuneytinu um hvert skyldi farið, var bent á Egilsstaði og því kom hópurinn þangað. Eftir tveggja daga skoðun í Reykjavík var haldið til Egilsstaða. Bæjarstjóri Austur-Héraðs, Björn Hafþór Guðmundsson, kynnti um- hverfisverkefni sveitarfélagsins ásamt Sigurborgu Kr. Hannesdóttur verkefnisstj óra. Hússtj ómarskólinn á Hallormsstað var heimsóttur og Skógrækt ríkisins þar sem starfs- menn kynntu starfsemi Skógræktar- innar og stöðina á Hallormsstað. Síð- an var farið með rútu í Laugarfell þar sem var f'arið í heitt bað. Hópur- inn lauk síðan heimsókn sinni með því að fljúga suður til Reykjavíkur og keyra síðan um „Suðurlandsund- irlendið" undir leiðsöng Málfríðar Kristjánsdóttur. Sigurborg Kr. Hannesdóttir, verk- efnisstjóri Umhverfisverkefnis á Austur-Héraði, sagði það vera mik- inn feng fýrir sveitarfélagið að fá heimsókn sem þessa. Væntanlega mun það verka sem vítamínsprauta fyrir faglega umræðu um það starf sem hér er unnið í umhverfismálum og til eflingar þeirra mála í heild sinni. Nýr skólastjóri Egilsstaðir - Birna Kristjánsdóttir tók við skólastjórastöðu Hússtjórn- arskólans á Hallormsstað nú í haust. Hússtjórnarskólinn var gerð- ur að sjálfseignarstofnun og er nú rekinn sem slíkur. Hann tekur 24 nemendur, bæði stelpur og stráka, og er námið ein önn, frá september til áramóta eða frá áramótum til vors. Hússtjórnarskólinn er í samstarfi við Menntaskólann á Egilsstöðum með ferðaþjónustubraut og hús- stjórnarbraut. Aðalnámsgreinar sem kenndar eru við skólann eru veitingatækni, hreinlætis-, næring- ar-, örverufræði, fatagerð, fata- hönnun og greinar tengdar vefnaði. Bima hefur nýlokið námi við Kaup- mannahafnarháskóla í menningar- miðlun. Hún starfaði í tvö ár hjá Morgunblaðið/Anna Ingólfs BIRNA Kristjánsdóttir skóla- sljóri Hússtjórnarskólans á Hallormsstað. Hönnun og handverki og þar áður gegndi hún starfi skólastjóra Heim- ilisiðnaðarskólans í 6 ár. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Grunnskólanem- endum fjölgar Blönduósi - Miklar breytingar hafa verið gerðar á húsnæði og nánasta umhverfí Grunnskólans á Blönduósi í því augnamiði að bæta aðgengi fyrir fatlaða og Rjúpnaveiði hafin á Húsavík Húsavík - Margir Húsvíkingar gengu til rjúpna fyrsta leyfilega veiðidaginn. Gönguveður var gott en nýfallinn snjór svo all- erfitt var að sjá rjúpuna. Ekki hafa borist fregnir af stórveiði, margir fengu 15 til 20 rjúpur, og segja má að veiðin hafi verið jafnari en oft áður. Einstaka menn náðu rúmlega 20 stykkjum en talan 30 stend- ur óhögguð enn. hefur m.a verið sett lyfta í skóla- húsnæðið. Breytingarnar hafa leitt til þess að aukið rými hefur skapast fyrir sérkennslu. Ymsir verktakar á Blönduósi gengu í þetta verk þegar mjög var liðið á sumar og Iuku því á undra- skömmum tíma. Skólayfirvöld gáfu almenningi kost á að sjá þessar breytingar og nýttu margir sér það. Helgi Arnarsson, nýráðinn skólastjóri, var ánægður með breytingarnar og sagði að þær kæmu sér vel þar sem nemendum við grunn- skólann hefði fjölgað á þessu skólaári og er það í fyrsta sinn í langan tíma sem það gerist. A myndinni má sjá Grím Gísla- son, fréttaritara útvarpsins á Blönduósi, í hópi nokkurra nem- enda gmnnskólans. Grímur lagði til að textinn sem fylgdi þessari mynd yrði: „Æskufólk á ýmsum aldri skoðar breytingarnar á Grunnskólanum á Blönduósi".
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.