Morgunblaðið - 20.10.1998, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1998 23
ERLENT
Reuters
PELLIBYLURINN Zeb skolaði flutningaskipi á land í Shimizu í Japan.
Fellibylurinn Zeb
gerir usla í Japan
Houston, Tókýó. Reuters.
FELLIBYLURINN Zeb, sem
varð nær 100 mönnum að íjör-
tjóni á Filippseyjum og Taívan,
gekk yfír Japan á sunnudag,
nieð þeim afleiðingum að ekki
færri en tólf manns létu lífíð.
Zeb er nú orðinn að hitabelt-
isstormi, en að sögn veðurfræð-
inga getur hann þó enn gert
talsverðan usla. Nokkur þúsund
manns neyddust til að yfírgefa
heimili sín á sunnudag vegna
flóðahættu og tugir slösuðust.
Oveðrið olli miklum truflunum
á flugi og lestarsamgöngum í
Japan, og fresta þurfti úrslita-
keppninni í hornabolta á laug-
ardagskvöld, japönskum
iþróttaunnendum til mikils
ama.
Oveður hrelldu einnig íbúa
Texas í Bandaríkjunum um
helgina. Óvenju miklar rigning-
ar ollu víða flóðum og yfír fímm
þúsund manns þurftu að flýja
heimili sín á laugardag af þeim
sökum. Skýstrókur varð einum
manni að bana í hjólhýsahverfí
í borginni Houston á sunnudag,
en alls hafa þrettán manns lát-
ist af völdum illviðris í Texas
undanfarna viku.
Vonir
bundnar
við nýtt
bóluefni
Washington. Reuters.
NÝ GERÐ bóluefnis, sem er
ódýrari og auðveldari í fram-
leiðslu en hefðbundin bóluefni,
gæti í framtíðinni varið fólk
gegn sjúkdómum á borð við
malaríu.
Bóluefnið er gert úr DNA-
kjamsýru veii-a og byggir upg
ónæmi líkamans fyrir þeim. í
nýrri rannsókn voru 20 sjálf-
boðaliðar sprautaðir með slíku
DNA-bóluefni gegn malan'u.
Eftir sex vikur hafði fjöldi
frumna, sem berjast gegn
malaríusýkingu, aukist til
muna, að sögn Stephens
Hoffmans, yfirmanns hjá lyfja-
rannsóknastofnun bandaríska
flotans. Rannsóknin beindist að
því hvort ónæmisviðbrögð
kæmu i ljós en ekki hvort bólu-
efnið kæmi í raun í veg fyrir
malai-íusmit. Slíkar rannsóknir
eiga að hefjast á næsta ári.
Hoffman sagði að DNA-bólu-
efni hefði ýmsa kosti umfram
þau sem nú eru notuð. Hefð-
bundin bóluefni eru gerð úr
fullvöxnum en veiktum veirum
og þeim fylgir ætíð nokkur
hætta á að sýkjast af veirunni
sem ætlunin er að vernda menn
gegn. DNA-bóluefni getur hins
vegar ekki valdið sýkingu.
Fjölbrautaskólinn
viðÁrmúla
Ármúla 12.108 Reykjavík • Sími 581 4022 • Bréfasími: 568 0335
HeimasíOa: www.fa.is
HEILBRIGÐIS-
SKÓLINN
Armúla 12, 108 Reykjavlk • Sími 581 4022 • Brifasími: 568 0335
Heimasíöa: www.fa.is
Innritun fyrir vorönn 1999
Innritun fyrir vorönn 1999 lýkur
föstudaginn 6. nóvember. Boðið er
upp á tveggja ára nám á uppeldis-,
viðskipta- og íþróttabraut og nám
til stúdentsprófs á félagsfræðibraut
með sálfræði-, félagsfræði-, hag-
fræði- og upplýsingatækni/tölvu-
vali, á náttúrufræðibraut með heil-
brigðis-, raungreina- og íþrótta-
fræðivali, og nýmálabraut.
í Heilbrigðisskólanum er innritað nú á
sjúkraliðabraut, nuddbraut, tann-
tæknabraut og lyfjatæknabraut, en
í vor verður innritað á námsbraut fyrir
læknaritara. Símenntunamámskeið fyrir
heilbrigðisstéttir verða auglýst sérstak-
lega.
Sérnám sjúkraliða verður að þessu
sinni í lyflæknishjúkrun.
Innritun stendur yfir og lýkur 16.
nóvember. Sémám sjúkraliða kostar
22.000 kr.
Umsókn um utanskólanám skal skilað fyrir 6. nóvember. Þeir
einir koma til álita sem áður hafa stundað nám við skólann.
Umsóknareyðublöð eru á skrifstofu skólans, sími 581 4022
og þangað ber að skila umsókn.
Skrifstofan er opin frá kl. 8-15.00 virka daga.
Námsráðgjafar og skólayftrvöld eru til viðtals á sama tíma.
Nákvæmar upplýsingar um nám í skólanum eru á heimasíðu hans,
www.fa.is.
Skólameistari.
www.mbl.is
Chanel, Prag, forsíóustúlkan, langir leggir, kvöldveróar-
boó, kampavín, síókjóll, brúðkaup, flugeldasýning,
mynd eftir Monet, Carmen, Skógafoss, Cary Grant,
noróurljósin og Renault.
Ármúli 13
Sími 575 1200
Söludeild 575 1220
RENAULT
r 1 m .llk ~ •
h' imk
•* IIIMfeit#
ÍS r t
ABS hemlakerfi, loftpúðar, fjarstýrð hljómtæki úr stýri, öryggisbelti með strekkjurum og dempurum, þrjú þriggja punkta belti f aftursæti, styrktarbitar í huröum.
Renault Mégane er öruggasti bíllinn í Evrópu í sínum flokki. Hann hlaut hæstu einkunn, fjórar stjömur, í öryggisprófunum hjá NACP.