Morgunblaðið - 20.10.1998, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 20.10.1998, Qupperneq 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1998 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Minningar- sjóður um Guðrúnu Katrínu AKVEÐIÐ hefur verið að stofna minningarsjóð um Guðrúnu Katrínu Þorbergsdóttur forsetafrú. Sjóðurinn verður helgaður málefn- um sem henni voru hugleikin, eink- um heilbrigði, menntun og listsköp- un ungs fólks. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Islands, segir í tilkynningu sem hann sendi fjölmiðlum í gær að ósk- ir og tilmæli hefðu borist fjölskyldu Guðrúnar Katrínar um að stofnað- ur yrði minningarsjóður um hana og hefði fjölskyldan fallist á það. Framlög í minningarsjóðinn verði skráð í sérstaka stofnendaskrá Minningarsjóðs Guðrúnar Katrínar Þorbergsdóttur. Þeim sem vilja minnast Guðrún- ar Katrínar með framlögum í minn- ingarsjóð hennar er vinsamlegast bent á reikningsnúmerið 140800 sem merkt hefur verið sjóðnum í öllum bönkum og sparisjóðum landsins. ------------- Bæjarstjórn Seltjarnarness Guðrúnar Katrínar minnst GUÐRÚNAR Katrínar Þorbergs- dóttur forsetafrúar var minnst á síðasta fundi bæjarstjórnar Sel- tjarnarness. Guðrún Katrín sat í bæjarstjórninni frá 1978 til 1994. Það kom í hlut Ernu Nielsen, for- seta bæjarstjórnar, að hafa orð fyr- ir bæjarfulltrúum. Hún sagði: „Guðrún Katrín sat í bæjarstjórn Seltjarnarness frá 1978 til 1994. Hún sat í ýmsum nefndum fyrir bæjarfélagið á þessum árum og var ötull málsvari flokks síns í bæjar- málum Seltjarnarness. Bæjarstjóm minnist Guðrúnar Katrínar með vinsemd og virðingu og sendir for- seta íslands, herra Ólafi Ragnari Grímssyni, og fjölskyldu hans inni- legrar samúðarkveðjur Seltirninga og biður góðan Guð að styrkja þau og styðja á sorgarstund." Bæjarfulltrúar risu síðan úr sæt- um til að votta samúð sína og virð- ingu. ------------- Fyrsta loðna haust- vertíðar FYRSTA loðna haustvertíðarinnar veiddist í fyrrinótt þegar Súian EA og Börkur NK fengu um 400 tonn hvort skip, um 50 mílur norðaustur af Langanesi. Að sögn Bjarna Bjarnasonar, skipstjóra á Súlunni EA, er talsvert að sjá af loðnu á svæðinu en ómögulegt að segja til um hvort meira verði úr veiðinni. „Það hefur verið slæmt veður á þessum slóðum og við sjáum ekki hvernig veiðarnar þróast fyrr en veðrið gengur niður.“ Auk Súlunnar EA og Barkar NK var Víkingur AK einnig kominn á loðnumiðin í gær. Bjarni sagði skip- in hafa leitað á stóru svæði undan- farna daga en ekki fundið loðnu í umtalsverðu magni fyrr en í fyrr- inótt. „Við köstuðum meðal annars norður af Horni en þar er loðnan blönduð og mikið af smælki innan um. Hér höfum við hinsvegar fengið góða loðnu og vonandi verður fram- hald á veiðinni." Rikisskattstj ori um fyrirspurn skattstjórans 1 Norðurlandskjördæmi eystra Hlutabréf á undirverði teljast til staðgreiðsluskyldra tekna RÍKISSKATTSTJÓRI hefur vegna fyiirspumar skattstjórans í Norð- urlandskjördæmi eystra gefíð út það álit að sala hlutabréfa til starfs- manna hlutafélags á verði undir markaðsverði sé eitt form endur- gjalds fyrir vinnuframlag og beri að líta á sem skattskyldar launa- greiðslur sem greiða ber stað- greiðsluskatta af. Halldór Krist- jánsson, bankastjóri Landsbanka íslands, segir að bankinn telji ekki að þetta álit eigi við um sölu á hluta- bréfum bankans til starfsmanna og hafi bankinn ritað Ríkisskattstjóra bréf þar sem afstaða hans og lög- fræðilegra ráðgjafa hans í þessum efnum sé skýrð. I bréfí ríkisskattstjóra er vísað til laga um tekju- og eignaskatt, en þar er að finna í 7. grein skilgreiningu á því hvað teljist til launatekna. Þar sé um að ræða mjög víðtækt ákvæði sem feli ekki í sér neina tæmandi upptalningu, en sérstök ástæða sé til að gefa gaum að orðalaginu „og aðrar hliðstæðar starfstengdar greiðslur, fríðindi og hlunnindi, svo og framlög og gjafir sem sýnilega eru gefnar sem kaupauki“. A það er bent að í viðkomandi til- viki standi það einungis starfs- mönnum hlutafélagsins til boða að kaupa hlutabréfín á hinu lága gengi. Því byggist þetta á ráðningarsam- bandi viðkomandi launamanns við fyrirtækið og verði að líta á það sem eitt form endurgjalds fyrir vinnu- framlag. „Um frjálst val starfs- manna er að ræða að nýta sér þetta tilboð um hlutabréf á undirgengi en ef þeir kjósa að gera það þá telst mismunur á því verði sem þeim stendur til boða og því verði sem al- menningi stendur til boða til skatt- skyldra launatekna," segir síðan. Þá er vísað til 13 gr. reglugerðar nr. 245/1963, en þar er hlutafjáreign í hlutafélagi nefnd sem dæmi um skattskyldar launagreiðslur og að „laun greidd í hlunnindum skulu talin til tekna eftir gangverði á hverjum stað og tíma“. Skattskyld- an verði því fyrst virk þegar starfs- mennirnir tilkynni félaginu að þeir taki tilboði þess. Það þýði í því tilviki sem um ræð- ir og varð tilefni þess að skattstjór- inn í Norðurlandskjördæmi eystra sneri sér til ríkisskattstjóra, að starfsmönnum ber að greiða skatt af mismuninum á genginu 5, sem þeir gátu keypt bréfin á, og genginu 9 sem almenningi stóð til boða að kaupa hlutabréfm á., Af þessu leiðir að greiðslur í þessu formi teljast einnig til staðgreiðsluskyldra launa- greiðslna samkvæmt 1. tölul. 5. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, með áorðnum breytingum," segir síðan. Þá bendir ríkisskattastjóri á að söluhagnaður viðkomandi hluta- bréfa sem keypt hafa verið á undir- verði teljist einnig skattskyldur og beri að greiða 10% skatt af honum. Líta verði svo á að kaupverð hluta- bréfanna sé sama verð og lagt var til grundvallar við skattlagningu þeirra sem launa. í umræddu tilviki sé því stofnverð bréfanna nífalt nafnverð. Ekki undirverð ef selt er á innra virði Halldór Kristjánsson, bankastjóri í Landsbanka íslands, sagði að sala á hlutabréfum í bankanum til starfsmanna hefði verið ákveðin um síðustu áramót, en þá hafi verið ákveðið að selja þeim á gengi sem miðaðist við innra virði bankans. Það sé ekki hægt að tala um að hlutabréf í óskráðu félagi séu seld á einhvers konar undirverði á meðan verðið miðist við innra virði eða sé hærra. „Þannig að við fáum ekki séð að þessi ákvörðun um að selja myndi neinn stofn til skattlagning- ar,“ sagði Halldór. Hann benti einnig á að ríkissjóð- ur hefði á undanförnum árum selt bréf í eigin félögum, eins og Járn- blendifélaginu, Lyfjaverslun og Jarðborunum og ávallt selt starfs- mönnum með sérstökum kjörum, þ.e.a.s. með því að veita starfs- mönnum vaxtalaus lán til kaupanna í allt að þrjú ár. Aldrei hefði komið upp umræða um skattskyldu í því sambandi, þ.e. að skattleggja mun- inn á vaxtalausum lánum og lánum með markaðsvöxtum. „Það að fara að skattleggja þetta form á ívilnun til starfsmanna í tengslum við einkavæðingu virðist við fyrstu sýn vera brot á hinni almennu jafnræð- isreglu í samfélaginu,“ sagði Hall- dór. Hann sagðist því ekki telja að það mál sem ríkisskattstjóri hefði gefið álit sitt á væri fordæmisgefandi fyr- ir sölu á hlut í Landsbankanum til starfsmanna og þeir hefðu gert rík- isskattstjóra grein fyrir því með því að senda honum rökstutt Iögfræðiá- lit þar að lútandi. Hins vegar væru svo margir sem ættu hlut í þessum efnum og mörg félög sem væru að fara inn á markaðinn að ef til vill væri æskilegast að taka af öll tví- mæli í þessum efnum með lagasetn- ingu. Kveðjuat- höfn í Bessa- staðakirkju NÁNUSTU ættingjar frú Guðrún- ar Katrínar Þorbergsdóttur for- setafrúar fylgdu kistu hennar frá Keflavíkurflugvelli til Bessastaða þar sem fram fór stutt kveðjuat- höfn í Bessastaðakirkju á laugar- dag. Níu lögregluþjónar úr Hafn- arfirði stóðu heiðursvörð á hlað- inu við kirkjuna er líkfylgdin kom í hlað. Þeir báru kistuna inn í Bessastaðakirkju undir orgel- leik Þorvaldar Björnssonar org- anista Bessastaðakirkju, sem lék Sorgarmars eftir Georg Friedrich Hándel. Séra Hans Markús Hafsteinsson, sóknar- prestur Garðaprestakalls, leiddi inn í upphafsbæn og fór með signingu og ritningarlestur. Þá flutti biskup íslands, herra Karl Sigurbjörnsson, bæn og blessun. Að athöfninni lokinni var leikið Intermezzo úr Cavalleria Rust- icana eftir Mascagni. Kista frú Guðrúnar Katrínar mun standa í Bessastaðakirkju þar til á morgun, miðvikudag, en þá fer útför forsetafrúarinnar fram frá Hallgrímskirkju kl. 11. Morgunblaðið/Árni Sæberg Utför forsetafrúarinnar gerð frá Hallgrímskirkju á morgun Norrænir þjdðhöfð- ingjar viðstaddir ÚTFÖR Guðrúnar Katrínar Þor- bergsdóttur forsetafrúar fer fram frá Hallgrímskirkju á morgun og hefst athöfnin kl. 11. Bein útsend- ing verður frá jarðarförinni í Ríkis- sjónvarpinu og Stöð tvö. Þjóðhöfð- ingjar Norðurlandanna verða við- staddir jarðarfórina. Meðal þeirra sem verða viðstadd- ir útfórina eru Margrét II Dana- drottning, Karl XVI Gústaf Svía- konungur, Haraldur V Noregskon- ungur og Martti Ahtisaari forseti Finnlands. Stöðugur straumur fólks hefur legið að Bessastöðum þar sem minningarbók um Guðrúnu Katrínu hefur legið frammi síðan á laugar- dag. Nokkur þúsund manns skráðu nöfn sín í bókina um helgina og bið- röð hafði myndast fyrir utan for- Morgunblaðið/Ásdis LÖNG röð myndaðist þar sem fólk beið eftir að fá tækifæri til að rita í minningarbókina. setabústaðinn í gær þegar hátíðar- salurinn var opnaður fyrir almenn- ingi kl. 13. Minningarbókin liggur frammi í dag milli kl. 13 og 18 í síð- asta sinn. Forsætisráðherra hefur ákveðið að fáni skuli dreginn í hálfa stöng við opinberar stofnanir á útfarar- daginn. Samkvæmt fánareglum á að draga fánann að hún og síðan fella, svo 1/3 stangarinnar sé fyrir ofan fánann. Við jarðarfór eða aðra sorgarathöfn skal draga fána að hún, þegar henni er lokið og skal hann blakta þar uns fánatíma lýk- ur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.