Morgunblaðið - 20.10.1998, Qupperneq 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Framboðsmál s.íálfstæðismanna á Suðurlandi skýrast síðar í haust
Arni Johnsen
stefnir á 1. sætið
ÁRNI Johnsen alþingismaður ætlar
að óska eftir stuðningi sjálfstæðis-
manna í Suðurlandskjördæmi við að
hann skipi fyrsta sæti listans í kom-
andi alþingiskosningum. Drífa
Hjartardóttir, sem skipaði 3. sætið
síðast, segist tilbúin að halda áfram
í pólitík en hefur ekki ákveðið hvaða
sæti hún sækist eftir. Ólafur
Björnsson lögmaður, sem var í 6.
sæti síðast, segist ekki hafa tekið
endanlega ákvörðun, en reiknar
með að stefna á 1. sætið.
Engin ákvörðun var tekin á kjör-
dæmisþingi sjálfstæðismanna í Suð-
urlandskjördæmi um síðustu helgi
um hvernig verður staðið að vali
frambjóðenda á lista flokksins í
næstu kosningum. Sigurður Einars-
son, formaður kjördæmisráðsins,
segir að kjördæmisráðið verði kall-
að saman fljótlega til að fjalla um
málið, en ákveðið hafi verið á fund-
inum að fresta umræðu um það.
Menn þurfí smátíma til að átta sig á
stöðunni, nú þegar fyrir liggi að
Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegs- og
dómsmálaráðherra, verði ekki í
kjön.
Ami Johnsen alþingismaður sæk-
ist eftir fyrsta sætinu. Hann var
fyrst kjörinn á þing 1983 og hefur í
þrennum kosningum setið í öðru
sætí listans.
„Eg hef alltaf sóst eftir öðru sæti
listans. Við breyttar aðstæður tel ég
að ég hafí þá reynslu og þekkingu
sem geti nýst mér til að leiða list-
ann. Eg gjörþekki kjördæmið enda
hef ég lagt mig fram um að vinna í
öllu kjördæminu. Það hefur komið
fram í skoðanakönnunum að Sunn-
lendingar telja mig í bestu sam-
bandi við fólkið í kjördæminu af
þingmönnum Suðurlandskjördæm-
is. Eg hef mikla reynslu af þjóðmál-
um almennt, ekki síst í gegnum
störf mín í fjárlaganefnd, þar sem
ég hef setið í 12 ár. Ég hef tekið þar
þátt í afgreiðslu um 50 þúsund
mála,“ sagði Árni.
Aðrir að hugsa málið
Drífa Hjartardóttir sagðist
ákveðin í að gefa kost á sér áfram.
Hún sagðist ekki hafa ákveðið í
hvaða sæti, en margir hefðu hvatt
sig til að stefna á fyrsta sætið.
Arnar Sigurmundsson, sem var í
fjórða sæti listans síðast, sagðist
enga ákvörðun hafa tekið um hvort
hann gæfí kost á sér, hvorki til eða
frá. Menn þyrftu nokkurn tíma til
að átta sig á stöðunni þegar slíkur
yfirburðamaður sem Þorsteinn
hætti í stjómmálum.
Ólafur Bjömsson, lögfræðingur á
Selfossi, sagðist ekki hafa tekið
endanlega ákvörðun, en reiknaði
fastlega með að gefa kost á sér í
fyrsta sæti listans.
Kjartan Ólafsson, formaður Sam-
bands íslenski-a garðyrkjubænda,
sagði aðspurður að hann hefði enga
ákvörðun tekið um framboð.
Frá 1983 hefur Sjálfstæðisflokk-
urinn á Suðurlandi alltaf viðhaft
prófkjör við val á frambjóðendum,
nema árið 1987 þegar kjördæmis-
ráðið valdi á listann. Viðmælendur
blaðsins sögðust vera opnir fyrir
báðum aðferðunum.
í síðustu kosningum fékk Sjálf-
stæðisflokkurinn tvo menn kjöma á
Suðurlandi. Eggert Haukdal, fyrr-
verandi þingmaður flokksins, bauð
hins vegar fram sérstakan lista en
náði ekki kjöri.
Þórunn Svein-
björnsdóttir
á Alþingi
ÞÓRUNN H. Sveinbjömsdóttir,
annar varamaður á lista Alþýðu-
flokksins í Reykjavík, tók í gær sæti
á Alþingi í fjarveru Magnúsar Árna
Magnússonar.
Þórunn hefur ekki
áður tekið sæti á
Alþingi og bar því
að undirrita
drengskapai'heit
að stjórnar-
skránni. Að því
búnu bauð forseti
Alþingis hana vel-
komna til starfa.
Við fráfall Ástu B. Þorsteinsdóttur
alþingismanns tók Magnús Árni
Magnússon sæti hennar á Alþingi.
Er hann 15. þingmaður Reykvík-
inga. Hann er hins vegar staddur er-
lendis þar sem hann stundar hag-
fræðinám og mun því ekki koma til
þings fyiT en í desember.
Guðlaugur Þór Þórðarson, fyi'sti
varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins
á Vesturlandi, tók einnig sæti á Al-
þingi í gær í fjarveru Sturlu
Böðvarssonar næstu tvær vikumar.
Guðlaugur hefur einu sinni áður tek-
ið sæti á Alþingi.
-----------------
Fyrirspurn um
upplýst sam-
þykki sjúklinga
TÓMAS Ingi Olrich, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, hyggst á næstu
dögum leggja fram á Alþingi skrif-
lega fyrirspurn til heilbrigðisráð-
herra um það hvort upplýsingar frá
sjúkrastofnunum fari inn á krabba-
meinsskrá Ki'abbameinsfélagsins
án þess að upplýsts samþykkis sé
krafist. Ennfremur hyggst hann
spyrja ráðherra að því hvort upp-
lýsingar frá sjúkrastofnunum á
krabbameinsskránni séu notaðar til
annarra rannsókna en upphaflega
var ráðgert með söfnun þeirra.
Tómas Ingi segir að með fyrir-
spurninni sé hann að vekja athygli á
því að með kröfunni um að upplýs-
ingar fari ekki inn í miðlægan
gagnagrann nema með upplýstu
samþykki sjúklinga sé hugsanlega
verið að skaða það rannsóknarstarf
sem nú þegar fer fram hjá stofnun-
um eins og Krabbameinsfélaginu.
Slíkar stofnanir stundi mjög athygl-
isverðar rannsóknir. „Það þarf að
skoða þessi mál vandlega til þess að
ekki sé verið að sníða þessum rann-
sóknum of þröngan stakk,“ segir
hann.
Samþykkt fyrir 160 þúsund rúmmetra grjótnámi í Geldinganesi
Morgunblaðið/RAX
UNNIÐ að gijótnámi ( Geldinganesi. Sjálfstæðismenn hafa lagt til í borgarstjórn að Iandnotkun verði breytt og Geldinganes tekið fyrir íbúðabyggð
eingöngu en engin hafnarmannvirki.
Tillögu sjálfstæðis-
manna um breytt aðal
skipulag vísað frá
VÍSAÐ var frá í borgarstjórn
Reykjavíkur síðastliðinn fímmtu-
dag tillögu borgarfulltrúa sjálf-
stæðismanna þess efnis að fyrir-
hugaðri landnotkun á Geldinga-
nesi verði breytt þannig að nesið
verði allt tekið undir íbúðabyggð.
í tillögunni var einnig lagt til að
fram færi ítarleg athugun á fram-
tíðarþörfum Reykjavíkurhafnar
fyrir athafnasvæði og staðsetn-
ingu nýs hafnarsvæðis.
I bókun borgarfulltrúa R-list-
ans segir að rangt sé að halda því
fram að sýnt hafí verið fram á að
unnt sé að byggja nýtt hafnar-
svæði í Kollafirði sem væri hag-
kvæmt eða skynsamlegt. Vísað er
í umsögn hafnarstjóra sem telji að
ekki sé unnt að fjalla um ýmsar
tæknilegar forsendur fyrir hafn-
argerð án rannsókna og bent á að
þær rannsóknir liggi ekki fyrir.
Greint er frá því að skipulags-
stjóri og hafnarstjóri hafi ekki
enn lokið umsögn um tillögu sjálf-
stæðismanna frá því í vor um að
hætta við hafnaráform í Eiðsvík.
í lok bókunarinnar segir: „Á
þessu stigi málsins eru því ekki
forsendur til að breyta aðalskipu-
lagi Reykjavíkur hvað varðar
landnotkun í Geldinganesi, tillaga
sjálfstæðismanna þar að lútandi er
ótímabær og henni því vísað frá.“
Að undanförnu hefur verið
unnið við gijótnám í Geldinganesi
og er þegar búið að vinna um 120
þús. rúmmetra. Þar af hafa um
100 þúsund rúminetrar farið í
lengingu Eyjargarðs um 250
metra, þar sem verið er að byggja
bryggju fyrir millilandaskip í ol-
íuflutningum. Vinnsla á efninu er
langt komin en gert er ráð fyrir
að verkinu ljúki um áramót. Þá
var samþykkt í hafnarstjórn að
leyfa að 60 þúsund rúmmetrar
verði teknir úr Geldinganesi til
fyllingar vegna skolpræsistöðvar
við Skarfaklett út af Laugarnesi
en samkvæmt umhverfismati er
heimilt að vinna um milljón
rúmmetra í Geldinganesi.
Alþýðubandalagið á Yestfjörðum
Fjöldi úrsagna og eitt
flokksfélag lagt niður
Alþýðubandalagsfélagið í Bolungar-
vík hefur verið leyst upp og flestir
félagsmanna sagt sig úr flokknum.
Á Hólmavík hefur 21 af um 30 fé-
lagsmönnum gengið úr félaginu þar
og skrifstofú Aiþýðubandalagsins í
Reykjavík hafa borist úrsagnir 26 af
30 félögum í Alþýðubandalagsfélag-
inu á Patreksfirði. Einnig hefur
Lilja R. Magnúsdóttir, varaþing-
maður Alþýðubandalagsins á Vest-
fjörðum, sagt sig úr flokknum.
Aðalfundur Alþýðubandalagsins í
Bolungarvík var haldinn á föstu-
dagskvöld. Jóhann Hákonarson,
sem var formaður félagsins, segir
að 12-14 af um 20 félagsmönnum
hafi verið mættir og að samþykkt
hafi verið einróma að leysa upp fé-
lagýð.
„I beinu framhaldi af því sendum
við bréf til Alþýðubandalagsins þar
sem við óskuðum eftir því að nöfn
okkar yrðu tekin af félagaskrá,"
segir Jóhann. „Undirskriftalisti
hafði ekki verið látinn ganga til
þeirra sem ekki voru á fundinum,
en ég býst að flestir sem voru í fé-
iaginu muni fara sömu leið.“
V eiðiley fagj aldið
landsbyggðarskattur
Jóhann segir að félagsmennimir
muni fylgja Kristni H. Gunnarssyni
alþingismanni að málum, og sama
segir Már Olafsson, fyiTverandi for-
maður Alþýðubandalagsfélagsins á
Hólmavík. Á fundi sem haldinn var
á Hólmavík á föstudagskvöld
ákváðu allir fundarmenn og nokkrir
félagsmenn tii, samtals 21, að segja
sig úr félaginu og Alþýðubandalag-
inu. Már segir að enn séu eftir 8-9
manns í félaginu. Aðspurður um
ástæður úrsagnanna bendir Már á
þá gagnrýni sem Kristinn hefur
beint að samfylkingu félagshyggju-
flokkanna.
Lilja segir að óánægja með það
hvernig viðræður félagshyggju-
flokkanna hafi þróast valdi úrsögn
sinni. „Það sem stendur upp úr, þótt
það sé ekki eitt og sér aðalatriðjð,
er umræðan um veiðileyfagjald. Ég
held að það muni koma mjög illa
niður á landsbyggðinni ef sett verð-
ur á veiðileyfagjald en fiskveiði-
stjórnunarkerfið verður óbreytt.
Þetta verður fyrst og fremst lands-
byggðarskattur ofan á óréttlátt
kerfi.“
Lilja segist hafa áhuga á að vinna
með því fólki sem stefnir að stofnun
nýs flokks á vinstri væng stjórnmál-
anna. Hún segir nokkuð hafa verið
um úrsagnir úr Alþýðubandalagsfé-
laginu í Isafjarðarbæ en ekki sé
orðið ljóst hversu margar þær verði
að lokum.