Morgunblaðið - 20.10.1998, Page 34

Morgunblaðið - 20.10.1998, Page 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1998 35 v ÁKYÖRÐUN ÞORSTEINS PÁLSSONAR AKVÖRÐUN Þorsteins Pálssonar um að hætta þátttöku í stjórnmálum og gefa ekki kost á sér til framboðs í Suður- landskjördæmi í alþingiskosningunum næsta vor hefur áreið- anlega komið mörgum á óvart en er skiljanleg. Þorsteinn Pálsson hefur verið í forystusveit Sjálfstæðisflokksins sam- fellt um 15 ára skeið. Hann var kjörinn á þing, sem fyrsti þingmaður Suðurlandskjördæmis í alþingiskosningunum 1983 og þá um haustið var hann kjörinn formaður Sjálfstæðis- flokksins, þegar Geir Hallgrímsson lét af formennsku. Tveim- ur árum seinna tók hann við embætti fjármálaráðherra og fjórum árum eftir að hann var kjörinn á þing, vorið 1987, myndaði hann ríkisstjórn þriggja flokka, sem sat fram á haust 1988. Hann gegndi starfi formanns Sjálfstæðisflokksins í tæp átta ár eða fram á landsfund 1991 og hefur setið í ríkisstjórn samfellt síðan. Þetta er glæsilegur stjórnmálaferill, þótt hann hafi verið sviptingasamur á köflum. Formannstími Þorsteins Pálssonar í Sjálfstæðisflokknum var erfiður enda tók hann við formennsku í kjölfar mikilla átaka innan forystusveitar Sjálfstæðisflokks- ins, sem staðið höfðu í mörg ár og áttu rætur að rekja allt aftur til forsetakosninganna 1952. I formannstíð sinni þurfti Þor- steinn því að takast á við eftirstöðvar þeirra átaka. Ráðherraferill Þorsteins Pálssonar er orðinn lengri en flestra annarra forystumanna Sjálfstæðisflokksins á síðari tímum. A ráðherraárum sínum hefur hann komið að mörgum málum en minnisstæðust er barátta hans fyrir staðgreiðslu skatta, grundvallarbreytingar á dóms- og löggæzlumálum og barátta hans fyrir málefnum sjávarútvegsins og núverandi fískveiðistjórnunarkerfi. Þótt Morgunblaðið og Þorsteinn Pálsson hafi verið á önd- verðum meiði í átökunum um fískveiðistjórnunarkerfið og orðaskipti á milli ráðherrans og blaðsins hafi oft verið harka- leg af þeim sökum hefur aldrei slitnað sá þráður, sem til varð á milli blaðsins og ráðherrans, þegar hann ungur að árum kom til starfa á ritstjórn Morgunblaðsins og hóf skrif um stjórnmál í blaðið. Þegar Þorsteinn Pálsson hverfur af vettvangi stjórnmál- anna næsta vor fylgja honum góðar óskir gamalla samstarfs- manna hans á Morgunblaðinu á þeim starfsvettvangi þar sem hann kýs að hasla sér völl. SVARAÐ TIL SAKA OHÆTT ER að segja, að handtaka Augustos Pinochets, einræðisherra í Chile á árunum 1973-1990, hafi komið heimsbyggðinni á óvart. Pinochet var á sjúkrahúsi í London, þegar hann var handtekinn að tilmælum spænskra dómara, sem rannsaka brot gegn spænskum borgurum á valdatíma hans. Spænsku dómararnir vísa í Evrópusáttmála gegn hryðjuverkum í rökstuðningi sínum fyrir handtökukröfunni. Ennþá er óvíst um framvindu málsins, en það er til merkis um, að hvers kyns mannréttindabrot og glæpir gegn mann- kyni verða framvegis teknir fastari tökum á alþjóða vettvangi. Það eru gleðtíðindi, sem sýna valdamönnum, að þeir eru aldrei óhultir um að þurfa að svara fyrir illvirki sín. Handtaka Pinochets er enn eitt merkið um lok kalda stríðs- ins og þau breyttu viðhorf, sem orðin eru á alþjóðavettvangi í afstöðu til mannréttindabrota. Gleggsta merkið er störf al- þjóðlegs stríðsglæpadómstóls í Haag á vegum Sameinuðu þjóðanna, sem komið var á fót vegna stríðsátakanna í Bosníu. Allnokkrir einstaklingar hafa verið handteknir og færðir fyrir dómstólinn vegna hryðjuverka þar. Helztu leiðtogar Bosníu- Serba, eins og t.d. Radovan Karadzic og Ratko Mladic hers- höfðingi hafa þó enn sloppið við handtökur, því Milosevic Jú- góslavíuforseti er sagður halda yfir þeim verndarhendi. Þeir verða hins vegar örugglega handteknir láti þeir sjá sig í nokkru lýðræðisríki. í júlímánuði sl. var samþykkt á ráðstefnu SÞ í Róm, að setja á stofn alþjóðlegan sakamáladómstól, sem mun dæma í málum einstaklinga, sem ásakaðir eru um glæpi gegn mann- kyninu, þ.e. fjöldamorð, stríðsglæpi, glæpi gegn mannúð og glæpi gegn friði. Samningurinn um dómstólinn, sem verður í Haag, tekur gildi þegar 60 þjóðir hafa fullgilt hann. Island hefur þegar undirritað samninginn með fyrirvara um stað- festingu Aiþingis. Slíkur fastadómstóll mun vonandi í framtíð- inni fæla valdamenn frá hvers kyns mannréttindabrotum. Dalabyggð skilgreind sem jaðarbyggð í erfiðleikum í nýrri skýrslu FRAM kemur nokkuð dökk mynd af búsetuþróun í Dalabyggð í skýrslu sem Haraldur L. Haraldsson hjá Nýsi hf. hefur unnið fyrir nýja sveitarstjóm. Ber hún nafn- ið Dalabyggð, stöðumat og framtíðar- sýn. Fram kemur að íbúum hefur fækkað um rúm 30% á síðastliðnum tuttugu árum og þar af hefur 21% íbú- anna tapast á síðustu tíu áram. Hér- aðið er jaðarbyggð samkvæmt skil- greiningu Byggðastofnunar. Jafn- framt kemur fram að tekjur í Dala- byggð eru 30% undir landsmeðaltali enda er þriðjungur starfa við land- búnað. Ibúarnir voru 737 um síðustu áramót. Breytingar í sveitarstjórn „Niðurstöðurnar koma ekki á óvart. Dalabyggð er jaðarbyggð í mikilli varnarbaráttu og birtist það í þessari skýrslu,“ segir Sigurður Rúnar Frið- jónsson, oddviti Dalabyggðar. „Við bindum hins vegar vonir við breytt viðhorf stjórnvalda til byggðamála en það birtist meðal annars í þingsálykt- unartillögu Davíðs Oddssonar forsæt- isráðherra um stefnu í byggðamálum þar sem fram kemur að stefnt er að 10% fjölgun á landsbyggðinni. Við teljum að samþykkt slíkrar tillögu og aðgerðir í kjölfar hennar geti brejdt myndinni hér veralega." Nokkur umskipti urðu í sveitar- stjórnannálum í Dalabyggð við síð- ustu kosningar. Þá náði einn listi hreinum meirihluta, S-listi Dala- byggðar, undir forystu Sigurðar Rún- ars, en það er í fyrsta skipti frá stofn- un hins sameinaða sveitarfélags sem eitt framboð nær meirihluta. S-listinn er þverpólitískt framboð en helstu forystumenn þess eru sjálfstæðis- menn. L-listi Samstöðu sem beið lægri hlut í kosningum er með sama hætti tengdur Framsóknarflokknum. Eftir kosningamar var ákveðið að endurnýja ekki ráðningarsamning fyrri sveitarstjóra en Stefán Jónsson, 41 árs viðskiptafræðingur, ráðinn í hans stað. Kom Stefán til starfa 15. september. Eitt af fyrstu verkum nýrrar sveit- arstjórnar var að fá Harald L. Har- aldsson, hagfræðing og fyrrverandi bæjarstjóra, til að gera stöðumats- skýrslu. Sigurður Rúnar segir að meginástæðan fyrir því að það var gert sé sú öfugþróun sem hafi verið í Dölunum undanfarna tvo áratugi og sú staðreynd að ekki hafi tekist að snúa þróun byggðarinnar við. Skýrslan er unnin út frá rannsókn- um Stefáns Olafssonar prófessors á ástæðum búferlaflutninga þar sem fram kemur að íbúar jaðarsvæða eru óánægðastir með húshitunarkostnað, næstmest er óánægja með verðlag og verslunaraðstæður og loks með lagn- ingu vega og viðhald. Jafnframt koma fram tillögur til úrbóta með hliðsjón af þessu og þeim til stuðn- ings er vitnað í þingsályktunartil- lögu forsætisráðherra í byggðamál- um og ályktun Alþingis um skipan nefndar til að gera tillögur um efl- ingu sauðfjárbúskapar á jaðarsvæð- um en ályktunin var samþykkt að til- lögu alþingismannanna Stefáns Guð- mundssonar og Einars Odds Krist- jánssonar. Búskapur dregist saman Fram kemur að þrátt fyrir mikinn samdrátt í landbúnaði á landinu öllu hefur búskapur í Dalabyggð dregist enn meira saman. I Búðardal eru mjólkursamlag og slátur- _________ hús. í skýrslu Nýsis er lagt til að skipaður verði vinnu- hópur til að gera tillögur til lausnar vanda landbúnað- arins. Dalabyggð hefur út- nefnt Stefán Jónsson sveit- arstjóra en Byggðastofnun og Hagþjónusta landbúnaðarins munu einnig tilnefna fulltrúa í hópinn. Stef- án segir að starfshópurinn muni hafa hliðsjón af umgetinni ályktun Alþingis um eflingu sauðfjárbúskapar í jaðar- byggðum enda falli aðstæður í Dala- byggð nákvæmlega að henni, meðal annars ákvæðum um eflingu sauðfjár- búskapar þar sem beitilönd eru van- nýtt. Þá segir sveitarstjórinn að einnig verði litið til mjólkurframleiðslunnar. Reiðubúnir að fjárfesta í framtíð- armöguleikum Dalabyggð á í vök að verjast og staðfestist það í nýrri skýrslu um stöðu byggðarlagsins. Stjórnendur sveitarfélagsins eru hins vegar með stórbrotnar hugmyndir um að snúa vörn í sókn með uppbygg- ingu ferðaþjónustu samfara samgöngubótum og lagningu hita- veitu. Eins og fram kemur í grein Helga Bjarnasonar vonast þeir til að kaflaskiptin verði árið 2000 þegar landafundanna verður minnst á fæðingarstað Leifs heppna. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason DALAMENN snúa vörn í sókn, Stefán Jónsson sveitarstjóri (t.v.) og Sigurður Rúnar Friðjónsson, oddviti Dalabyggðar, stýra sókninni. Heilsárshótel á Laugum í Sælingsdal undirbúningi Stefán segir að hugmyndin sé að meta stöðu landbúnaðarins í sveitar- félaginu, skoða af hverju samdráttur- inn stafar og koma með tillögur til úr- bóta. Hann segir að margt komi til greina en vinnan verði að leiða í Ijós möguleikana. Til stuðnings fulltrúa Dalabyggðar í starfshópnum hefur verið stofnaður vinnuhópur ungi-a bænda í Dalabyggð og bindur Stefán miklar vonir við að það leiði til þess að fram komi nýjar og ferskar hug- myndir. Uppbygging ferðaþjónustu í skýrslunni era kostir svæðisins dregnir fram. Meðal annars bent á náttúrufegurð héraðsins og að þar eru margir sögufrægir staðir sem ættu að geta laðað að ferðamenn. Stefán segir að það veki at- hygli sína hvað fáir ferða- menn sæki héraðið heim og hvað þar sé lítil þjónusta við ferðafólk, í ljósi þess að .....- héraðið er, með tilkomu Hvalfjarðarganga, í svip- aðri fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu og Mýrdalurinn þar sem byggt hefur verið eitt gistihús á ári í mörg ár og mikið að gerast í ferðamálum. Sigurður Rúnai- segir að undirbún- ingur sé hafínn að byggingu heilsárs- hótels á Laugum í Sælingsdal. Hug- myndin er að breyta hluta af skóla- húsnæðinu í fyrsta flokks hótel með 21 herbergi. Kostnaður er áætlaður rúmar 50 milljónir kr. Rætt er við hótelkeðju um langtímaleigusamning og vonast Sigurður til þess að hótelið verði opnað 1. júní á næsta ári. Einnig standa vonir til að þjónusta við ferða- menn verði bætt og aukin víðar, meðal annars í Búðardal. I Dalabyggð verður væntanlega einn af miðpunktum aldamótaársins 2000 þegar þess verður meðal annars minnst að þúsund ár eru liðin frá því Vínland fannst. Ákveðið hefur verið að byggja upp bæ Eiríks rauða á Eiríks- stöðum í Haukadal, þar sem Leifur heppni fæddist, og koma upp góðri að- stöðu til að taka á móti ferðafólki. Einnig er áhugi fyrir því að byggja safnahús í Búðardal og setja upp Vín- landssýningu fyrir árið 2000. Unnið hefur verið að fornleifarannsóknum á Eiríksstöðum og á næstunni hefjast þar framkvæmdir við bílastæði og aðra aðstöðu. Stefnt er að hátíðarhöld- um aðra helgina í ágúst árið 2000 og eiga Dalamenn þá von á 10 þúsund gestum, meðal annars háttsettum full- trúa Bandaríkjastjórnar, að sögn Sig- urðar Rúnars, hugsanlega forseta eða varaforseta. „Hér er að sjálfsögðu um að ræða heimssögulegan atburð sem varðar alla þjóðina. Frumkvæði okkar í því að minnast landafundanna er ákaflega mikilvægt fyrir Dalina að því leyti að þeir komast inn á landakortið í ferða- málunum, ef vel tekst til. Síðan þurfa einstaklingarnir að taka við, sjá mögu- leikana í ferðaþjónustunni og gefa sig að henni. Við fáum ómetanlega kynn- ingu með hátíðarhöldunum árið 2000 og búast má við að 30 til 50 þúsund manns komi að Eiríksstöðum á hverju ári eftir það. Það skapar möguleika sem íbúarnir þurfa að nýta,“ segir Sigurður Rúnar. Vilja flýta framkvæmdum á Bröttubrekku Forsenda þess að unnt verði að nýta meðbyrinn til aukinnar ferða- þjónustu í Dölunum og að efla verslun og þjónustu er að aðalvegurinn inn í héraðið, vegurinn um Bröttubrekku, verði endurnýjaður fyrir árið 2000, að mati oddvita og sveitarstjóra Dala- byggðar. Vegurinn er aðaltenging Dalanna við hringveginn, leiðin þar um er 22 km styttri en vegurinn um Heydal. Vegurinn um Bröttubrekku er frá árinu 1932 og stenst ekki kröf- ur nútímamanna eða staðla ________ EES-samningsins. Endur- bæturnar era á langtimaá- ætlun í vegagerð og er gert ráð fyrir framkvæmdum á áranum 2003 til 2006. Dalamenn leggja höfuðá- ——— herslu á að framkvæmdun- um verði flýtt. Sigurður Rúnar bendir á að endurnýjun vegarins kosti ekki nema um 300 milljónir. Þegar séu til ráðstöfunar á vegaáætlun 60 milljónir og undirbúningur langt kominn. Hægt sé að hefjast handa með stutt- um fyrirvara þegar aukið fjármagn fæst. Sigurður Rúnar færir meðal ann- ars þau rök fyrir máli sínu að aðgerð- ir gegn búferlaflutningum standi og -F falli með vegabótum. Vísar hann í því efni til þingsályktunartillögu forsætis- ráðhen-a um stefnu í byggðamálum, þar sem m.a. er kveðið á um átak í vegamálum í þeim landshlutum þar sem samgöngur eru ófullnægjandi (jaðarsvæði) svo að þær verði í sam- ræmi við nútímaþarfir. Hann vekur einnig athygli á breytt- um forsendum, frá því vegaáætlun var samþykkt. A árinu 1998 hafi umferð um Bröttubrekku aukist umtalsvert, meðal annars vegna Hvalfjarðar- ganga og Gilsfjarðarbrúar. Umferðar- mælingar sumarsins hafa ekki verið teknar saman en hins vegar liggur fyrir að 811 bílar fóru um Bröttu- brekku umferðarmesta dag ársins en 524 bílar umferðarmesta dag ársins á undan. Er þetta vísbending um vera- lega aukningu umferðar. Sigurður Rúnar hugsar einnig með hryllingi til ástandsins sem kunni að skapast aðra helgina í ágúst árið 2000 ef þessi far- artálmi verður ekki lagfærður fyrir þann tíma. Hugmyndir um hitaveitu Fram kemur í skýrslu Haraldar L. Haraldssonar að húshitunarkostnaður íbúa í Dalabyggð er meira en tvöfalt meiri en hjá ódýrum hitaveitum og 20% meiri en hjá hitaveitum sem tald- ar era dýrar. Urbætur í þessu efni eru því ofarlega á verkefnaskrá sveit- arstjórnarmanna í Dalabyggð. Stefán Jónsson segir að margt bendi til þess að hagkvæmt kunni að vera að virkja borholu í Reykjadal og leiða um blóm- lega sveit til Búðardals, um 22 kíló- metra leið. Rannsóknir hafa ekki gef- ið til kynna að möguleikar séu á að fá heitt vatn nær þorpinu. Fjárfesting í hitaveitu er áætluð 170-185 milljónir kr. „Miðað við þær vonir sem við gerum okkur um þátt- töku opinberra aðila í stofnkostnaði og 80-90% þátttöku á veitusvæðinu verður hægt að lækka húshitunar- kostnað um 30% í upphafí og yrði hitaveitan þá einhvers staðar á milli meðaldýrra og dýrra hitaveitna til að byrja með. Auk þess þurfa notendur að leggja í nokkurn kostnað við að taka við vatninu en við teljum að á móti komi aukið verðgildi eigna þeirra og þetta vegi hvort annað upp. Þá má ekki gleyma mikilvægi þess að íbú- arnir eignast sína eigin orkuveitu," segir Stefán. Auk lækkunar á kostnaði við hús- hitun benda Stefán og Sigurður Rún- ar á ýmsa möguleika sem hitaveita geti skapað í atvinnumálum. Bændur gætu nýtt sér vatnið á margvíslegan hátt. Þá sköpuðust nýir möguleikar í atvinnumálum, sérstaklega í ferða- þjónustu. Mikilvægast að fá fólkið ineð „Ég er sannfærður um það, ef íbú- arnir standa saman,“ segir Sigurður Rúnar spurður að því hvort Dalirnir eigi sér von. „Við gerum okkur vonir um að geta bætt búsetuskilyrði íbú- anna með lagningu hitaveitu sem næði til 60-65% íbúa sveitarfélagsins. Aðstæður eru að gjörbreytast í sam- göngumálum, með Hvalfjarðargöng- um, Gilsfjarðarbrú og nýjum vegi um Bröttubrekku. Við geram okkur einnig vonir um að fá að njóta góðær- isins, að það skili sér á endanum hing- að. Síðan að kaflaskipti verði í þróun- inni árið 2000 þegar við minnumst landafundanna með veglegum þætti á fæðingarstað Leifs heppna," segir Sigurður Rúnar. Hann vekur á því athygli að þótt byggðarþróun undanfarinna ára hafi verið óhagstæð sé fjár- hagsstaða sveitarfélagsins góð. „Vegna þessarar sterku stöðu er sveitar- stjórnin nú reiðubúin að fjárfesta í framtíðarmögu- — leikum, til þess að freista þess að snúa vörn í sókn,“ segir oddvitinn. Sveitarstjórinn bætir við mikilvægi þess að íbúarnir séu jákvæðir fyrir þeim miklu verkefnum sem sveitar- stjórnin vilji hrinda í framkvæmd og að stjórnvöld séu tilbúin að styðja við bakið á henni. „Það skiptir þó að mínu mati mestu hvernig fólkið bregst við, því það er hvorki á færi sveitarstjórn- arinnar né ríkisvaldsins að stýra fólki í nútímasamfélagi,“ segir Stefán. Landafunda verði minnst með veglegum hætti Spænski dómarinn sem fór fram á handtöku Augusto Pinochets, fyrrverandi einræðisherra í Chile Reuters NOKKUR hundruð stuðningsmanna Pinochets í Chile efndu til mótmæla um helgina fyrir utan breska sendiráð- ið í Santiago og brenndu þá meðal annars breska fánann. Vanur að fara sínar eigin leiðir SPÆNSKI dómarinn Balthasar Garzon, sem fór fram á það við bresk stjórnvöld, að Augusto Pinochet hershöfðingi og fyiTverandi einræð- isherra í Chile yrði handtekinn, hef- ur oft verið upp á kant við stjórnvöld á Spáni. Hann er þekktur fyrir að fara sínar eigin leiðir en þegar hann ákvað að koma lögum yfir suður-am- erísku einræðisherrana og mannrétt- indabrot þeirra á áttunda og níunda áratugnum urðu margir til að brosa í kampinn. Það var ekki aðeins, að þessir menn væru utan seil- ingar, heldur höfðu þeir yfirleitt tryggt sér sakaruppgjöf í eigin löndum. Óhætt er að segja, að hand- taka Pinochets hafi komið á óvart en með henni hefur hugs- anlega verið sett ákveðið for- dæmi, sem fyrrverandi einræð- isherrar hafa ástæðu til að hafa áhyggjur af. Hefur þetta mál orðið til að vekja mikla athygli á Garzon en hann er ekki óvanur því að standa í ströngu í heima- landi sínu þar sem hann hefur beitt sér gegn eiturlyfjasmygli, hryðjuverkum baskneskra að- skilnaðarsinna og spillingu með- al æðstu manna. Þeir eru margir, sem telja sig eiga Garzon grátt að gjalda, og fyrir hon- um eru hótanir um dauða og mis- þyrmingar daglegt brauð. Þess vegna fer hann varla fetið nema I fylgd lífvarða og mikil og ströng gæsla er um skrifstofu hans hjá glæpadómstólnum í Madrid. Mannréttindabrot, takmarkast ekki við lögsögu eins ríkis Afskipti hans af Suður-Ameríku hófust 1996 en þá fóru nokkur sam- tök spænskra lögfræðinga fram á það við hann, að hann kannaði pynt- ingar, mannshvörf og morð á spænskum borgurum í Argentínu þegar herstjórnin var þar við völd á árunum 1976 til 1983. Það tók Garzon meira en fimm mánuði að komast að þeirri niður- stöðu, að spænskur dómstóll hefði lögsögu í þessum málum. Hélt hann því fram, að samkvæmt spænskum lögum og alþjóðalögum, einkum Gen- farsamþykktinni, væri unnt að reka mál, sem vörðuðu mannréttindabrot, hvar sem væri og án nokkurra tíma- takmarkana. Urðu ýmsir sérfræðing- ar í alþjóðarétti og mannréttinda- nefnd Sameinuðu þjóðanna til að taka undir þetta með honum og það styrkti líka mál hans þegar vestræn ríld ákváðu að koma lögum yflr þá, sem staðið höfðu fyrh- fjöldamorðum í Rúanda og í Júgóslavíu fyrrverandi. Garzon birti brátt ákærur á hend- ur 110 fyrrverandi og núverandi for- ingjum í her og lögreglu í Argentínu og gaf út skipun um handtöku 11 háttsettra herforingja, þar á meðal enginn útlendur dómari breytt. Og » ekki nóg með það. Jose Maria Aznar, forsætisráðherra Spánar, hefur sagt ráðamönnum í Buenos Aires og Santiago, að hann sé andvígur rann- sókn Garzons en geti ekki stöðvað hana. Hann og aðrir frammámenn í ríkisstjórninni segja, að rannsóknin sé farin að spilla fyrir samskiptum milli ríkjanna og skaða þá stefnu spænsku stjórnarinnar að stórauka viðskiptin við þessi ríki, Argentínu og Chile. Dómararnir hafa þó ekki látið þetta trafla sig. Condor-áætlunin Manuel Garcia Castellon fyrrverandi forseta landsins, Leo- poldo Galtieris hershöfðingja. Það þýddi, að ríkjum, sem eiga aðild að Interpol, Alþjóðalögreglunni, bar skylda til að handtaka viðkomandi menn færu þeir út fyrir landstein- ana. Annar dómari og samstarfsmaður Garzons, Manuel Garcia Castellon, tók að rannsaka pyntingar og morð á spænskum borguram í 17 ára valda- tíð Pinochets í Chile og Garzon vinn- ur nú að þessum málum líka. Sagður bera ábyrgð á dauða meira en 4.000 manna Eftir að mál Pinochets var tekið fyrir í Madrid hefur Bandaríkja- stjórn lagt fram ýmis gögn um mannréttindabrot í stjórnartíð hans. I ákæru spænska dómstólsins er Pin- ochet sakaður um glæpi gegn mann- kyni, um að bera ábyrgð á dauða meira en 4.000 manna. Stjórnvöld í báðum ríkjunum, Ar- gentínu og Chile, hafa hæðst að þess- um málarekstri í Madrid og bent á, að umræddum herforingjum hafa verið gefnar upp sakir og því gæti Garzon komst að því 14. októ- ber sl., að Pinochet væri kominn til Bretlands til að leita sér læknisaðstoðar og fór þá fram á það við bresk stjómvöld, að honum yrði haldið svo unnt væri að yfirheyra hann um ýmsa glæpi. Átti hann þá sérstaklega við Condor-áætlunina en hún gekk út á samstarf herstjórn- anna í Argentínu og Chile um morð og misþyrmingar á nokkrum hundruðum manna. Bresk stjórnvöld skýrðu Garzon frá því, að Pinoehet færi af sjúkrahúsinu þá um helgina og þau gætu ekki lögum samkvæmt haldið honum. Garzon gaf þá út handtökutilskipun þar sem hann tengdi Pinochet sérstaklega við chil- ískan i-íkisborgara, Edgardo Hen- riquez, sem var rænt í Argentínu í aprfl 1976. Var hann pyntaður og af- hentur chilísku öryggislögreglunni, sem var undir stjórn Pinochets. Síð- an hefur ekkert til hans spurst. Búist var við því um helgina, að Garzon myndi víkka út handtökutil- skipunina og nefna til viðbótar nöfn a.m.k. 80 manna, sem rænt var í Ar- gentínu og síðan afhentir chilísku ör- yggislögreglunni. Þá var gert ráð fyrir, að hann færi formlega fram á framsal. Hvað gerir Aznar? Áður en unnt er að afhenda fram- salsbeiðnina verður spænska dóms- málaráðuneytið að fallast á hana og síðan Aznar forsætisráðherra og rík- isstjórn hans. Vitað er, að Aznar vildi helst hafna henni en það á eftir að koma í ljós til hvers hann treystir sér. (Heimild: The New York Times) Balthasar Garzon STOFNAÐ 1913 UTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR Árvakur hf., Reykjavík. Hallgrímur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.