Morgunblaðið - 31.12.1998, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 1998 6141
Ferð að
Stafnesi og
Básendum
FYRSTA ferð nýja ársins hjá
Ferðafélagi íslands verðui- farin
sunnudaginn 3. janúar en liðin eru
200 ár frá Básendaflóðinu 1799.
Flóðið er kennt við Básenda sem
eru miðja vegu milli Sandgerðis og
Hafna. Staðurinn eyddist í flóðinu en
fram að því voru Básendar meðal
eftirsóttustu verslunarstaða á
Reykjanesskaganum, segir í frétta-
tilkynningu. Flóðið náði til staða um
allt Suðvesturland, frá Eyi-arbakka
og allt vestur á Snæfellsnes.
Það er stórstraumsfjara á sunnu-
daginn sem gerir strandaskoðun
heppilega.
Brottfór er frá BSÍ, austanmegin,
Mörkinni 6 og í Hafnarfirði við
kirkjugarðinn).
Morgunblaðið/Kristinn
Trésmiðir veita
viðurkenningar
TRÉSMIÐAFÉLAG Reykjavíkur
veittu Húsvirki hf. og Menntafélagi
byggingamanna viðurkenningu fyrii-
störf sín við athöfn á þriðjudag. Hús-
virki fékk viðurkenningu fyrir góðan
aðbúnað á vinnustað og
Menntafélagið fyrir athyglisvert
framtak í öryggis- og aðbúnaðarmál-
um með útgáfu bæklingsins Hrein
bygging. Á myndinni má sjá Halldór
Jónasson frá Trésmiðafélagi Reykja-
víkur afhenta Kristjáni Karlssyni hjá
Menntafélaginu viðurkenninguna.
-------------
LEIÐRÉTT
Röng mynd
RÖNG mynd birt-
ist með grein Sig-
urrósar M. Sigur-
jónsdóttur í blað-
inu í gær. Beðist er
velvirðingar á mis-
tökunum.
Fulltrúi Þjóðminjasafns
undirritaði
EKKI kom fram í frétt um stofnun
hönnunarsafns í Garðabæ í blaðinu í
gær að formaður þjóðminjaráðs,
Gunnar Jóhann Birgisson, undir-
ritaði samninginn fyrir hönd
Þjóðminjasafnsins. Beðist eer vel-
virðingar á þessu.
f- XA gf ±í jCú k Æ 1 jp £|
J- ÉjkrJí V'4 ejHý- Bjy ;3§| - [ jjj
jj5& «111 jm r iím
i á 8
X 1
ÚTSKRIFTARNEMENDUR Iðnskólans í Reykjavík.
Iðnskólinn braut-
skráir 104 nemendur
104 NEMENDUR frá Iðnskólan-
um í Reykjavík voru brautskráðir
af fimmtán brautum við skölann
hinn 18. desember sl. í Hallgríms-
kirkju. Flestir nemendanna út-
skrifuðust af tölvufræðibraut eða
21 nemandi og þá luku 20 nem-
endur meistaranámi og 18 raf-
eindavirkjun.
Ingvar Ásmundsson, skóla-
meistari Iðuskólans, flutti ræðu
við athöfnina og þakkaði þremur
kennurum, sem hætta störfum við
skólann um áramótin, fyrir sam-
starfið. Þeir eru Magnús Ingi
Ingvarsson, kennari í bygginga-
greinum, Sigursteinn Hersveins-
son, kennari í rafeindavirkjun, og
Steinn Guðmundsson, kennari í
málmiðngreinum.
I ræðu skólameistara kom enn-
fremur fram að saga skólans væri
mótuð af stöðugum umbótum frá
stofnun hans árið 1904.
„Þar ber hæst stofnun
verknámsbrautanna á 7. og 8.
áratugnuin. Síðan má nefna til-
komu áfangakerfis, stofnun tölvu-
fræðibrautar, tæknibrautar, öld-
ungadeildar, hönnunarbrautar,
starfsnámsbrautar, fornámsbraut-
ar og síðast en ekki síst lestrar-
átakið," sagði skólameistari. „Þá
eru ótaldar margvíslegar umbæt-
ur á skólastarfinu svo sem efling
almenns náms, endurskipulagning
brauta, aukin og bætt menntun
kennara og bætt vinnu- aðstaða
nemenda og kennara. Ymsar til-
lögur, m.a. um nýjar brautir, hafa
ekki enn hlotið náð fyrir augum
men ntamálaráðu neytisins
Nýtt áfengis- og vímu-
varnarráð tekur til starfa
NÝTT áfengis- og vímuvarnarráð
tekur formlega til starfa 1. janúar
1999. Það tekur við verkefnum
áfengisvarnarráðs sem lýkur störf-
um um áramót og mun auk þess
gegna víðtækara hlutverki í for-
vörnum og stefnumótun í vímu-
vörnum.
Heilbrigðis- og tryggingamál-
aráðherra hefur ráðið Þorgerði
Ragnarsdóttur framkvæmdastjóra
áfengis- og vímuvarnarráðs. Aðset-
ur áfengis- og vímuvarnarráðs
verður fyrst um sinn á Heilsu-
verndarstöð Reykjavíkm-.
í fréttatilkynningu segir: „Stofn-
un áfengis- og vímuvarnarráðs er
liður í heildstæðri áætlun í fíkni-
efna-, áfengis- og tóbaksvörnum
sem ríkisstjórnin samþykkti 3. des-
ember 1996. Samkvæmt lögum um
áfengis- og vímuvarnarráð nr.
76/1998 er tilgangurinn með stofn-
un þess að efla og styrkja áfengis-
og vímuvarnir sérstaklega meðal
barna og ungmenna og sporna við
afleiðingum neyslu áfengis og ann-
arra vímuefna. Ráðið skal stuðla að
samvinnu og samræmingu þeirra
sem starfa að áfengis- og vímuvörn-
um með það að markmiði að upp-
ræta fíkniefnaneyslu og draga stór-
lega úr áfengisneyslu. Meðal verk-
efna ráðsins er að hafa eftirlit með
að ákvæðum laga um áfengis- og
vímuvarnir sé framfylgt sem og
stefnu ríkisstjórnarinnar á hverjum
tíma, vera ríkisstjórninni og öðrum
stjórnvöldum til ráðuneytis um
áfengis- og vímuvarnir, gera tillög-
ur til heilbrigðis- og tryggingamál-
aráðherra um styrki úr Forvarna-
sjóði, stuðla að rannsóknum á sviði
áfengis- og vímuvarna og efla út-
gáfu fræðslugagna um þessi mál.“
Ráðið heyrir undir heilbrigðis-
og tryggingamálaráðherra en er
skipað 8 fulltrúum tilnefndum af
sjö ráðuneytum og Sambandi ís-
lenskra sveitarfélaga.
í áfengis- og vímuvarnarráði
sitja: Þórólfur Þóriindsson, for-
maður, skipaður án tilnefningar,
varamaður Kolfinna Jóhannesdótt-
ir, Hörður Pálsson, tilnefndur af
forsætisráðuneyti, varamaður Jóna
Gróa Sigurðardóttir, Magnea Ingi-
björg Eyvinds, tilnefnd af utan-
ríkisráðuneyti, varamaður Þor-
valdur Jóhannsson, Inga Dóra Sig-
fúsdóttir, tilnefnd af fjármálaráðu-
neyti, varamaður Hanna Birna
Kristjánsdóttir, Dögg Pálsdóttir,
tilnefnd af dóms- og kirkjumál-
aráðuneyti, varamaður Karl Stein-
ar Valsson, Ingibjörg Broddadótt-
ir, tilnefnd af félagsmálaráðuneyti,
varamaður Guðrún Ogmundsdótt-
ir, Sigrún Aðalbjarnardóttir, til-
nefnd af menntamálaráðuneyti,
varamaður Sigríður Hulda Jóns-
dóttir, og Ása Sigurðardóttir, til-
nefnd af Sambandi íslenskra sveit-
arfélaga, varamaður Soffía Gísla-
dóttir.
Jógaspuni
í Háskólabíói ^
KYNNINGARFUNDUR verður í
Háskólabíói laugardaginn 2. janúar
kl. 13 í sal 4 þar sem kynntur verður
jógaspuni Gaua litla. Jógaspuni Gaua
litla er aðhaldsnámskeið og leið til
léttara lífs, segir í fréttatilkynningu.
Jógaspuninn er einkum ætlaður
þeim einstaklingum sem eiga við
veruleg offituvandamál að stríða.
Námskeiðin hefjast 4. janúar í World
Class, Ræktinni á Seltjarnamesi og
Tosca í Hafnarfirði.
OKNSXCNXqeiKXUN
Fornsagnagetraun Morgunblaðsins birtist í blaðinu í dag á bls. 30c. Getraunin byggist áspurningum úr
köflum og kvæðum íslenskra fornbókmennta.
veiii vtkÐk mm vei^Ð lxun:
Minningabækur Halldórs Laxness:
I túninu heima, Ungur eg var, Grikklandsárið og Sjömeistarasagan.
Útgefandi er Vaka-Helgafell.
Eddukvæði.
Útgefandi er Mál og menning.
Biskupasögur III.
Útgefandi er Hið íslenska fornritafélag.
Dreifmg: Hið íslenska bókmenntafélag.
Úrlausnir þurfa að berast
Morgunblaðinu íyrir kl. 16.00
mánudaginn 18. janúar.