Morgunblaðið - 31.12.1998, Blaðsíða 73
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 1998 73
í DAG
Arnað heilla
Q/"iÁRA afmæli. Á morg-
iH/un, nýársdag, verður
níræð Elín Þóra Sigur-
björnsdóttir frá Sveinsstöð-
um, Grímsey. Hún tekm- á
móti gestum í veitingahús-
inu Jennýju við Bláa lónið
frá kl. 14-17 á nýársdag.
BRIDS
Uin.sjón Guðmundur
I'áll Arnarson
HÉR er forsmekkur að
flugeldasýningu kvöldsins.
Þrautin er á opnu borði og
verkefnið er að vinna fjóra
spaða með laufkóng út:
Norður
♦ 64
V 853
♦ 9752
4.Á1083
Austur
♦ -
V G1064
♦ G1064
* G9754
Suður
A ÁKG109875
VK72
♦ ÁD
*-
Vestur
AD32
VÁD9
♦ K83
AKD62
Vestur á trompslag, ásinn
í hjarta á eftir kónginum og
kónginn í tígli eftir ÁD.
Ekki gott. En á hinn bóginn
á sagnhafi mu örugga slagi
og þarf aðeins að galdra
einn fram.
Lausn: Áætlunin snýst
um það að senda vestur inn
á hjartaás í lokastöðunni og
neyða hann til að spila tígli
frá kónginum. En til að það
heppnist, þarf fyrst að
hreinsa upp laufið. Liður í
því verki er að gefa fyrsta
slaginn, þ.e. henda hjarta
heima. Vestur spilar áfram
laufi, sem suður trompar og
spilar milhspaða. Þann slag
verður vestur að taka, og
hann verst best með því að
trompa aftur út. Sagnhafi
tekur slaginn i borði, hendir
hjarta niður í laufás og
trompai- lauf. Loks er
trompunum spilað til enda.
Þegar þrjú spil eru eftir, er
staðan orðin þessi:
Vestur
A-
VÁ
♦ K8
A-
Norður
A -
¥ 83
♦ 9
*-
Austur
A -
¥ G106
♦ -
*-
Suður
A -
¥ K
♦ ÁD
*-
Vestur er sendur inn á
hjartaásinn og _ verður að
spila tígli upp í ÁD.
ÁRA afmæli. í dag,
gamlársdag, er átt-
ræður Hjörtur Einarsson,
bóndi, áður til heimilis að
Neðri-Hundadal, nú búsett-
ur að Gröf í Suðurdölum,
Dalasýslu. Eiginkona hans
er Lilja Sveinsdóttir, fyrrv.
kennari og organisti. Þau
taka á móti gestum á heimili
sonar þeirra og tengdadótt-
ur að Neðri-Hundadal, laug-
ardaginn 2. janúar kl. 16-19.
^ÁRA afmæli. Hinn 2.
ö v/janúar nk. verður sex-
tug Patricia Hand, Hafnar-
götu 24, Vogum. Hún tekur
á móti gestum í Glaðheim-
um, Vogum, kl. 20 á afmæl-
isdaginn.
r7/\ÁRA afmæli. í dag,
I ögamlársdag, verður
sjötugm- Ingólfur S.
Ingólfsson, vélstjóri, fyrrv.
formaður Vélstjórafélags
íslands, Miklubraut 42,
Reykjavík. Eiginkona hans
er Vilhelmína Böðvarsdótt-
ir. Þau taka á móti gestum í
dag frá kl. 15-18 á Hverfis-
götu 105, í sal Barðstrend-
ingafélagsins, 2. hæð.
JT /AÁRA afmæli. Á morg-
OUun, nýársdag, verðm-
fimmtugur Jón Thoraren-
sen, Heiðvangi 12, Hellu.
Jón og eiginkona hans, Frið-
semd Hafsteinsdóttir, taka
á móti gestum aftnælisdag-
inn eftir kl. 16 í Hellubíói.
DEMANTSBRÚÐKAUP. í dag, gamlársdag, eiga 60 ára
brúðkaupsafmæli Valgerður Ólafsdóttir og Sigfinnur
Karlsson, Hlíðargötu 23, Neskaupstað. Þau eni að heiman.
GULLBRÚÐKAUP. Hinn 1. janúar eiga 50 ára brúðkaups-
afmæli hjónin Erna Jóhannsdóttir, húsmóðir og Þór Birgir
Þórðarson, vélfræðingur, Álandi 5, Reykjavík.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afinæli,
bi-úðkaup og fleira lesendum
sínum að kostnaðarlausu.
Tilkynningar þurfa að ber-
ast með tveggja daga fyrir-
vara virka daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki afmæl-
isbarns þarf að fylgja af-
mælistilkynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk getur
hringt í síma 569-1100, Sent
í bréfsíma 569-1329, sent á
netfangið ritslj (ffimbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla, Morgunblað-
inu, Kringlunni 1,
103 Reykjavík.
GULLBRÚÐKAUP. í dag, gamlársdag, eiga 50 ára brúð-
kaupsafmæli Brynhildur Bjarnarson og Guðmundur Bjarna-
son, Klapparstíg 5a, Reykjavík. Þau verða að heiman.
STJÖRMJSPÁ
eftir Franees Drake
STEINGEIT
Afmælisbarn dagsins: Þú
ert gjafmildur en getur átt
erfitt með að hemja skap
þitt sem þá bitnar á þeim
sem síst skyldi.
Hrútur _
(21. mars -19. apríl) “f*
Þú ert algjör hamhleypa til
allra verka og það kemur sér
vel nú þegar taka þarf til
hendinni á síðasta degi
Naut
(20. apríl - 20. maí) f**
Þú átt erfitt með að finna
sjálfum þér innri frið en líttu
bara um öxl og þá sérðu að
þú mátt vel við árangur
ársins una.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) vK
Þér hefur tekist bærilega til
á árinu og ert fullfær um að
stjórna þínum málum áfram.
Gættu þín bara að ofmetnast
ekki.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það er eitt og annað sem þú
átt ógert en verður að ráða
fram úr áður en nýtt ár
gengur í garð. Gakktu
skipulega til verks.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þér eru tengslin við
fjölskylduna dýrmæt og fer
vel á því að þú eyðir
áramótunum í faðmi
fjölskyldunnar.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) titlÍSL
Það er margt sem glepur
hugann á degi sem þessum
en þú þarft að halda vel á
spöðunum til þess að hafa
gert hreint fyrir þínum
dyrum þegar árið kveður.
Vog xrx
(23. sept. - 22. október) 4* 4*
Þótt miklar annir séu skaltu
ekki hika við að gefa þér
tíma til að kveðja gamla árið
og fagna nýju með vinum og
vandamönnum.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Eitt og annað hefur verið
látið reka á reiðanum en nú
verður ekki undan því vikist
að koma skikki á öll mál.
Gakktu rösklega til verks og
fagnaðu svo áramótunum.
Bogmaður m ^
(22. nóv. - 21. desember) #-!<■
Allt virðist vera á ferð og
flugi og þvi erfitt að reiða
hendur á einstökum hlutum.
Láttu það efth- þér að njóta
hringiðunnar á þessum
tímamótum.
Steingeit
(22. des. -19. janúar) *«ÍP
Mundu að aðgát skal höfð í
nærveru sálar og það á ekki
hvað síst við um tímamót
eins og þau sem nú eru að
ganga í garð.
Vatnsberi
(20. janúar -18. febrúar) CSn!
Það skiptir engu máli
hvernig viðrar hið ytra
aðeins ef þú gætir þess að
hafa sól í sinni. Vertu öðrum
lýsandi fordæmi.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Það er löngu tímabært að þú
sýnir ástvinum þínum hvern
hug þú berð til þeirra.
Notaðu þvi áramótin til þess.
Stjörnuspána . á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Spe§V,spe§»
3 ^ herm pu mer
hvar í aiid.sk... £et édlosnað við þessi
^öliakíló'
Góðir hlutir taka tíma
Átta vikna
aðhalds-
námskcið
Gauja litla
•
Namskeiðið hefst
4. janúar n.k.
oistendur
til27.fcbrúar
Kynniníiar
fundur í
Háskólabiói
2. janúar n.k.
kl. 13:00 14:00
Hoilsuræklin
TOSCA
. LITT
IpRÓTTAfMHMUd
ooooo
Skrániná í Síma 561 3434
P/gKTIN
SeltjamanuM
Kgykjauik’
'ifafnoifirði
Brian Tracy
International
PHOENIX leiðin til hámarks-
árangurs í einkalífi og starfi
markmiðaseting — sjálfsöryggi — einbeiting
skipulagning — forgangsröðun — sjálfsábyrgð
Fimm vikna kvöldnámskeið hefst 11. jan. (20 klst.)
Innritun í símum 557 9904, 899 4023,
hugborg@isIandia.is, www.islandia.is/~hugborg
Leiðbeinandi Jóna Björg Sætran, B.A.
Skemmtistaðurinn
BOHEIH
óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla,
árs og frihar.
Þökkwn vióskiptin á árinu sem er aá líSa.
Lokað á gamlárskvöU.
Opnum á nýárskvöld kl. 22.00.
BOHElH
—I
Grensásvegi7
UTSALA
UTSALA
hefst 2. jan.
kl. 10.00
<