Morgunblaðið - 27.01.1999, Page 10

Morgunblaðið - 27.01.1999, Page 10
10 MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Menntun kvenna á Norðurlandi vestra Hvaða námi hefur þú lokið? Grunnnám Húsmæðraskóli ....... 38 Háskólapróf Iðnnám/starfsnám 3 Stúdentspróf O24 Búfræðipróf " [ 18 Annað framhaldsnám i 10 Svara ekki I 3 2 Hvaða atvinnu stundar þú? Opinbera þjónustu Aðra þjónustu Landbúnaður 32 24 Annan matvælaiðnað 19 Verslun eða veitingareks. Annað Ferðaþjónusta Opinbera stjórnsýslu [ j 3 Fiskiðnað [ | 2 Annan iðnað [] 2 17 Fjöldi Fjöldi 72 Hagur kvenna í dreifbýli á Norðurlandi vestra Tekjur duga oft ekki til að fram- fieyta fjölskyldu TEKJUR 65% íbúa á Norðurlandi vestra nægja ekki til framfleyta fjölskyldunni en tekjur 32% íbúa nægja til þess. Þetta kemur fram í rannsókn Rannsóknarstofnunar Háskólans á Akureyri á stöðu og viðhorfum kvenna í dreifbýli á Norðurlandi vestra. I könnuninni kom fram að tæp- lega helmingur kvenna hefur ein- ungis lokið grunnnámi, eða 47,6%, og tæp 10% hafa lokið háskólanámi en landsmeðaltal er 12,7%. Búskapur er stundaður á jörðinni í 91,9% tilvika og þar af sauðfjárbúskapur sem aðalgrein í 49,9% tilvika. Búin eru í flestum tilfellum skráð á maka eða í 62,3% tilvika. í 47% tilvika fóru konur að stunda búskap á jörðinni vegna þess að maki þeirra ólst þar upp en í 36% tilvika af öðrum ástæð- um. I niðurstöðum könnunarinnar segir að konur í dreiíbýli á Norð- urlandi vestra vinni mikið, bæði við búskap og annað. Af þeim sök- um sé misvísandi að tala um dulið atvinnuleysi meðal kvenna en hins vegar mætti segja að um tekju- skort sé að ræða. Opinber þjónusta sé mikilvæg uppspretta atvinnu fyrir konurnar. Því geti flutningur opinberrar þjónustu- starfsemi út á land eflt og aukið atvinnutækifæri kvenna. Rjúpnaskytta á Jökuldal sýknuð af ákæru Vafi lék á um eignarrétt að heiðalandi HÆSTIRÉTTUR hefur sýknaði rjúpnaskyttu af ákæni fyrir að hafa í trássi við lög nr. 64/1994 um vemd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum veitt í heimildai’- leysi á jörðinni Gilsá á Jökuldal. Ekki væri nægilega sannað að allt það svæði sem væri innan marka jarðar- innar samkvæmt gögnum málsins væri fullkomið eignarland. Héraðs- dómur Austurlands hafði hins vegar sakfellt manninn. Samkvæmt lögum hafa menn mis- munandi rétt til fuglaveiða eftir því hvort um eignarlönd er að ræða eða afrétt. Islenskum rikisborgunim og útlendingum með lögheimili hér á landi er heimil fuglaveiði á afréttum og almenningum enda hafí þeir til- skilin leyfi umhverfisráðherra. Á eignarlandi þarf hins vegar einnig samþykki jarðeiganda. Akærði, sem var við veiðar haustið 1997, kvaðst hafa talið sig í fullum rétti til veiða á heiðarlandi þessu því það væri al- menningur. Því hefði hann ekki aflað sér leyfis hjá Eiríki Slqaldarsyni bónda á Skjöldólfsstöðum II og eig- anda Gilsár. Vitnað til Landnámu I dómi Hæstaréttar eru raktar þær heimildir sem fram komu í mál- inu um mörk Gilsárlands og nýtingu þess. Jörðinni Gilsá vai- skipt út úr landi landnámsjarðarinnar Skjöld- ólfsstaða árið 1941. Samkvæmt kaup- samningi þeim og landamerkjabréf- um fyrir Skjöldólfsstaði, sem lesin voru á manntalsþingi 21. júní 1884 og 27. júlí 1922, nær land Gilsár frá Jökulsá alllangt inn á heiði og upp í hæsta tind Skjöldólfsstaðahnjúks, sem er í 792 metra hæð yfir sjó. Vitnai- Hæstiréttur til þess að samkvæmt Landnámu hafi Hákon numið Jökuldal allan fyrir vestan Jökulsá og fyrh’ ofan Teigará og búið á Hákonarstöðum. Skjöldólfur Vé- mundarson hafi numið Jökuldal fyrir austan Jökulsá upp frá Hnefilsdalsá og búið að Skjöldólfsstöðum. Af þess- ari lýsingu verði ekki ráðið að heiðar- lönd ofan dalsins hafi verið numin í öndverðu. Ekki njóti við eldri heim- ilda í málinu um landamerki Skjöldólfsstaða og síðar Gilsár en landamerkjabréfsins frá 1884, sem áður er getið. Verulegur vafí „Hluti þess lands, sem eigandi Gilsár telur sína landareign,“ segir Hæstiréttur, „liggur hátt yfir sjó og er fjarri bæjum, hvort heldur er litið til Gilsár eða Slqöldólfsstaða. Ekkert liggui’ fyrir í málinu um aðra nýtingu lands innan hinna lýstu marka Gilsár á heiðinni en til sumarbeitar fyrii’ búfénað, og ekki er í ljós leitt að farið hafi verið með land þar sem eignar- land varðandi fjallskil. Að því gættu, sem að framan greinir, verður að telja verulegum vafa háð hvort land það ofan Jökuldals, sem hér um ræð- ir, hafi verið numið í öndverðu eða síðar. Er sá vafi eðli máls samkvæmt ríkastur að því er varðar þann þluta heiðai’Iandsins, sem liggm- fjærst byggð. Þá er óvissu háð, hvar innan þessa svæðis ákærði fór við veiðarn- ar eða hvar hann náði bráð sinni. Þegar allt framangreint er virt verður að telja, þrátt fyrir áðurnefnd landamerkjabréf, slíkan vafa leika á um að stofnast hafi að lögum til beins eignarréttar eiganda jarðarinnar Gilsár yfii- öllu því landsvæði, sem ákærði kann að hafa verið við veiðar á, að sýkna verði hann af broti því, sem hann er ákærður fyrir ...“ Málið flutti Bogi Nilsson ríkis- saksóknari af hálfu ákæruvaldsins en Olafur Sigurgeirsson hdl. vai’ skipað- ur verjandi ákærða. Hagfræðingnr VSÍ gagnrýnir skuldasöfnun sveitarfélaga Sveitarfélögin að bregðast hagstj drnarhlutverki sínu HANNES G. Sigurðsson, hagfræðing- m- Vinnuveitendasambandsins, segir í fréttabréfi VSÍ að ef sveitarfélögin haldi áfi’am að auka skuldir sínar séu sveitarsjóðimir að bregðast hagstjóm- arhlutverki sínu. Aukið vægi sveit- arfélaga við stjóm efnahagsmála í landinu kalli á aukna ábyrgð sveitar- stjómanna bæði við stjóm heildareft- irspumar í landinu og í launamálum. Heildarskuldii’ sveitarfélaganna hafa aukist ár frá ári þennan áratug ef frá er skilið árið 1996 þegar skuldii’ lækkuðu lítillega. Heildai’tekjur sveit- arfélaganna námu 56,4 miUjörðum 1997 og jukust þær um 7,4 milljarða milli ára. Gjöldin jukust hins vegar um 10,3 milljarða eða sem nemur 20,7%. Umsvif sveitarfélaganna hafa auk- ist vemlega á undanfómum ámm. Árið 1997 stóðu sveitarfélögin að baki 27% opinberra útgjalda, en hlutfallið nam lengi 20-22%. Áframhaldandi skuldasöfnun Hannes segir að fréttir sem borist hafi af fjárhagsáætlunum sveit- arfélaga fyrir árið 1999 bendi ekki til að fjármál sveitarfélaganna verði til þess að draga úr eftirspum og við- skiptahalla. Hann nefnir sérstaklega fjárhagsáætlanir Reykjanesbæjar og Hafnaifjarðai’, sem gerir ráð fyrii’ 900 m.kr. halla. Hannes gagnrýnir sveitarfélögin fyrir að hafa gert of ríflega kjara- samninga við starfsmenn sína. Launa- kostnaður vegna gmnnskólans, sem var 5,6 milljarðar 1995, hafi verið 8,7 milljarðar 1998 og stefni í 9,5 millj- arða árið 2000. Hannes segir að ef sveitarfélögin taki ekki á vandanum verði stjómvöld hugsanlega að bregðast við með svipuðum hætti og dönsk stjómvöld gerðu á síðasta áratug þegar útgjalda- vöxtur og tekjuþörf danskra sveit- arfélaga virtist stjórnlaus. Þá vom sett lög í Danmörku sem takmörkuðu mjög möguleika sveitarfélaga til lántöku. Hann segir að slíkar aðgerðir hljóti að vera neyðarúrræði sem vart verði gripið til nema stefni í hreint óefni. Bygginffarfélagið Úlfarsfell hf. hyggst reisa íbúðarbyggð á Blikastaðalandi á tíu árum Samkomulag um kaupin á landinu KAUPENDUR að Blikastöðum hafa staðfest við seljendur að þeir muni nýta kauprétt sinn á Blikastaðalandi og er komið á bindandi samkomulag um kaupin á landinu, að sögn Eyjólfs Sveinssonar, stjþmarformanns Bygg- ingai’félagsins Úlfarsfells hf., sem var stofnað um miðjan desember til að sjá um þróun þessa 180 hektara lands. Eyjólfur sagði í gær að verið væri að semja við bæjarstjóm Mosfellsbæjar um skipulag landsins. Bæjarstjórn Mosfellsbæjar ákvað 20. janúar að vísa skipulagi Blikastaðajarðar til heildai-endurskoðunar á aðalskipulagi bæjai-ins. Að sögn Jóhanns Sigur- jónssonar, bæjarstjóra Mosfellsbæj- ar, hefur Úlfarsfell lagt fram hug- myndir um að reisa byggð fyrir 2.000 íbúa á næstu tíu ámm. Bæjarstjómin er andsnúin því að svo þétt byggð rísi á svo stuttum tíma, en málið sé enn opið og viðræður standi yfir. „Samræður við sveitarstjórnina standa nákvæmlega þar sem við ósk- um,“ sagði Eyjólfur Sveinsson. „Við höfum kynnt þeim okkar hugmyndir og mér sýnist að í grófum dráttum falli þær og hugmyndir bæjarstjórn- arinnar saman. Ekkert hefur komið upp á, sem bendir til annars.“ Hann sagði að hugmyndir Úlfars- fells um framkvæmdir á svæðinu, sem liggur meðfram Vesturlandsvegi frá Korpu að byggð í Mosfellsbæ, snerust í grófum dráttum um blandaða byggð. „Þetta yrði að mestu leyti íbúðarbyggð, hugsanlega að ein- hverju leyti afmörkuð svæði undir þjónustu- og verslunarhúsnæði," sagði hann. „Eg sé ekki annað en að við munum ná fullkomlega saman um uppbygginguna." Að sögn Eyjólfs eru aðstandendui’ Úlfarsfells Armannsfell hf. með um þriðjung hlutafjár, Islenskir aðal- verktakar með um þriðjung hlutafjár, Óháði fjárfestingasjóðurinn hf. með tæp 20% og þar fyrir utan nokkrir fjármögnunai’aðilai’. Hann sagði að auk þess hefði stórt danskt verktaka- íyrirtæki sýnt áhuga á þátttöku í verkefninu bæði _sem framkvæmda- aðili og hluthafi í Úlfarsfelli hf. Eyjólfur gaf ekki upp kaupverð, en sagði að þegar undirbúningskostnað- ur, gatnakerfi og veitukerfi og þjónustustofnanfr við íbúðarbyggð væru taldar með myndi heildarfram- kvæmdakostnaður nema 15 til 20 milljörðum króna. Framkvæmdatími er áætlaður 10 ár. Jóhann Sigurjónsson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar, sagði í gær að farið hefði verið í gegnum mikla skoðun á skipulagi á Blikastöðum þar sem um stór áform væri að ræða og á fundi 20. janúar hefði verið ákveðið að taka það til athugunar í endurskoðun aðal- skipulagsins. Hann sagði að gert væri ráð fyrir að eitt til tvö ár tæki að end- urskoða aðalskipulagið. Svæðisskipulag „Sveitarstjórn ber eftir hverjar kosningar að taka ákvörðun um það hvort endurskoða eigi aðalskipuiag," sagði hann. „í ljósi þess að verið er að vinna að svæðisskipulagi hér á höfuðborgarsvæðinu vildu menn endurskoða aðalskipulag bæjarins í tengslum við það.“ Hann sagði að vegna stærðar Blikastaðamálsins og áhrifa þess á önnur byggingarsvæði í Mosfellsbæ hefði þótt eðlilegt að það yrði tekið til skoðunar í leiðinni. „Það er mjög erfitt að skoða [Blikastaði] án þess að taka með í reikninginn önnur byggingarsvæði, sem eru inni í þessu skipulagstíma- bili,“ sagði hann. „Við höfum svarað þeim því til að miðað við þær for- sendur, sem þeir hafa sýnt okkur, séum við ekki tilbúnir til þess.“ Jóhann sagði að Úlfarsfell miðaði við 2.000 íbúa byggð, en fyrirtækið væri tilbúið að lækka það. Bæjar- stjórnin væri ekki tilbúin að hleypa Úlfarsfelli af stað á þeim forsendum, bæði vegna hraða uppbyggingarinn- ar, íbúafjöldans og þeiira áhrifa, sem þetta gæti haft á uppbyggingu sveitarfélagsins og möguleika á að standa undir þefrri þjónustu, sem þessir íbúar myndu kalla eftir. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins gæti 1.000 til 1.500 manna byggð orðið viðunandi lausn fyrir báða aðila.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.