Morgunblaðið - 27.01.1999, Side 12

Morgunblaðið - 27.01.1999, Side 12
12 MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Gísli Már Gíslason um andmæli gegn nýju námasvæði í Mývatni Kveðst ekki skilja gagnrýni framkvæmdastjóra Kísiliðju Helgi Hjörvar Arður af lághita- svæðum „ÞAÐ er áhyggjuefni að vara- borgarfulltrúi í Reykjavík skuli taka með þessum hætti undir áróður Hafnfírðinga um að Hitaveita Reykjavíkur inn- heimti óhófleg þjónustugjöld og taki gagnrýnislaust undir að Reykvíkingar megi ekki hafa arð af eigin fjárfestingum en eigi að láta Hafnfirðinga njóta uppbyggingarinnar á Hitaveitu Reykjavíkur," segir Helgi Hjörvar, borgarfulltníi R-lista, vegna ummæla Eyþórs Ai'nalds, borgarfulltrúa Sjálf- stæðisfloksins, um dapurlegan rökstuðning Helga, sem ekki þori að horfast í augu við stað- reyndir. „Staðreyndin er sú,“ segir Helgi, „að arður af hitaveit- unni er fyrst og síðast af lág- hitasvæðunum sem þjóna Reykjavík en ekki af Nesja- vallavirkjun og því veitukerfí sem því tengist og þjónar nágrannasveitarfélögunum. Þess vegna er arðurinn Reyk- víkinga." GÍSLI Már Gíslason, stjómarfor- maður Náttúrurannsóknastöðvar- innar við Mývatn og prófessor í vatnalíffræði, kveðst ekki skilja um- mæli Gunnars Arnar Gunnarssonar, framkvæmdastjóra Kísiliðjunnar við Mývatn, um að ákvörðun Nátt- úruverndar ríkisins um að leggjast gegn nýju námasvæði verksmiðj- unnar í Mývatni hafí verið ótíma- bær. Náttúrurannsóknastöðin sendi frá sér greinargerðina, sem Náttúru- vemd ríkisins samþykkti með öllum atkvæðum nema einu. Gísli Már sagði að Kísiliðjan hefði farið fram á tvennt, annars vegar að víkka út námasvæði í ytri flóa og hins vegar leiðbeiningar um það hvemig standa bæri að mati á umhverfísáhrifum kísilgúrnáms í syðri fióa. Kísiliðjan að biðja um að taka upp ákvörðun frá 1993 „Þeir báðu um þetta, fengu svör við þessu og ég skil ekki hvernig það getur verið ótímabært," sagði Gísli Már og bætti við að stjórnsýslulega bæri sér að svara öllum erindum. „Iðnaðarráðherra og umhverfisráðherra taka ákvörðun árið 1993 í samráði við Náttúruverndarráð að ekki yrði um frekari námavinnslu að ræða þegar búið væri að vinna innan núverandi takmarka, eða fram til ársins 2010 ef það fyndist kísilgúr utan þessa svæðis, til dæmis undir hraununum. Þessi ákvörðun er tekin þá og þess vegna er Kísiliðjan að þiðja Náttúruvernd ríkisins að taka upp þessa ákvörðun, en rannsókna- stöðin lagðist gegn því og Náttúru- verndarráð samþykkti ekki.“ Hann bætti við að enda hefði á sínum tíma verið farið langt út fyrir þau mörk, sem rannsóknastöðin hefði talið eðlileg vegna afkomu ýmissa fuglastofna á borð við flór- goða og rauðhöfða, sem ættu aðalaðsetur sitt á íslandi á þessu svæði. „Náttúrurannsóknastöðin gerði því grein fyrir því að yrði um frek- ari vinnslu kísilgúrs að ræða í Mývatni yrði hún að uppfylla ákveðin skilyrði," sagði hann. „Þau eru skráð lið fyrir lið. Við matið yi-ðu menn að hafa í huga að hún myndi ekki hafa áhrif á undirstöðu vistkerfisins í vatninu. Það skilyrði er sett fyrir nýrri tegund af náma- greftri. Náttúruvernd ríkisins tekur undir það og sendir áfram. Ég átta mig ekki á því að þetta sé ótíma- bært svar og hrein neitun." Hann sagði að í fyrsta lagi hefði verið farið fram á leyfi til að fara út fyrir námasvæðið og leiðbeiningum um það hvernig standa ætti að mati á umhverfisáhrifum. „Við leggjumst gegn frekari útvíkkun á leyfinu og það byggist á því að búið er að taka þá ákvörðun að ekki verði um frekara námaleyfi að ræða og hún byggist á mjög miklum rannsóknum, sem hafa staðið meira og minna frá 1971 og staðfestu það, sem menn vissu áður. Þær beindust kannski ekki beint að kísiliðju í byrjun en gerðu það frá 1985. Það hefur ekkert breyst í þeim efnum og sú ákvörðun, sem tekin var 1993, stendur." Hafna alfarið áframhaldandi greftri með gömlu aðferðinni Hann sagði að í öðru lagi yrði gröftur með nýrri aðferð að upp- fylla ákveðin skilyrði. „Við höfnum alfarið að halda áfram með gömlu aðferðinni," sagði hann. „Við erum ekki einir um þá skoðun. Framkvæmdastjóri Kísil- iðjunnar, Bjarni Bjarnason, tók undir þá skoðun í viðurvist stjórnar Kísiliðjunnar og fulltrúa Skútu- staðahrepps og enginn mótmælti því þegar framkvæmdastjórinn sagði að Kísiliðjan myndi aldrei fara fram á að vinna með gömlu að- ferðinni vegna þess að hún eyðilegði botn Mývatns. Þetta sagði hann í vitna viðurvist og enginn hefur mót- mælt því, ekki einu sinni stjórn Kísiliðjunnar, og hvað ættum við að vera að taka undir að breyta ákvörðun þeirra?“ Samkeppnisráð um Stangveiðifélag Reykjavíkur Skattfrelsi andstætt samkeppnislögum SAMKEPPNISRÁÐ telur það fara gegn markmiði samkeppnisiaga að veita Stangveiðifélagi Reykjavíkur undanþágu frá greiðslu tekju- og eignarskatts á sama tíma og skatt- skylda hvíli á keppinautum Stang- veiðifélagsins, t.d. Lax-á ehf., sem bar upp erindi um þetta efni við sam- keppnisráð. I fi-amhaldi af þessari niðurstöðu samkeppnisráðs hefur það beint þeim tilmælum til skattstjórans í Reykjavík að við túlkun emþættisins á undanþáguákvæðum 4. gr. laga um tekju- og eignarskatt verði haft þetta álit ráðsins en samkeppnisráð telur vafa leika á þvi að rekstur SVFR uppfylli skilyrði um undan- þágu frá skattskyldu. Lax-á ehf. sendi Samkeppnisstofn- un erindi 18. maí sl. og kvartar yfii’ ójafnri samkeppnisstöðu aðila sem taka laxveiðiár á leigu og selji veiði- leyfi. Á sama markaði starfi Stang- veiðifélag Reykjavíkur sem selji fleiri en félagsmönnum veiðileyfi. Kvartandi telur sig ekki sitja við sama borð og SVFR hvað skattlagn- ingu varði og skekki það verulega samkeppnisstöðu hans á markaðn- um. Honum beri að greiða tekju- og eignarskatt en SVFR ekki og er óskað eftir að Samkeppnisstofnun gn'pi til nauðsynlegra ráðstafana til að leiðrétta framangi’einda aðstöðu. Almenningsheill Erindi Lax-ár ehf. var sent skatt- stjóranum í Reykjavík og SVFR til umsagnar. I svari skattstjórans er tilgreint að í 4. gr. laga nr. 75/1981 um tekju- og eignarskatt sé kveðið á um almennar undanþágur og sagt að lögaðilar skuii ekki greiða tekju- né eignarskatt ef þeir verja hagnaði sínum einungis til almenningsheilla og hafa það að einasta markmiði samkvæmt samþykktum sínum. Einnig er þar sagt að félög, sjóðir og stofnanir sem ekki reki atvinnu skuli hvorki greiða tekjuslStt né eignar- skatt. I svari SVFR segir að ekki sé rök- stutt af Lax-á ehf. með hvaða hætti undanþága SVFR geri stöðuna ójafna. Bent er á að Lax-á ehf. hafi hvorki greitt tekju- né eignarskatt samkvæmt skattskrá 1997. Verði því ekki séð ástæða til afskipta Sam- keppnisstofnunar. Umsagnirnar voru síðan sendar kvartanda sem gerir m.a. þær at- hugasemdir að rekstur Stang- veiðifélagsins geti ekki verið undan- þeginn þeirri almennu reglu að lögaðilar skuli greiða tekjuskatt af öllum tekjum sínum enda sé ekki um að ræða félag sem verji hagnaði sín- um til almenningsheilla. Augljóst sé að um atvinnustarfsemi sé að ræða og félagið stundi rekstur í samkeppi við aðra sambærilega starfsemi hér- lendis. Það er ekki talið skipta máli hvort rekstur Lax-ár ehf. hafi skilað slíkum hagnaði að greiða hafi þurft tekjuskatt, aðalatriðið sé að rekstur Lax-ár sé skattskyldur en ekki rekstur Stangveiðifélagsins. Samkeppnisráð féllst ekki á þau rök SVFR að umrædd starfsemi falli utan gildissviðs samkeppnislaga þar sem ljóst sé að SVFR stundi beina markaðssetningu og sölu á veiðileyfum til aðila utan félagsins í samkeppni við aðra. Þá er í rökum samkeppnisráðs bent á að félag sem telji sig falla undir undanþág- uákvæði verði að verja hagnaði sín- um til almenningsheilla. Af árs- skýrslu SVFR 1997 sjáist að hagnaður félagsins hafi nýst til að byggja upp sterka eiginfjárstöðu og verkefna í þágu félagsmanna en þeir eru rúmlega tvö þúsund. Virðist hagnaði af starfi SVFR því ekki hafa verið varið til almenningsheilla í raun. Telur samkeppnisráð vafa leika á því að rekstur SVFR uppfylli skilyrði til undanþágu frá skatt- skyldu og er þeim tilmælum beint til skattstjórans í Reykjavík að hafa hliðsjón af framangreindu áliti í túlkun embættisins á undanþág- uákvæðum 4. gr. laga um tekju- og eignarskatt. Morgunblaðið/Þorkell Hart í ári VETURINN hefur verið fuglun- um erfiður síðustu vikur enda snjór yfir öllu. Gæsir eru þar engin undantekning því brauð hefur verið af skornum skammti við Tjörnina og í umferðinni er eins gott að fara varlega og horfa bæði til hægri og vinstri. Níu rekkjunautar að meðaltali ÍSLENSKIR karlmenn sofa að meðaltali hjá tólf konum yfir ævina en konur leita að meðaltali rekkjubragða við alls sex karl- menn, samkvæmt niðurstöðum könnunar sem Landlæknis- embættið gerði árið 1992 og birtar eru í nýútkomnu fylgiriti heil- brigðisskýrslna 1998. Bæklingurinn nefnist Kyn- hegðun og þekking á alnæmi og er þar unnið úr þeim svörum könnun- arinnar sem varpað geta ljósi á tengsl kynhegðunar og útbreiðslu HlV-smits. Meðalfjöldi rekkjunauta á mann á íslandi er níu. 28% karlmanna segjast hafa sofíð hjá fleirum en fimmtán aðilum yfir ævina en 8% kvenna eru með jafnmikla reynslu. í skýringum segir að niðurstaðan komi heim og saman við megin- þorra kannana í Evrópu, „flestir hafa fáa rekkjunauta en fáir hafa marga rekkjunauta". í bæklingnum segir: „Aukin smokkanotkun, færri skyndikynni og aukin varkárni í neyslu áfengis og annaiTa vímuefna virðast vera þær ráðstafanir sem eru mest áberandi hjá fólki, af þeim valkost- um sem gefnir voru upp sem varúðarráðstafanir til að forðast smit af völdum alnæmis. Ekki er hægt að meta í þessari könnun hvort svörin endurspegli viðhorf eða raunverulega hegðun fólks.“ 14,3% karla og 9,2% kvenna kváðust hafa breytt kynhegðun sinni vegna hættu á alnæmi og 4,6% sögðust hugsa um að breyta kynhegðun sinni. I bæklingnum er bent á að um- ræða um kynferðismál sé veiga- mikill þáttur í fræðslu. „Sérstaka athygli vekur að enginn karlmað- ur á aldrinum 16-19 ára segist hafa rætt við lækna eða hjúkrun- arfræðinga á heilsugæslustöð. Þetta er ef til vill vísbending um að fræðsla um kynsjúkdóma fari eingöngu fram í skólum og/eða að heilsugæslan hafi ekki nægileg tengsl við þennan aldurshóp hvað snertir kynsjúkdómavarnir." „Ungt fólk nú á tímum hefur sín fyrstu kynmök fyrr en afar þess og ömmur,“ segir í bæklingi Landlæknisembættisins. Jafn- framt er bent á að íslenskir ung- lingar virðast vera fyrr á ferðinni í þessum efnum en unglingar í Noregi, Frakklandi og Bandaríkj- unum. Ný jafnrétt- islög í vor PÁLL Pétursson félagsmálaráð- herra kynnti frumvarp til nýi-ra jafn- réttislaga á ríkisstjórnarfundi í gær- morgun og kvaðst í samtali við Morgunblaðið leggja áherslu á að það verði frá Alþingi fyrir vor. I frumvarpinu er lagt til að í stað kærunefndar jafnréttismála verði skipuð úrskurðarnefnd að Skrifstofa jafnréttismála stai’fi beint undir félagsmálaráðherra en ekki stjórn Jafnréttisráðs. Að sögn félagsmálaráðhen’a er frumvarpið að stofni til byggt á nú- gildandi jafnréttislögum, en kæru- leiðum og skipulagi breytt.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.