Morgunblaðið - 27.01.1999, Side 14

Morgunblaðið - 27.01.1999, Side 14
14 MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Krossanesverk- smiðjan Urskurður kærður FORSVARSMENN Krossa- nesverksmiðjunnar á Akur- eyri hafa kært úrskurð Holl- ustuverndar ríkisins, varðandi vinnslu- og starfsleyfi verk- smiðjunnar til umhverfisráðu- neytisins. Hollustuvernd hefur gefið út starfsleyfi til verksmiðj- unnar í eitt ár í senn síðustu ár en hafnað óskum um stækkun hennar. Forsvars- menn verksmiðjunnar hafa óskað eftir starfsleyfi til fjög- urra ára, líkt og ílestar aðrar verksmiðjur fá, og einnig ósk- að eftir því að auka vinnslu- getuna úr 500 tonnum í 850 tonn á sólarhring. Eins og komið hefur fram telja forsvarsmenn Krossa- nesverksmiðjunnar sig ekki njóta sama réttar og aðrar verksmiðjur varðandi mögu- leika á afkastaaukningu og lengd starfsleyfis. Kæran til umhverfisráðuneytisins var send í upphafi ársins og má vænta úrskurðar innan tíðar. Ferðafélag Akureyrar Ferðaáætlun ársins kynnt FERÐAFÉLAG Akureyrar kynnir ferðaáætlun þessa árs á fundi í Galtalæk, húsi Flug- björgunarsveitarinnar á Akureyri, annað kvöld, fimmtudagskvöldið 28. janú- ar, kl. 20.30. Sýndar verða myndir frá nokkrum þeirra staða sem ætlunin er að ferð- ast um á árinu og boðið verð- ur upp á kaffiveitingar. Ferðir ársins eru fjölbreyti- legar að venju og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi, en m.a. verður boð- ið upp á gönguferðir, bæði léttar og þyngri, útilegur af ýmsu tagi, fjallaferðir og fleira. Þá verður í allan vetur farið í skíðagönguferðir á laugardögum og verður sú fyrsta farin næstkomandi laugardag, 30. janúar, á Súlumýrar. Samvera aldraðra BJARNI Hafþór Helgason framkvæmdastóri Útvegs- mannafélags Norðurlands og fyrrverandi sjónvarpsfrétta- maður verður gestur á sam- verustund aldraðra í Akur- eyrarkirkju á morgun, fimmtudaginn 28. janúar, en hún hefst kl. 15. Söngnemendur við Tónlist- arskólann á Akureyri taka lagið og þá verður almennur söngur. t Morgunblaðið/Kristján FRYSTITOGARINN Baldvin Þorsteinsson EA var með mesta afla- verðmæti íslenskra fiskiskipa á síðasta ári. Afli Samherjaskipa 1998 (almanaksárið) Togskip Afli, tonn Aflaverðmæti, milljónir kr. Baidvin Þorsteinsson EA-10 7.144 790,1 ' ' Víðir EA-910 5.390 634,41 Akureyrin EA-110 5.723 Margrét EA-710 2.863 444.81 Guðbjörg ÍS-46 2.318 320.1 \$m I Samtals 23.438 2.823,2 Nótaskip Þorsteinn EA-810 37.826 413.81 m Háberg GK-299 30.160 242.1 ■ n Oddeyrin EA-210 28.536 236.41 l Samtals 96.522 892,2 Alls 119.960 3.715,5 Aflaverðmæti Baldvins Þorsteinssonar 800 milljónir í fyrra Aflaverðmæti skipa Sam- herja rúmir 3,7 milljarðar AFLAVE RÐMÆTI skipa Sam- herja hf. á síðasta ári, þ.e. frystitog- ara og nótaskipa, nam rúmlega 3,7 milljörðum króna. Heildarafli frystitogara félagsins var tæplega 23.500 tonn og heildarafli nótaskipa rúmlega 96.500 tonn. Frystitogarinn Baldvin Þor- steinsson EA var með mesta afla- verðmæti íslenskra fiskiskipa á síð- asta ári, eins og undanfarin ár. Afla- verðmæti skipsins var um 790 millj- ónir króna og heildaraflinn rúmlega 7.100 tonn. Víðir EA var með afla- verðmæti upp á 634,3 milljónir króna, en afli skipsins var um 5.400 tonn. Akureyrin EA var með aflaverð- mæti upp á tæplega 634 milljónir króna, en afli skipsins var rúmlega 5.700 tonn. Margrét EA var fyrri hluta síðasta árs á rækjuveiðum og seinni hlutann á bolfiskveiðum. Guðbjörg ÍS var í leigu í Þýskalandi fram í apríl í fyrra en var svo bæði á rækju- og bolfiskveiðum á vegum Samherja eftir það. Þorsteinn EA var með lang mest- an afla og mesta aflaverðmæti af nótaskipum félagsins. Aflaverðmæti skipsins var tæpar 414 milljónir króna og aflinn rúmlega 37.800 tonn. Morgunblaðið/Kristján SKÍÐAÁHUGAFÓLK Qölmennti á skíðagöngunámskeið Skíðasambandsins í Hlíðarfjalli um helgina Margir á um um SKÍÐAÁHUGAMENN, bæði vanir og óvanir, fjölmenntu í Hlíðarfjall um helgina, en þar var boðið upp á snjóbrettanám- skeið og námskeið í skíðagöngu, auk þess sem lyftur voru í gangi og skíðagöngubraut opin. Hauk- ur Stefánsson, forstöðumaður Skíðastaða, sagði að 600-700 manns hafí komið í fjallið um helgina og þar af hafí um 200 „Au pair í Noregi Erik, 2ja ára og yngstur í 5 manna fjölskyldu, óskar eftir hressri, barngóðri og reyklausri „au pair“ sem allra fyrst. Fær eigin íbúð. Fjölskyldan býr í Asker, 25 km utan við Osló. Vinsamlegast sendið umsókn með mynd til: Family Kavli, Drengsrudveien 45b, 1370 Asker, Norge. E-mail: jkavli@online.no námskeið- helgina manns, á öllum aldri, tekið þátt í skíðagöngunámskeiðinu. Skiðasamband fslands stóð fyrir skíðagöngunámskeiðinu en verslunin Holan hafði veg og vanda af snjóbrettanámskeið- inu. Þá stóðu félagar í Skíðaráði Akureyrar fyrir maraþonskíða- göngu og gengu í heilan sólar- hring. Tilgangurinn var að vekja athygli á skíðagönguíþróttinni og þeirri frábæru aðstöðu sem búið er að byggja upp fyrir göngufólk í Hlíðarfjalli. Haukur var að vonum ánægð- ur með helgina og sagði aðsókn- ina hafa verið mjög góða og þá ekki síst miðað við árstíma. Hann sagði skíðafæri mjög gott og að nægur snjór væri í fjallinu. „Hér hefur snjóað mjög mikið að undanförnu og ég er sannfærður um að þótt ekkert si\jói meira í vetur, dugar þessi snjór langt fram á vorið.“ Vinabæj- armót í Vásterás UNGU fólki á aldrinum 16 til 20 ára fi'á Akureyi-i gefst kostur á að taka þátt í vinabæjarmóti í Vasterás í Svíþjóð dagana 28. júní tíl 2. júlí. Oll dvöl ytra er þátttakendum að kostnaðarlausu og ferðastyrkir eru veittír bæði af Vásterás og Akureyrarbæ. Á vinabæjarmótum er unnið að margvíslegum verkefnum sem tengjast daglegu lífi og tóm- stundum hins almenna borgara, svo sem menningu, listum og iþróttum. Vinabæjarmótin hafa mikið gildi fyrir tengslin milli Norðm-landanna, þau eru vett- vangur almennings til að stofna til vináttu við fólk í þessum ná- grannalöndum okkai-, kynnast menningu þeirra og daglegu lífi og öðlast skilning á mikilvægi samvinnu og samstöðu meðal þjóðanna. Meginverkefnin á mótinu í sumar eru leiklist og línuskauta- dagskrá. Hvað leiklistina varðai- er gert ráð fyrir að dagskráin byggist upp á blöndu af leik, tónlist og dansi og munu þátt- takendur annast öll atriði dag- ski-árinnar. Þá er gert ráð fyrir að línuskautadagskrá byggist á frjálsri notkun línuskauta og munu þátttakendur fara hóp- ferð um bæinn Vásterás í lokin. Val þátttakenda fer fram í febrúar og hefst undirbúningur ferðarinnar fljótlega . Frestur til að sækja um er til 2. febrúar en umsóknareyðublöð liggja frammi í framhaldsskólum, Kompaníinu og á skrifstofu Akureyrarbæjar við Glerárgötu 26, en þar fást nánari upplýsingar. Umframmjolk greidd að fullu STJÓRN Kaupfélags Eyfirðinga hefur ákveðið að taka upp greiðslur fyrir úrvalsmjólk og þá ætlar kaup- félagið einnig að greiða fullt afurða- stöðvarverð fyrir alla mjólk sem berst Mjólkursamlagi KEA á yfir- standandi verðlagsári. Samtök afurðastöðva í mjólkuriðn- aði mótuðu tillögm- um flokkun og greiðslu fyrir úrvalsmjólk á síðasta ári, en stjórn samtakanna ákvað að leggja það í vald einstakra mjólkur- samlaga hvort greitt yrði eftir tillög- unni eða ekki. Hólmgeir Karlsson, mjólkursam- lagsstjóri Mjólkursamlags KEA, sagði að stjórn KEA hefði ákveðið að fara að tillögum samtakanna og taka upp greiðslur fyrir úrvals- mjólk. Gæðabónus, 25 aurar á hvern lítra, verður greiddur fyrir úi-vals- mjólk og fara greiðslur fram mán- aðarlega. Á síðustu árum hafa um 50 bændur hlotið viðurkenningu fyrir framleiðslu á úrvalsmjólk. Meðalbú á svæði Mjólkursamlags Kaupfélags Eyfirðinga er með 120 þús. lítra framleiðslurétt þannig að tekjur bænda á meðalbúi sem fram- leiða úrvalsmjólk aukast um 30 þús. kr. á ári. „Við viljum að þeir sem framleiða bestu mjólkina njóti þess. í leiðinni er þetta hvatning til bænda þannig að fleiri sjái sér hag í að bætast í þennan hóp,“ sagði Hólmgeir. Stjóm KEA hefur einnig ákveðið að greiða fullt verð fyrir alla mjólk sem berst samlaginu á þessu verð- lagsári. Bændur á samlagssvæðinu voru síðasta sumar hvattir til að framleiða sem mest af mjólk, enda ostabirgðir hættulega litlar, að sögn Hólmgeirs. Brugðust bændur vel við var innvegin mjólk 20,6 millj. lítra sem er einni milljón lítra meira en var 1997. „Mest munaði um aukning- una sem varð á síðari hluta ársins, þessi viðbót kemur sér afar vel og nú hefur okkur tekist að snúa þróuninni við, ostabirgðir eru nægar,“ sagði samlagsstjóri.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.