Morgunblaðið - 27.01.1999, Page 17

Morgunblaðið - 27.01.1999, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 1999 17 AUGLÝSING SÁÁ FRÉTTIR Birt í Morgunblaðinu 8. árg. 1. tbl. - janúar 1999 Ábm: Theódór S. Halldórsson m SÁÁ, Samtök áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann Ármúla 18 • 108 Reykjavik Sími: 581-2399 • Fax: 568-1552 Fréttir af SAA í nýjum búningi Félagar og styrktarfélagar SÁÁ eru nú tæplega 20 þúsund. Frá árinu 1991 hafa þeir fengið SÁÁ Fréttir heimsendar í pósti. Póstburðargjöld fyrir blöð og tímarit hafa hins vegar hækkað verulega undanfarin misseri, þannig að útsendingarkostn- aður fyrir svo stórt upplag var orðinn óheyrilega hár. Því fór SÁÁ þess á leit við Morgun- blaðið að fá að kaupa eina síðu undir þau tíðindi sem koma þarf reglulega á framfæri tO fé- laga, styrktarfélaga og vel- unnara samtakanna. Um leið og SÁÁ kemur ffegnum með þessum hætti á framfæri til fé- lagsmanna geta aðrir lesendur Morgunblaðsins einnig orðið nokkurs vísari um starfsemi samtakanna. Þeir félagar SÁÁ sem ekki hafa aðgang að Morgunblað- inu geta haft samband við SÁÁ í síma 581-2399 og fengið sent afrit af fréttabréfinu í pósti. Á næstunni mun SÁA opna heimasíðu á netinu og verða þar enn meiri upplýsingar frá SÁÁ en komast fyrir í ffétta- bréfi af þessu tagi. Ætlunin er að birta SÁÁ Fréttir í Morgunblaðinu að jafnaði einu sinni í mánuði, í lok hvers mánaðar. Sú tíma- setning er m.a. miðuð við að birta dagskrá göngudeilda og félagsstarfs í tæka tíð. Það er von SÁÁ að þessi nýjung, sem jafnframt er sparnaðarráðstöf- un, rnælist vel fyrir. Byggingu á nýjum álmum við Vog miðar vel - Áætlum að Ijúka verkinu í nóvember, segir Oddur Hjaltason, formaður byggingarnefndar Framkvæmdir eru nú hafnar að fullu við byggingu á nýjum álmum við sjúkrahúsið Vog. Samtals verða þess- ar tvær álmur 1.400 fermetrar. Önnur þeirra, sú sem rís vestan megin við Vog, mun hýsa sérstaka meðferðar- deild fyrir yngstu sjúklingana. Þörf fyrir slíka aðstöðu er orðin mjög brýn. í hinni álmunni verður ný göngudeild sem mun létta mjög á sjúkrarekstrinum og eyða biðlistum eftir meðferð. Hið nýja húsnæði eyk- ur einnig afköst og rekstrarhagræð- ing er töluverð. Oddur Hjaltason, byggingartækni- fræðingur og stjórnarmaður í SÁÁ, er formaður byggingarnefndar Vogs. Hann segir að ef veður verði gott í vetur verði vesturálman fokheld í apríl og austurálman í maí. „Standist áætlanir verður nýja hús- næðið tekið í notkun í nóvember næstkomandi," segir Oddur. Byggingaraðili er Álftárós og verk- efnisstjóri verkkaupa er Gunnar Torfason verkffæðingur. Þegar er bú- ið að slá upp sökklum vesturálmunn- ar og byrjað er að grafa fyiir sökklum austurhlutans þar sem göngudeildin verður. Frost hafa tafið nokkuð að hægt væri að steypa sökklana. Heildarkostnaður er áætlaður um 200 mOIjónir króna. Fjármögnun er margþætt. Samtökin reiða sig að stórum hluta á gjafaffamlög frá ein- staklingum, verkalýðsfélögum og fyr- irtækjum en jafhffamt er leitað tO ríkis og sveitarfélaga um ffamlög og efnt tO sérstakra fjáraflana. Þeim sem vOja leggja samtökunum lið er bent á söfhunarreikning SÁÁ nr. 20 í úti- búi Landsbankans Miklubraut. Þarf ástandið að versna mikið meira áður en það lagast? Bráðlega mun SÁÁ birta nýjustu upplýsingar um ástandið í vímuefna- málum. Þó að tölulegar upplýsingar um árið 1998 liggi ekki endanlega fýrir er ljóst að það slæma ástand sem skapaðist á miðju ári 1995 í vímu- efhamálunum er komið tO að vera. í barnaskap okkar, trúgirni og með- fæddri bjartsýni vonuðum við flest að þetta væri tímabundið ástand sem mundi lagast fljótt. En svo er ekki. Þessar upplýsingar þýða einfaldlega, að í náinni framtíð mun álag á heil- brigðisstofnanir, einkum þó stofnan- ir SÁÁ, aukast verulega. Meiri tími heilbrigðisstarfsmanna, lögreglu, lög- ffæðinga og dómara mun fara í að sinna afleiðingum af langvarandi vímuefhaneyslu. Opinberir sjóðir munu borga brúsann. Það forvarnarstarf sem unnið er í landinu hefur einkum byggst á því að höfða til skynsemi og sjálfsstjórnar og draga þannig úr eftirspurn einstakl- inganna eftir vímuefhum. Taka síðan þá sem veikjast og veita þeim viðeig- andi meðferð. Þetta starf hefur skOað miklum og góðum árangri. Frá árinu 1995 hafa þó varnirnar verið að bresta. Víðtæk- ar þjóðfélagsbreytingar hér og í nágrannalönd- um hafa aukið áhuga unglinga á vímuefhum og gert þeim auðveldara að ná í þau. I Ijós kemur að það er ekki nóg að höfða til skynsemi og sjálfsstjórnar við þessar aðstæður. Til þess eru þeir sem eru í mestri hættu of ungir. Tvennt þarf þvi að gera hið bráðasta. 1 fyrsta lagi þarf að draga úr aðgengi ungmenna að áfengi og öðrum vímuefnum. I öðru lagi þarf að nota þá læknisfræðOegu þekkingu sem fyrir, er til að finna þá sem eru í mestri hættu nógu snemma og beina kröffum að þeim áður en þeir sýkjast. Allir sem að þessum vanda koma verða að gera sér ljóst að nú er brýn- ast að herða róðurinn í aðhaldsmál- unum og minnka aðgengið að vímu- efnunum. Fullorðna fólkið verður að láta eitthvað á móti sér og leggja á sig aukið erfiði. Ábyrgð for- eldra og annarra uppalenda er hér stærst. En þeir eru fleiri sem þurfa að bretta upp erm- arnar. Sveitarstjórnir á suðvestur- horninu verða að standa sig betur og gera sér ljóst að meðan einhver hluti skemmtanaiðnaðar í þessum sveitar- félögum er í höndum lögbrjóta er ekki von á góðu og í skjóli hans munu umsvif vímuefnamangara vaxa. Efla þarf menningarstarfsemi og gera eftirsóknarvert fyrir heiðarlega listunnendur og þá sem bera hag ungs fólks fyrir brjósti, að sjá um skemmt- analífið í miðborginni og bæjunum hér í kring. Skera þarf upp herör gegn skattsvikurum, klámkóngum og þeim sem brjóta núverandi áfengislöggjöf, ekki af nauðsyn heldur af ásettu ráði í von um aukinn gróða á kostnað æsku þessa lands. Þeim er ekki treyst- andi fyrir ungu fólki á síðkvöldum og um helgar. Álmenningur verður að leggjast á sveif með skólayfirvöldum, stjórnmálamönnum og lögreglu til að herða aðhaldið og löghlýðnina. Það þarf bein í nefið tO að gera þetta. Því miður bendir ekkert tO þess að samfélagið búi yfir þeim myndugleik sem til þarf. Við getum því búið okk- ur undir að ástandið muni versna talsvert mikið meira áður en það fer að lagast. 1:1 Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir og formaöjr SÁÁ, skrifar um vímu- efnavandann Göngudeildarþjónusta AKUREYRI Glerárgötu 20 • sími 462-7611 Göngudeild SÁÁ á Akureyri er opin fyrir viðtöl og ráðgjöf alla virka daga ffá kl. 9-17. Fundir og ff æðsla í febrúar: Mánudagur 1. febrúar, kl. 18.30: Fyrirlestur Þórarins Tyrfingssonar um „Vanda aðstandenda". Fyrir- lesturinn er öllum opinn. Aðgangs- eyrir er kr. 500. Mánudagur 8. febrúar, kl. 20.00: Stefán Ingólfsson ráðgjafi heldur kynningarfund um „Meðferðarúr- ræði“. Aðgangur er ókeypis. Helgina 13.-14. febrúar verður haldið helgarnámskeið fýrir að- standendur. Nánari upplýsingar fást hjá göngudeildinni. Mánudagur 15. febrúar, kl. 20.00: Halldóra Jónasdóttir ráðgjafi held- ur fýrirlestur um „Bata við alkó- hólisma (bataþróun)“. Aðgangs- eyrir er kr. 500. Samstarf við sveitarfélög um víðtækar forvarnir Síðustu ár hefur athyglin beinst að gOdi víðtækra forvarna tO að draga úr vímuefhavanda ungs fólks. Sveitarfé- lagaverkefni SÁÁ og heObrigðisráðu- neytisins er gott dæmi um slíkt. „Þetta er viðamesta verkefnið sem ForvarnadeOd SÁÁ vinnur að. Árið 1997 hófú 5 sveitarfélög samvinnu við deOdina og 7 bættust við á síðasta ári. HeObrigðisráðuneytið og SÁÁ gerðu samning til tveggja ára um að ráðuneytið legði fram 6,5 mOljónir Starfsmenn Forvarnadeildar SÁÁ ásamt verkefnastjórum þeirra sveitarfélaga sem tóku þátt í verkefninu á sífiasta ári. F.v.: Einar Gylfi Jónsson (SÁÁ), Indrið Jósafatsson (Borgarbyggö, Ásþór Ragnarsson (SÁÁ), Ólöf Thorarensen (Árborg), Sigmundur Sigmundsson (Siglufirð), Hlynur Snorrason (ísafirð, Bolungarvík og Súðavík), Haukur forvaldsson (Hornafirð) og Ingi Baeringsson (SÁÁ). hvort ár og tryggði þannig framgang verkefnisins,“ segir Einar Gylfi Jóns- son, deOdarstjóri ForvarnadeOdar. Að sögn hans er meginhugsunin á bak við sveitarfélagaverkefnið sú, að tO þess að ná árangri í forvörnum þurfi að byrja á því að byggja ákveð- inn grunn. Hluti af því er að ná víð- tækri samstöðu um hvað samfélagið telur sæmandi að bjóða börnum og unglingum og með hvaða hætti lykil- aðilar vinna með foreldrum að þvi að veita ungdómnum aðhald og stuðn- ing. Sveitarfélögum er boðin fagleg aðstoð við að móta stefnu sína í for- vörnum og virkja lykOaðila með fræðslu og leiðsögn. Auk þess er for- eldrum og unglingum boðið upp á ffæðslu. Arangur á hverjum stað fer fýrst og ffemst eftir því hversu vel tekst til að virkja stofnanir, félaga- samtök og almenning. „Eðli málsins samkvæmt er verk- efnið í stöðugri þróun. Við þessi ára- mót hefúr verið farið yfir starfið í samráði við sveitarfélögin sem tekið hafa þátt og ýmsar endurbætur gerðar. Á þessu ári er búist við að ekki færri en sjö sveitarfélög bætist við.“ Göngudeildarþjónusta REYKJAVÍK Síöjmúla 3-5 • sími 581-2399 Fundir meðferðarhópa á vegum SÁÁ eru haldnir sem hér segir: Meðferðarhópur (M-hópur): Mót- töku- og kynningarfúndir eru á fimmtudögum kl. 16.15. FundirM- hóps eru fyrir þá sem geta nýtt sér áfengismeðferð á göngudeild. Með- ferðin fer ff am á hópfundum, fyrir- lestrum og með viðtölum. Fyrstu 4 vikurnar er mætt 4 kvöld í viku en síðan vikulega í þrjá mánuði. Vikingahópur: Fundir eru á mánu- dögum og fimmtudögum frá kl. 16-17. Móttaka og skráning er á sömu dögum kl. 15.30. Eftir Vík- ingameðferð á StaðarfeUi er göngu- deildarstuðningur í eitt ár. Fyrstu 8 vikurnar er mætt tvisvar í viku en síðan vikulega í 44 vikur. • • • • • Kvennahópur: Móttaka og skrán- ing er mánud. kl. 15.30 og fimmtu- daga kl. 17. Eftir „Kvennameðferð" á Vík er veittur göngudeildarstuðn- ingur í eitt ár. Fundir eru tvisvar í viku fyrstu 12 vikurnar síðan einu sinni 1 viku. Fjölskyldumeðferð er liður í stuðningi við hópinn. Spilafíklar: Fundir eru á þriðju- dögum ffá kl. 18-19. Móttaka og skráning er sömu daga kl. 17.30. Eftir viðtal við ráðgjafa geta spila- fíklar fengið ótímabundinn stuðn- ing. Þessum hópi og aðstandend- um standa til boða ffæðsluerindi, viðtöl og hópstarf. Ef nauðsyn kref- ur er spilafíklum boðin meðferð sem er um helgar og felst í erind- um, viðtölum og hópfundum. Unglingahópur: Vikulega eru haldnir stuðningsfundir fýrir ungt fólk, 14-22 ára, með vímuefna- vandamál. Móttaka og skráning er mánud. kl. 17.20. Fólk kemst inn í hópinn að lokinni meðferð á Vogi eða á eftirmeðferðarstöðum SÁÁ. Stuðningshópur fyrir alkóhólista hittist daglega kl. 11 árdegis. Inn- ritanir eru hjá læknum á Vogi. Einnig geta ráðgjafar á göngudeOd komið fólki í hópinn. Stuðningshópur fyrir aðstandendur: Fundir aðstandenda alkóhólista eru á þriðjud. kl. 16.1 þann hóp fer fólk eftir viðtöl við ráðgjafa eða fjölskyldunámskeið á göngudeild. Foreldrahópur er stuðningshópur fýrir foreldra ungra vímuefnaneyt- enda. Hópurinn er jafnt fýrir for- eldra sem eiga börn í meðferð og barna sem hafa lokið meðferð. Jafnframt er hópurinn fýrir þá foreldra sem leita sér upplýsinga vegna gruns um fíkniefnaneyslu. • • • • • Fræðslunámskeið fyrir alkóhólista: Haldin eru helgarnámskeið um bata og óftOlkominn bata. Á þeim er fjaUað um ýmsa þætti sem koma í veg fyrir bata fýrstu mánuði eftir meðferð. Þessi námskeið henta líka vel þeim sem þurfa að ná sér eftir áföll eða aðra erfiðleika. • • • • • Fjölskyldunámskeið SÁÁ eru af tvennum toga, 5 vikna námskeið og helgarnámskeið. Á þeim er leitast við að auka þekkingu þátttakenda á vímuefnasjúkdómnum, einkennum hans, hvernig hann birtist og hvernig hann hefur áhrif á fólk sem er í nábýli við hann. Þriðjudagsfyrirlestrar: SÁÁ stend- ur fýrir fýrirlestrum aUa þriðjudaga kl. 17. Þeir eru öUum opnir en að- gangseyrir er kr. 500. Á næstunni eru eftirtaldir fyrirlestrar: 2. feb: Alkóhólismi og lyíjanotkun. 9. feb: Ófúllkominn bati. 16. feb: Hass, fíkn og fráhvörf. 23. feb: Sjúkdómurinn alkóhólismi. 2. mar: TUfinningar; ótti og kvíði. • • • • • Kynningarfundir SÁÁ eru haldnir í Síðumúla 3-5 aUa fimmtudaga. Kynningin hefst kl. 19 og stendur í 45 mín. Á eftir eru leýfðar fýrir- spurnir. Á fundunum er fjallað um starfsemi SÁÁ, áfengissýki og aðra fíkn og meðvirkni. G.A. fundir eru haldnir á fimmtu- dögum kl. 20.30 og kl. 18 sömu daga eru haldnir Gam-anon fúndir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.