Morgunblaðið - 27.01.1999, Side 18
18 MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Arnþór Halldórsson hjá Tali hf. á fundi um fjarskiptamál
„Kínverskir múrar“
Landssímans
Morgunblaðið/Árni Sæberg
MARGIR helstu forystumenn á fjarskiptamarkaði mættu til fundarins og hlýddu á „reynslusögur“
fyrirtækja af markaðnum.
FÖSTUM skotum var skotið á
Landssímann og stöðu hans á
markaðnum á hádegisverðarfundi
Skýrslutæknifélags Islands í gær,
sem bar yfirskriftina Reynslusögur
- Fjarskiptamál í brennidepli - hef-
ur samkeppnin skilað sér til neyt-
enda?
Á mælendaskrá fundarins voru
forsvarsmenn fyrirtækja sem ann-
aðhvort eru á símamarkaði hérlend-
um, eða hafa boðað komu sína á
markaðinn á þessu ári.
Fundurinn var haldinn í tilefni af
því að nú er rúmt ár liðið frá því ný
fjarskiptalög tóku gildi, leyfð var
samkeppni á markaðnum eftir um
90 ára einokun ríkisfyrirtækisins
Landssímans og forvera þess Pósts
og síma.
Fá ekki aðgang að
grunnnetinu
Á fundinum gagnrýndu forsvars-
menn samkeppnisaðila Landssím-
ans fyrirtækið meðal annars fyrir
að standa í vegi fyrir að frjáls sam-
keppni kæmist á á markaðnum að
fullu. Arnar Sigurðsson, sölu og
markaðsstjóri Islandssíma, sem
boðað hefur komu sína á markað
með vorinu, sagði að þar sem fyrir-
tækið fengi ekki aðgang að grunn-
neti Landssímans, gæti fyrirtækið
ekki hafíð samkeppni við það á öll-
um sviðum og sagði að tafir á sam-
keppni þýddu höft á samkeppni.
„Af hverju fær fólk ekki frelsi til að
velja hvaða símafyrirtæki það
skiptir við án þess að þurfa að
breyta símanúmeri sínu,“ sagði
Arnar.
í sama streng tók framkvæmda-
stjóri sölu og markaðssviðs Tals hf.,
Amþór Halldórsson, og sagði m.a.
að skýrari heimildir vanti í fjar-
skiptalögin til að samkeppni gæti
farið fram óhindrað hér á landi og
biðlaði þar til stjómvalda að þau
skoði málið.
Hann sagði einnig að Landssím-
anum hefði unnist tími til að byggja
sér „kínverska múra“ áður en lögin
komust á og hefði getað komið upp
stafrænni símstöð og lagt Ijósleið-
ara um allt land til að samkeppnis-
aðstaða annarra aðila við fyrirtækið
yrði verri, þegar samkeppni var
loksins leyfð.
Arnþór kom einnig inn á bráða-
birgðaúrskurð Póst- og fjarskipta-
stofnunar um að Landssímanum
beri að innheimta fyrir millilanda-
símtöl Tals hf., og sagði það rétt
neytandans að hafa gegnsæi og
geta séð á sama reikningi mismun-
andi þjónustu sem hann kaupir, og
á hvaða verði hún er.
Fj arskiptafyrirtæki
21. aldarinnar
Arnar Sigurðsson hjá Islandssíma
sagði það meginstefnu fyrirtækisins
að bjóða lægra verð en Landssím-
inn. Hann sagði Íslandssíma fjar-
skiptafyrirtæki 21. aldarinnar sem
myndi meðal annars hafa að leiðar-
ljósi í þjónustu sinni mögulegan
samruna sjónvarps, Nets og síma.
„Samkeppni snýst um hærri eða
lægri fjarskiptakostnað, og meiri
eða minni hraða við að innleiða
tækninýjungar á markaðinn," sagði
Arnar.
Þór Jes Þórisson, framkvæmda-
stjóri sölu- og markaðssviðs Lands-
símans, gerði kærur þær sem
Landssíminn hefur fengið á sig frá
samkeppnisaðilum á markaðnum
frá því ný fjarskiptalög tóku gildi að
umtalsefni.
Hann sagði að kærumar væm
eðlileg viðbrögð nýrra fyrirtækja á
markaðnum, og sagði það alþekkt
að kæram væri beitt til að tefja
samkeppni af hálfu Landssímans í
þessu tilfelli, og til að rýra álit al-
mennings á fyrirtækinu.
Þór sagði einnig að þrátt fyrir að
Amar Sigurðsson héldi öðra fram í
sínu erindi á fundinum fagnaði
Landssíminn samkeppni og óskaði
Íslandssíma og Tali góðs gengis,
það efldi Landssímann til dáða.
Þór sagði að helsti árangur
Landssímans lægi í uppbyggingu
stafrænna símstöðva, lagningu Ijós-
leiðara og að tryggja greiða leið
fjarskipta frá landinu, um gervi-
hnetti og ljósleiðarann CANTAT 3.
Þór benti á að Landssíminn hefði
verið með lægsta talsímagjaldið í
OECD-löndunum í könnun í nóvem-
ber sl. og Island væri í 6. sæti í far-
símaeign á hverja 1.000 íbúa. Brátt
verða 40% landsmanna með farsíma
að hans mati.
Hann sagði að íslendingar ættu
heimsmetið í Nettengingu heimila,
34% heimila væra tengd Netinu og
sú tala hefði vaxið úr 23% frá byrj-
un síðasta árs. í Bandaríkjunum
era, til samanburðar, 26% heimila
tengd Netinu.
Um væntanlegar nýjungar sagði
hann m.a. að Landssíminn ætlaði
að hrinda af stað háhraða gagna-
flutningsþjónustu í mars nk., ATM,
sem biði upp á aukna bandbreidd,
meiri sveigjanleika, hagstæðari
kjör og svari þörfum markaðarins
fyrir slíkt kerfi.
Hann sagði að kerfið yrði að-
gengilegt 90% fyrirtækja landsins
innan 2 ára.
Aðrar nýjungar sem Þór nefndi
vora tilraunir með háhraðaflutning
á koparstreng, stafrænar sjón-
varpsrásir um breiðbandið og sagði
að innan árs myndi fyrirtækið
væntanlega geta boðið upp á ríflega
100 stöðvar með þeim hætti.
Áframhaldandi
verðlækkanir
Dagný Halldórsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Skímu hf., dótturfyr-
irtækis Landssímans, sagði að
Skíma stundaði nú sem fyrr svo-
kallaða virðisaukandi fjarskipta-
þjónustu, sæi um fjarskiptaþjón-
ustu um Netið sem og þróun og
rekstur margmiðlunarefnis fyrir
Netið.
Einnig hóf fyrirtækið talsíma-
þjónustu um Netið 1. desember á
síðasta ári, Net símann, þar sem
boðin era símtöl til útlanda á
20-30% lægra verði á dagtaxta en
Landssíminn býður, að hennar
sögn.
Hún sagði að verð þjónustunnar
myndi lækka enn frekar á þessu ári
Hún sagði að samkeppni á Net-
markaði hefði skilað neytendum
meiri gæðum, lægra verði og betri
þjónustu.
Arnþór Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri sölu og markaðssviðs
Tals hf., sagði undir lok fundarins
að það sem myndi ráða úrslitum í
samkeppninni á fjarskiptamarkað-
inum væri hæfileikinn til að mark-
aðssetja vöra sína, frekar en
tækninýjungar.
Hann sagði að fyrirtækið væri nú
með 15% markaðshlutdeild á far-
símamarkaði en sagði að stefnt
væri að því að bjóða upp á þjónustu
á fleiri sviðum talsímaþjónustu.
Arnþór varpaði fram þeirri
spurningu hvort ekki væri eitthvað
bogið við það að Landssíminn væri
bæði með lægstu símgjöldin í
OECD-löndunum en gæti samt ver-
ið með hlutfallslega 3. mesta hagn-
að símfyrirtækja í Evrópu. Þessu
svaraði fulltrúi Landssímans í lok
fundar með því að velgengnin fælist
í góðri stjómun fyrirtækisins.
„Ríkisrekstur í fjarskiptum er
tímaskekkja og ég hvet yfirvöld til
að sýna þann kjark og það þor sem
þarf til að sleppa takinu af Lands-
símanum,“ sagði Arnþór.
FASTEIGNA r-
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMAR 551-1540, 552-1700, FAX 562-0540
OPIÐ VIRKA DAGA KL. &-18. Netfang: http://habil.is/fmark/
Framkvæmdastjóri Sundagarða ehf. um niðurstöðu samkeppnisráðs
Harmar að Eimskip geti
ekki viðurkennt mistök sín
2
Z
cc
=)
o
<
cc
<
2
<
z
o
IXi
i—
(n
<
u_
Nesbali - Seltiarnarnesi
Einstaklega vandað og vel skipulagt 160 fm einbýlishús
ásamt 43 fm tvöföldum bílskúr. Saml. stofur, 3-4 svefn-
herbergi. Arinn. Gufubað. Stór og falleg ræktuð lóð,
verðlaunagarður. Heitur pottur. Verð 21,5 millj.
EIGN í SÉRFLOKKI.
GÍSLI V. Einarsson, framkvæmda-
stjóri Sundagarða ehf., kveðst sam-
mála niðurstöðu samkeppnisráðs
um að tilboðsgerð Eimskipafélags
íslands hf. í tilboð i flutning á papp-
ír í símaskrár hafi haft skaðleg áhrif
á samkeppni og farið í bága við góða
viðskiptahætti. Hann segir að í
greinargerð samkeppnisráðs komi
skýrt fram að Eimskip hafi gert
mistök í tilboðsgerð sinni varðandi
flutning fyrir Landssímann.
„Það kemur okkur því veralega á
óvart og hryggir okkur að Eimskip
skuli ekki ennþá geta viðurkennt
mistök sín í þessu máli eins og fram
kemur í viðtali við Þórð Sverrisson,
framkvæmdastjóra hjá Eimskip, í
Morgunblaðinu á þriðjudag. En
þessi mistök réðu því engu að síður
hvaða tilboð varð lægst og hvaða til-
boði var tekið enda vegur flutnings-
kostnaður mjög þungt í þessu máli.
Þar af leiðandi skaðaði tilboðsgerð
Eimskips hagsmuni okkar verulega
eins og kemur fram í greinargerð
samkeppnisráðs."
Gísli segir að annað hvort hafi
þessi mistök verið gerð viljandi eða
óviljandi. „Þegar á það er litið að
málið er búið að vera hjá Sam-
keppnisstofnun í marga mánuði til
umfjöllunar með tilheyrandi
skýrslugjöfum, og ennþá hefur
Eimskip ekki getað skýrt hvers
vegna þeir töldu sig þurfa að flytja
sama magn af pappír í 21 gámi frá
Noregi en aðeins 17 gámum frá
Kanada, verður erfitt að að draga
þá ályktun að tiiboðsgerðin hafi ver-
ið gerð óviljandi."
Póstur og sími (Landssíminn)
auglýsti 2. desember 1997 eftir til-
boðum í 424 tonn af pappír fyrir
símaskrá. Á meðal þeirra sem buðu
í símaskrárpappírinn voru Skelj-
ungur vegna North American
Speciality Paper (Skeljungur) og
Sundagarðar. Landssíminn ákvað
að semja við Skeljung, þar sem verð
fyrirtækisins var hagstæðara, jafn-
vel að teknu tilliti til flutnings-
gjalda, að því er kemur fram í
greinargerð samkeppnisráðs.
Sundagarðar gátu ekki fallist á þá
ákvörðun og óskaði fyrirtækið eftir
því að Samkeppnisstofnun kannaði
hvaða verð hefði verið boðið í flutn-
inginn á pappírnum og hvort Eim-
skipafélagið hefði beitt ólögmætum
sjónarmiðum og/eða aðferðum til
þess að tryggja að boði Skeljungs
yrði tekið.