Morgunblaðið - 27.01.1999, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 27.01.1999, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 1999 19 VIÐSKIPTI Morgunblaðið/Þorkell GUÐBJÖRN Maronsson, forstöðumaður eignavörslu, Þorsteinn Þor- steinsson, framkvæmdastjóri Búnaðarbankans Verðbréf, Magnús Pétursson, stjórnarformaður Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda, og Sig- urbjörn Sigurbjörnsson, framkvæmdastjóri sjóðsins, skrifuðu undir samninginn. Séreignadeild Söfnunarsjdðs lífeyrisréttinda Búnaðarbankinn Verð- bréf annast vörslu Nýbre.ytni hjá Lánasýslu ríkisins Uppkaup fyrir allt að milljarði króna SÚ NÝBREYTNI verður hjá Lána- sýslu ríkisins í dag að í stað þess að vera með hefðbundin útboð ríkis- verðbréfa þá er hún með uppkaup á einum flokki spariskírteina, RS05- 0410/K (1. flokkur D1995, upphaf- lega til tíu ára), með tilboðsfyrir- komulagi (öfugt útboð). Eigendum ríkisverðbréfa í við- komandi flokki er gefinn kostur á að senda inn sölutilboð til Lánasýslu ríkisins sem síðan gengur að þeim tilboðum sem hagstæðust eru, þ.e. hafa hæstu vextina. Útboðið er hluti af ákvörðun fjár- málaráðherra um að greiða upp inn- lendar skuldir ríkissjóðs. Með út- boðinu er gert ráð fyrir að keypt verði spariskírteini fyrir að lág- marki um 300 milljónir króna en að hámarki fyrir um 1 milljarð króna. Að sögn Péturs Kristinssonar hjá Lánasýslu ríkissins er stærð flokks- ins, sem gefinn var út árið 1995, alls um 15 milljarðar og því býðst ríkið til að kaupa allt að 1/15 hluta flokks- ins núna. Orðið var við töluverðan áhuga „Þetta er tilraun sem ekki hefur verið reynd áður. Framkvæmdin er nákvæmlega eins og þegar við erum að selja verðbréf, hið eina sem breytist er að við erum að kaupa. Við höfum orðið vör við töluverðan áhuga á þessu útboði en við vitum þó ekkert um þátttöku fyrr en út- boðið hefst,“ sagði Pétur í samtali við Morgunblaðið. Lágmarksupphæð hvers tilboðs er 10 milljónir króna eða hærri að söluvirði. Flokkurinn er stærsti markflokk- ur af alls átta markflokkum spari- skírteina. Samkvæmt Pétri er heild- arupphæð útistandandi markflokka spariskírteina ríkissjóðs um 80 milljarðar. Hræringar hafa verið með þenn- an flokk verðbréfa á Verðbréfaþingi íslands síðan tilkynnt var um út- boðið 14. janúar sl. að sögn Péturs og vextir á spariskírteinum hafa farið lækkandi. Umferð um Flugleiðavefinn jókst um 70% á einum mánuði Aukninguna má rekja til kynningarátaks SÖFNUNARSJÓÐUR lífeyris- réttinda hefur stofnað séreignar- deild til að taka við viðbótarlíf- eyrissparnaði sjóðfélaga og ann- arra sem það kjósa. Hefur sjóð- urinn gengið til samstarfs við Búnaðarbankann Verðbréf um rekstur séreignardeildarinnar sem verður rekin sem aðskilin eining óháð rekstri sameignar- deildar sjóðsins. Ákveðið var að ganga til sam- starfs við Búnaðarbankann Verð- bréf að undangengnu útboði til aðila á fjármálamarkaði. „Samn- ingurinn er hagstæður og mun væntanlega skila sjóðfélögum auknum ávinningi,“ að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Söfnunarsjóður lífeyrisrétt- inda var stofnaður árið 1974 og er sjóðurinn sjötti stærsti lífeyr- issjóður landsins með um 6 þús- und greiðandi sjóðfélaga. Yfir 90 þúsund manns hafa greitt til sjóðsins frá stofnun. UMFERÐ um Flugleiðavefinn, sem ritstýrt er á 10 markaðssvæð- um Flugleiða í Evrópu og Norður- Ameríku, jókst um 70% í janúar miðað við fyrri mánuð. Þá fjölgaði heimsóknum á vefinn um nærri 400% á síðasta ári. Heimsóknarmet slegið Á tímabilinu 23. desember til 21. janúar heimsóttu 3.747 notendur vefinn um heim allan að jafnaði á hverjum degi, Sigmundur Hall- dórsson, forstöðumaður beinnar sölu hjá Flugleiðum, segir að á sama tíma hefði mátti greina tæp- lega 87 þúsund snertingar (hits) á dag. „Til marks um stóraukinn áhuga á vefnum og að þessar tölur verða fljótt úreldar er að met um fjölda heimsókna á einum degi var slegið 20. janúar, en þann dag skoðuðu yfir 5.500 vefinn og er það met.“ Sigmundur segir að aukning um- ferðar um vefinn hafi verið hlut- fallslega mest á markaðssvæðum Flugleiða í Þýskalandi og Bret- landi. „Þar nam aukningin 200%. Heimsóknum breskra notenda fjölgaði meðal annars úr 500 að jafnaði á dag í 1.500. Aukninguna má einkum skýra með vel heppn- uðu kynningarátaki á markaðs- svæðunum tveimur og breytingum sem gerðar voru á vefnum sem þjónar meginlandi Evrópu.“ Sala á Netinu er enn sem komið er mest í N-Ameríku. í nýlegri könnun meðal farþega félagsins kom í ljós að einn af hverjum 20 bandarískum farþegum félagsins (5,5%) segist hafa keypt miða sinn á Netinu. Sigmundur segir að far- miðasala á Netinu hafi aukist hratt á markaðssvæði félagsins í N-Ameríku en á síðasta ári marg- faldaðist sala á hverjum ársfjórð- ungi. Sigmundur segir að komið hafi í ljós að farþegar Flugleiða skoða vefinn í auknum mæli og kaupi jafnvel miða sinn þar. „í könnun sem gerð var í nóvember sl. kom fram að nærri þriðji hver farþegi hefur skoðað Flugleiðavefinn mið- að við 18% og 19% í tveimur sam- bærilegum eldri könnunum. Þar af hafa 39% íslenskra farþega skoðað vefinn og 37% þeirra sem koma frá Bandaríkjunum." Uppselt á þremur klukkustundum Sigmundur segir að meðlimir til- boðsklúbbs Flugleiða á Netinu séu vel vakandi gagnvart öllum tilboð- um sem eru í boði á vef félagsins. Fyrir skömmu seldist dagsferð til Glasgow upp á þremur klukku- stundum á Netinu, en tilboðið var eingöngu fyrir meðlimi tilboðs- klúbbsins og kostaði ferðin fimm þúsund krónur auk flugvallarskatts. Tveir ráðherrar til Asíu Finnur Ing- ólfsson fer til Malasíu ÍSLENSK viðskiptasendinefnd með fulltrúum ellefu íslenskra fyrirtækja fóru í gær áleiðis til Suðaustur-Asíu með Halldóri Ásgrímssyni utanríkis- ráðherra. Halldór mun fylgja við- skiptasendinefndinni til Taílands en Finnur Ingólfsson tekur síðan við forystu nefndarinnar og fylgir henni til Malasíu. Heimsóknin í Taílandi mun standa yfir frá 28.-30. janúar. Meðan á henni stendur mun Halldór m.a. eiga fundi með varaforsætisráðherra, ut- anríkisráðherra, viðskiptaráðherra, og landbúnaðarráðherra Taílands. Þá mun hann opna íslenska kaup- stefnu, taka þátt í málþingi um evr- ópumál og kynna sér starfsemi taí- lenskra sjávarútvegsfyrirtækja. Frá Taflandi mun viðskiptasendi- nefndin halda tfl Malasíu þar sem Finnur tekur við forystu hennar og þar stendur heimsóknin frá 1.-4. febrúar. Mun hann m.a. eiga fundi með iðnaðar- og viðskiptaráðherra landsins og opna íslenska kaup- stefnu. Siírefhisvönir Karin Herzog Kynning í Apótekinu íðufelli, ídag kl. 15-18. _____ rgllPfa. _____ Morgunverðarfundur á Hótel Borg Fimmtudaginn 28. janúar 1999, kl. 8:00 - 9:30 HIN HLIÐIN Á 2000 VANDANUM • Hver á að borga fyrir aðlögun tölvukerfa? • Hver ber ábyrgð á hugsanlegu tjóni? • Getur athafnaleysi stjómenda leitt til ábyrgðar? • Hvað um tryggingaþáttinn? • Hvað með viðskiptavildina? FRAMSÖGUMENN: _____________________________________________________s Guðjón Rúnarsson hdl., aðstoðarftamkvæmdastjóri Verslunarráðs Ragnar Birgisson, framkvæmdastjóri Skifunnar ehf. Friðrik Sigurðsson, framkvæmdastjóri Tölvumynda hf. Sigmar Ármannsson, framkvæmdastjóri Sambands ísl. tryggingafélaga Að loknum framsöguerindum geta fundarmenn komið á framfæri fyrirspumum eða komið með athugasemdir. Athugið að fundurinn verður á Hótel Borg. Fundargjald (morgunverður innifalinn) kr. 1.500,- Fundurinn er öllum opinn en æskilegt er að tilkynna þátttöku fyrirfram í síma 510 7100 eða bréfasíma 568 6564 eða með tölvupósti mottaka@chamber.is. VERSLUNARRAÐ ISLANDS 4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.