Morgunblaðið - 27.01.1999, Side 22
22 MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Borgin Armenfa í Andesfjöllimum varð verst úti íjarðskjálftanum f Kólumbfu
Um að litast
eins og eftir
loftárás
Annenía. Reuters.
Reuters
SVONA var umhorfs í héraðshöfuðborginni Armeníu eftir jarðslqálftann en hún varð einna verst úti.
Danski fjármálaheimurinn skekinn
Fjársvikamál
upp á tugi
milljarða króna
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
ÓTTAST er að allt að tvö þúsund
manns hafí farist í fjallaborginni
Armeníu sem verst varð úti í öflug-
um jarðskjálfta sem varð í miðhér-
uðum Kólumbíu á mánudagskvöld.
Tvær af hverjum þremur bygging-
um í borginni, sem stendur ofar-
lega í Andesfjöllunum, eru í rúst í
kjölfar jarðskjálftans og lágu enn
lík tuga manna í rústum húsanna
þegar sól hneig til viðar í gær-
kvöld.
Jarðskjálftinn mældist sex á
Richter og varð um kvöldmatar-
leytið á mánudagskvöld að íslensk-
um tíma, um hádegisbil að staðar-
tíma. Átti skjálftinn upptök sín í
miðri Kólumbíu, á mótum hérað-
anna Tolima og Quindio, og gætti
áhrifanna helst í miðvesturhluta
landsins, á þeim slóðum þar sem
Kólumbíumenn rækta mestan
hluta kaffiuppskeru sinnar en hún
er önnur mesta útflutningsvara
Kólumbíu. Hækkaði verð kaffís á
mörkuðum í gær, vegna ótta um að
uppskerubrestur myndi valda litlu
framboði á þessu ári, en svo virtist
þó ekki í gær sem kaffiekrurnar
hefðu beðið mikinn skaða, að sögn
sjónarvotta.
60% Armeníu í rúst
Jarðskjálftinn olli miklum
skemmdum í borgum og bæjum
hvarvetna í V-Kólumbíu og jafnvel
í höfuðborginni Bogota, sem er 185
kílómetra í burtu frá upptökum
skjálftans. Verst úti varð hins veg-
ar borgin Armenía í héraðinu Qu-
indio eins og áður segir en þar
jöfnuðust heilu hverfin við jörðu,
rafmagn fór af og mikill vatns-
skortur var í borginni í gær. Er
talið að sextíu prósent Armeníu
séu nánast í rúst og var um að lit-
ast eins og loftárásir hefðu átt sér
stað.
Eftir að skjálftinn var afstaðinn
reyndu íbúar borgarinnar að
bjarga særðum og slösuðum úr
rústunum með skóflum eða jafnvel
bei'um höndunum. Þorðu margir
ekki aftur inn í húsin og Carlos Gil-
berto Giraldo, talsmaður Rauða
krossins, sagði í gær að 180.000
manns væru án heimilis í Armeníu
einni saman.
Hermdu fregnir einnig að tvö lít-
il þorp í suðvesturhluta Valle del
Cauca-héraði hefðu nánast verið
þuri'kuð út af landakortinu.
Andres Pastrana, forseti
Kólumbíu, frestaði þegar fyrirhug-
aðri ferð sinni til Evrópu vegna
hamfaranna en hann átti t.a.m. að
eiga fund með fulltrúum Alþjóða-
bankans í Munchen og Jóhannes
Páli páfa í Róm.
Óttast farsóttir
Björgunarstarf gekk hægt í Ar-
meníu í gær en þó var verið að
flytja slasaða flugleiðis til borg-
anna Bogota, Medellin og Cali þar
sem hlynna átti að þeim. Kvaðst
Giraldo óttast að farsóttir brytust
út yrði ekki senn hægt að koma lík-
um látinna fyrir í frystigeymslum.
Hafði útgöngubanni verið lýst
yfir í fyrrinótt í því skyni að koma í
veg fyrir að óaldarlýður nýtti sér
ástandið.
Á götum Armeníu ráfuðu þeir
um sem misst höfðu ættmenni sín í
hamforunum. Associated Press
hitti að máli Iliönu Patriciu Vega
en hún hafði verið stödd á annarri
hæð heimilis síns, ásamt tíu ára
syni sínum og sex ára dóttur, þeg-
ar húsið hrundi, með þeim afleið-
ingum að drengurinn dó samstund-
is. „Á einhver lyf til að gefa mér?“
spurði hún grátklökk en dóttir
hennar hafði hlotið slæman skurð á
enni.
Pedro Maria Londono, nágranni
Vegas, hafði sloppið betur því á
einhvern ótrúlegan hátt komust
hann og fjögurra manna fjölskylda
hans lífs af þegar heimili þeirra
gjöreyðilagðist. Hafði hvert her-
bergi í húsinu nema það sem fjöl-
skyldan var í, þegar jarðskjálftinn
reið yfir, hrunið til grunna.
„THORSEN er eins og rússíbani.
Ekki nóg með að hann fari upp og
niður, heldur kostar að fara með
honum.“ Þannig lýsir danska blaðið
Politiken kaupsýslumanninum
Kurt Thorsen, sem nú situr í
gæsluvarðhaldi vegna fjársvika.
Ymsir kunnir menn í stjómmálum
og fjármálum fá að öllum líkindum
að borga fyrir ferðina með honum.
Eftir miklar sviptingar í kringum
Thorsen undanfarnar vikur, þar
sem hann reyndi að ná undir sig
tveimur dönskum fjárfestinga- og
fasteignafyrirtækjum, meðal ann-
ars með Poul Schliiter fyrrverandi
forsætisráðhema sér við hlið, situr
hann nú í gæsluvarðhaldi ásamt
Rasmus Trads aðstoðarfram-
kvæmdastjóra PFA-Byg, bygging-
arfyrirtækis stórs lífeyrissjóðs.
Trads er grunaður um að hafa hafa
falsað veðleyfi sjóðsins fyrir um-
svifum Thorsens upp á um tvo
milljarða danskra kr., eða rúma
tuttugu milljarða ísl. kr. Bendir allt
til að þetta sé eitt stærsta
fjársvikamál sem upp hefur komið í
Danmörku.
Framkvæmdagleði
eða græðgi
Kurt Thorsen er af athafna-
mönnum kominn og fikraði sig inn í
verktakageirann í uppsveiflu síð-
asta áratugar. Hann var einn af
þeim athafnasamari, svo þessi lág-
vaxni, kringluleiti og brosmildi
maður varð landsþekktur. Kunnug-
ir segja að það sé ekki græðgi, sem
reki hann áfram, heldur fram-
kvæmdagleðin. Eitt tók við af
öðru og 1992 varð hann gjaldþrota.
Tap Unibank nam nokkrum millj-
örðum ísl. kr. Næstu árin heyrðist
lítið af Thorsen, en sjálfur segist
hann hafa ferðast um allan heim og
verið ráðgjafi við byggingarfram-
kvæmdir. Hann stóð þó einnig í
framkvæmdum heima fyrir því
danskir lífeyrissjóðir voru enn til í
að fjármagna þær.
í fyrravor keypti Thorsen í félagi
við danska lögfræðinga og auð-
mann, er býr erlendis, gjaldþrota
fasteignafyrirtæki, CVI Holding og
um líkt leyti stofnaði hann De Soto
Equity Aps. Ekki verður séð að
neinir peningar hafi verið lagðir á
borðið, en Rasmus Trads lagði
fram tryggingu upp á 180 millj.
danskra kr. Þessi greiði kom Thor-
sen á flot aftur. Undir jól voru 300
millj. danskra kr. lagðar í CVI
Holding frá skúffufyrirtæki á Jóm-
frúareyjum.
Kauphöllin gerir
athugasemdir
Frá CVI Holding fór Thorsen að
fikra sig yfir í tvö dönsk fjárfest-
ingarfélög, Norden og Gefion, án
þess vitað væri hver væri á ferð.
Thorsen-félagið keypti 40 prósent í
Gefion af norska auðmanninum
Kjeld Inge Rokke fyrir um 704
milljónir og 34,5 hlut í Norden af
Codan tryggingafyrirtækinu fyrir
um 798 milljónir á borðið. Um ára-
mótin kom í Ijós að Thorsen var
kaupandinn. í byrjun janúar gerir
danska kauphöllin athugasemdir
við kaupin, þar sem Thorsen var
tregur að veita upplýsingar.
En nú fór líka að koma hreyfing
á ýmsa sem voru með Thorsen.
Poul Schluter, sem átti að vera
stjórnarformaður í stjórn Gefion,
hætti við, þegar hann áttaði sig á að
Thorsen laug því að PFA kæmi
hvergi nærri fjármögnun kaupa í
Gefion og Norden. Þetta tilkynnti
hann kauphöllinni, en lét vera að
gefa upp ástæðuna. Nú er Schluter
harðlega gagnrýndur og mun vísast
dragast inn í rannsókn málsins og
þá hvort hann hafi með þögninni
villt um fyrir kauphöllinni.
Einnig hefur komið í ljós að í öll-
um þessum kaupum hafa aldrei
sést neinir peningar, aðeins trygg-
ing frá PFÁ, sem síðan kom í ljós
að Trads hafði falsað.
Kvenfólk og peningar
Sama dag og Thorsen var hand-
tekinn sagði danskur verktaki í
samtali við Morgunblaðið að hann
tryði því ekki að Thorsen væri
svindlari, þó hann spilaði djarft.
Sama hafa greinilega hópar lög-
fræðinga og fésýslumanna hugsað.
Sumir þeiri-a fá nú að iðrast ein-
feldni sinnar í fangelsi, aðrir hafa
misst trúverðugleikann eins og
Schlúter. Spurningin er hvort málið
heldur vöku fyrir Thorsen, sem í
blaðaviðtali fyrir nokkrum árum
sagði: „Það eru aðeins kvenfólk og
sjúkdómar sem geta gert út af við
mann. Peningar geta í versta falli
valdið smá áhyggjum."
JARÐSKJALFTINN I KOLUMBIU
Jarðskjálfti sem mældist sex á Richters-kvarðanum
skók miðhluta Kólumbíu á mánudagskvöld og er óttast
að yfir tvö þúsund manns hafi farist í skjálftanum.
Borgin Armenía, sem er helsta borgin á þessu svæði, varð verst úti í náttúru-
hamförunum og fórust þar að minnsta kosti 325 manns og yfir eitt þúsund
særðust. Tuttugu bæir í fimm héruðum urðu illa úti í jarðskjálftanum.
Pereira
40 km
KOLUMBIA
Bogota
s
Calarca
Montenegro
Upptök jarðskjálftans
Jarðskjálftinn átti upptök sín um 180 kílómetra
vestur af höfuðborginni Bogota og skall á rétt
fyrir kvöldmat að islenskum tíma á mánudag.
Hann varaði í sex mínútur.
iG Þau héruð sem verst urðu úti
BRAS-
ILÍA
’
'
Gerið verðsamanburð
HAIKfKK
DEKK
Vetrardekkin
á lága verðinu
Fólksbíladekk
Jeppadekk
Vörubíladekk
á frábæru verfií!
I V þ ,v. ;j't
GOÐATÚNI 4-6, GARÐABÆ
SÍMI 565 86 OO
I
JliLÁ
SKÚTUVOGI 2 - SllVII 568 30 80