Morgunblaðið - 27.01.1999, Qupperneq 24
24 MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Emleikaraprófstónleikar í Háskólabíói
Með heila
hljómsveit á
bak við sig
TVEIR nemendur Tónlistarskól- yfir í Tónlistarskóla Hafnarfjai-ðar
ans í Reykjavík þreyta fym hluta
einleikaraprófs á tónleikum með
Sinfóníuhljómsveit íslands í Há-
skólabíói annað kvöld, fimmtu-
dagskvöld. Nemendurnir eni þau
Ástríður Alda Sigurðardóttir pí-
anóleikari og Helgi Hrafn Jónsson
básúnuleikari.
A efnisskránni eru Konsert fyrir
básúnu og hljómsveit eftir Henri
Tomasi og Píanókonsert í a-moll
op. 16 eftir Edvard Grieg. Verkin
völdu þau sjálf, í samráði við kenn-
ara sína. Helgi Hrafn, sem er 19
ára og lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum við Hamrahlíð í
desember sl., byrjaði að læra á
básúnu sjö ára gamall. „Þá var lúð-
urinn töluvert stærri en ég sjálf-
ur,“ segir hann þegar hann rifjar
upp sín fyrstu spor á tónlistar-
brautinni. Astríður Alda þurfti
ekki að leita út fyrir veggi heimil-
isins þegar hún hóf sitt tónlistar-
nám tæplega sex ára að aldri, því
fyrsti kennarinn var móðir hennar,
Guðrún Guðmundsdóttir píanó-
kennari.
Einstakt tækifæri að fá að
spila með Sinfóníunni
Oddur Björnsson hefur verið að-
alkennari Helga Hrafns í Tónlist-
arskólanum í Reykjavík undanfar-
in fimm ár en áður var hann í Tón-
listarskóla Seltjamamess hjá
Kára Einarssyni. Þegar Astríður
Alda hafði lært hjá móður sinni í
tvö ár fór hún í píanónám hjá Guð-
ríði S. Sigurðardóttur i Tónskóla
Sigursveins, tíu ára færði hún sig
til Magneu G. Olafsdóttur og 1994
fór hún svo í Tónlistarskólann í
Reykjavík, þar sem hún hefur ver-
ið síðan hjá Önnu Þorgrímsdóttur.
Meðfram tónlistarnáminu hefur
hún stundað nám við Flensborgar-
skólann og lýkur þaðan stúdents-
prófi af tónlistarbraut í vor.
Þau em á einu máli um að það
sé einstakt tækifæri að fá að spila
með Sinfóníuhljómsveitinni á ein-
leikaraprófi og Helgi Hrafn bendir
á að hann viti ekki til þess að það
tíðkist annars staðar að nemendur
fái að spila með atvinnumanna-
hljómsveit við útskrift. „Þetta er
toppurinn á tilverunni," segir
Astríður Alda himinlifandi, „þetta
er það skemmtilegasta sem maður
kemst í, að vera sólisti með heila
hljómsveit á bak við sig.“ Raunar
er þetta ekki í fyrsta sinn sem hún
stígur á svið með Sinfóníunni, því
hún spilaði með henni kafla úr
konsert eftir Beethoven á jólatón-
leikum fyiir þremur áram.
Mikið líf og fjör og túlkun
Eins og áður sagði spilar Helgi
Hrafn Konsert fyrir básúnu og
hljómsveit eftir franska tónskáldið
Henri Tomasi. Verkið er skrifað
árið 1956. „Það er töluvert im-
pressjónískt, þó að það sé samið
svona seint,“ segir hann. „Skemmt-
anagildið er í hávegum haft, í öðr-
um kaflanum notar hann t.d. mikið
dempara og þar kemur fyiir alveg
stórskemmtilegur blús. Eg spila
sjálfur djass og þykir skemmtilegt
að fá tækifæri til að koma með
Morgunblaðið/Kristinn
HELGI Hrafn Jónsson og Ástríður Alda Signröardóttir þreyta fyrri hluta einleikaraprófs frá Tónlistar-
skólanum í Reykjavík í Háskólabíói annað kvöld, þar sem þau leika einleik með Sinfóníuhljómsveit ís-
lands, hann á básúnu og hún á píanó.
hann inn í þetta hús,“ segir hann
ennfremur. „Það var básúnuleikari
að nafni Einar Jónsson sem kynnti
mig fyrir þessu verki. Það hentar
mér mjög vel, það er í því mikið líf
og fjör og túlkun.“
Astríður Alda leikur Píanó-
konsert í a-moll op. 16 eftir Ed-
vard Grieg. „Hann var 25 ára þeg-
ar hann samdi konsertinn, sem var
framfluttur í Kaupmannahöfn
1869. Aðaleinkenni verksins eru
náttúralýsingar, allt frá hinu stóra
til hins fíngerða," segir hún.
Tónleikarnir nú eru fyrri hluti
einleikaraprófsins en seinni hlut-
inn fer fram í vor. Bæði eru þau
Astríður Alda og Helgi Hrafn far-
in að huga að framhaldsnámi utan
landsteinanna. Hún er að leita sér
að góðum kennara, í Evrópu eða
Bandaríkjunum, og er aó búa sig
undir að senda upptökur hingað
og þangað og fara í inntökupróf.
Hann er á leið til Bandaríkjanna í
lok febrúar, þar sem hann fer í
inntökupróf í tveimur skólum, í
Fíladelfíu og New York. Á báðum
er að heyra að þau séu alsæl með
það sem þau eru að gera. „Þetta
er orðið manns líf, það snýst allt í
kringum tónlistina. En maður
veit svo sem aldrei hvað framtíðin
ber í skauti sér,“ segir hann og
kveðst ákveðinn í að setja markið
hátt.
Tónleikarnir verða í Háskólabíói
annað kvöld og hefjast kl. 20. Að-
göngumiðar era seldir á skrifstofu
Tónlistarskólans í Reykjavík,
skrifstofu Sinfóníuhljómsveitar Is-
lands og við innganginn.
Sjálfsvitund og
myndlist Sama
Veli-Pekka Lehtola
-/elina
Fegurðin kemur innan frá
Laugavegi 4, sími 551 4473.
C \
BIODROGA
snyrtivörur
Tölvur og tækni á Netinu
vf^mbl.is
_A.LLTAf= eiTTHV'AÐ HÝTT
VELI-Pekka Lehtola, dósent við há-
skólann í Rovaniemi heldur fyi-irlest-
ur um sjálfsvitund Sama í samfélagi
nútímans á morgun, fimmtudag, kl.
20.00 í fundarsal Norræna hússins
og verður fyrirlesturinn á sænsku.
Veli-Pekka Lehtola er bók-
menntafræðingur og dósent og
kennir við háskólana í Rovaniemi og
Uleáborg. Hann hefur skrifað fræði-
bækur um samísk málefni, m.a. sögu
Sama eftir síðari heimstyi-jöld og um
norrænar og samískar bókmenntir.
Veli-Pekka Lehtola er einnig höf-
undur að kynningu á helstu mynd-
listarmönnum Sama sem gefin hefur
verið út á margmiðlunardiski (CD-
Rom).
Eftii- fyrirlesturinn verður efni
margmiðlunardisksins sýnt á stóru
sýningartjaldi. Níu myndlistarmenn
era kynntir úr hópi þekktra lista-
manna frá Finnlandi, Svíþjóð, Nor-
egi og Rússlandi. Auk þess er kynnt-
ur listamaður úr hópi Nenetsbúa
sem eiga heimkynni sín við ánna Ob
á Jamalinskaga. Sagt er frá mynd-
listarmönnunum, lífi þeirra og starfi.
Menningu Sama eru einnig gerð góð
skil, lýst er þeim breytingum sem
hafa orðið á högum þeirra allt frá
hirðingjaþjóð yfir í nútíma samfélag
sem hið ytra líkist nú öðrum norræn-
um samfélögum.
Af listamönnum frá fínnska sama-
svæðinu era kynntir Nils-Aslak Val-
keapáá og Merja Laetta Ranttila.
Britta Marakatt-Labba og Maj-Lis
Skaltje eru frá sænska samasvæð-
inu. Þær þrjár og Ingunn Utsi frá
Noregi eiga verk á sýningunni
Geaidit - Sjónhverfingar, sem stend-
ur yfir í sýningarsölum Norræna
hússins um þessar mundir.
Aðrir listamenn sem eru kynntir
era Iver Jáks sem er nokkurs konar
föðurímynd samískrar listar, Aage
Gaup frá Karasjoli og Synnove Per-
sen. Hún og Ingunn Utsi era báðar í
framvarðarsveit norskra listamanna.
Aðgangur er ókeypis.
Draumur á
Jónsmessunótt
í Tjarnarbíói
LEIKFÉLAG enskunema Háskóla
Islands sýnir verk Williams
Shakespeares, „A Midsummer
Night’s Dream“, Draumur á Jóns-
messunótt, í Tjamarbíói á fóstudag
kl. 20. Verkið verður flutt á ensku og
leikstjóri er Martin Regal.
Verkið, sem er eitt af þekktari
gamanleikritum Shakespeares, fjall-
ar um það hvemig sambönd nokk-
urra elskenda þróast með afskiptum
hrekkjóttra álfa frá því að vera
byggð á miskilningi og afbrýði til
farsællar lausnar fyrir alla. Loka-
þáttur verksins er svo giftingarhátíð
elskendanna þar sem nokkrir áhuga-
leikarar klúðra flutningi á harmleik
sem þeir hafa ákveðið að setja upp
brúðhjónunum til heiðurs.
Önnur sýning verður laugardag-
inn 30. janúar og lokasýning sunnu-
daginn 31. janúar. Sýningamar hefj-
ast kl. 20 og er miðaverð kr. 600.
-------------------
Hallgrímur
Helgason les ljóð
í Gerðj^^^ ^
Hallgrfmur ur Helgason, rit-
Helgason höfundur og skáld,
úr ljóðmælum sínum 1978-98.
Aðgangur er ókeypis.