Morgunblaðið - 27.01.1999, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 27.01.1999, Qupperneq 36
36 MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 1999 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ASGRIMUR GUÐMUNDUR BJÖRNSSON + Ásgrímur Guð- mundur Björns- son vélstjóri fæddist á Siglufirði 22. febr- úar 1927. Hann lést á Sjúkrahúsi Siglu- fjarðar 14. janúar síðastliðinn og fór út- för hans fram frá Siglufjarðarkirkju 23. janúar. Nú hefur dauðinn hrifið þá Eiríks- sínuguttana Svenna og Asa til sín með um þriggja vikna millibili. Þegar mér barst sú fregn til Skotlands þar sem ég dvaldi um jól, að Svenni Björns hefði dottið niður eftir kóksopa á bensínstöðinni hjá Óla Matta, þá þótti mér leitt að geta ekki kvatt minn góða vin og spaug- ara. Ég nota því tækifærið nú til að kveðja þá báða. Sólríkustu sumrin eru á Siglufirði. I minningunni blasir við mér Jóns- túnið baðað sólskini ofan við húsið á Suðurgötu 26. Úr þessu túni hafði hann afi minn selt og leigt lóðir. Ein þeirra var undir húsið á Hverfisgötu 29 sem Björn Sigurðsson og Eirík- sína Ásgrímsdóttir byggðu í sambýli við Svein og Hansínu. Þama fæddist líka sonur Asa, Sigurður, sem varð leikfélagi minn og besti vinur. Af hverju Siggi átti enga mömmu skipti ekki máli þvi stundum fannst mér hann eiga þær tvær og stundum þrjár þegar við fórum að fara lengri leiðangra að heimsækja Ása og Guggu þar sem þau bjuggu við Lindargöt- una. Þegar Eiríksína lést um 1960 tók Hansína við uppeldi Sigga. Mér leikur grunur á að ekki hafi verið höfð mörg orð um þá ráðstöfun. Siggi og Bjöm afi hans bjuggu á efri hæð húss- ins og var sú hæð öll leiksvæði okkar strák- anna. Margoft náði móðir mín í mig renn- blautan eftir bátaleiki í baðinu og aldrei man ég eftir því að rómurinn hafi verið hækkaður þrátt fyrir óhemju ærsl fjörugra stráka. Hugur Sigga stóð snemma til sjó- mennsku enda afi hans skipstjóri og faðir hans vélstjóri. Ein af fyrstu minningum mínum tengd sjó og skipum er einmitt heimsókn um borð í mb. Sigurð SI sem Ásgrímur Sigurðsson bróðir Björns átti og Ási var vélstjóri á. Sveinn var mikill vinur tengdafor- eldra minna, Jónasar Bjömssonar og Hrefnu Hermannsdóttur, og á árshá- tíðum Skagfirðingafélagsins á Siglu- firði átti maður þess kost að rifja upp gamlar minningar af Hverfisgötunni með Sveini og Hansínu. Og þá var ekki amalegt að heyra hann syngja Danny Boy með þvílíkum tilþrifum á kariaklósettinu á Hótel Höfn að oft vora fleiri þar inni en í salnum. Svenna kynntist ég svo upp á nýtt þegar báðir höfðu gert eitthvað í sínum brennivínsmálum eins og það heitir á fagmálinu. Þar stóð hann fremstur meðal jafningja og miðlaði visku og reynslu með þeim húmor sem var honum eðlislægur. Við Ási vorum samskipa á skut- togaranum Dagnýju SI 70 á áranum 1971-73. Það var gaman að endur- nýja kynnin við þennan hægláta, blíðlynda og vandaða mann. Á sjón- um reynir stöðugt á samskipti manna. Á Döggunni vora saman- komnir 14 mjög svo ólíkir menn á af- ar takmörkuðu rými sem þurftu að deila saman súru og sætu og því var oft vandlifað. En okkur tókst að lifa saman án stórkostlegra átaka. Og þar fór Ási fremstur með sinni fram- komu. Aidrei lá honum illt orð til annarra. Hann hafði svo góða nær- vera að maður sóttist eftir því að sitja með honum við spjall eða spil eða bara til að þegja. I þremur siglingum til Cuxhaven og Grimsby var gott að eiga hann að hvort sem maður var edrú eða fullur. Með Ása fóra hlutimir aldrei úr böndunum. Á stíminu á milli gafst oft góður tími til að rabba um lífið og til- verana og Ási var sérstaklega fróður um margt sem sneri að sjómennsku iyrri tíma og Héðinsfjörðinn þaðan sem þeir bræður áttu rætur að rekja. Alltaf fékk ég sama glaðlega bros- ið þegar við hittumst eftir að ég hafði hætt á sjónum og flutt úr bæn- um. Það var eins og við hefðum ekki skilið nema í svona eina 12 tíma vakt og væram að heilsast í borðsalnum á Döggunni. Sama var með Svenna, við byrjuðum alltaf samtalið þar sem því hafði lokið síðast. Ég kveð nú strákana hennar Ei- ríksínu og Björns með söknuði en á ekki von á öðra en að það verði fagn- aðarfundir þegar þeir hittast að nýju hinum megin. Ég sendi Guggu, Hansínu, Sigga, Frigga, Bjössa, Eyju og Stebba kveðjur í sorginni. Gunnar Trausti. + Erling Adolf Ágústsson fædd- ist í Vestmannaeyj- um hinn 9. ágúst 1930. Hann lést á Sjúkrahúsi Reykja- víkur hinn 8. janúar síðastliðinn og fór út- för hans fram frá Fossvogskirkju 15. janúar. Að leiðarlokum vil ég minnast vinar míns og félaga í tónlistinni Eri- ings Ágústssonar. Hugurinn reikar aft- ur til áranna þegar jazzinn blómstr- aði í Eyjum. Tímabilið 1950-1960 var áratugur sveiflunnar. Þegar HG-sextettinn hóf að leika í „Café Stjörnunni" (Aiþýðuhúsinu) byrjaði Erling að syngja opinberlega. Það kom fljótt í ljós að hann var mjög rytmískur og gat sungið sína eigin sólóa. Að loknu tónlistarnámi kom Guð- jón Pálsson heim til Eyja og stofnaði hljómsveit undir eigin nafni. Erling var ráðinn söngvari og varð brátt landsþekkt- ur fyrir söng sinn. Hann samdi texta við erlend lög og komust tvö þeirra á toppinn í þættinum „Lög unga fólksins“: „Ungur enn“ og „Vertu sæt við mig“ urðu geysilega vinsæl. Á þessum áram var ekki mikið um hljóm- plötuútgáfur. Hann söng þó inn á plötu með hljómsveit Eyþórs Þor- lákssonar. Á þeirri plötu átti hann m.a. textana „Oft er fjör í Eyjum“ og „Við gefumst aldrei upp þótt móti blási". Síðamefndi textinn var fram- lag hans í baráttunni um stækkun landhelginnar. Hljómsveit Guðjóns Pálssonar var mjög vinsæl um þetta leyti og átti Erling stóran þátt í þeim vinsældum. Hann hlustaði á breskar útvarps- stöðvar og tók upp lögin sem vora á „topp tíu“-listunum. Síðan lærði hann textana og þar með var hljóm- sveitin alltaf að leika vinsælustu dægurlögin í Evrópu. Á þessum árum léku margir af fremstu hljóðfæraleikuram landsins í Eyjum. Þá vora gjarnan haldnar jam-sessionir á sunnudagseftirmið- dögum. Þar léku allir sem vildu. Erling naut sín vel á slíkum stund- um og söng lög eins og „Lady be good“ af mikilli innlifun. Hann hreifst mikið af allri tækni og reyndi margt í þeim efnum. T.d. kom hann sér upp litlu hljóðveri, sem var sjald- gæft í þá daga. Við eigum honum að þakka að margar upptökur frá blómatíma jazzins í Eyjum era til í dag. Einnig hafa varðveist upptökur frá kabarettum þar sem margir efni- legir söngvai-ar komu fram. Frá árinu 1992 hefur verið haldin mikil jazzhátíð í Eyjum um hverja hvítasunnu. Sú fyrsta var haldin í minningu félaga okkai' Guðna Her- mannsen. Þá söng Erling með sín- um gömlu félögum. En því miður ekki oftar. Nú er rödd hans þögnuð en minningin um góðan dreng lifir. Ég er þakklátur forsjóninni fyrir ár- in sem við áttum saman í tónlistinni og að fá að njóta ævarandi vináttu hans. Við Elsa sendum Imbu og börn- um, Ágústu og fjölskyldum þeirra okkar innilegustu samúðarkveðjur. Sigurður Guðmundsson. ERLING ADOLF ÁGÚSTSSON GYÐA GUÐMUNDSDÓTTIR il og góð samskipti við Gyðu, enda tók hún mér vel þegar ég kynntist fjölskyldu eig- inmanns míns, Júlíusar Ingasonar. Þrátt fyrir að við byggjum í Olafs- vík framan af okkar bú- skap, þá áttum við alltaf gott athvarf i Hólmgarðinum í öllum bæjarferðum. Ég minnist margra góðra stunda við eldhúsborð- ið hjá Gyðu og áttum við oft og iðulega góðar samræður. Hún íylgd- barnabörnunum sínum + Gyða Guðmunds- déttir fæddist í Reykjavík 21. sept- ember 1918. Hún lést á Sjúkrahúsi Reykja- víkur 14. janúar síð- astliðinn og fór útför hennar fram frá Bú- staöakirkju 22. janú- ar. Mig langar til að minnast tengdamóður minnar, Gyðu Guð- mundsdóttur, sem er nýlátin, með nokkram orðum. Það má segja að allt frá árinu 1962 hafi ég átt mik- ist vel með og spurði um hvern og einn enda skipti það hana miklu máli að öllum liði vel í leik og starfi. Eftir að við fluttum í bæinn kynntist ég henni enn betur enda til- heyrði það orðið daglegri rútínu að líta inn í Hólmgarðinum og eiga þar góða stund yfir rjúkandi kaffi og kökusneið að ógleymdum kandís- sykrinum. Ef heimsókn féll niður í nokkra daga hafði hún Gyða miklar áhyggjur og innti mig iðulega eftir því hvort ég hefði orðið veik. Hún var mér góð vinkona ekkert síður en góð tengdamóðir. Það er því mikill sjónarsviptir að þessari góðu konu, enda er tilveran mjög tómleg þegar hinar venjubundnu heimsóknir era fallnar niður. Vinátta þessarar góðu konu var mér mikils virði og henni mun ég aldrei gleyma. Guð varðveiti þig, elsku Gyða. Þóra V. Árnadóttir og fjölskylda. ÁGÚSTA BJÖRNSDÓTTIR + Ágústa Björns- dóttir fæddist í Reykjavík 17. febrú- ar 1917. Hún lést á Sjúkrahúsi Þingey- inga 15. janúar síð- astliðinn og fór útför hennar fram frá Kópavogskirkju 22. janúar. Á vetrardegi, 26 ár- um eftir eldgosið í Eyj- um, var ég að fletta Morgunblaðinu og rakst á andlátsfregn um hana Ágústu Björnsdóttur. Hugurinn reikaði aft- ur um rúman aldarfjórðung, _en þá gerðist atvik, sem tengdist Ágústu mjög. Þannig var, að um margra ára skeið sá Ágústa um dagskrárgerð við Ríkisútvarpið. Ágústa gerði þætti um allt mögulegt. Hún fléttaði saman staðarlýsingar og frásagnir af ýmsum atburðum, sem þar gerð- ust. Má nefna að Ágústa gerði m. a. þátt um Náttfaravíkur og sagði auð- vitað frá honum Náttfara, sem þar bjó. Ágústa flutti mál sitt af ein- stakri hlýju og flutti efnið á þann hátt að hrein unun var á að hlýða. Svo sá Ágústa um bamatíma hjá út- varpinu og einmitt árið 1973, þegar þetta atvik gerðist, var Ágústa með barnatíma Ríkisútvarpsins ásamt fleira góðu fólki. Við Arnþór bróðir minn vorum þá með Eyjapistilinn, sem flutti fréttir, frásagnir og margt fleira frá Eyjum. I desember árið 1973 var ákveðið að við bræður færum til Eyja að ná í efni, sem nota skyldi í jóladagskrá Eyjapistils, og skyldum við m. a. hljóðrita litlujól Barnaskólans, sem haldin voru í félagsheimilinu í Eyj- um. Við hittum Ágústu Björnsdóttur á göngum útvarpsins og spurðum hana hvort hún vildi ekki fá efni úr Eyjum í barnatímann sinn. Ágústa tók því mjög vel. Svo fóram við Arn- þór ásamt Hrafni Baldurssyni tæknimanni til Eyja. Þetta var með verri svaðilforam, sem ég hef lagt í. Við fórum um borð í hann Herjólf gamla, sem lá í Reykjavíkurhöfn. Það var nístings- kuldi og hvasst og Herjólfur lagði úr höfn, vel fullur af fólki, bflum og alls konar öðram varningi. Við félagar fengum ekki koju, heldur urðum að sitja uppi í borðsal skipsins alla nóttina. Herjólfur valt óskaplega og ég hélt frá mér sjóveikinni með því að liggja á gólfinu í farþegarýminu og það var býsna kalt. Klukkan um átta um morguninn var lagst að bryggju í Eyjum eftir 11 tíma sjóferð. Veðrið í Éyjum var alveg brjálað, bálhvöss ellefu vind- stig og um 16 stiga frost og allt fraus, sem frosið gat. Við félagarnir héldum beint upp á Heiðarveg 20, þar sem við Arnþór áttum æsku- heimili. Húsið var mannlaust en haft ljós í einstaka glugga, svo að það sýndist ekki eins yfirgefið og það var. Þegar við komum þangað inn, áttuðum við okkur á því að ofnar vora kaldir. Þá vora góð ráð dýr: Við Hrafn héldum niður í miðstöðv- arherbergi, en þá voru hús í Eyjum olíukynt. Við reyndum að koma mið- stöðinni í gang, en ekkert gekk. Leiðslan úr olíutankinum var gadd- freðin. Bræður mínir, Stefán og Páll, komu, það var fengin olíutunna, hún tengd við miðstöðina og allt fór vel. Þá héldum við í Fé- lagsheimilið, þar sem gullfalleg jólaböm voru að undirbúa litlujólin. Við Hrafn, angandi af svartolíustybbu, og Arnþór höfðum ekki haft rænu á að skipta um föt, stóðum inni á sviðinu á lopapeysum og gallabuxum, Hrafn hljóðritaði skemmtun- ina og við Arnþór vor- um fengnir til þess að spila undir söng barnanna. Svo hófst efnisöflun íyrir barna- tímann og Eyjapistil. Hrafni, sem var ákaflega hugmyndaríkur og hreinn snillingur, datt í hug að fá stelpur úr barnaskólanum til þess að taka viðtöl við börn úr skólanum. Þeim vora lagðar lífsreglurnar og þær stóðu sig hreint frábærlega vel. Svo datt okkur í hug að alltaf væra góðu börnin fengin í alla hluti og því var ákveðið að biðja stelpurnar að taka viðtal við einn mesta prakkara skólans. Stelpurnar vissu auðvitað hver hann var, peyinn mætti í viðtal, lýsti m. a. mjög nákvæmlega hvern- ig þeir Eyjapeyjar söfnuðu í ára- mótabrennur og þá var ekki beitt vinsælum meðulum. Húsverðir úr fiskvinnslustöðvum lokkaðir burt og jafnvel hálfrotaðir með tómum tunn- um, svo hægt væri að ná einhverjum eldsmat í brennuna. Þá spyr önnur stelpan: ,Af hverju era stelpur aldrei með í að safna í brennu?" Eyjapeyinn svaraði og það hnussaði í honum: „Það er ekki hægt. Stelpur þora aldrei að stela neinu.“ Þegar við svo héldum til Reykja- víkur, var hann Herjólfur gamli al- veg stútfullur af fólki og við urðum að sitja uppi aðra nótt í borðsal skipsins. Ferðin tók eina 14 tíma til Reykjavíkur og það hlóðst ísing á skipið svo að skipverjar stóðu í ströngu. Þegar við komum tfl Reykjavíkur, hófst samsetning barnatímans og ég fékk þá tíu ára gamla frænku mína, hana Kristbjörgu Hrand, til þess að kynna meginefni dagskrárinnar. Við kölluðum á Ágústu Björnsdóttur og sögðum henni að hún fengi hvergi nærri að koma, og hvort hún væri ekki til í að lofa okkur að ráða þessu. Ágústa hlustaði á barnatímann og skemmti sér konunglega og sagði okkur að ráða þessu. Barnatíminn var eigi að síður kynntur undir stjórn eða umsjón hennar, en öflun efnis væri í höndum okkar hinna. Bamatíminn var svo fluttur og olli auðvitað miklu fjaðrafoki, einhverjir skrifuðu um að prakkaraskapur og hrekkir barna ættu alls ekkert erindi í útvarp og skólastjóri Bamaskólans sór auðvitað barnatímann af sér. Mér þótti Ágústa Björnsdóttir sýna okkur strákunum alveg ein- stakt umburðarlyndi og með þessu fann ég hversu víðsýn hún var. Hún gat tekið þátt í leik með þeim, hvort sem þeir vora henni mörgum árum yngri eða eldri að árum. Blessuð sé minningin um hana Ágústu. Ritað 23. janúar 1999, þegar liðin era 26 ár frá eldgosinu á Heimaey. Gísli Helgason. V // » INGVIBJÖRGVIN JÓNSSON + Ingvi Björgvin Jónsson fædd- ist í Framnesi við Dalvík 24. mars 1910. Hann lést í Dalbæ, dvalarheimili aldraðra á Dalvík, 21. desember og fór útför hans fram frá Dalvíkurkirkju 30. des- ember. Við sjáum, að dýrð á djúpið slær, þó degi sé tekið að halla. Það er eins og festingin færist nær og faðmi jörðina alla. Svo djúp er þögnin við þína sæng, að þar heyrast engiar tala, og einn þeirra blakar bleikum væng, svo bijóstið þitt fái svala. Nú strýkur hann barm þinn blítt og hljótt, svo blaktir síðasti loginn. En svo kemur dagur og sumarnótt og svanur á bláan voginn. (Davíð Stef.) Elsku besti afi, hafðu þökk íyrir aUt. Hjördís og Jón Ari.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.