Morgunblaðið - 27.01.1999, Side 37

Morgunblaðið - 27.01.1999, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 1999 37 JÓNÍNA ÞÓRA SIG URJÓNSDÓTTIR + Jónína Þóra Sigurjónsdóttir var fædd í Gerðum í Garði hinn 13. apríl 1910. Hún lést á sjúkradeild Hrafn- istu í Hafnarfirði hinn 20. janúar síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Steinþóra, f. í Garð- húsum í Reykjavík 4. júní 1883, d. 8. febrúar 1945, Þor- steinsdóttir, Jóns- sonar frá Holti í Garði og konu hans Salvarar Sigurðardóttur frá Garðhúsum, og Sigurjón, f. í Miðkrika í Hvolshreppi 15. júlí 1877, d. 10. desember 1959, Arnlaugsson, Jónssonar frá Nýjabæ í Þykkvabæ og konu hans Kristínar Guðmundsdóttur frá Litluhólum í Mýrdal. Sigur- jón kynntist konuefni sínu í Garðinum, og voru þau gefin saman árið 1902. Þau eignuðust 12 börn. Af átta systkinum sem upp komust lifir Einar, f. 7. ágúst 1924, einn systkina sinna. Um tvítugt kynntist Jóna verðandi eiginmanni sinum, Ingimari Kristni Þorsteinssyni, f. 27. maí 1907 á Meiðastöðum í Garði, d. 18. nóv. 1958. Hann var sonur hjónanna þar, Kristín- ar Þorláksdóttur og Þorsteins Gíslasonar útvegsbónda. Hann lauk járnsmíðanámi 1927 og fór þá fljótlega að reka jámsmíða- verkstæði sjálfur, fyrst í félagi við annan, en síðar einn, og rak í Qöldamörg ár verkstæði á Ný- lendugötu 14 undir eigin nafni og ábyrgð. Hann datt niður við vinnu sína og lést eins og áður segir 18. nóv. 1958. Þau giftu sig 22. ágúst 1931. Bjuggu þau fyrst við Selja- veg en 1941 byggðu þau sér heimili á Kaplaskjólsvegi 11 í Reykjavík. Þau eignuðust sex börn sem eru: 1) Þor- steinn Kristinn, járnsmíðameistari, f. 6. júní 1932, á hann fimm börn, 17 bamabörn og þijú barnabarnabörn. 2) Steinþóra, f. 30. okt. 1937, gift Friðriki Lindberg, f. 6. mars 1931, yfirdeildarstjóra, og eiga þau fimm börn og 16 barnaböm (eitt látið). 3) Sigur- jón, f. 15. des. 1941, símsmíða- meistari, kvæntur Magneu Guð- jónsdóttur, f. 22. mars 1945, eiga þau saman eitt barn og tvö barnabörn, áður á hún tvö börn og þijú barnaböm. Fyrir á hann þijú börn, níu barnaböm og eitt barnabarnabarn með fyrri eig- inkonu. 4) Kristín, f. 1. júní 1944, dó ung. 5) Kristín Inga, f. 9. aprfl 1947, gift Sigurd Ebbe Thomsen, f. 7. ágúst 1934, eiga þau fimm börn og þijú barna- börn. 6) Jón Ingi, f. 25. mars 1952, verslunarmaður, kvæntur Magneu Rögnu Ogmundsdóttir, f. 19. mars 1961, eiga þau saman fjögur börn, fyrir á hann tvö börn og þijú bamaböm með fyrri eiginkonu. Alls era afkom- endur þeirra lijóna 80 talsins. Jónína vann aldrei utan heimilis síns. Útför Jónínu fer fram frá Frí- kirkjunni í Hafnarfirði í dag, og hefst athöfnin klukkan 13.30. Ástkær tengdamóðir mín Jónína Þóra Sigurjónsdóttir er í dag til moldar borin. Lokið er tæplega 89 ára ævi hennar. Jónína var fædd inn í stóra fjöl- skyldu, ein af tólf systkinum. Hún eignaðist sjálf stóra fjölskyldu eða sex börn. Afkomendur hennar eru um áttatíu talsins. Það hefur eflaust ekki verið létt verk um miðja öldina að hugsa um stórt heimili án allra nútímaþæg- inda. Oft voru margir í fæði því Ingimar maður hennar var með menn í vinnu sem þurfti að gefa mat og kaffi. Einnig byrjuðu flest börn þeirra sinn búskap á Kapla- skjólsveginum og þar hafa mörg barnabörnin stigið fyi’stu skrefin. Heimilið var þekkt fyrir gestrisni og glaðværð. Margar sögur hefur maður heyrt um gamansemi og prakkaraskap Ingimars og var oft glatt á hjalla á heimilinu. Jónína var myndarleg húsmóðir og skilaði sínu með miklum sóma. Einnig var hún bókhneigð mjög og hafði ánægju af leiklist og fallegum söng. Enda mikið sönglíf á hennar bernskuheimili. Jónína fór ekki varhluta af sorg- inni því eina dóttur missti hún árs- gamla og Ingimar lést í blóma lífs- ins 1958. Hélt Jónína þá heimili með yngstu börnum sínum á Kapla- skjólsveginum og dvaldi aldraður faðir hennar á heimilinu síðasta ár- ið sem hann lifði. Einnig hafa öll systkini hennar nema yngsti bróð- irinn farið á undan henni. Síðustu árin hefur heilsuleysi hrjáð Jónínu og naut hún þá góðrar umönnunar á deild 4B á Hrafnistu í Hafnar- firði, en þangað fluttist hún 1995. Hvíldin var kærkomin þreyttum líkama eftir vel unnið ævistarf. Veit ég að vel verður tekið á móti henni fyrir handan og fagnaðarfundir miklir hjá ástvinum hennar sem á undan eru farnir. Vil ég að lokum þakka tengda- móður minni samfylgdina sl. tutt- ugu ár og allar góðar stundir sem við áttum saman. Hvíl í friði. Magnea Ragna Ogmundsdóttir. Elsku amma. Nú er komið að kveðjustund. Margar eru minning- arnar sem koma upp í hugann þeg- ar við kveðjum þig, amma. Attum við margar skemmtilegar stundir með þér í sumarbústöðum, ferða- lögum og heima á Kaplaskjólsvegi 11 í húsinu sem afi byggði. Við vor- um alltaf velkomin til þín. Við byrj- uðum snemma systkinin að heim- sækja þig upp á eigin spýtur. Bjami fór fyrstur gangandi ofan af Háaleitisbraut, en við yngri notuð- um strætó með hjálp frá strætis- vagnastjóranum hvar við ættum að fara úr vagninum í fyrstu ferðum okkar til þín. Alltaf varstu hlý og glaðvær og þú varst ávallt svo góð við okkur. Þú lumaðh’ ætíð á alls kyns góðgæti. Munum við vel eftir öllu sælgætinu sem þú áttir í stofu- skápnum og bauðst okkur upp á. Gaman var að sitja með þér á litlu svölunum á Kaplaskjólsvegin- um. Þar var mikið skrafað og hleg- ið. Minnumst við þess vel hvað þú hugsaðir vel um litlu smáfuglana á veturna og hafðir gaman af því að sýna okkur þá. Við kynntumst ekki Ingimari afa, en þú kynntir hann fyrir okkur með því að segja okkur lifandi sögur af honum Inga þínum sem þú misstir alltof snemma. Elsku amma, við þökkum þér langa og góða samfylgd. Þú náðir næstum 89 ára aldri og kom það þér sjálfri örugglega mest á óvart. Við munum alltaf minnast þín með gleði í hjarta, því minningarnar um þig eru svo góðar. Ég bý að brosum hennar og blessa hennar spor því hún var mild og máttug og minnti á jarðneskt vor. (Davíð Stef.) Guð geymi þig, elsku amma. Bjarni, Linda og Petrea Kr. Elsku amma mín. Þakka þér fyr- ir allar dásamlegu stundirnar sem ég átti með þér. Minningamar um þær eru fjársjóður sem ég mun njóta allt mitt líf. Alltaf var hægt að treysta á góðar móttökur hjá þér. Þú dekraðir við okkur ki’akkana með því sem pass- aði hverju sinni. Pylsur voru galdra- ðar fram þegar sex ára gutti stalst í strætó til þín, svörtu karamellurnar voru á sínum stað þegar skotist vai’ út í mjólkurbúð fyrir þig og seinna var alltaf hægt að treysta á margt góðgætið með kaffisopanum. Þú hafðir brennandi áhuga á flestum hlutum og gaman var að spjalla við þig um heima og geima. Það voru dásamlegar stundir þegar við sátum saman í borðstofunni þinni, drukkum kaffi og létum móð- ann mása. Þú varst svo áhugasöm um allt sem ég tók mér fyrir hend- ur og ég fann alltaf íyrir hlýjum kærleika þínum. Þú einstaka sál. M varst svo gjöful og hlý. M kunnir svo vel að gleðjast, ræða og hugsa. M varst falleg og góð. M varst elsku besta amma mín. Ingimar Þór. Elsku Jónína amma. Okkur systkinin langar til að minnast þín í örfáum orðum. Kynni okkar af þér, elsku amma, voru ekki mikil fyrstu árin, þar sem við bjuggum úti á landi en þú í Reykjavík. Þegar þú komst til okk- ar á Hvammstanga var oft mikið hlegið, eins þegar við komum til Reykjavíkur og gistum hjá þér. Þar varst þú eins og drottning og áttir meira að segja stól við hæfi, sem er okkur mjög minnisstæður. Alltaf tókst þú okkur opnum örmum og þótti okkur vænt um það. Og húsið þitt stóra, ekki áttu allir ömmu sem átti svona stórt hús. Það kom sér vel þegar Guðjón fór í skóla í Reykjavík og fékk herbergi hjá þér, og áttuð þið oft góðar stundir saman. Strax eftir að við fluttum til Reykjavíkur urðu samverustund- irnar fleiri, en svo fór að halla í ní- rætt og þú þurftir á dvalarheimili og skrítið var að koma þangað, ein- hvern veginn varst það aldrei þú. En nú ertu farin og þér líður vel hjá afa og fleira góðu fólki. Elsku Jónína amma, við munum ávallt minnast þín með hlýju og vit- um að þið afi munið gæta okkar allra. Guð blessi minningu þína. Þig sem í fjarlægð fjöllin bak við dvelur og fagrar vonir tengdir líf mitt við minn hugur þráir, hjartað ákaft saknar en horfnum stundum ljúfum dvel ég hjá. Heyrirðu ei hve hjartað kallar á? Heyrirðu storminn kveðju mína ber? Þú fagra minning eftir skildir eina sem aldrei gleymi meðan lífs ég er. (Cæsar.) Astarkveðja, Guðjón, Sigurósk og Lillý. Amma var búin að vera veik lengi en síðustu viku hrakaði henni mjög og ávkáðum við systur að fara til hennar, og mikið er ég fegin að hafa fengið að kveðja hana þá. Jónína amma mín átti stóra fjöl- skyldu og þegar margir voru í kringum hana og lætin sem mest þá var alltaf stutt í húmorinn hjá ömmu og hlátrasköllin heyrðust langa leið í fjölskyldunni. Mínar fyrstu minningar um ömmu eru frá því að pabbi fór með okkur systkinin í Vesturbæjarlaug- ina á sunudagsmorgnum og á leið- inni heim var alltaf komið við hjá ömmu. Amma lagði alltaf á borð fyi’ir okkur og fengum við kræsing- ar hjá henni. Eftir því sem árin liðu urðum við nánari vinkonur og oft fór ég til ömmu, því henni gat ég sagt allt. Alltaf var það líka amma sem varð að sjá kærastana mína en þeir voru fljótlega dregnir til ömmu svo hún gæti skoðað þá og spurt út úr. Hjá ömmu fengum við mæðgur h'ka skjól þegar ég var í húsnæðis- leit rétt eftir fæðingu elstu dóttur minnar. Þá vaknaði amma með mér á nóttunni til að gefa þeirri litlu og spjölluðum við þá mikið um gömlu dagana. Elsku amma, nú ert þú farin frá mér og okkur öllum en ég er viss um að þið Ingimar afi hafið fundið aftur hvort annað og leiðist nú létt í spori á fallegum stað. Ég kveð þig með söknuði en eftir stendur ylur minninga um góða ömmu. Inga María. A þessari kveðjustund, er ég sit hér og reyni að festa á blað endur- óm ljúfra minninga - einskonar bergmál úr heimi bernsku minnar, heyri ég úr fjarlægð óm af vörum sem nú er slokknaður, ég finn yl úr lófa sem nú er kaldur. Já, ég þakka og blessa alla þá ást og umhyggju sem þú gafst mér. Mér er enn í fersku minni er ég kom í fóstur til þín aðeins fimm ára gömul, við að- skilnað foreldra minna. Akveðni þín, ábyrgð og framsýni varð þó til að milda þann sársauka sem slíkt veldur ungum börnum, með því að láta mig njóta samvista við móður mína eins oft og kostur var, þótt hún dveldi í öðrum landshluta. Margs er að minnast frá morgni æskudaga - bæjarferða okkar þar sem báðhr skörtuðu sínu besta. „Maður verður að sýna sjálfum sér virðingu ætlist maður til þess af öðrum,“ voru hennar orð. Ævinlega fékk ég að fylgja með ef farið var af bæ, ýmist „suður með sjó“ að hitta Valda frænda í vörum, sem ætíð vakti tilhlökkun í ungu barnshjarta, ekki gleymist Færeyjaferðin sem enn er ofarlega í minni. Hún amma naut þess að vera meðal fólks, og hvort heldur hún sótti tónleika hjá Sinfóníunni eða í veislu vina og fjöl- skyldu fékk lítil hnáta oftast að fljóta með. Ég veit það af reynslunni, móðir mín, hve mjúk hún er höndin þín. Þín umhyggja er fógur sem himinninn hár, ég hef ekki skoðað þau grátsöltu tár, sem þú hefur kysst burt af kinnum mínum og klappað í burtu með höndum þínum í fjöldamörg umliðin ár. (Jóhann Sigurj.) Já, faðmurinn hennar ömmu var opinn og hlýr, hvort sem var á sunnudagsmorgnum er við kúrðum saman undir sæng og lásum „Moggann" eða þegar allar heims- ins skýjaborgir ungrar konu virtust hrynja, þá var gott að létta af sál- inni því hún amma kunni þá list að hlusta af áhuga og skilningi, með óendanlegt umburðarlyndi, aðeins ef það gæti eflt og styrkt þann er í nauðir rataði. Finnur minn minnist allrar hlýju og góðvildar frá fyrsta degi ykkar kynna, svo og börnin okkar. Lokið er lífinu, sem fólst í því að gera vel það sem gert er, og vera sátt við Guð og menn. Elsku amma mín. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi. Jónína Þdra Sigurðardóttir. Elsku langamma. Ég vil þakka þér fyrir stutta en góða samveru. Þú varst alltaf svo góð við mig og sýndir því áhuga hvernig mér gengi í lífinu. Er sárasta sorg okkur mætir og söknuður huga vom grætir, þá líður sem leiftur af skýjum, ljósgeisli af minningum hlýjum. (H.I.H.) Góða ferð, elsku langamma. Þín Rakel. GUÐNI KRISTINSSON + Guðni Kristins- son fæddist í Raftholti í Holtum í Rangárvallasýslu 6. júlí 1926. Hann Iést á heimili sínu á Skarði á Landi 25. desem- ber síðastliðinn og fór útför hans fram frá Skarðskirkju 9. janúar. Kæri frændi, nú ert þú farinn á vit feðra okkar. Það var eitt af gæfusporum mínum í lífinu að hafa fengið að kynnast þér og þinni fjölskyldu. Það var sumarið eftir Heklugosið 1980 að ég kom fyrst að Skarði til sumar- dvalar, 12 ára gamall. Það voru margar ógleymanlegar samveru- stundirnar og ferðirnar sem við fórum um sveitina og Landmanna- afrétt þau sumur sem ég dvaldist í Skarði. Það var gæfa fyrir ungling að kynnast þeim metnaði, framsýni og vinnusemi sem gerði Guðna Krist- insson að einum mesta stórbónda á íslandi. Ég mun ávallt búa að því veganesti sem þú gafst mér. Vertu sæll, frændi. Elsku Dóra og fjölskylda, ég votta ykkur innilega samúð mína. Magnús Árni Skúlason. Mig langar í fáeinum orðum að minnast Guðna Kristinssonar, bónda á Skarði í Landsveit, en vin- áttu hans og hlýhug í minn garð mun ég meta mikils um ókomna tíð. Þegar ég var níu ára bauð Guðni mér að koma að Skarði. Ég þáði boðið með þökkum og sá ekki eftir, því þar átti ég eftir að dvelja mörg yndisleg sumur sem barn og unglingur. Á mínum fyrstu árum í sveitinni voru við- fangsefni okkar Dóru yngri að ná í hestana út á flöt, hjálpa því næst Dóru í eldhúsinu og við heimilisstörfin, en að því loknu spurð- um við svo Guðna hvort við mættum fara á hestbak því við viss- um að hjá honum fengjum við jákvætt svar. Svo var lagt á og riðið um sveitina og jafnvel kíkt í heim- sóknir til merkis- manna á næstu bæj- um. Önnur verkefni tóku við eftir því sem ég varð eldri, en alltaf var jafn gaman í Skarði og alltaf var tilhlökkunin jafn mikil að koma aftur. Ég er Guðna og Dóru ævinlega þakklát fyrir að bjóða mig vel- komna á heimili sitt og fyrir þær góðu minningar sem ég á frá Skarði. Ég hef kynnst mörgu fólki í gegnum dvöl mína þar og ekki síst fjölskyldunni og barnabörnunum sem eru meðal minna nánustu vina ídag. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Ég sendi Sigi’íði Theodóru og Skarðsfjölskyldunni allri mínar innilegustu samúðarkveðjur. Áslaug Pálsdóttir. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordper- fect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfsíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.