Morgunblaðið - 27.01.1999, Síða 39

Morgunblaðið - 27.01.1999, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 1999 39 LÁKIJSINGI GUÐMUNDSSON + Lárus Ing-i Guð- mundsson fædd- ist í Reykjavík 23. júlí 1944. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítalans 18. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Guðmundur Lárusson frá Skarði í Gönguskörðum, f. 23.4. 1903, og Jó- fríður Gróa Sigur- laug Jónsdóttir frá Litlu-Hvalsá í Bæj- arhreppi í Stranda- sýslu, f. 2.2. 1916, d. 13.11. 1998. Bræður Lárusar eru: 1) Jón Valgeir, f. 26.2. 1948, kvæntur Sigurlaugu Guð- mundsdóttur, f. 24.5. 1949. 2) Kristján Sigurbjörn, f. 7.2. 1954. Til 16 ára aldurs bjó Lárus hjá foreldrum sínum á Baldurs- götu 21, en flutti þá með þeim að Snorrabraut 81. Lárus fluttist 1990 í íbúð í Sjálfsbjargar- húsinu við Hátún, en bjó nokkur síð- ustu árin á sjúkra- deild í sama húsi. Sökum fötlunar gat Lárus ekki stundað almenna vinnu, en hann var þó mjög virkur við happ- drættismiðasölu fyrir Sjálfsbjörgu um langt árabil. Lárus gerðist fé- lagi í Skátafélagi Reykjavíkur þegar þar var stofnaður flokkur fyrir fatlaða skáta og starfaði þar í nokkur ár. Hann var virkur í Iþróttafé- lagi fatlaðra meðan heilsa leyfði og keppti oft í boccia. Utför Lárusar fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Nú hefur elsku Lalli loksins fengið hvfldina sem hann hefur svo lengi beðið eftir. Ég minnist Lalla fyrst þegar ég var þriggja ára. Hann var svo flottur, keyrði um á mótorhjóli eða mótorþríhjóli og seldi happdrættismiða fyrir utan Mál og menningu á Laugaveginum. Þetta var spennandi farartæki fyr- ir lítinn strák og gaman var að fá að fikta í hjólinu. Heimsóknir með mömmu og pabba til ömmu, afa, Lalla og Kidda um helgar voru alltaf skemmtilegar. Lalli var fast- ur hluti af tilverunni á Snorra- brautinni og oftast tók hann á móti okkur fyrir utan húsið, þar sem hann stóð við vegginn brosandi og veifaði stafnum. Eitt af því sem var mest spennandi á Snorrabrautinni var að skoða verðlaunapeningana og bikarana hans Lalla, sem mér þóttu ótrúlega margir og mikið til koma. Skemmtilegast var þó að uppgötva þegar eitthvað nýtt var komið í safnið. Lalli spilaði lengi boccia með íþróttafélagi fatlaðra þar sem hann var fremstur meðal jafningja í mörg ár og fór m.a. utan í keppnisferðir með félaginu. Á þessum árum fórum við oft á skíði og þá oftast með Lalla og Kidda. Á meðan við vorum á skíðum beið Lalli í bílnum, oft fjóra til fimm tíma, horfandi á fólkið og spjallaði við þá sem gengu framhjá. Hann var ótrúlega þolinmóður, en hafði líka mikla ánægju af því að vera meðal fólks. Það var hklega þess vegna sem hann var svo duglegur í happdrættissölunni, því meðan hann var að selja hitti hann svo mikið af fólki. Hann átti ótal fastakúnna og vini, m.a. í Hagkaup, þar sem hann seldi í mörg ár. Sama fólkið keypti af honum ár eft- ir ár og maður leit vart svo til hans að hann væri ekki að spjalla við einhvem. Þrátt fyrir fötlun sína fór Lalli alltaf ferða sinna sjálfur, fyrst á mótorhjólum sem hann átti, en síðan á sínum frægu Volvoum, en hann hafði bara bflpróf á Volvo og raunar eingöngu R-1978. Þeir sem MINNINGAR keyrðu Snorrabrautina hafa lfldega oft séð Lalla fyrir utan númer 81 með tuskuna í hendi þurrkandi bíl- inn. Eitt var alltaf víst, bfllinn hjá Lalla var alltaf hreinn, hvemig sem viðraði. Lalli var líka afbragðs bflstjóri og var aldrei tekinn af lög- reglunni, að minnsta kosti ekki fyrr en hann var stoppaður á Suð- urlandsbrautinni á rafmagnshjóla- stólnum. Lalli hafði yndi af ferðalögum og þá sérstaklega jeppaferðum með Kidda. Því stærri sem brekkurnar vom og vegimir erfiðari því betra. Lalla tókst vel að aðlagast fótlun sinni þótt Hfið hafi oft verið erfitt. En amma og afi hugsuðu ótrúlega vel um drenginn sinn og Kiddi hef- ur verið honum ómetanlegur. Síð- ustu ár hafa verið Lalla sérstak- lega erfið, en nú hefur hann fengið hvfldina og það er ég viss um að hann gengur uppréttur þar sem hann er nú kominn. Þinn frændi Guðmundur Ingi. Tilvera okkar er undarlegt ferðalag. Við erum gestir og hótel okkar er jðrðin. Einir fara og aðrir koma í dag, því alltaf bætast nýir hópar í skörðin. Og til eru ýmsir, sem ferðalag þetta þrá, en þó eru margir, sem ferðalaginu kvíða. Og sumum liggur reiðinnar ósköp á, en aðrir setjast við hótelgluggann og bíða. (Tómas Guðm.) Þetta ljóð fékk allt aðra merk- ingu fyrir mér er ég sat hjá Lalla mínum á gjörgæsludeildinni, þess- ar elskur sem þar vinna settu diskinn með lögunum eftir Tómas Guðmundsson á og hljómuðu þau um herbergið undurbh'tt. Síðan fór að halla undan fæti hjá vini mínum, þá var hann farinn að bíða við hót- elgluggann. Samlíkingin í kvæðinu að sitja við hótelgluggann og bíða, þetta átti svo vel við. Lalli var búinn að lifa viðburða- ríku lífi. Ég kynntist honum 1984 þegar ég vann í Sjálfsbjargarhús- inu. Var þetta löngu áður en hann flutti þangað sjálfur. Hann átti þar marga vini og félaga. Bjó hann þá á Snorrabrautinni hjá foreldrum sín- um og bróður. Var fjölskylda Lalla KRISTINN EGGERTSSON + Kristinn Egg- ertsson fæddist í Reykjavík 22. febrú- ar 1946. Hann lést á heimili sínu í Reykjavík 16. janú- ar siðastliðinn og fór útför hans fram frá Háteigskirkju 26. janúar. Það var hringt í mig laugardagskvöldið 16. janúar og tilkynnt að Kiddi vinur minn væri dáinn. Þótt ég hefði vitað að hverju stefndi, þá er alltaf erfitt að trúa því, þegar kallið kemur. Við Kiddi erum búnir að þekkjast lengi, alveg frá því hann vann í Málaranum. Hann opnaði sína eig- in málningarverslun í næsta húsi við mig í Ingólfsstrætinu. Það var mikill samgangur á milli okkar og trúnaðartraust, því við þurftum að ræða málin og pæla í ýmsu. Við drukkum alltaf kaffi saman á morgnana og í hádeginu voru keyptar kjötbollur hjá Tómasi, svona gekk þetta í mörg ár hjá okkur. Það var alltaf mikill kraftur í Kidda, hann rak verslun sína vel og hann hafði gaman af að leiðbeina viðskiptavinum og upplýsa þá um það besta sem völ var á í sambandi við málningarefni. Kiddi var stór og stæðilegur maður og þegar við gengum um bæinn gekk hann hratt og þurfti að heflsa mörgum, því all- ir þekktu hann og hann alla. Kiddi hafði auga fyrir öllu fallegu og átti glæsilegt hús og fína bfla, vel bónaða og snyrtilega, því hann var mikið snyrtimenni. Hann hafði einnig mjög gaman af börn- um og var mikill barnakall, kallaði hann strákana alltaf „titti“. Heimili hans og Hjördísar var alltaf vel pússað og fágað, átti hann yndislega ijölskyldu sem hann hugsaði vel um. Það var alltaf gaman að koma í Mýrarásinn og tekið vel á móti mér. Þegar dóttir hans Hjördís kom til dyra og kall- aði „Siggi úra“ þá kom Kiddi fram að dyrum og veifaði hendinni og bauð manni inn, þetta var alveg sérstök handarhreyfing hjá honum sem ég á eftir að sakna mikið. Mig langar með þessum fátæk- legu orðum mínum að þakka Kidda ánægjulegar samverustundir sem við áttum í gegnum árin. Hjördísi, Eggerti, Valdimari, Hjördísi og öðnim aðstandendum sendi ég mínar innilegustu samúð- arkveðjur. Sigurður Þór Magnússon. Þegai’ við fréttum fráfall Kristins Eggertssonar fór hugurinn að reika til baka og við áttuðum okkur á því að höfum þekkt Kristin Eggertsson í langan tíma, eða nær helming ævi okkar. Kynni okkar hófust er sonur hans, og okkar besti vinur, Eggert Kristinsson, gekk með okkur menntaveginn í Verzlunarskólan- um. Á þeim tíma rak fjölskyldan málningarvöruverslun í Ingólfs- stræti og voru ferðir okkar þangað æði tíðar. Þar stóð Kristinn ásamt fjölskyldu sinni eins og konungur í rfld sínu, ýmist að sinna þörfum við- skiptavina sinna eða að ræða við þá um landsins gagn og nauðsynjar. Urðu úr þessu oft hinar fjörlegustu umræður þar sem Kristinn hafði ákveðnar skoðanir á bæði mönnum og málefnum. Sjaldan var komið að tómum kofanum hjá honum hvort heldur rædd voru málefni sjávar eða sveita. Á þeim tíma þegar Eggert bjó enn í foreldrahúsum nutum við oft gestrisni þeirra hjóna, Kristins og Hjördísar, á heimili þeirra í Mýrar- ásnum, og var þar oft kátt á hjalla. Síðasta gleðistund okkar allra sam- an var fyrir tæpu ári, þegar Egg- ert og Eyjólfur héldu fjölskyldum sínum og vinum mikla veislu í til- efni af þrítugsafmæli þeirra beggja. En lífið er ekki alltaf dans á rósum, stuttu seinna sagði Egg- ert okkur að ský hefði dregið fyrir sólu, þar sem Kiistinn faðir hans hefði greinst með illkynja sjúkdóm. Við framhaldið varð ekki ráðið og Kristinn lagði í sína hinstu ferð 16. janúar síðastliðinn. Um leið og við þökkum kynnin við Kristin, send- um við fjölskyldu hans okkar inni- legustu samúðarkveðjur og biðjum guð að blessa þau öll á þessari sorgarstundu. Eyjólfur Lárusson, Einar Þór Magnússon, Hörður Traustason. honum afskaplega kær. Hann átti þá sinn bfl og fór allra sinna ferða hjálparlaust. Þeir voru nokkrir bfl- arnir sem hann eignaðist um æv- ina. Allt Volvo, enda voru þetta bestu bflamir og ekki spillti fram- koma þeirra hjá umboðinu. Allt það besta var gert fyrir hann. Lalli kom margar ferðir til mín, austur fyrir fjall, og fórum við víða í bfltúr. Við höfum alltaf átt mjög góða tíma saman. Margt var rætt, um Hfið og tilveruna og um þetta misjafna sem mennirnir leita að, því misjafn er tilgangurinn sem fyrir þeim vakir, eins og segir í kvæðinu. Ekki ætla ég að rekja æviferfl vinar míns með þessu greinarkorni, heldur þakka allar góðu minning- amar sem ég á, fyrir tryggðina og kærleikann sem hann sýndi mér og mínum alla tíð. Ég kveð minn kæra vin með mikilli eftirsjá. Góður drengur er genginn. Eg get svo fátt sem býr í brjósti sagt. Það bindur tungu sterkur hugartregi. En aðeins kærleiks blómin blessuð lagt á bleikan hvarm þinn, vinur elskulegi. - (Guðm. Guðm.) Guðmundi, Kristjáni, Jóni, Sillu og fjölskyldu sendi ég og fjölskylda mín innilegar samúðarkveðjur. Elísabet Pétursdóttir. Ég minnist Lalla frænda míns með aðdáun og virðingu. Hann var fatlaður frá fæðingu, en lífsgleði og andlegur styrkleiki báru ofurliði líkamlega hömlun hans. Ég um- gekkst Lalla frá því við vorum börn og man ég sérstaklega eftir, hvað hann var makalaust glaður, þótt hann gæti aldrei hlaupið og hoppað með okkur hinum krökkun- um. Þarna kom strax fram í æsku, hversu andlega sterkur hann var. Það hlýtur að hafa reynt mikið á þessa ungu sál að vera alltaf áhorf- andi og aldrei þátttakandi í leik annarra barna. Það hjálpaði Lalla mikið, að hann átti góða fjölskyldu, sem umvafði hann ástrfld og um- hyggju. Mörg voru árin, sem hann Mundi föðurbróðir minn bar Lalla sinn á bakinu upp og niður stiga og alls staðar þar sem hjólastóllinn komst ekki. Snemma bar á því hvað Lalli var laghentur. Það var með ólíkindum hvað hann gat gert gullfallega hluti með bæklaðri vinstri hendinni einni saman. Ég sé hann enn fyrir mér niðursokldnn í vinnu sína, þar sem hann hamaðist með vinstri hendinni og varð að sitja á hægri hendinni, sem var mjög spastísk og hann hafði enga stjóm á. Það var mikið rétt, sem pabbi hans sagði um verk Lalla, þegar við ræddum nýlega saman í síma: „Enginn get- ur séð nema þessi verk séu eftir heilbrigðar hendur.“ LalU vann mikið fyrir samtök fatlaðra. Það muna eflaust margir Reykvíkingar eftir ungum manni í hjólastól á Laugaveginum, sem seldi happdrættismiða fyrir Sjálfs- björgu ár eftir ár, hvemig sem viðraði. Oft kom hann heim ískald- ur eftir að hafa setið klukkutímum saman í hjólastólnum á Laugaveg- inum. Þama komu skýrt í ljós eljan og þrautseigjan sem einkenndu hann alla tíð. Lalli hefur áreiðan- lega sett met í happdrættismiða- sölu Sjálfsbjargar. Glaðværð og hlý framkoma hans hafa líka hjálp- að við söluna. Á mörgum af ferðum mínum heim til Islands vöktu heimsókn- imar til Lalla alltaf mikla hlýju í huga mínum. Hann hélt gleði sinni og andlegu þreki alveg þangað til heilsu hans fór að hraka fyrir fá- einum áram. Þegar ég hitti hann í september sL, var hann orðinn mjög þjáður og þráði það eitt að fá að sofna svefninum langa. Lalli fékk ósk sína uppfyllta tveimur mánuðum eftir að Jófríður móðir hans dó. Mikill harmur er kveðinn að Munda frænda mínum, 96 ára gömlum, að missa bæði Lalla og vinuna sína eins og hann kallaði Jófríði á svo hjartnæman hátt. Yngri bræður Lalla, Jón og Krist- ján, hafa misst góðan bróður og vin. Það hefur verið mér ógleym- anlegt í gegnum árin að sjá þá fórnfysi og umhyggju, sem Krist- ján hefur sýnt Lalla og foreldram sínum. Ég og fjölskylda mín vott- um Munda, Kristjáni, Jóni og fjöl- skyldu Jóns djúpa samúð á þess- um erfiðu tímum. Unnur Pétursdóttir. DAVÍA GUÐMUNDSSON + Davía Jakobína Niclasen Guð- mundsson fæddist í Færeyjum 19. febrú- ar 1910. Hún lést á Héraðssjúkrahúsinu á Blönduósi 17. jan- úar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Blönduós- kirkju 23. janúar. „Amma Davía er orðin engill." Vitnað í Yrsu Líf fimm ára. Og ef einhver engill er til þá er það örugglega amma Davía. Elsku amma. Það era fáir eins heppnir og við barnaböm- in að eiga slíka ömmu. Það hefur ekki verið auðvelt að taka við tveimur ungbörnum og ala þau upp, þegar á sextugsaldur er kom- ið. En eins og annað sem þú tókst þér fyrir hendur, féllu þér verkin alltaf vel úr hendi og hjá þér áttum við yndislegt æskuheimili. Og við verðum þér ævinlega þakklát fyrir þá ást og umhyggju sem þú sýndir okkur í uppeldinu. Seinna þegar við voram flutt að heiman og kom- um í heimsókn var alltaf það besta borið á borð og þú varst búinn að undirbúa allt svo vel. Gestrisni þín er fræg út fyrir Islands strendur. Þegar við höfðum samband heim til þess að fá fréttir og fleira, varst þú alltaf fljót að spyrja hvernig við hefðum það. Alltaf var þinn áhugi fyrir bömum og barnabömum mestur. Þú fylgdist vel með í lífi okkar þó að fjærlægð- in væri mikil. Og sér- staklega var þér annt um Jógvan og gladdist yfir velgengni hans í skólanum. Þegar ljóst varð að ævi þinni væri að ljúka vildum við vera hjá þér en nátt- úruöfl Islands hindr- uðu það, en Einar var við sjúkrabeð þinn rúmum sólarhring fyrr og þú kvaddir hann með þessum orðum: „Guð blessi þig alltaf.“ En minningarnar eru margar og það verður gott að geta yljað sér við þær í framtíðinni. Þú lagðir á þig heilmikið ferðalag til Danmerkur 1993 til þess að vera viðstödd fermingu Jógvans og mik- ið var gaman að hafa ykkur Her- dísi í heimsókn þessar fáu vikur og systur þínai- fengu Hka þá ánægju að vera í samfylgd þinni í nokkra daga. Við erum svo þakklát fyrir allt sem þú hefur gert fyrir okkur, að því verður ekki lýst með orðum. Guð blessi minningu þína. Bryndís Bylgja og Einar. r 3lóm«bwðin > öaiAðskom ^ v/ Possvogski^kjwQouð j V Sírn»V554 0500

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.