Morgunblaðið - 27.01.1999, Side 40

Morgunblaðið - 27.01.1999, Side 40
40 MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 1999 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir, HALLDÓR Á. ÞORLÁKSSON, Víðimel 46, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstu- daginn 29. janúar nk. kl. 15.00. Björn Halldórsson, Brynja Axelsdóttir, Anna Dagný Halldórsdóttir, Steingrímur Eiríksson, Eva Þórunn Halldórsdóttir, Þór Daníelsson, barnabörn, barnabarnabarn, Þórhallur Á. Þorláksson. + Maðurinn minn, fóstri og afi, HJÁLMAR KRISTJÁNSSON, Langholtsvegi 28, sem lést föstudaginn 22. janúar, verður jarð- sunginn frá Áskirkju fimmtudaginn 28. janúar kl. 15.00. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Heimahlynningu Krabbameinsfélagsins. Sigríður Pétursdóttír, Ásgeir Guðnason, Sigríður Líba Ásgeirsdóttir, Guðmundur Ásgeirsson, Embla Dís Ásgeirsdóttir. Elskulegur eiginmaöur, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, ÓSKAR SUMARLIÐASON frá ísafirði, sem lést miðvikudaginn 20. janúar, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 28. janúar kl. 13.30. Margrét Kristjánsdóttir, Magnús J. Óskarsson, Birna H. Garðarsdóttir, Veigar Óskarsson, Hallfríður Kristjánsdóttir, Kristján Óskarsson, Salóme Einarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, ÁGÚSTU BJÖRNSDÓTTUR, Hlíðarvegi 23, Kópavogi. Halla Lovísa Loftsdóttir, Páll Gunnar Loftsson, Ámundi Hjálmar Loftsson og fjölskyldur okkar. Birting afmælis- og minningargreina MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kr- inglunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinamar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið grein- ina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Um hvern látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar grein- ar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent- uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverkn- að. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og Wordperfect einnig auðveld í úrvinnslu. GUÐRUN ÍSLEIFSDÓTTIR + Guðrún Isleifs- dóttir fæddist í Neðra-Dal í Vestur- Eyjaíjöllum 16. des- ember 1904. Hún iést í Reykjavík 18. janúar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Fossvogs- kirkju 25. janúar. Elsku amma mín, nú er kallið komið og þú hefur fengið hvíldina. Minningarnar hrann- ast upp. Eru þá ofar- lega í huga mínum allar yndislegu stundimar sem við áttum saman á Bergstaðastrætinu þegar ég var barn. A sumrin ef veður var gott var oft hlaupið inn til þín og kallað: „Megum við drekka úti?“ Þá feng- um við mjólk í flösku, smurt brauð og jafnvel sykraða pönnuköku og settumst í grasið alsæl. Að ég tali nú ekki um búið frammi í skoti, þar sem þú komst þér upp skemmtilegri aðstöðu fyrir okkur barnabörnin, með gömul veski, skó, alls kyns krukkur og aðra hluti sem gaman var að leika sér með. Einstöku sinn- um fékk ég að gista, þá leið mér eins og prinsessu í ævintýrunum þegar þú sagðir mér sögur, söngst og fórst með vísur fyrir mig. Teygð- ir þig í munnhörpuna og spilaðir nokkur lög. Þú endaðir á því að breiða ofan á mig og fórst með bæn- irnar. Enn í dag líður ekki sá jóla- dagur að hugurinn reiki ekki aftur til þess tíma er við börnin þín og barnabörn komum til þín og fengum kökur og heitt súkkulaði (sem aldrei mátti kalla kakó, þá hálfmóðgaðist þú). Síðan var gengið í ki-ingum jólatréð og var þá oft glatt á hjalla. Seinna þegar ég eignaðist hana Öllu mína bjó ég í sömu götu og þú og litum við stundum inn hjá þér. Þeg- ar ég fór var ég mun ríkari af and- legum auði sem þú gafst svo mikið af. Heiðarleika og nægjusemi hafðir þú að leiðarljósi amma mín. Hjart- ans þakkir fyrir allt og guð geymi þig- Við Addi, Alla, Þórir, Hörður og Erna þökkum þér samfylgdina. þín Bergrós. Hér sit ég ein og hugsa til þín, elsku amma mín. Það er svo margt sem kemur upp í hugann og svo margs að minnast. Þær stundir sem ég fékk notið með þér eru allar svo minnisstæðar. Ég er svo óendan- lega þakklát fyrir að hafa átt þig fyrir ömmu. Sá mannkærleikur, lítillæti og góðmennska sem bjó í þér voru alveg einstök. Það er svo mikils virði fyrir ómótaða barnssál, eins og ég var fyrst, að hafa fengið tækifæri til þess að finna vísan stað ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Stapahrauni 5, Hafnarfirði, sími 565 5892 Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Áralöng reynsta. Sverrir Olsen, Sverrir Einarsson, útfararstjóri útfararstjóri Útfararstofa íslands Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300 Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/ hjá svo kærleiksríkri sál sem þú varst, elsku amma. Alltaf var tími til þess að rabba um heima og geima. Þú lagðir þig fram um að rækta mannkærleik- ann og allt það góða sem inni fyrir býr í hverri sál. Manstu kvöldin þegar ég fékk að sofa hjá þér. Þá fékk ég stundum að sofa í ömmu rúmi. Þú komst til mín áður en ég átti að fara að sofa og fórst með bænirnar með mér og baðst guð og góðar vættir um að vaka yfir mér og öllum öðrum í fjölskyldunni. Breiddir sængina yfir mig og sagðir „guð geymi þig“ og kysstir mig góða nótt. Mér fannst ég alltaf svo örugg og leið svo vel. Manstu þegar ég fékk að leika mér með föt, töskur og annað dót frammi við þvottahúsið í Bergstaðastrætinu. Þá var fullt að gera, skipta um hlutverk og vera ýmsar persónur. Þarna var algjört frjálsræði til þess að fá útrás fyrir sköpunarþörfina og þá ímyndunar- heima sem lítil börn hafa. Reglur voru fáar en skýrar og ekki datt manni í hug annað en að fara eftir þeim. Mikið vildi ég óska þess að fleiri börn fengju tækifæri til þess að kynnast ömmu eins og þér. Börnin mín þrjú voru þeirrar gæfu aðnjótandi að vera samvistum við þig, og það á óumdeilanlega eftir að fylgja þeim út í lífið. Það er alveg einstakt hvað þér tókst að ná til þeirra þó að samverustundirnar væru ekki eins margar og við hefð- um viljað. Það er þetta æðruleysi og óeigingirni sem hefur fylgt þér alla tíð. Þú varst alltaf svo þakklát íyrir hvern dag sem leið og guð gaf. Þú sagðir: „Ef maður hefur nóg fyrir sig og sína og allir eru blessunar- lega heilsuhraustir þá ber manni að þakka það.“ Að lokum, elsku nafna mín, langar mig til að þakka þér samfylgdina og handleiðsluna í gegnum árin. Þakka þér fyrir að vera þú eins og þú ert og fyrir allt sem þú hefur gefið og sýnt mér, mínum börnum og sambýlismanni. Engin orð nægja til þess að lýsa þakklæti mínu. Ég kveð þig í hinsta sinn þar til við hittumst á nýjum stað einhvern tíma seinna. Megi góður guð blessa þig og varðveita þangað til við hittumst aftur. Elsku pabbi og allir aðrir aðstandendur. Hugur minn er hjá ykkur öllum á þessari kveðjustund. Við höfum misst mikið en minningin um einstaka hetju mun lifa í hjört- um okkar allra. Andi þinn mun fylgja mér, þú ert sem rós í hjarta mér um alla tíð og tíma og lilja í íslands hlíðum. Amma mín, ég þakka þér, ég ævinlega þakka þér fyrir gæsku þína, með votum tárum mínum. Ég elska þig. Þín nafna, Guðrún ísieifsdóttir. Elsku amma mín. Nú þegar æviskeið þitt er á enda runnið flýgur margt í gegnum hug- ann. Mest hafa nú samt komið upp í huga mér minningar frá því að ég var barn og kom í skjólið til ömmu á Bergstaðastrætinu. Margar góðar stundir átti ég þar hjá ykkur Benna, amma mín. Ég veit að margt gott veganesti út í lífið fékk ég hjá þér. Fyrir um fimmtán árum, þegar þú komst austur á land í heimsókn til mín, var það ótrúlegt afrek hjá þér, en það gaf mér og þörnum mín- um meira en orð fá lýst. Elsku amma, þrátt fyrir alla þína erfiðleika í lífinu man ég þig sem glettna konu og lífsglaða. Konu sem ég hefði viljað eyða miklu meiri tíma með. Þegar ég sat hjá þér næstsíðustu nóttina þína, þá var eins og ég fengi þörf fyrir að raula fyrir þig, þú varst svo veik. Og eins og þegar börnin mín eru veik og ég get ekkert annað gert, þá syng ég fyrir þau. Þú gafst svo margt, en mér þó mest. Þú gafst mér móður mína, sem af ósérhlífni og af alhug helgaði líf sitt því að reyna að létta þér lífið síðustu árin þín hér. Það væri hægt að telja upp svo margt, en ég ætla bara að kveðja þig með þessum orðum: Amma, þú varst best. Allir ættu að eiga ömmu eins og þig- Þín Sólbjört. Elsku amma. Við viljum með nokkrum orðum kveðja þig hinstu kveðju. Þú varst alltaf heil og sönn í hjarta og huga. Það gustaði af þér og stundum varst þú fljóthuga, en alltaf var gott að vera í návist þinni. Oft fengum við systurnar að gista hjá þér stöku nótt eða jafnvel dvelja hjá þér um lengri tíma. Þá var ýmislegt brallað. Það var svo ævin- týralegt að koma til þín, svo margt að skoða sem hægt var að fikta í og leika sér með frammi í holi og vaskahúsi á Bergstaðastrætinu, að maður tali nú ekki um garðinn sem var alltaf svo dularfullur og hafði ýmislegt að geyma sem bamsaugun heilluðust af. Alltaf var grjóna- grauturinn hennar ömmu sá besti í heimi og ekki spillti fyrir að fá rúg- brauð með kæfu með grautnum. Þær eru ófáar vísumar sem þú ortir og söngst fyrir okkur. Margar bænirnar kenndir þú okkur sem við höfum haldið við og beðið með okk- ar börnum. Líf þitt, amma, ein- kenndist af jákvæðni sem endur- speglaðist í því að þú horfðir alltaf á það jákvæða í fari náungans. Þrátt fyrir margs konar mótlæti í lífi þínu var viðkvæðið ætíð „verra gat það verið“. Við getum svo sannarlega sagt að þú varst okkur frábær fyrir- mynd. Við margs konar tækifæri höfum við minnst á þig og þína sigra við okkar vini og kunningja og það höfum við fyrir satt að fleiri niðjar þínir hafa gert hið sama. Margs er að minnast. Fyrir u.þ.b. þrettán ámm varst þú í heimsókn hjá Maddýju í Ásmúla í nokkra daga. Þú gast ekki látið hjá líða að líta í fjárhúsið og fjósið. Eins og áð- ur hefur komið fram varst þú fljót- huga og gast ekki á þér setið. Þá vildi ekki betur til en svo að þú dast og handleggsbrotnaðir. Kom þá glöggt í ljós röggsemi þín og vilja- styrkur þegar þú hélst sjálf við brotið og gafst fyrirmæli um hvað gera skyldi. Inn í bæ skylduð þið fara áður en þú féllir í yfirlið og hugsaði Maddý þá með sér að það væri betra að reyna að standa sig áður en liði yfir hana líka. En betur fór en á horfðist og er læknirinn kom á staðinn sagðist hann ekki sjá í fljóti bragði hver væri hjálparþ- urfi, svo vel barstu þig. Þá, sem oft áður og síðar, hafði amma það á orði að verra gæti það verið. Þú varst alltaf svo hvetjandi og er Bergrúnu minnisstætt þegar þú stuðlaðir að því að hún fór að læra á gítar og troða upp á skólaskemmt- unum þrátt fyrir feimni og ófram- fæmi. Góðar voru vikurnar sem María átti með þér haustið er hún var að byrja í framhaldsskólanum og mamma og pabbi voru fyrir austan. Þá fann hún sterkt til þess hvað gott var að eiga þig að og hve skiln- ingsrík þú varst. Ekki stóð þá á góðum ráðum og stuðningi. Ástarþakkir fyrir þann fjársjóð minninga sem þú hefur gefið afkom- endum þínum og öllum þeim sem þekktu þig. „Lofaður sé Guð og faðir Drottins vors Jesú Krists, faðir miskunn- semdanna og Guð allrar huggunar, sem huggar oss í sérhverri þreng- ing vorri, svo að vér getum huggað alla aðra í þrengingum þeirra með þeirri huggun, sem vér höfum sjálf- ir af Guði hlotið.“ (II. Kor. 1:3-4) Guð blessi Jjig og gefi Leif, Ollu, mömmu og Isleifi styrk nú þegar þín nýtur ekki lengur við. Bergrún, Magnea og María.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.