Morgunblaðið - 27.01.1999, Page 44
44 MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
ÉG VAK /HE£> StBIK { KVÖLt>~
AtATlNN, EN...
1 $E<SÞU MÚfZ E.KKJ ad
a/BBI HAFI STOUÐÞEIA'I
UEI- EKICI LUBBI -
-T&fæieR.iMNOFAR.ÍtSÖTUNNl-—
SATTAOSESJA revndi lubbiad
STP£>VA HANN
<íal>6ievarab reyna oS)
/toflUto! /--"f
FVKtKSBEpU,
O IÆL AFS&SVtKlO/
KAium'
Smáfólk
IF you'll MELP ME WITH MY
HOMEDORK, l'LL SEETO IT
THAT 50MEPAY THEY PUT A
5TATUE OF YOU IN THE PARK.
OKAY, WE'LL BEOIN HEKE
OSI PAOE FOUR..
DO YOU WANT TO BE ON A
H0R5E OR A 5KATEB0ARD?
Ef þú hjálpar mér með heima- Jæja þá, við byijum hér á Viltu vera á hesti eða hlaupa-
verkefnin, þá skal ég sjá til þess blaðsíðu fjögur. bretti?
að einhverntíma verði reist
stytta af þér á Miklatúni...
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Víkverji, Símaskráin
og staðreyndirnar
Frá Olafí Þ. Stephensen:
VÍKVERJI fjargviðrast svolítið í
dálki sínum 22. janúar yfir því að
ekki sé hægt að finna símanúmer
hjá viðskiptavinum Tals hf. í síma-
skrá Landssímans; hvorki sé hægt
að fá uppgefin GSM-númer frá Tali
í upplýsinganúmerinu 118 né á Net-
inu.
Landssíminn getur verið sam-
mála Víkverja um að þetta sé held-
ur bagalegt. Fyrirtækið getur hins
vegar ekki tekið á sig neina sök í
málinu. Staðreyndin er sú að Tali
hf. var strax í upphafi boðið að skrá
númer allra viðskiptavina sinna i
Símaskrá Landssímans. Þau svör
fengust þá að af „viðskiptalegum
ástæðum" vildi fyrirtækið ekki
þiggja það boð. Hins vegar heimil-
uðu Póst- og fjarskiptastofnun og
tölvunefnd Landssímanum að skrá
númer einstakra áskrifenda í GSM-
kerfi Tals í Símaskrána, að því til-
skildu að þeir óskuðu þess sjálfir
skriflega. Allar þessar staðreyndir
málsins koma fram í frétt Morgun-
blaðsins hinn 20. ágúst síðastliðinn
og hefði Víkverji getað kynnt sér
þær þar, til dæmis með því að fletta
upp í hinu prýðilega gagnasafni
blaðsins á Netinu.
Símanúmer nokkurs hóps GSM-
áskrifenda Tals hafa raunar nú þeg-
ar verið skráð í Símaskrána að ósk
viðkomandi, en Tal hefur ekki hald-
ið því sérstaklega að viðskiptavinum
sínum að þeir eigi þennan kost.
Landssíminn hefur því nýlega ítrek-
að boð sitt til Tals hf. um að skrá öll
númer viðskiptavina fýrirtækisins í
Símaskrána endurgjaldslaust, en
frestur til að koma að nýjum upp-
lýsingum í prentuðu útgáfuna renn-
ur út í lok þessa mánaðar. Tal hefur
kosið að hafa þann háttinn á að
senda út með farsímareikningum
sínum, sem ættu að vera í pósti
þessa dagana, eyðublað þar sem
áskrifendum er gefinn kostur á að
skrá sig í Símaskrá Landssímans.
Einnig geta áskrifendur hjá Tali
skráð númer sín milliliðalaust á af-
greiðslustöðum Símans og íslands-
pósts fram til 29. janúar næstkom-
andi, vilji þeir að þau birtist í prent-
uðu Símaskránni.
Nú ættu málavextir að vera Vík-
verja sæmilega ljósir. Eftirfarandi
fullyrðingar hans og upphrópanir
dæma sig væntanlega sjálfar í ljósi
þessara staðreynda: „ ... Lands-
síminn veitir viðskiptavinum sínum
ekki þá sjálfsögðu þjónustu að gefa
upp GSM-síma hjá Tali hf. ... “
„Hvers á þá viðskiptavinur Lands-
símans að gjalda hér heima sem
neitað er um ákveðnar upplýsingar
hér innanlands, aðeins vegna þess
að maðurinn úti í bæ, sem er hand-
hafi símans, skiptir við fyrirtæki
sem er í samkeppni við Landssím-
ann?“ „ ... hafi þeir ekki gert sér
ljóst að viðskiptavinir Landssímans
geta þurft að hringja í fólk, sem
skiptir við Tal hf., þá er eins gott að
þeir hristi af sér slenið og vakni af
einokunarsvefni sínum.“ „Slík svör
eru óþolandi og raunar móðgun við
viðskiptavininn."
Allir vita að það er ríkur þáttur í
starfslýsingu Víkverja að æsa sig
yfir öllu milli himins og jarðar og
þannig veitir hann t.d. þjónustufyr-
irtækjum eins og Landssímanum
ágætt aðhald. En væri ekki ráð að
kynna sér staðreyndirnar áður en
menn byrja að æsa sig?
ÓLAFUR Þ. STEPHENSEN,
forstöðumaður upplýsinga- og
kynningarmála Landssíma íslands,
Landssímahúsinu við Austurvöll.
Fordómar Víkverja
Frá Sigurði Bjarklind:
UNDIRRITAÐUR hefur verið les-
andi og áskrifandi Mbl. í hátt í hálfa
öld. Morgunblaðið er ómissandi
þáttur í mínu lífi. Þar kennir ýmissa
grasa og efnistök breytast í hægu
samræmi við tíðarandann. Nema ef
vera skyldi nöldurhornið Víkverji,
sem enn virðist ritaður af „húsmóð-
ur í vesturbænum“ á tímum kalda
stríðsins. Þröngsýni Víkverja eru
engin takmörk sett og það sem hon-
um (henni) finnst ekki gott að borða
er ekki mannamatur. Víkverji miss-
ir lystina ef þorramat ber fyrir augu
hans. Ekki nóg með það, lúmskar
fóstrur reyna að byrla börnum hans
eitur á þorranum.
Nú er Víkverji ekki einn um það
að þykja þorramatur vondur og frá-
hrindandi en þannig er því nú einatt
farið um venjur og siði að ekki eru
allir sammála. Það sem er hins veg-
ar óþolandi er vankunnátta Vík-
verja og fordómar varðandi aðferðir
til að lengja geymsluþol matvæla
fyrir nú utan það að hann væri ekki
til ef forfeður hans hefðu ekki kunn-
að þá list að rotverja matvæli með
mjólkursýru.
Sýrðar mjólkurafurðir eru mjög
vinsælar um allan heim. í stórum
dráttum eru þær framleiddar
þannig að vissir gerlar gerja mjólk-
ursykur og framleiða mjólkursýru
sem sýrir mjólkina og lengir
geymsluþol hennar. Vonandi hættir
Víkverji ekki að neyta súrra mjólk-
urafurða þrátt fyrir þessa vitneskju.
A sama hátt er mjólkursýra notuð
til að lengja geymsluþol ýmissa
kjötrétta, sem ganga nú undir nafn-
inu þorramatur. Þetta er náttúruleg
aðferð og síst verri en að nota tilbú-
in þráavarnarefni, rotvarnarefni og
litarefni, sem birtast á innihaldslýs-
ingu matvæla undir E-númerum.
Víkverji þarf því ekki að óttast um
heilsu bama sinna þótt þau fái að
bíta í súra slátursneið eða
hrútspunga.
Að lokum vil ég benda Víkverja á
að æðsta boðorð allra pistlahöfunda
er að taka afstöðu á grundvelli
þekkingar og réttra upplýsinga.
Hrútspungar, svið og rófustappa er
á engan hátt lakari matur en hvít-
laukskryddaður Víkverjaréttur auk
þess að vera hluti af menningararf-
inum.
SIGURÐUR BJARKLIND,
Norðurbyggð 7, Akureyri.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fyigir fyrirvari hér að lútandi.