Morgunblaðið - 27.01.1999, Side 46
46 MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
í DAG
Safnaðarstarf
Sorgarhópurí
Arbæjarkirkju
„SORGIN gleymir engum, fyrr eða
síðar verður hún á vegi okkar.“
Núna á annan vetur hefur verið
boðið u[>p á samveru fyrir sókn-
arfólk í Arbæjarkirkju og aðra sem
eiga við sorg og missi að stríða.
Fólki er boðið að koma og deila
í'eynslu sinni og hlýða á fyrirlestra
um þennan þátt mannlegs lífs.
Fyrsti fundur nýs árs er fímmtu-
daginn 28. janúar nk. kl. 20.30.
Síðasta fimmtudag hvers mánað-
ar frá október fram í apríl er boðið
upp á þessa samveru. A fimmtudag-
inn kemur í heimsókn með innlegg í
umræðuna Valgerður Hjartardóttir
hjúkrunarfræðingur en hún starfar
m.a. hjá samtökunum „Karitas“ við
umönnun langveiki'a sjúklinga.
Allir eru velkomnir sem áhuga
hafa á málefninu og líka til að hitta
aðra og eiga samfélag hluta úr
kvöldi.
Prestarnir.
Krossinn með
kvennamót
TRÚFÉLAGIÐ Krossinn verður
með kvennamót í Reykholti í Borg-
arfirði dagana 4.-7. febrúar nk.
Mótið er ætlað konum á öllum
aldri. Skráning stendur yfir og þær
konur sem viija bætast í hópinn
geta skráð sig í síma 554 3377.
Áskirkja. Starf fyrir 10-12 ára börn
kl. 17.
Bústaðakirkja. Opið hús fyrir
aldraða kl. 13-17.
Dómkirkjan. Hádegisbænir kl.
12.10. Orgelleikur á undan. Léttur
málsverður á kirkjuloftinu á eftir.
Grensáskirkja. Samverustund eldri
borgara kl. 14-16. Biblíulestur,
samverustund, kaffiveitingar. TTT-
starf (10-12 ára) kl. 16.30.
Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir
foreldra ungra barna kl. 10-12.
Starf íyrir 9-10 ára kl. 16.30. Starf
fyrir 11-12 ára kl. 18.
Háteigskirkja. Mömmumorgunn
kl. 10-12. Kvöldbænir og fyrirbænir
kl. 18.
Langholtskirkja. Starf eldri borg-
ara í dag kl. 13-17. Allir velkomnir.
íhugunar- og fyrirbænastund kl.
18.
Laugarneskirkja. Fundur
„Kirkjuprakkara" (6-9 ára börn) kl.
14.30. Fundur TTT (10-12 ára) kl.
16. Fundur æskulýðsfélagsins (13-
15 ára) kl. 20.
Neskirkja. Mömmumorgunn kl. 10-
12. Fræðsla: Herdís Storgaard,
barnaslysafulltrúi heilbrigðisráðu-
neytisins fræðir um forvarnir
vegna slysa á börnum. Kaffi og
spjall. Ungar mæður og feður vel-
komin. Opið hús fyrir eldri borgara
kl. 15-17. Umsjón Kristín Bö-
geskov, djákni. Bænamessa kl.
18.05. Sr. Halldór Reynisson.
Seltjarnarneskirkja. Kyrrðarstund
kl. 12. Söngur, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur hádegisverður í
safnaðarheimilinu. Starf fyrir 11-12
ára börn kl. 17-18.15.
Árbæjarkirkja. Félagsstarf
aldraðra, opið hús í dag kl. 13.30-16.
Handavinna og spil. Fyrirbænag-
uðsþjónusta kl. 16. Bænarefnum er
hægt að koma til presta safnaðar-
ins. TTT í Ártúnsskóla kl. 16-17.
Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund kl.
12.10. Tónlist, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur málsverður í safnað-
arheimilinu á eftir. „Kirkjuprakk-
arar“ starf fyrir 7-9 ára böm kl. 16.
TTT-starf fyrir 10-12 ára kl. 17.15.
Æskulýðsstarf á vegum KFUM og
K og kirkjunnar kl. 20.
Fella- og Hólakirkja. Helgistund í
Gerðubergi á fimmtudögum kl.
10.30.
Grafarvogskirkja. KFUK fyrir
stúlkur 9-12 ára kl. 17.30-18.30.
Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar
kl. 10-12. Sarf fyrir 10-12 ára kl.
16.30.
Kópavogskirkja. Starf með 8-9 ára
börnum í dag kl. 16.45-17.45 í
safnaðarheimilinu Borgum. Starf á
sama stað með 10-12 ára (TTT) kl.
17.45-18.45.
Seljakirkja. Fyrirbænir og íhugun
kl. 18. Beðið fyrir sjúkum, allir vel-
komnir. Tekið á móti íyrirbænaefn-
um í kirkjunni og í síma 567 0110.
Léttur kvöldverður að bænastund
lokinni. Fundur Æskulýðsfélagsins
kl. 20.
Vídalínskirkja. Foreldramorgunn
kl. 10-12.
Víðistaðakirkja. Opið hús fyrir
eldri borgara kl. 14-16.30. Helgi-
stund, spil og þorramatur.
Hafnarfjaröarkirkja. Kyrrðar-
stund í hádegi í kirkjunni kl. 12-
12.30. Æskulýðsstarf, eldri deild kl.
20-22 í minni Hásölum.
Keflavíkurkirkja. Kirkjan opnuð
kl. 12. Kyrrðar- og bænastund í
kirkjunni kl. 12.10. Samvera í
Kirkjulundi kl. 12.25, djáknasúpa,
salat og brauð á vægu verði - allir
aldurshópar. Alfanámskeið hefst í
Kirkjulundi kl. 19 og lýkur í kirkj-
unni um kl. 22.
Landakirkja, Vestmannaeyjum.
Kl. 10 samverustund foreldra
ungra barna. Kl. 18 fundur með for-
eldrum fermingarbarna.
Kietturinn, kristið samfélag.
Bænastund kl. 20. Allir velkomnir.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía. Kl.
18.30 fjölskyldusamvera sem hefst
með léttri máltíð á vægu verði. Kl.
19.30 er kennsla og þá er skipt nið-
ur í deildir. Allir hjartanlega vel-
komnir.
Lágafellskirkja. Kyrrðar- og
bænastundir alla fimmtudaga kl. 18
í vetur.
HOTEL SKJALDBREIÐ, LAUGAVEGI 16
NYTT HOTEL A BESTA
STAÐ í MIÐBORGINNI
VETRARTILBOÐ
Verðfrá kr. 2.700 á mann i2ja manna herbergi.
Morgunverðarhlaðborð innifalið.
Frir drykkur á veitingahusinu Vegamótum.
Sími 511 6060, fax 511 6070
www. eyj a r.i s/s kj a Id b rei d
VELVAKAMH
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Greinar um
sj ómannaafslátt
í MORGUNBLAÐINU
birtist grein um sjómanna-
afsiáttinn. Þar var ekki
rétt farið með og síðar
birtist önnur grein sem
átti að leiðrétta vitleysuna
en þar var bara bætt við
hana. Sjómannaafsláttur-
inn var settur inn sem
samningsatriði í kjara-
samningum eftir 1950, lík-
lega 1952 eða 1953. Að
hluta til voru þetta laun.
Ég held að þessu hafi verið
komið á sem hlunnindum til
kaupa á göllum fyrir sjó-
menn á þeim tíma. En
þetta er látið líta öðruvísi
út í dag og sífellt verið að
reyna að ná þessum sjó-
mannaafslætti af sjómönn-
um. Er ég hissa á því að
enginn af þeim sem stóðu
fyrir því að þetta var sett í
samningana á sínum tíma
skuli láta heyra í sér. Þegar
menn eru að skrifa svona
greinar eiga þeir að afla sér
upplýsinga um málið áður
en skrifað er um það.
Sjómaður.
Tapað/fundið
Hringur í óskilum
HRINGUR með perlu
fannst í Austurstræti í síð-
ustu viku. Upplýsingar í
síma 553-2956.
Lyklakippa týndist sl.
fóstudag við Vallarás 5 í
Arbæ. Skilvis finnandi hafi
samband í síma 699-6277.
Svartur karlmanns-
frakki í óskilum
SVARTUR karlmanns-
frakki fannst í miðbænum
sl. sunnudag. Upplýsingar
í síma 551-3602.
Dýrahald
Kanínusystur óska eft-
ir góðu heimili
Oskað er eftir góðu heimili
fyrir tvær hvítar kaninu-
systur.
Einungis ábyrgðarfullii'
dýravinir koma til greina.
Upplýsingar í síma 554-
1221 eftir ld. 12.
ÖNDUNUM gefið í Hafnarfirði.
Morgunblaðið/Kristinn
Víkveiji skrifar...
AÐ hefur áður gerst á þessum
vettvangi að Víkverji dásamaði
kímnigáfu framsóknarmanna, sem
honum finnst vera alveg sér á
parti, ekki síst fyrir þær sakir, að
margir framsóknarmenn hafa alls
ekki í hyggju að vera fyndnir, þeg-
ar þeir eru hvað drephlægilegastir.
í þeim hópi er hinn stórskemmti-
legi þingmaður Framsóknarflokks-
ins, Guðni Agústsson, sem sendi
Víkverja svo skemmtilegar kveðjur
þann 19. janúar sl., undir fyrir-
sögninni „Blessaður karlinn hann
Víkverji", að Víkverji má bókstaf-
lega til með að þakka þingmannin-
um tilskrifin. Kynningin á grein
Guðna í Morgunblaðinu var
svohljóðandi: „Hvers vegna kemur
Víkverji eins og álfur út úr hól,
spyr Guðni Ágústsson, þegar fær-
ustu reiðmenn okkar hafa vakið
heimsathygli?" Þegar stórt er
spurt, verður fátt um svör og raun-
ar svo fátt, að Víkverja vefst ekki
bara tunga um tönn, heldur einnig
um herðar og háls. Eða er það
kannski svo, að Víkverji og Guðni
Ágústsson hafi ekki sama skilning
á því hvað felst í orðinu heimsat-
hygli? Víkverji veit að leiðtoga-
fundur þeirra Gorbatsjovs og
Reagans í Reykjavík í október
1986 vakti heimsathygli og hlaut
hann mikla fréttalega umfjöllun í
heimspressunni. Sömuleiðis veit
Víkverji að Vestmannaeyjagosið
1973 vakti heimsathygli. Einvígi
þeirra Fischers og Spasskís 1972
náði einnig að fanga athygli heims-
pressunnar og þannig að vekja
heimsathygli og nýlegri atburðir í
Vatnajökli og hlaupið á Skeiðarár-
sandi fóru langleiðina með að fanga
athygli heimspressunnar, ekki
satt? En að færustu reiðmenn okk-
ar hafi vakið heimsathygli, um það
hefur Víkverji aldrei heyrt, nema
frá Guðna Agústssyni og fullyrðing
hans nægir einfaldlega ekki til þess
að sannfæra Víkverja.
xxx
VÍKVERJI stenst ekki freisting-
una og vitnar aftur orðrétt í
greinarkorn Guðna, því vel má vera
að einhverjir hafi misst af greininni:
,Auðvitað finnur maður að þekk-
ingu Víkverja eru takmörk sett og
bundin því mannlega hjarta sem
pennanum stýrir." Ef einhver er
svo snjall, að geta ráðið í merkingu
þessarar setningar, þá væri Vík-
verji þakklátur íyrir hvers konar
leiðbeiningar, sem leiða myndu til
skilnings hjá blessuðum karlinum
honum Víkverja.
xxx
OG enn ein bein tilvitnun:
„Hvort Víkverji er tvíhöfði eða
ekki, skrifaður af einum manni eða
fleirum skiptir ekki máli. Víkverji
er persóna sem oft fjallar um mál
með athyglisverðum hætti. Vík-
verji kann að vera kona, þær fara
oft í skrifum og málflutningi fram
af meira næmi og hógværð." Hér
rís stíll greinarhöfundar hvað
hæst, á því leikur ei nokkur vafi, en
þrátt fyrir skemmtileg tilskrif
þingmannsins til blessaðs karlsins
hans Víkverja, sem að hans mati
gæti verið tvíhöfði, karl eða kona,
þá hefur þingmaðurinn í engu
svarað spurningum Víkverja um
landslið hestamanna, svo Víkverji
ætlar bara að endurtaka og um-
orða nokkrar þeirra: Hver á að
standa straum af kostnaði? Hver á
að borga brúsann? Hvað á þessi
rómantíska sveitasýn framsókn-
arþingmannanna að kosta í heild?
Hvað eru framsóknarþingmennirn-
ir að hugsa? Eru þeir yfirleitt eitt-
hvað að hugsa?