Morgunblaðið - 27.01.1999, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 1999 49
I
I
<|f
FÓLK í FRÉTTUM
Morgunblaðið/Halldór
BERGLIND Ósk Einarsdóttir, Þórey Hannesdóttir, Lára Björg Ágústs-
dóttir, Berglind Helga og Þurý Björg.
SMARI Jósepsson, Karl Davíðsson, Trausti Skúlason
og Ómar Hauksson.
GUÐJÓN Már Guðjónsson, einn
af eigendum Oz, og Þorsteinn
M. Jónsson, framkvæmdastjóri
Vffilfells.
Coca-cola á Netinu
Heill heim-
ur út af
fyrir sig
HALDIÐ var teiti vegna opnunar
Coca-cola vefsins síðastliðinn
laugardag. Gestum var boðið upp
á léttar veitingar og gátu þeir
skoðað á myndvörpum þá mögu-
leika sem í boði eru á vefnum sem
SÝNISHORN úr heimi Coca-cola á Netinu.
er á slóðinni coca-cola.is.
Plötusnúðarnir Margeir, Árni
E. og Þossi léku af fingrum fram
og einnig komu Real Flavaz fram
ásamt rapparanum Anthony. Ey-
þór Arnalds, þróunarstjóri Oz, sá
um að kynna vefínn ásamt Þor-
steini M. Jónssyni, framkvæmda-
sfjóra Vífilfells, en vefurinn er
samvinnuverkefni Coca-cola, Oz,
Hyper Web og Fíns miðils. Gefnir
voru miðar á útvarpsstöðvum
Fíns miðils og voru léttar veiting-
ar í boði.
Öllum netverjum býðst svo að
heimsækja Coca-cola vefinn þar
sem í boði eru tónlistargreinar
Undirtóna, vinsældalisti X-ins og
Skratz og tónlistarmyndbönd.
Einnig er skiptimarkaður á plöt-
um og þrívíddarheimur þar sem
menn geta hist og skrafað saman.
I næsta mánuði verður svo get-
raunaleikur á vefsíðunni. „Vefur-
inn er flottur í dag en verður æ
betri,“ segir Kiddi Bigfoot, kynn-
ingarstjóri Fíns miðils.
MYNPBÖND
Með fullri
alvöra
Upp og niður
(Up ‘n’ Under)________
li a in n n in y n <1
★ '/2
Framleiðandi: Mark Tliomas. Leik-
stjóri og handritshöfundur: John
Godber. Kvikmyndataka: Alan M.
Trow. Aðalhlutverk: Gary Olsen, Neil
Morrisey og Samantha Janus. (95
mín) Brcsk. Skífan, janúar 1998.
Myndin er öllum leyfð.
í ÞESSARI bresku gamanmynd
segir frá Arthur Hoyle, fyrrverandi
rugby-leikmanni, sem ákveður að
snúa sér aftur að
sportinu og þjálfa
upp handónýtt lið
missköllóttra og
misþungra leik-
manna. Hann veðj-
ar við erkióvin sinn
að liðið muni sigra
hörðustu nagla
deildarinnar sem
taldir eru ósigrandi.
Þjálfunin fer illa af stað en fer að
ganga betur þegar hin Ijóshærða og
eitilharða Hazel kemur til aðstoðar.
Upp og niður ber sterkan keim af
gamanmyndinni Með fullri reisn,
sem sló óvænt í gegn fyrir skömmu.
Sögusviðið er samfélag breskra
verkamanna og umfjöllunarefnið
snýst um tilraun nokkuiTa karl-
manna til að ráða bót á slæmu sjálfs-
mati og karlmennskukreppu með
samstilltu átaki. Þessa kvikmynd
skortir hins vegar ferskleikann og
húmorinn sem Með fullri reisn hafði.
Hún er fremur illa gerð og fyrirsjá-
anleg allt frá byrjun. Hins vegar nær
myndin sér á vel strik í lokaatriðinu
sem lýsir úrslitakeppninni og gerir
síðustu tuttugu mínúturnar þess
virði að horfa á.
Samfylking jafnaðarmanna verður
að auka fylgi sitt meðal ungs fólks.
Magnús Árna
í 3. sætið!
Setjum fulltrúa ungu kynslóðarinnar
í öruggt þingsæti í prófkjöri
Samfylkingarinnar í Reykjavík.
Eldriborgaraferð
til Kanarí
19. apríl
með Sigurði Guðmundssyni
Heimsferðir kynna nú hina vinsælu vorferð sína til
Kanaríeyja hinn 19. apríl, í 30 nætur, en þessi ferð
hefur verið uppseld öll undanfarin ár, enda frábært
veður á Kanaríeyjum á þessum tíma og frábærar
aðstæður fyrir ferðamanninn.
Við bjóðum nú betri gistivalkosti en nokkru sinni
fyrr í hjarta Ensku strandarinnar og að sjálfsögðu
njóta farþegar okkar rómaðrar þjónustu fararstjóra
Heimsferða allan tímann. Sigurður Guðmundsson
verður með fjölbreytta skemmti- og íþróttadagskrá,
leikfimi og kvöldvökur til að tryggja það að þú fáir
sem mest út úr fríinu.
Sigurður Guðmundsson
Spennandi daaskrá
• Leikfimi
• Kvöldvökur
• Kynnisferðir
• Gönguferðir
• Spilakvöld
• Út að borða
Paraiso á Kanarí.
Heimsferðir bjóða eingöngu góða gisti-
staði á Kanarí.
Gististaðir
Heimsferða
• Corona Blanca
• Roque Nublo
• Las Arenas
• Iguazu
• Paraiso
Maspalomas
• Tanife
30 nætur 30 nætur
frákr. 68.190 frákr. 72.490
19. apríl, m.v. 3 í íbúð, Tanife. 19. apríl, m.v. 2 í íbúð, Tanife.
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17, 2. hæö • sími 562 4600
www.heimsferdir.is
Heiða Jóhannsdóttir