Morgunblaðið - 27.01.1999, Síða 50

Morgunblaðið - 27.01.1999, Síða 50
50 MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRÉTTUM Forvitnilegar bækur Súrreal- Námskeið og bók fyrir fólk í giftingarhugleiðingum FRÆGT varð hjónaband hinnar 26 ára Önnu Nicole Smith og olíujöfursins J. Howard Marshall II sem var 89 ára. GINIE Sayles, höfundur bókar og námskeiðs um hvernig landa eigi ríkum maka. Betra er fé í en falin ást í ismi í strætó Ljósmyndabókin 25 ára og yngri. Rit- stjóri: Alice Rose George. Doubleta- ke/Norton: New York árið 1997, 173 bls. Bóksala Stúdenta 3278 kr. Tuttugu og fímm ljósmyndarar eiga verk í þessari bók og allir eiga þeir það sameiginlegt að vera tutt- ugu og fímm ára eða yngri. Hug- myndin að baki þessari bók var sú að skoða hvernig ungir ljósmynd- arar sjá heiminn. Aldurstakmarkið var haft 25 ár til að ná ljósmyndur- um sem ekki væru orðnir fagmenn, en væru þó eitthvað meira en áhugamenn. Viðfangsefni og tækni þessara ljósmyndara er ótrúleg. I bókinni fínnast allt frá ofurrealískum myndum af fólki í strætó og sjálfs- myndum sem skrifað hefur verið inn á, að klippimyndum um þján- ingu. Það kom sérstaklega á óvart hve stór hluti verkanna sýndu uppstilltar senur frekar en tilvilj- unarkennd augnablik. Ljósmynd- ararnir hika greinilega ekki við að endurskapa veruleikann eftir eigin höfði, þeir eru því ekki bara að skrá það sem þeir sjá heldur búa til eigin sýn. Þeir era ekki sækja myndefni út fyrir þann heim sem þeir lifa og hrærast í heldur era flestir þeirra að mynda sinn nán- asta veraleika. Verk þessara Ijósmyndara eiga það flest sameiginlegt að myndir þeirra endurspegla depurð, ein- manaleika og harðan hversdags- leikann. Þó er yfirbragðið ekki vonleysi heldur íhugun, þeir eru að kanna heiminn í kringum sig, leita að svörum við margvíslegum spurningum og trúa að verk þeirra geti breytt einhverju. I heild er þetta áhrifarík og einlæg bók sem vekur mann til umhugs- unar um hvað lífið hefur upp á að bjóða. Elsa Eiríksdóttir EKKI EYÐA tíma þínum í að leita að ástinni. Hugsaðu um eitt- hvað sem betra er að festa hönd á, eins og beinharða peninga. Þessi ráðlegging er sú fyrsta af mörgum sem nemendur nám- skeiðsins „Hvernig á að giftast til Qár“ fá að heyra, en nám- skeiðið er eitt vinsælasta nám- skeiðið fyrir fullorðna í New York um þessar mundir, og kemur víst fáum á óvart. „Fáðu ekki samviskubit. Þeir ríku munu giftast einhverjum. Af hverju ekki þér?“ segir kenn- arinn Ginie Sayles við nemenda- hópinn sem hefur troðið sér inn í salinn. Það verður troðningur þær vikur sem námskeiðið stendur. Nemendur hennar, sem flestar eru konur, kinka kolli og skrifa samviskusamlega niður spekina í glósubækurnar. Kennslustund dagsins tekur Qórar klukkustundir og á þeim tíma verður glósubókin hálffull af ráðum um hvernig eigi að landa þeim stóra. Ráðin eru allt frá því að vekja á sér athygli og að fíóknum útfærslum á því að koma „þeim stóra" upp að altarinu. Kennarinn nálgast viðfangs- efnið af ástríðu farandpredikar- ans og af nákvæmni bókarans og ráðleggur nemendunum að nálgast „viðfangsefnið" var- færnislega. Vænlegt er að kanna væntanlega erfingja, en þá má oft hitta á góðgerðarsamkomum eða á listanámskeiðum. Annar möguleiki eru ríkir menn sem þekktir eru fyrir að taka áhættu, hafa jafnvel það orðspor að bera upp bónorðið á öðru stefnumóti eða þá ríkir menn sem eru þjakaðir af samvisku- semi yfír auðnum, en að sögn Sayles eru þeir lík- legastir til að giftast konum sem eiga börn. Þetta er aðeins byijunin. Á eftir fylgja leiðbeiningar um að komast í fíiiu veislurnar, hvernig best sé að klæða sig, en þar Ieggur Sayles áherslu á að náttúruleg efni séu ætíð betri kostur en gervi- efni. Ekki má gleyma góðum siðum og að komast klakk- laust úr límósínu er nauðsynleg hæfni hverri konu sem hyggst ná í auðugan eig- inmann. Eins og í fasteignavið- skiptum eru þijár meginreglur í leitinni að ríka eiginmanninum og þær eru staðsetning, staðsetning og aft- ur staðsetning. Sá ríki gæti ver- ið á vinnustað (þá er um að gera að fá sér vinnu á Wall Street), eða í trúarsöfnuði (best að fara í trúarhús gyðinga), eða bara í næsta dagblaði og þá er best að lesa dánartilkynningarnar og kanna erfíngjana. Svo gæti alltaf svo ólíklega verið að sá ríki leynist í nágrenninu en til að auka þær líkur borgar sig að flytja í gott hverfí og ávallt er góður kostur að leggja við hlið- ina á ríkmannlegum bílum. Farðu á stefnumót „Sláðu ekki slöku við,“ segir Sa- yles. „Farðu á stefnumót með öllum sem til greina koma, svo fremi að þeir séu andlega heilir og andi ennþá!“ En hún lætur varnarorð fylgja með. „Ef ein- hver segist elska þig en eyðir ekki peningum, er það Iygi.“ Rétt tímasetning er einnig lykilatriði. Ef bónorðið er ekki borið upp á fyrstu sjö mánuðum sambandsins minnka líkur á hjónabandi all verulega. Sayles mælir því á móti löngum trúlof- unum og telur vænlegra að reyna að koma væntanlegum eiginmanni í ferðalag Iangt frá fjölskyklu og vinum og hamra járnið meðan það er heitt. Á meðan Sayles þylur upp ráðleggingar með sinni hun- angsblíðu suðurríkjarödd, bend- ir demantahlaðin vinstri hönd hennar á aðalatriði málsins á töfíunni, og nemendurnir fylgj- ast dolfallnir með. „Við verðum að viðurkenna það,“ segir einn nemandinn sem er hjúkrunar- kona að mennt, „að það er auð- veldara að elska aula ef hann er ríkur, heldur en fátækur.“ Und- ir það tekur vinkona hennar sem er vefhönnuður á tvítugs- aldri og segir að í það minnsta fáirðu einhveijar bætur fyrir að umbera þann ríka. Eiginmaður Sayles, Reed, kemur iðulega með henni á námskeiðin og situr úti í horni eins og sýnishorn af því „lukkutrölli" sem nemendur hugsanlega geta krækt í að námskeiðinu loknu. Hann er að sjálfsögðu ríkur og Sayles lýsir honum sem farsælum fulltrúa ol- íubransans. Þau hittust og giftu sig fyrir Ijórtán árum. Brosir út í annað Reed segir yfírleitt ekkert í tímunum, en oft má sjá hann brosa í kampinn yfir ráðlegging- um eiginkonunnar. Hann lætur sögu hennar um tilhugalíf þeirra ekkert á sig fá. „Honum fínnst það bara fyndið,“ segir Sayles. „Hann er einn af þeim herra- mönnum sem veit að konur beita hendi skógi sinuin eigin, sætu klækjum." Hjónakornin giftust eftir að- eins þriggja mánaða kynni. Hún hafði verið tvígift og hann hafði þrjú hjónabönd að baki. Reynd- ar fór gifting þeirra fram að- eins tveimur dögum eftir að síð- asti skilnaður Reed gekk í gegn. „Eg kann að meta hreinskilni hennar í peningamálum," skrif- ar Reed í formála bókar Sayles sem ber sama nafn og nám- skeiðið. „Eins og hún hefur sagt er gullgrafarinn besti félagi gulleigandans," bætir hann við. Reed á þó sinn hluta í nám- skeiðahaldi eiginkonunnar, en hún hafði áður verið með nám- skeið í listinni að daðra. Það var nefnilega hann sem benti henni á að setja daðrið í annað og efn- ismeira samhengi. Ginie Sayles hefur gert fyrir- myndina að hjónabandi sínu að iðnaði sem stendur m.a. fyrir námskeiðum og bókaútgáfu. Ný bók frá Sayles er væntanleg með vorinu og ber hún nafnið „Hvernig hitta á þá ríku: við- skipti, vinátta eða rómantík." Einnig býður Sayles upp á einkatíma og kostar tíminn 175 doliara en ef tíminn er lengri getur hann kostað allt að 1500 dollurum, eða meira en 100 þús- und krónur. Árangur er góð auglýsing Sayles hefur á reiðum höndum sögur um fyrrverandi nemendur sem hafa náð sér í ríka maka og sýnir póstkort hvaðanæva frá glæsilegum frístundastöðum til að sanna mál sitt. Uppáhalds- saga liennar er af konu einni sem náði sér í ríkan mann eftir námskeiðið. Sjálfstraust hennar óx í samræmi við fenginn og því ákvað hún að fara aftur í skóla og ljúka menntun sinni. „Þó það væri ekki nema það að hjálpa fólki til að auka sjálfstraustið og gera það hæft til að umgangast hvern sem er, þá myndi ég líta á það sem sigur,“ segir Sayles. Þótt mörgum þyki eflaust að- ferðafræði Sayles kaldranaleg og úthugsuð segist hún þó sækj- ast jafn mikið eftir ástríku hjónabandi og hver annar. „Ég segi engum að það sé nauðsyn- Iegt að giftast einhverjum rík- um. Ég vil að fólk sé hamingju- samt og vil einungis opna þenn- an möguleika." En hún bætir við að þó sé engin ástæða til annars en að reyna að fá stærsta gullhringinn á brúð- kaupsdaginn. „Peningahyggja? Ég kann vel við það orð,“ segir hún. „Ég skammast mín ekkert fyrir það. Ég held að þessi hugs- unarháttur sýni að fólk meti sig sjálft að verðleikum. Óskaðu þér til hamingju að hafa náð þeim áfanga að eiga aðeins það besta skilið." Avit Bovary og Sókratesar Forvitnilegar bækur THE compl: PROSE OF wm-iouT feaTi iers GETTING EVEN SIDE EFFECTS Prósasafn Woody Allens. The Com- plete Prose of Woody Allen. Höfund- ur: Woody Allen, Wings Books, New Jersey 1994, 474 bls. Mál og menn- ing, innb., kr. 1395. ÞETTA veglega ritsafn sam- anstendur af þremur styttri bókum sem komu upphaflega út á árunum 1966 til 1975. Woody Allen hóf feril sinn sem handritshöfundur og leik- ari í hinni ógleymanlegu mynd „Hvað segirðu í fréttum, kisulóra?“ (What’s New Pussycat? 1964). Síð- an þá hefur hann skrifað, leikstýrt og leikið í slíkum fjölda kvikmynda að teljast verður með endemum. Söguraar, greinamar og einþátt- ungamir í þessu safni eru skrifuð af sama húmor og einkennir helst fyrri kvikmyndir hans. Súrrealískt grín á ameríska vísu, frá þeim tíma þegar brandarar sneru út úr gáfulegum málefnum og þóttu því fyndnari sem þeir voru óskiljanlegri. Allen tekur hér fyrir mörg mál sem hafa alltaf verið honum ofar- lega í huga. Guð (eða guðleysi), kvenmenn (eða kvenmannsleysi), hugsuðir 19. aldar, Abraham Lincoln, Freud og foringjar Þriðja ríkisins. Sögurnar, eða greinarnar eru oft settar upp sem uppskáldaðar ritgerðir eða pistl- ar. T.d. leiðarvísir um lítt þekkta balletta, æviágrip mannsins sem fann upp samlokuna, The Earl of Sandwich (1718 - 1792), og í einni sögunni birtist maðurinn með ljá- inn, ein af uppáhaldspersónum Allens. Sumar sögurnar eru eiginlega ekki um neitt, hreinasta bull. Þær eru gott dæmi um afburðarhæfi- leika hans á því sviði, að geta bull- að og verið fyndinn um leið. Síð- asta bókin í safninu er að mörgu leyti sú besta því að hún er fjöl- breyttari. Þar eru nokkrar úthugs- aðar og snyrtilega útfærðar sögur sem hafa aðeins öðruvísi skemmt- anagildi en óstöðvandi brand- araflæðið. Má í því samhengi nefna varnarræðu Allens, þar sem litli taugaveiklaði gleraugnagámurinn setur sig í spor Sókratesar síðustu stundirnar í fangelsinu. Og ekki má gleyma sögunni um herra Kugelmass sem tekst með aðstoð galdramanns að komast í ástarsamband við bókmenntaper- sónuna Emmu Bovary, en framhjá- hald hans fer ekki jafn leynt og hann heldur. Bókmenntafræðingar um allan heim reka upp stór augu þegar einhver sköllóttur gyðingur birtist á bls. 100 og fer að kyssa Madame Bovary. Sú saga er með þeim bestu í safninu og minnir tals- vert á stuttu sögurnar í „Deconstracting Harry.“ Þessa bók er gott að eiga og glugga í annað slagið til að komast í gott skap, en hætt er við að þeir haldi ekki sönsum sem lesa hana alla í einu. Úlfur Eldjárn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.