Morgunblaðið - 09.02.1999, Side 18

Morgunblaðið - 09.02.1999, Side 18
18 C ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ Mikil verkefni fyrir íslenzka arkitekta og byggingarmenn í Grænlandi Það yrði tvímælalaus ávinningur fyrir bæði ✓ Islendinga Grænlendinga að eiga með sér gott samstarf í skipulags- og bygging- armálum, segir Gestur Olafsson arkitekt op; skipulagsfræðinffur. Magnús Sigurðs- son kynnti sér viðhorf hans. FRÁ Nuuk, höfuðstað Grænlands. í Grænlandi gæti verið mikil þörf fyrir íslenzka arkitekta og byggingar- menn, en þar í landi þarf að byggja 1500 íbúðir á næstu árum, þar af 1200 í Nuuk. AÆTLAÐ er, að á næstu árum þurfi að byggja 1500 íbúðir á Grænlandi, þar af 1200 íbúðir í höf- uðstað Grænlands, Nuuk. Þar gæti því verið mikil þörf fyrir íslenzka arkitekta og byggingarmenn. Kom þetta fram í viðtali við Gest Olafs- son, framkvæmdastjóra Skipulags- arkitekta- og verkfræðistofunnar í Reykjavík Rætt vai- við Gest í tilefni þess, að tveimur hópum íslenzkra arki- tekta var nýverið boðið að taka þátt í norrænni samkeppni um skipulag og hönnun íbúða á Græn- landi, sem fram fer á vegum Gron- landsbankens Erhvervsfond. Auk þeirra er boðið til þátttöku hópum arkitekta frá Grænlandi, Dan- mörku, Svíþjóð, Færeyjum og Noregi. Islenzku aðilarnir eru annars vegar Batteríið ehf. arkitektar, Þingholtsstræti 27, Reykjavík. I þessum hópi eru m.a. arkitektarnir Arnór Skúlason, Gunnar Ottóson, Jón Olafur Olafsson, Kári Eiríks- son og Sigurður Einarsson. Fram- kvæmdastjóri Batterísins er Sig- urður Einarsson. Hinn íslenzki hópurinn eru starfsmenn Skipulags-, arkitekta- og verkfræðistofunnar ehf., Garða- stræti 17, Reykjavík í samvinnu við Architecten en Ingenieursburau Kristinsson BV. I þessum hópi eru m. a. arkitektarnir Alena And- erlova, Gestur Olafsson, Haukur Viktorsson, Guðrún Jónsdóttir, Jón Kristinsson, Knútur Jeppesen og Pétur Öm Björnsson. Ibúðir taki mið af aðstæðum „Markmiðið með þessari sam- keppni er að stuðla að hönnun íbúða sem henta við ríkjandi að- stæður, hvetja til notkunar nýrrar tækni og auka framleiðni í íbúðar- byggingum,“ sagði Gestur Ólafs- son. „Undanfarna áratugi hafa ís- lensk byggingarfyrirtæki tekið í vaxandi mæli þátt í mannvirkja- gerð á Grænlandi. Að mörgu leyti verður að telja eðhlegt að þær þjóðir sem byggja Island og Græn- land hafi með sér gott samstarf hvað viðvíkur byggingarstarfsemi og byggingarrannsóknum. Þessi lönd liggja á svipaðri breiddargráðu, veðurfar í þessum löndum er að mörgu leyti svipað, mannvirki þurfa að þola mikið veð- urálag, auk þess sem íbúarnir dvelja að verulegu leyti innan dyra yfir vetrarmánuðina. Við skipulag byggðar er líka við svipuð vanda- mál að etja, þótt um ákveðna sér- stöðu sé þar einnig að ræða. Það ætti því að vera tvímælalaus ávinningur fyrir báðar þessar þjóð- ir að eiga með sér gott samstarf í skipulags og byggingarmálum og vinna markvisst að því að ná saman og gera aðgengilega þá þekkingu og reynslu sem þarf til nútíma mannvirkjagerðar á norðlægum slóðum og til þess að íbúar þessara landa geti látið sér h'ða vel á hvaða tíma árs sem er. Veðurfar á ekki lengur að koma í veg fyrir að við getum lifað álíka lífi og þær þjóðir sem búa sunnar og að við getum gert það sem hug- ur okkar stendur til, hvenær árs sem er. Þessi sérþekking getur líka komið í veg fyrir að gerð verði mjög afdrifarík og kostnaðarsöm mistök í mannvirkjagerð. Báðar þessar þjóðir vilja leggja mikla áherslu á sjálfbæra þróun og vistvænt umhverfi og án efa getum við líka átt mikilvæga samleið á því sviði.“ Oft við ramman reip að draga Af þessum sökum segir Gestur það sérstakt ánægjuefni, að tveir hópar íslenskra arkitekta skyldu vera valdir til þess að taka þátt í framangreindri samkeppni um skipulag og hönnun íbúða á Græn- landi, sem Gronlandsbunkens Er- hvervsfond býður út. „Fyrirtæki íslenskra arkitekta hafa á undan- förnum árum verið að hasla sér völl víða erlendis, þótt þar hafi oft verið við ramman reip að draga,“ segir Gestur. „Skilningur opinberra aðila á þessari viðleitni hefur samt til þessa varla verið merkjanlegur. Hér á landi er heldur enginn arkitektaskóli sem getur veitt svona viðleitni nauðsynlegan bak- stuðning. Auk þess hefur þá aðila, sem þetta hafa reynt, bæði skort áhættufjái-magn og grundvallar- rannsóknir. Hér er því langt frá því að við sitjum við sama borð og samkeppnisþjóðir okkar. Það vill líka stundum gleymast, að oft eru það arkitektar, sem opna öðrum tæknimönnum leið til fjölbreyttra verkefna á erlendri grund, þótt yf- FASTEIGN ER FRAMTIÐ FASTEIGNA SÍMI 568 7768 MIÐLUN Suöurlandsbraut 12,108 Reykjavík fax 568 7072 Þór Þorgeirsson, sölum Brynjar Fransson, sölum. Heimasíða: http://www.fastmidl.is// OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ KL. 9-18. og 13-15 sunnudaga Sverrir Kristjánsson lögg. Fasteignasali Brynjar Fransson, sölum. IBUÐARHUSNÆÐI OSKAST • Sérbýli meö bílskúr, verðhugmynd 9-11 m. • Vantar 2ja íbúða hús í Grafarvogi • Einbýlishús á einni hæð í Grafarvogi, Kópavogi, Breiðholti og öðrum hverfum • Vantar 2ja, 3ja og 4ra herb. íbúðir í Þingholtum, Hlíðum og Vesturbæ • Vantar sérhæðir í Þingholtum, Vesturbæ og Hlíðum • Vantar sérbýli í Kópavogi og Garðabæ • Vantar einbýlishús miðsvæðis í Reykjavík. Verð 20-40 millj. ÞVERBREKKA - KÓP. 4ra her- bergja 104 fm endaíbúð á 7. hæð í lyftuhúsi. íbúðin er m.a. stofa og borðstofa með miklu útsýni, 3 svefn- herb., tvennar svalir. Parket á allri íbúðinni. Áhv. 4,0 m. húsbréf. Verð 7,2 m. 3ja herbergja VESTURBÆR 3ja herb. 94 fm íbúð á 2. hæð í þríbýlishúsi á þessum vinsæla stað í Vesturbænum. Rað- og parhús DALHÚS Glæsilegt og mjög vandað 211 fm parhús með innb. bílskúr innst í botnlanga. Húsið stendur á fallegum stað við óbyggt svæði. Rúmgóðar stofur, garðstofa, glæsilegt eldhús, 3-4 svefnherb. Skipti á minni eign. Verð 16,7 m. I NAGRENNI LANDSPITAL- ANS 3ja herb. 91 fm íbúð á 2. hæð (efstu) í fjórbýli ásamt 32 fm bílskúr. (búðin er stofa, tvö svefn- herb., nýlegt eldhús, flísalagt bað. Áhv. 4,5 m. byggsj. og lífsj. Verð 9,2 m. Sérhæðir NJÖRVASUND - SÉRHÆÐ Til sölu björt og vel skipulögð ca 125 fm neðri sérhæð. Stór stofa og 4 svefnherbergi, Parket og önnur góð gólfefni. Verð 11,2 millj. 4ra herbergja FROSTAFOLD - GÓÐ LÁN 4ra herb. 112 fm íbúð á 5. hæð í lyftu- húsi. íbúðin er rúmgóð stofa, 3 rúm- góð herb., rúmgott eldhús og bað. Þvottaherb. í íbúð. Húsvörður. Glæsilegt útsýni. Áhv. 5,0 m. byggsj. Verð aðeins 8,9 m. 2ja herbergja KLEPPSVEGUR 2ja herb. 75 fm íbúð f kjallara f fjölbýli. íbúðin er rúm- góð stofa og borðstofa, rúmgott svefnherb., nýlegt eldhús og rúmgott baðherbergi. Skipti á 3ja-4ra herb. íbúð koma til greina. Ahv. 2,9 m. húsbréf. Verð 5,6 m. Nýbyggingar BARÐASTAÐIR Til sölu 3ja her- bergja 101 fm endaíbúð í 16 íbúða húsi sem er í byggingu. (búðin verð- ur afhent fullbúin með vönduðum gólfefnum. (búðin afhendist 15. júní 1999. Verð 8.600 þ. Möguleiki að fá keyptan bílskúr. BARÐASTAÐIR Til sölu 4ra her- bergja 107 fm endaíbúðir á 2. og 3. hæð í 16 íbúða húsi sem er í bygg- ingu. íbúðirnar verða afhentar fullbún- ar með vönduðum gólfefnum. íbúðirn- ar afhendast 15. júnf 1999. Verð 9.700 þ. Möguleiki að fá keyptan bílskúr. ATVINNUHUSNÆÐI VERSLUN - IÐNAÐUR - SKRIFSTOFUR Til sölu skammt frá gamla bænum 475 fm verslunar- eða iðnaðarhúsnæði og í sama húsi ca 300 fm skrifstofuhæð. Teikning og nánari uppl. á skrifstofu. MIÐHRAUN I GARÐABÆ SKÚLATÚN - SKRIFST. Til sölu ca. 179 fm skrifstofuhæð, 5-6 herb. ofl. Laus fljótt. Gott verð. ÍBÚÐ - ATVINNUHÚS - STANGARHYLUR NÝTT í einkasölu, mjög gott steinhús 2x144 fm. Á neðrihæð er skrifstofa,salur,snyrting og geymsla. Góðar innkeyrsludyr. Á efri hæð er ný innréttuð og mjög góð 4-5 herbergja íbúð. Gott útipláss. VESTURVÖR - KÓPAV. Til sölu mjög gott steinhús, byggt 1980 ca 420 fm með milliloftum. Mikil lofthæð, þrjár stórar rafdrifnar inn- keyrsluhurðir. Góð aðstaða fyrir starfsm. og skrifstofa. Góð aðkoma og st. lóð þar sem er hægt að byggja allt að 800 fm hús. GAMLI VESTURBÆRINN í einkasölu á góðum stað (hornlóð) í gamla Vesturbænum ca 200 fm verslunar- eða iðnaðar húsnæði, ásamt ca 70 fm ósamþ.íbúð og ca 110 fm geymsluskúr á baklóð. Hús og aðstaða sem gefur mikla möguleika. Verð á öllu kr. 18,0 millj. Mögu- leiki er á að lána traustum kaupanda allt að 80% kaupverðsins. ATVINNUHÚSNÆÐI VANTAR Verslunarhúsnæði óskast ÓSKUM EFTIR 150-200 fm verslunarhúsnæði undir sérverslun við Laugaveg eða á öðru verslunarsvæði. Staðgreiðsla í boði fyrir frétta eign. Losun eftir 1 -2 ár. ÓSKUM EFTIR 1500-3500 fm vel staðsettu húsnæði undir verslunar- rekstur á stór-Reykjavíkursvæðinu. Ýmislegt kemur til greina. Húsnæðið þarf ekki að losna fyrr en á árinu 2000-2001. TVÖHUNDRUÐ - MILLJÓNIR í BOÐI Fasteignamiðlun leitar að eign fyrir fjárfesta sem þurfa að kaupa á árinu fyrir allt að kr. 200.000.000. Æskilegt er að eign/eignir séu í leigu. Gjarn- an er leitað að góðu nýlegu húsnæði. VANTAR HÚS/HÆÐ 1000-1500 fm fyrir lager, helst innan Elliðaáa með góðu útiplássi. VANTAR 800-1200 fm húsnæði fyrir heildsölu sem verslar með grófa vöru (járn), æskilegust staðsetning nálægt hafnarsvæði eða á Ártúns- höfða. VANTAR 200-400 fm góða skrifstofuhæð innan Elliðaáa. LJÓSALIND - KÓP. Til sölu tvær 4ra herb. 123 fm endaíbúðir í 12 íbúða húsi. íbúðirnar verða af- hentar fullbúnar innan án gólfefna. (búðirnar afhendast í janúar árið 2000. Verð 10,4 m. Möguleiki að fá keyptan bílskúr. VESTURTUN - BESSA- STAÐAHR. 148 fm endaraðhús sem er hæð og ris ásamt 30 fm innbyggðum bílskúr. Húsið er með 4 svefnherb. og afhendist til- búið til innréttingar að innan en fullbúið að utan með tyrfðri lóð í apríl nk. Húsið er teiknað af Vífli Magnússyni. Áhv. 6,0 m. húsbréf. Verð 12,5 m.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.