Morgunblaðið - 09.02.1999, Qupperneq 20
20 C ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Veiku punktarnir
verða sterkir á
örlagastundu
Lagnafréttir
Stundum heyrast þær raddir, að öryggis-
ventlar séu með öllu óþarfir í hitakerfum,
segir Sigurður Grétar Guðmundsson.
Þetta er ekki rétt. Oryggisventlar hafa oft
komið í veg fyrir mikinn skaða.
Morgunblaðið/RAX
NU ERU veður öll válynd og ekki annað að gera en þreyja þorrann og góuna, en því miður berast fregnir
af ýmiss konar hermdarverkum Kára. Þessi mynd var tekin í óveðri á Hellissandi.
GUFUVÉLIN er af flestum rak-
in til Skotans James Watt og
gjarnan nefnt ártalið 1763, en gufu-
vélin er miklu eldri og margir höfðu
komið við sögu hennar á undan
Skotanum, fyrsta vélin er jafnvel
talin hafa verið gerð í Alexandríu í
Egyptalandi 130 árum fyrir Krists
burð.
En eitt af því fyrsta sem menn
gerðu sér grein fyrir, þó efalaust
eftir mörg óhöpp og slys, var „veiki
punkturinn“, hann var mikilvæg-
asta öryggið.
Þannig varð öryggisventillinn til,
ventill sem opnaðist við ákveðinn
þrýsting og hleypti gufunni út,
þannig kom hann í veg fyrir að stór-
slys og miklar skemmdir yi-ðu á
skipum eða heilum verksmiðjum.
Ekki síður kom öryggisventillinn í
veg fyrir örkuml og dauða þeirra
sem voru að vinna í námunda við
gufuvélamar.
Sögur era til um það að í upphafi
eimskipaaldar hafi skipstjórum
hlaupið kapp í kinn og lagt í æðis-
gengnar kappsiglingar og jafnvel
sett helsi á öryggisventil vélarinnar
svo hann gat ekki opnast, þannig
fékkst meira afl og með því var
hægt að skáka keppinautinum.
En því miður fór það oft á annan
veg, menn skákuðu sjálfum sér og
skipshöfn sinni beina leið yfir í ann-
an heim, þegar gufuvélin sprakk í
loft upp og skipið þar með.
Engum slíkum sögum fer af ís-
lenskum skipstjórum eftir að eim-
skipin hófu Islandssiglingar.
Það er ekki víst að almennt geri
menn sér ljóst hvað felst í heiti
stærsta skipafélags hérlendis, Eim-
skipafélags Islands. Það var skýrt
eftir þeirrar tíðar tækni þegar það
var stofnað, en gufa og eimur er tvö
nöfn á sama fyrirbæri, sem þekkist
á hverju heimili þegar gleymst hef-
ur að lækka strauminn undir kart-
öflupottinum, þá streymir gufa upp
úr honum og jafnvel sýður uppúr.
Oryggisventlar eru víða
Enn þann dag í dag eru settir ör-
yggisventlar á öll hitakerfi, en stund-
um heyrast þær raddir að þeir séu
með öllu óþarfir, þrýstingur sé það
lítill að engin hætta sé á ferðum.
Þetta er ekki rétt, þó ekki sé um
lífshættu að ræða hafa öryggis-
ventlar oft komið í veg fyrir mikinn
skaða. Það kemur fyrir að of mikill
þrýstingur kemst inná hitakei-fi og
ef öryggisventillinn ekki hleypir út
yfirþrýstingi, hvað gerist þá? Næsti
„veiki punkturinn“ tekur við og í
flestum tilfellum eru það ofnarnir,
þá er að sjálfsögðu átt við stálofna
sem eru nær eingöngu notaðir í
nýiTÍ byggingum.
En því miður er lítið hirt um við-
hald lagnakerfa og eitt af því sem
gengur úr sér er öryggisventillinn.
Með tímanum verður hann stirður,
jafnvel fastur, með þeim afleiðing-
um að hann opnast ekki á ögur-
stundu.
Stundum slappast hann og á
sunnudegi fer hann að væla og gefa
frá sér litla bunu af heitu vatni og
fljótlega fyllast hitakerfm af gufu.
Ráðagóður húseigandi bjargar mál-
unUm sjálfur, skýst í Metró, kaupir
tappa og teflonrúllu og skrúfar í
stútinn, ekkert vatn, engin gufa og
ekki heldur neinn öi'yggisventill.
Því ekki „veikir punktar" víðar?
Ef við ofhlöðum rafkerfið, eins
við samleiðslur eða útleiðslur, slá
öryggin út, straumurinn fer af kerf-
inu. Þessi tækni hefur verið þróuð
enn frekar með lekaliðanum, hann
hefur ábyggilega bjargað mörgum
mannslífum og gerir jarðtengingu
rafkerfa ekki eins mikilvæga og áð-
ur þó sjálfsögð sé, en hún byggist
eins og alkunnugt er á eldingavara
Benjamíns Franklín.
A hverri bílvél er innsteyptur
tappi á blokk vélarinnar, sem á að
spýtast út og bjarga henni frá því
að springa ef kælivatnið frýs, en
bjargar þó ekki alltaf. Nú eru veður
öll válynd og ekki annað að gera en
þreyja þorrann og góuna, en því
miður berast fregnir af ýmiss konar
hermdarverkum Kára, heilu þökin
af hlöðum og skemmum hverfa út í
buskann, einn Hornfirðingur fékk-
meira að segja óvænta flugferð
flugvélarlaust. Ónnur þök hafa tæst
og kurlast í sundur undan ofurefli
vindanna.
I flestum tilfellum hefði mátt
koma í veg fyrir þessa eyðileggingu
og þann skaða sem menn verða fyr-
ir með þessari einföldu en sjálf-
sögðu tækni, sem notuð er við gufu-
vélar og ekki síður raf- og hitakerfi.
Þetta væri einfaldlega gert með
því að setja „veika punkta" eða ör-
yggisventla á öll þök þar sem búast
má við að æðandi vindar geti mynd-
að yfirþrýsting, sem verður að svo
miklum krafti að lyft getur heilum
þökum og slitið allar festingar.
Þetta yrði einfaldlega gert með
flekum á þaki eða göflum sem væi'u
með miklu veikari festingar en þök-
in að öðru leyti.
Þegar vindurinn æðir og yfir-
þrýstingur myndast undir þakinu
opnast flekarnir og þrýstingurinn
kemst út ekki síður en inn, flekarnir
geta hinsvegar hangið fastir svo
þeir skapi ekki hættur fyrir menn
og málleysingja.
Þannig björgum við ofnunum frá
því að springa og þannig er auðvelt
að koma í veg fyrir að heilu þökin
springi, sem oft hefur í fór með sér
miklu meiri skaða en á þökunum
eingöngu.
Sjálfsmynd af
Rembrandt
ÞAÐ VERÐUR varla komist
lengra í hýbýlaprýði en að eiga
sjálfsmynd eftir hinn fræga hol-
lenska málara Rembrandt.
FASTEIGMAMIDSTÖÐIM
U2US SKIPHOLTI 50B - SÍMI 552 6000 - FAX 552 6005
ehf
Magnús Leópoldsson
lögg. fasteignasali.
Opið virka daga frá
ki. 8-12 og 13-17.
Raðhús - Parhús
SELTJARNARNES
Raðhús á tveimur hæðum. Alls 235 fm.
Innbyggður bílskúr. Glæsilegt útsýni.
Verð 15,0 m. 6250
ARNARHRAUN
Góö 122 fm íbúð á fyrstu hæð f
þríbýlishúsi. Ibúð mikið endurnýjuð. Sér
inngangur. Verð 9,0 m. 5423
ÁLFHÓLSV. NEÐRI SÉRHÆÐ
Vorum að fá í sölu 139 fm sérhæð auk 23
fm bílskúrs. Tvennar svalir. Glæsiiegt
útsýni. Verð 12,0 m. 5419
BÁRUGATA - SÉRINNG.
Falleg 104 fm sérhæð auk bílskúrs.
Einstök eign í fallegu steinhúsi sem margir
bíða eftir. (búðin skiptist í forstofu,
forstofuherb., gang, eldhús, baðherb.,
tvær stofur og svefnherbergi. Út úr stofu
er gengið út á stórar svalir með útgang út í
garð. Verð 12,8 m. 5416
4ra herb. og stærri
BÓLSTAÐARHLÍÐ - BÍLSKÚR.
Mjög góð 4-5 herb. íbúð á fjórðu hæð í
góðu fjölbýli. fbúðin er 111 fm auk þess 22
fm bílskúr. Fæst aðeins í skiþtum fyrir
minni eign á þessu svæði. 41/1
BÁRUGATA
Falleg 85 fm íbúðarhæð sem skiptist I
tvær stofur, forstofuherbergi, eldhús, bað
og svefnherbergi. Nýtt gler og gluggar.
Parket á stofu og gangi, dúkur á öðru.
Áhugaverð eign. Laus fljótlega. Áhv.
húsbréf 4,0 m. Verð 8,8 m. 3693
ASPARFELL
Rúmgóð 107 fm íbúð á fjóðru hæð í
lyftuhúsi, 4-5 herb. Tvennar svalir til
austurs og suðurs. Nýleg eldhúsinnr.
Stofur parketlagðar. Verð 6,9 m. 3692
ENGIHJALLI
Ágæt 93 fm fjögurra herb. íbúð á sjöundu
hæð í lyftuhúsi. Góð gólfefni. Sameign
nýlega máluð og teppalögð. Verð 7,0 m.
3691
3ja herb. íbúöír
ALFHOLT HAFNARF.
Góð 92 fm þriggja herb. íbúð á jarðhæð.
Fullbúin íbúð með sérgarði og -inngangi.
Áhv. húsbréf 5,7 m. Laus fljótlega. 2954
HRAUNBÆR
Mjög góð 3 herb. 87 fm íbúð með
aukaherbergi í kjallara. Parket á gólfum.
Gott skápapláss. Húsið er nýviðgert og
málað að utan. Snyrtileg sameign. Til
greina koma skipti á stærri íbúð í sama
hverfi. Verð 6,8 m. 2697
2ja herb. íbúðir
NYBYLAVEGUR - BILSKUR
Áhugaverð tveggja herb. ibúð á fyrstu
hæð með aukaherbergi og sérþvottahúsi á
jarðhæð. Rúmgóður innbyggður bílskúr.
Verð 7,3 m. 1695
HLÍÐAR SÉRINNG.
Mjög rúmgóð 68 fm 2ja herb. ibúð í
kjallara i góðu húsi. Eldhúsið endurnýjað
fyrir nokkrum árum og bað flísalagt. (búðin
er laus. Áhv. 2,8. Verð 6,5 m. 1694
FOSSVOGUR
Góð tveggja herb. 45 fm (búð. Sérgarður.
Góð staðsetning. 1692
HRAUNBÆR
Góð tveggja herb. íbúð á 2. hæð í ágætu
fjölbýli. Gott skápapláss. Parket á stofu og
herbergi, flfsar á öðru. Verð 4,3 m. 1686
Atvinnuhúsnæði
HAFNARSTRÆTI
Mjög vönduð skrifstofuhæð á frábærum
stað í hjarta miðborgarinnar. Hæðin er alls
um 272 fm brúttó. Hæðin hefur öll verið
endurnýjuð á smekklegan og vandaðan
hátt m.a. nýjar tölvulagnir, rafmagn ofl.
Parket á gólfum. Tilbúin til afhendingar
strax. 9342
BAKKABRAUT-KÓPAVOGS-
HÖFN
Áhugavert 120 fm nýtt atvinnuhúsnæði á
tveimur hæðum á frábærum stað við
Kópavogshöfn. Til afhendingar fljótlega.
Verð 13,0 m. 9341
EINHOLT
Gott 455 fm skrifstofu- og verzlun-
arhúsnæði á þremur hæðum. Húsnæðið er
að hluta í langtímaleigu. Verð 24,0 m.
9339
AUÐBREKKA
Til sölu mjög gott atvinnuhúsnæði á einni
hæð í nýlega endurbyggðu húsi. Stærð
713 fm. Áhugaverð eign. Verð 32,0 m.
9331
SKIPHOLT 50A
Til sölu í þessu glæsilega húsi um 1.600
fm. Um er að ræða skrifstofu- og
íþúðarhúsnæði, auk þess stór salur og
bílskúrar. Húsnæði á einum besta stað í
borginni og í góðu ástandi. Gefur marga
nýtingarmöguteika. Góð bílastæði. Nánari
uppl. gefur Magnús L. á skrifstofu. 9328
Landsbyggðin
HAMAR - KUABU
Til sölu jörðin Hamar í Þverárhliðarhreppi,
nú Borgarbyggð. Á jörðinni er rekið
myndarlegt kúabú. Góðar byggingar.
Hitaveita. Framleiðsluréttur um 90 þús.
lítrar í mjólk. Nánari uppl. á skrifstofu.
10561
EINSTÖK EIGN
Til sölu lögbýli, glæsilega uppbyggt fyrir
hestaaðstöðu. Eign sem gefur mikla
möguleika. Allar byggingar fyrsta flokks.
Eignin er í næsta nágrenni Reykjavíkur.
Áhugavert fyrir fjársterka aðila. Nánari
uppl. gefur Magnús. 10559
SNÆFELLSNES
Til sölu jörð á sunnanverðu Snæfellsnesi.
Jörðin er ekki í ábúð en með stóru
ibúðarhúsi og eldri útihúsum. Jörðin á
landaðsjó. Verð 15,5, m. 10222
ARNESSYSLA
Til sölu áhugaverð jörð i Gnúpverjahreppi.
Jörðin er ekki landmikil. Ágætar
byggingar. Hitaveita. Kjörin jörð t.d. til
skógræktar eða fyrir hestamenn. Verð
13,0 m. 10557
VIÐ ELLIÐAVATN
Glæsilegt nýlegt hesthús fyrir a.m.k. 12
hross og sumarhús byggt 1982 á
frábærum stað við Elliðavatn. Áhugavert
fyrir fjársterkan aðila, sem leitar að
frábærri staðsetningu í jaðarbyggð. Myndir
áskrifstofu. 13415
REYKHOLTSDALUR
Til sölu 110 fm einbýli á einni hæð. Húsið
stendur á 3.000 fm lóð. Hitaveita. Verð
5,0 m. 14054
AKRANES
Til sölu 4ra herb. 110 fm íbúð í fjölbýli við
Suðurgötu á Akranesi. Ásett verð 4,8 m.
14225
AKRANES
Til sölu 140 fm einbýli auk 47 fm bilskúrs.
Húsið er á einni hæð með 5 svefnherb.
Verðhugmynd 11,5 m. 14224
ÞINGVALLAHREPPUR
Til sölu 5.000 fm eignarlóð í iandi Miðfells i
Þingvallahreppi. Lóðin er við Sandskeið,
merkt A-gata 3. Staðgreiðsluverð 320 þús.
13403
MOSFELLSDALUR
Vorum að fá í sölu 120 fm steinhús á
rúmlega 1/2 ha eignarlóð [ Mosfellsdal.
Húsið er á einni hæð með ágætu útsýni.
Kjörið fyrir þá sem vilja þúa i útjaðri
byggðar. Verð 13,5 m. 11128
í NÁGRENNI REYKJAVÍKUR
Til sölu um 62 ha í útjaðri Rvikur. Gert er
ráð fyrir atvinnuhúsabyggð. Áhugaverð
fjárfesting. Nánari uppl. gefur Magnús.
11119
KJALARNES
Til sölu 30 ha spilda ofarlega á Kjalarnesi,
um 30 km frá Rvik. Kjörið land fyrir
hestamenn. Verðhugmynd 7,5 m. 11116
Á söluskrá FM eru núna yfir 50 sumarhús og 60 jarðir í
ýmsum stærðum. Póstsendum söluskrár um land allt.