Morgunblaðið - 21.02.1999, Page 11
10 B SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR1999
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1999 B 11
í LANGFERÐABÍL á leið austur yfir ijall.
DADA hefur dvalið hérlendis
hátt á þriðja ár, á vegum An-
anda Marga, alþjóðlegrar frið-
ar- og yogahreyfingar. Starf
hans felst í að kenna yoga og
hugleiðslu en einnig býður
hann þeim aðstoð sem eiga um sárt
að binda. Hann vill verða að liði í
samfélaginu og trúir að yoga sé
rétta leiðin til að láta sér líða vel.
Dada er ríflega fertugur, fæddur í
Equador en fluttist fjögurra ára
gamall með fjölskyldunni til Filipps-
eyja þar sem hann ólst upp í borg-
inni Bacolod.
Hann var skírður Manuel Fajardo
að kaþólskum sið en líkt og aðrir
munkar Ananda Marga, er hann
kallaður Dada sem þýðir eldri bróð-
ir á sanskrít. Nunnur hreyfingarinn-
ar eru á sama máta kallaðar Didi.
Þegar hann gerðist munkur var
honum gefið nafnið Ashiish Ananda;
sá sem hlotið hefur blessun Guðs.
Dada, svipað og sendiherramir,
veit ekki hvert hann verður sendur
næst, né hversu löng dvölin verður.
Yoga þýðir sameining
Eins og slanga liggur hann á gólf-
inu með hálsinn og brjóstkassann
reigðan hátt á loft. „Cobraæfingin
styrkir hjartað og er gagnleg kon-
um með tíðarverki,“ útskýrir hann
fyrir viðstöddum.
Þetta er fyrsti yogatíminn á Lind-
argötu 11 og nokkrir lærlingar sitja
í lótusstellingu á gólfinu. Dada gerir
æfingar og útskýrir gagnsemi yoga.
„Orðið kemur úr sanskrít og þýðir
sameining,11 segir hann. „Yoga er
leið til sjálfshjálpar en ástundun
getur læknað ýmsa kvilla, andlega
og líkamlega. Yoga og hugleiðsla er
okkur nauðsyn í hröðu nútímasam-
félagi. Yoga er heimspeki. Yoga er
lífsstíll."
Dada lifir öðruvísi en við eigum
flest að venjast; hann er græn-
metisæta, hugleiðir fjórum sinnum á
dag og gerir yogaæfingar. Hann
tekur lítinn þátt í lífsgæðakapp-
hlaupinu; hann lætur launin rétt
duga fyrir mat og húsaskjóli og ekki
á hann bíl, bara reiðhjól. Hann
stundar ekki skemmtistaði en finnst
gaman að fara í sund, horfa á sjón-
varpið og elda mat. Litlum fjárhæð-
um eyðir hann í fatnað, gengur alla
jafna í munkaklæðum Ananda
Marga; appelsínugulum kyrtli og
með vefjarhött. Liturinn er tákn
fórnar og þjónustulundar.
Gott að fara í nasabað
Kennslustund í yoga og hug-
leiðslu heldur áfram: „Líkaminn á
að vera hreinn þegar yogaæfingar
eru stundaðar. Ef ekki gefst kostur
á að fara í bað nægir hálft bað,“ seg-
ir Dada og lítur á okkur stórum
brúnum augum. Skola skal tiltekna
líkamshluta eftir kúnstarinnar regl-
um; „skvettið vatni á augnlokin tólf
sinnum til þess að kæla heilann og
farið í nasabað en þá er vatn sogað
inn um nefíð og út um munninn.
Með því að kæla líkamann á þennan
hátt næst betri hugarró og afslöpp-
un fyrir hugleiðsluna.“
Dada kemur enn á óvart. Þegar
asanas sem eru yogaæfingar, eru
stundaðar, segir hann að anda eigi
með vinstri nasaholu en unnt er að
beina súrefnisflæðinu þangað með
því að leggjast endilangur á hægri
hliðina. „Við andlegar æfingar á
vinstri nasahola eða báðar að vera
virkar en súrefni skal flæða um þá
hægri eftir máltíðir til að koma
meltingunni á gott skrið.“
Dada kennir tantra-yoga sem
upprunnið er á Indlandi fyrir um
7.500 árum. Tantra-yoga segir hann
vera sambland af öllum öðrum teg-
undum yoga.
Nemendur fá síðan að spreyta sig
á æfíngunum, eftir að hafa gert til-
raun til að fara í hálft bað og komið
súrefnisflæðinu á skrið í vinstri
nasaholu.
Að æfingum loknum tekur Dada
upp gítarinn og kyrjar Babanam
kevalam sem er mantra og þýðir á
sanskrít Guð, sá sem er okkur
kærastur. Dada vill að nemendur
taki undir því laglínan er einfóld. Svo
leggjast allir á dýnur með teppi yfir
sér og hugleiða. Þögnin er alger.
Yoga á elliheimilin
Augun opnast og Dada býður upp
á te. „Ég hef nægan tíma, ólíkt Is-
lendingum sem eru alltaf að flýta
sér,“ segir hann.
Reglulega heldur Dada yoga- og
hugleiðslunámskeið á Lindargöt-
unni. Einnig hefur hann boðist til að
kenna blindum, áfengissjúklingum
og ellilífeyrisþegum yoga og hug-
leiðslu en hefur hingað til haft lítinn
árangur sem erfiði. Líkur eru þó á
því að alnæmissjúklingar njóti
handleiðslu hans næstu vikumar.
„Það er eins og Islengingar séu
feimnir við að þiggja aðstoðina,
kannski af því hún kostar ekki
neitt,“ segir Dada.
Um nokkun-a mánaða skeið heim-
sótti Dada vistmann á Meðferðar-
heimilinu Sogni og kenndi honum
yoga og hugleiðslu.
Mikilvægt að
borða rétt fæði
Nokkru síðar hittumst við aftur
og þá í eldhúsinu á Lindargötunni.
Það er matarboð og á boðstólum er
„inkastuff* að hætti hússins. Við
borðum quinoa, með salti og smjöri,
ásamt spínati og linsubaunum sem
soðnar eru í kókosmjólk. Allt er
þetta kryddað með engifer,
papriku, svörtum pipar og garam
masala. „Þetta er réttur sem þeir
borða í Chile,“ segir Dada
brosmildur að vanda. Dada er lista-
kokkur og lofar hálfpartinn áð
halda matreiðslunámskeið fyrir
áhugasama seinna meir.
A yoganámskeiðum talar hann
um mikilvægi þess að borða græn-
metisfæði og sleppa kjötáti. „Þarm-
ar í meltingarvegi rándýra eru mun
styttri en hjá manninum og jurtaæt-
um yfirleitt. Það tekur okkur til að
mynda um 4 daga að melta kjöt en
rándýrið aðeins einn eða tvo daga.
Kjötið velkist of lengi um í manns-
líkamanum og getur því verið
heilsuspillandi."
A bannlistanum hjá honum eru
einnig sveppir því þeir nýta sér ekki
sólarorkuna til næringar heldur úr-
gang. Dada mælir að auki hvorki
með lauk- eða hvítlauksáti því sam-
kvæmt læknisrannsóknum hækka
þeir sýrustigið í maganum og það
getur valdið margs kyns sjúkdóm-
um. „Laukurinn er of sterkur fyrir
okkur og getur valdið geðvonsku.
Það þarf ekki annað en að skera
hann til að fá tár í augun.“
Um það bil tvisvar í mánuði fastar
Dada í sólarhring. „Það gera allir
munkar og nunnur Ananda Marga,
fyrst þegar tunglið er fullt, síðan ell-
efu dögum síðar. Fastað er að nýju í
nýju tungli og síðan aftur eftir ellefu
daga.“ Föstuna segir Dada vera
góða leið til að hreinsa líkamann,
hvfla meltingarfærin og halda hug-
anum í jafnvægi.
Á GANGI í snjónum á Laugavegi.
VANDRÆÐAGANGUR með vefjarhöttinn er stundum töluverður.
Líht oð sendiherrarnir veit honn hvorhi hvert honn
verður sendur nsst né hve löng dvölin veröur.
NAUÐSYNLEGT er að kunna réttu handtökin.
Heima á Filippseyjum
Dada var sextán ára þegar hann
kynntist Ananda Marga og hóf fljót-
lega að ferðast um Filippseyjar og
halda fyrirlestra um yoga og hug-
leiðslu. Eftir tveggja ára sjálfboða-
vinnu fyrir hreyfinguna, söðlaði
hann um og vann í bókabúð um tíma,
var fiskimaður á litlum árabát í
nokkra mánuði, og síðar plötusnúður
á diskóteki. „Þá eyddi ég öllum mín-
um peningum í áfengi og fót og
smám saman leiddist ég út í eiturlyf.
Sá lífsstíll hentaði mér ekki til
lengdar. Mér tókst að snúa við blað-
inu og gekk aftur til liðs við Ananda
Marga. Ég hóf háskólanám, lagði
stund á fjölmiðla- og félagsfræði en
hætti því eftir tvö ár og ákvað að
gerast munkur. Sú þjálfun tekur ríf-
lega tvö ár, fyrst á Filippseyjum,
síðan á Indlandi."
Dada hefur undanfarin ár starfað