Morgunblaðið - 21.02.1999, Page 14

Morgunblaðið - 21.02.1999, Page 14
,44 B SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ Rótari / / Agúst Agústsson, Gústi rótari, hefur lengi verið samstarfsmaður helstu tónlistar- manna landsins. Hann hefur lifað við- burðaríku lífí og kann frá mörgu að segja. Olafur Ormsson ræddi við hann um feril- inn og kynni hans af heimskunnum tónlist- armönnum sem hafa komið fram á Broad- -----------------t----------------------- way og Hótel Islandi á liðnum árum. GÚSTI er fimmtíu og þriggja ára. Hann er rétt rúmlega meðalmaður á hæð og lítt breyttur frá því fyrir um þijátíu og fimm árum þegar við vorum sam- starfsmenn hjá Sambandi íslenskra samvinnufélaga og æska sjöunda áratugarins upplifði bítlaæðið. Gústi er dökkhærður og greiðir ekki ósvipað og Presley sjálfur þeg- ar hann var á hátindi frægðar sinn- ar. Hann er dálítið farinn að grána í vöngum og það kæmi mér ekki á óvart að briUjantmið væri á sínum stað. Sléttgreitt hárið og snyrti- ' mennskan og hlýtt viðmót gagnvart samferðafólki hafa löngum einkennt Gústa, einnig greiðvikni, nákvæmni og vandvirkni í öllu sem hann tekur sér fyrir hendur. Hann heitir fuliu nafni Ágúst Agústsson og er betur þekktur undir nafninu Gústi rótari. Langt er um liðið síðan hann steig ofan af lyftar- anum hjá vörumóttöku Sambandins við Geirsgötu og nýtt tímabil hófst í lífi hans. Hann fór til starfa í svið- ljósum öldurhúsanna, sem rótari hjá einni minnisstæðustu hljómsveit bítlatímabilsins, Flowers, og síðar hjá helstu ofurhljómsveit Islands- sögunnar, Trúbroti. Mörg undanfar- in ár hefur Gústi starfað á veitingar- stöðum í eigu Ólafs Laufdals. Gústi hefur kynnst nokkrum heimsþekkt- um skemmtikröftum. „Ég er fæddur í Reykjavík árið 1945. Ég man þó fyrst eftir mér í Vestmannaeyjum, en þar var ég tvö sumur hjá ömmu minni. Faðir minn var að stækka húsið við Hverfisgöt- una þar sem ég ólst upp og rétt á meðan þær framkvæmdir voru í gangi dvaldi ég hjá ömmu í Vest- mannaeyjum. Fyrst man ég eftir mér í húsi á æskuheimili mínu við Hverfisgötuna fjögurra til sex ára. Ég var í þessum skólum þama í nágrenni við æskuheimili mitt. I Grænuborg, sem var íyrsti ísakskól- inn og er nú við Skaftahlíðina. Ég byijaði þar í bamaskóla og svo fór . ég í Austurbæjarskólann, síðan í Lindargötuskólann og þaðan í verk- námið sem var í Brautarholti. Það var gagnfræðaskóli, þriðji og fjórði bekkur. Þaðan Iá svo leiðin í Verzl- unarskólann í deild sem var nefnd hagnýt verzlunar- og skrifstofustörf. Ég lauk þó ekki námi í Verzlunar- skólanum en fór að vinna hjá Pósti og síma þar sem pabbi hafði unnið lengi. Ég byrjaði sem sendisveinn og fékkst auk þess við alls konar við- gerðir. Það em miklir smiðir í minni ætt, afi var bátsmaður, en bátsmenn era smiðimir á skipum. Bróðir minn er húsasmíðameistari. Guðjón Samú- elsson, húsameistari ríkisins hér fyrr á áram, er frændi minn, svo og þeir Völundarbræður. Ég vann svo hjá Pósti og síma í nokkur ár. Ég fermdist í Hallgrímskirkju, í gamla kómum sem var byggður löngu á undan kirkjunni sjálfri. Þá var verið að byggja Heilsuvemdar- ■'stöðina. Þama var Skátaheimilið og gamli Valsvöllurinn. í Skátaheimilinu fékk ég biljarðkjuðann minn sem ég hef átt síðan. Við fóram nokkrir frá Símanum að rífa niður ýmislegt inn- anhúss, símastrengi og fleira, áður en braggamir voru riftiir. Þar sá ég þennan kjuða og karlinn, sem var þama, sagði að ég mætti eiga hann. Það var verið að henda öllu út og átti að bijóta niður braggana daginn eft- ir. Eg gekk í knattspymufélagið Fram sem var skáhallt á móti Tóna- bíói. Þar í kring var hverfið sem mað- ur þvældist um á þessum tíma og þar var bfijarðstofa í Einholtinu. Fjórðu- bekkingar í Framliðinu spiluðu margir biljarð og maður dróst inn í það. Þama var piltur, tveimur áram eldri, en ári á undan mér í skóla, sem var byrjaður að spila biljarð. Hann hafði góða reynslu í íþróttinni og ég naut góðs af kennslu hans og var kominn með dálítið forskot þegar ég byijaði að fikta í biljarðinum sjálfur. Þegar ég var sendisveinn hjá Pósti og síma var aðal knattborðsstofa bæjarins á Klapparstígnum og þar var einnig sjoppa og ég var að send- ast þangað fyrir karlana og notaði þá stundum tækifærið og greip í kjuð- ana með þeim sem þar voru að spila og vora virkilega flinkir. Svo var það eitt laugardagskvöld að verið var að spila og einn að hætta og ég spurði: Má ég vera með? Það var samþykkt og ég vann fyrsta leik. Svo vann ég tíu í röð. Næsta ár tók ég þátt í fyrstu keppninni og vann. Arið eftir var ég kominn í meistaraflokk. Upp frá því varð biljarðinn helmingur af ævi minni á móti músíkinni og er enn. Ég hef nokkram sinum orðið ís- landsmeistari og keppt erlendis. Þá er ég sá eini hérlendis með þjálfara- réttindi í biljarð og hef leiðbeint í íþróttini bæði hér heima og erlendis, jafnvel í Branei í Nýju Gíneu, en að- allega þó nær okkur, t.d. í Noregi.“ Tónlistaráhugi kviknar snemma Varstu snemma farinn að hlusta á tónlist? „Já, ég byrjaði snemma að hlusta á Kanann og Lög unga fólksins í Ríkisútvarpinu. Svo brá fyrir nýjum íslenskum lögum, sérstaklega í þætt- inum Á frívaktinni. Manstu t.d. eftir laginu Á sjó, með Þorvaldi Halldórs- syni? Fyrstu rokkmyndimar komu þegar ég var í öðram og þriðja bekk. Ég sá þrjú bíó út um gluggann heima, Áusturbæjarbíó, Stjömubíó og Hafnarbíó. Ég sá meira að segja útstillinguna á Stjömubíói. Ég man eftir Rock around the clock með Bill Haley. Þetta var Iíklega árið 1958 eða fyrr. Það kom hingað kvartett, Delta Rhythm Boys. Þeir vora með atriði á sviðinu sem þótti hneykslan- legt og var skrifað um í blöð. Rokkið þótti svo villt og framandi. Lúdó og hljómsveit Svavars Gests voru hljómsveitimar sem við fylgd- um eftir. Þetta var á bíladelluáranum og það var skylda að fara upp á Geit- háls. Það vora sætaferðir frá BSI í Hlégarð og troðfullar rútur um allar SKEMMTISTAÐURINN Broadway er núna aðalstarfsvettvangur Gústa. helgar. Helstu söngvarar vora Stebbi í Lúdó, Garðar Guðmundsson, Steini Eggerts, Mjöll Hólm, Siggi Johnie, Einar Júlíusson, Guðbergur Auðuns- son og Harald G. Fyrir utan sveita- böllin og dansstaðina vora áhugamál unglinga þá bflar, tónlist, bíómyndir og íþróttir. Ég var t.d. mikið í hand- bolta á Hálogalandi.“ Svo kemur bítlaæðið snemma á sjöunda áratugnum? „Já, þetta byrjar eiginlega með Cliff Riehard og The Shadows. Það var einskonar undanfari bítlaæðisins þegar myndimar A Hard Day’s Night og Help! komu í Tónabíó. Ég uppgötvaði Bítlana þegar ég heyrði From me to you í útvarpinu. Þetta dæmi fer síðan allt saman í gang með All my loving, I want to hold yo- ur hand og She loves you. Árið 1965 byrjaði ég að safna plötum og keypti þær í Hljóðfærahúsinu í Hafnar- stræti og víðar, t.d. hjá „Dodda djúk- box“ sem var með djúkbox í mat- stofu Austurbæjar og á Austurbar og hann hafði sambönd við Ameríkú. Á þessum tíma átti ég bíl með spil- ara undir mælaborðinu. Þegar Doddi skipti út plötum úr boxunum fékk ég hjá honum þær sem fyrir vora og stundum líka nýjar plötur. Þannig eignaðist ég gott safn af helstu smellunum. Svo byijaði ég að stunda Silfurtunglið sem var á hæðinni fyrir ofan Austurbar. Það tók um 200 manns og var alltaf uppselt. Þar réðu ríkjum tvær klíkur „The Wild Things" sem sat við borð hjá sen- unni. Hin klíkan kallaði sig „Saklausu svallarana". Þarna spilaði Toxic og Flowers byrjar 1967. Þegar trommuleikaraskipti urðu í Flowers, Rafn hætti og Gunnar Jökull kom í staðinn, urðu eins konar kaflaskil og krafturinn braust fram í íslenska rokkinu." Gústi gerist rótari ,4 nióti mér á Hringbrautinni bjó rótari Flowers, Kjartan Agnarsson. Þegar hann hætti bauðst mér starfið og ég tók því.“ Er rótarastarfið er síðan þín aðal- atvinna? „Já, það má segja það. Um ára- mótin 1968-69 tóku Flowers Silfur- tunglið á leigu fyrir fastagesti sína. Daginn íyrir gamlársdag voram við Gunnar Jökull og Jónas R. staddir á Brauðbæ við Óðinstorg. Jónas hafði orð á því að hann væri kominn með hálsbólgu og daginn eftir var hann lagstur í rúmið með háan hita. Þá var hringt í Björgvin. Hann kom, reddaði kvöldinu og var ráðinn í hljómsveitina stuttu síðar. Sigurjón Sighvatsson hætti og fór í skóla. I hans stað kom Jóhann Kristinsson og þessi hljómsveit varð ein sú besta þeirra tíma og tókst í kjölfarið að skáka veldi Hljóma sem vinsælasta hljómsveit unga fólksins. Eftir hljómleika unga fólksins í Austurbæjarbíói í mars 1969 var haldið teiti í íbúð Flowers í Ljós- heimunum. Þar kom það fyrst upp, að mig minnir, að sameina Flowers og Hljóma. Ég man að ýmsir voru heldur óhressir með það sem var að gerast og ósáttir við breytingar. Karl Sighvatsson og Gunnar Jökull gengu til liðs við Gunnar, Rúnar og Shady Owens sem komu úr Hljóm- um. Ég man alltaf síðasta kvöldið sem Hljómar og Flowers spiluðu, Flowers í Silfurtunglinu og Hljómar í Glaumbæ. Þá vprum við, ég og góð- ur vinur minn, Óttar Felix sem var þá rótari hjá Hljómum, á þönum á milli Silfurtunglsins og Glaumbæjar. Trúbrot varð síðan til með Gunnari, Rúnari, Shady, Jöklinum og Kalla Sighvatssonar. Fyrsta ballið, þar sem Trúbrot kom fram, var síðan í júní 1969 og ég byrjaði þá með þeim sem rótari. Trúbrot spilaði víða, t.d. á Keflavíkurflugvelli og á sunnudög- um í Glaumbæ, einnig á sveitaböll- um. Svo kom það upp 1970 að Karl Sighvatsson og Gunnar Jökull hættu og Magnús Kjartansson og Ólafur Garðarsson komu í staðinn. Síðan kom að því að tímamótaverkið Lifun var tekið upp árið 1971. Það var æft í skúr á Laugaveginum, beint á móti Landsbankanum á Laugavegi 77. Þá höfðu Karl Sighvatsson og Gunnar Jökull gengið í hljómsveitina að nýju. Platan var síðan tekin upp í frægum upptökusal í London. Og ár- ið eftir var platan Mandala tekin upp í Kaupamannahöfn. Einn anginn af Hljómum vora Lónlí Blú Bojs, sem m.a. fluttu hið fræga lag Er ég kem heim í Búðar- dal. Hljómsveitinni var hvarvetna tekið með kostum og kynjum, sér- staklega þó í Búðardal, þar sem sveitarstjórnin tók á móti henni með viðhöfn. I þessari ferð var hinn landskunni meistarakokkur, Sigurð- ur L. Hall, aðstoðarrótari og sviðs- stjóri. „Þegar við komum í Búðardal var sveitarstjómin öll mætt til að taka á móti okkur, ræður vora fluttar og boðið til kaffisamsætis. Þetta var al- veg meirháttar viðburður. Fyrsti stórdansleikurinn var hins vegar á Akureyri. Við keyrðum um nóttina norður til Akureyrar og komum í bæinn um morguninn. Þá heyrðum við að verið var að segja frá því í útvarpi að De Lónlí Blú Bojs væra að keyra inn í bæinn. Allt var þetta skipulagt af Baldvin Jónssyni, umboðsmanni og „prómóter“ hljóm- sveitarinnar. Sá maður var flinkur í sínu fagi.“ Hvert er í stuttu máli hlutverk rótarans? „Þetta orð, „rótari“, er dregið af enska orðinu „road“, vegur, menn- imir sem era á veginum, eins og Willie Nelson syngur í On the road again. Það era túrarnir, mennfrnir sem aka á þjóðvegunum milli skemmtistaða. Maður hefur stund- um þrætt landið og farið langar vegalengdir á milli staða. Rótarinn sér um öll hljóðfærin. Hljómlistar- maðurinn sjálfur, t.d. gítarleikarinn, leggur frá sér hljóðfærið að loknum dansleik. Það er svo rótarans að sjá um þegar komið er á næsta áfanga- stað að allt líti nákvæmlega eins út og gítarleikarinn skildi við það. Hann gengur sem sagt að hlutunum eins og þeir eiga að vera. Þetta tekur á sig fast mót með þeim mönnum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.