Morgunblaðið - 24.02.1999, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913
45. TBL. 87. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Forstjóri bandaríska seðlabankans flytur
skýrslu sína fyrir Bandaríkjaþingi
Segir efnahag-
inn á góðu róli
og snjóflóðahætta því yflrvofandi á
stóru svæði. Snjóflóð féll á gamalt
bóndabýli í Uri-sýslu í Mið-Sviss.
Eins manns er saknað.
Stórhríð og snjóflóðahætta kom í
gær enn í veg fyrir að hægt væri að
bjai'ga þremur frönskum skiða-
mönnum, sem urðu innlyksa fyrir
viku í 3.000 metra hæð ofan við
franska Aipabæinn Pralognan. Ekk-
ert hefur frétzt af mönnunum þrem-
ur frá því á sunnudag, þegar straum-
urinn kláraðist af raíhlöðu farsíma
sem einn þeirra var með. Sleitulaus
snjókoma hefur fram að þessu komið
í veg fyrir að hægt væri að íljúga á
þyrlu að staðnum þar sem þremenn-
ingai'nir bjuggu um sig í snjóhúsi.
*
Akært vegna
Omagh
Dublin. Reuters.
ÍRSKA lögreglan tilkynnti í gær-
kvöld að í dag yrði maður leiddur
fyrir rétt í Dublin og ákærður fyrir
aðild að sprengjutilræðinu í Omagh
á Norður-írlandi í ágúst á síðasta
ári. Tuttugu og níu manns fórust í
tilræðinu og yfir 300 særðust en
þetta var mannskæðasta ódæðis-
verk í sögu átakanna á N-írlandi.
„Hið raunverulega IRA“, klofn-
ingssamtök úr Irska lýðveldishern-
um (IRA), lýsti á sínum tíma ábyrgð
á ódæðinu á hendur sér. I’rátt fyrir
umfangsmikla rannsókn hefur lög-
regla hins vegar ekki fyrr en nú
haft næg sönnunargögn í höndun-
um til að geta lagt fram ákæru á
hendur einstaklingum.
Washington. Reuters.
ALAN Greenspan, forstjóri banda-
ríska seðlabankans, sagði í gær að
efnahagur Bandaríkjanna væri á
góðu róli en að seðlabankinn væri
viðbúinn því að taka í taumana og
lækka eða hækka vexti eftir þörfum
ef slíkt reyndist nauðsynlegt. Féll
gengi hlutabréfa á fjármálamörkuð-
um nokkuð í kjölfar yfirlýsinga
Greenspans en tók svo við sér á ný.
Greenspan flutti í gær Banda-
rílgaþingi skýrslu sína um ástand
Kosovo-friðarviðræðum lýkur án þess að endanlegt samkomulag sé undirritað
Reuters
BJÖRGUNARMENN í Evolene í Sviss beittu í gær öllum tiltækum ráðum í leit sinni að frönskum ferðamönn-
um sem lentu í snjóflóði þar á mánudag. Voru sagðar litlar líkur á að mennirnir fyndust á lífi.
Atta farast í mann-
skæðu snjóflóði í Tíról
Ziirich, Pralognan, Aosta, Bonn. Reuters.
AÐ MINNSTA kosti átta fórust í
mannskæðu snjóflóði sem féll á
skíðabæinn Galtuer í Tíról í Austur-
ríki í gær. Um þrjátíu hafði verið
bjargað úr snjónum þegar húma tók
en nokkurra sem grafist höfðu undir
var enn leitað.
Snjóflóð féllu á fleiri stöðum í Ölp-
unum í gær og fjölda manns er sakn-
að í fjórum löndum sem að fjallgarð-
inum liggja, en meira fannfergi er
þar nú en elztu menn muna. Tugþús-
undir komast hvergi vegna lokaðra
vega og járnbrauta og björgunarað-
gerðir ganga illa vegna áframhald-
andi snjókomu og snjóflóðahættu.
Fórst ein kona þegar snjóflóð féll á
skíðabæinn Sportgastein í Austur-
ríki.
í vesturhluta ítölsku Alpanna, rétt
við frönsku landamærin, varð snjó-
flóð í gær einum að bana og slasaði
þrjá heimamenn. Fjallaþorp í
grennd við munnann að Mont Blanc-
veggöngunum lokuðust af.
Snjó hélt áfram að kyngja niður
efnahagsmála, líkt og hann ávallt
gerir tvisvar á ári, og sagði hann að
ýmsir erfiðleikar steðjuðu nú að.
Greenspan varaði bæði við aukinni
verðbólgu vegna lítils svigrúms í at-
vinnulífinu og eins því að efnahags-
óreiða annars staðar í heiminum
gæti orsakað samdrátt í Bandaríkj-
unum. A máli Greenspan mátti hins
vegar skilja að heldur líklegra væri
að seðlabankinn hækkaði vexti, en að
hann lækkaði þá, yrði á annað borð
tekin sú ákvörðun að grípa inn í.
Vill að menn haldi vöku sinni
Greenspan sagði bandarískan
efnahag að mörgu leyti standa
traustum fótum en lagði þó áherslu
á að brugðið gæti til beggja vona á
næstum misserum, og að menn
yrðu því að vera við öllu búnir.
Spáði hann því að hagvöxtur í
Bandaríkjunum yrði nokkru minni á
þessu ári en því síðasta en sagði þó
ekkert benda til, enn sem komið
væri, að verðbólga myndi aukast.
Nokkur lækkun varð á hluta-
bréfamarkaði í kjölfar yfirlýsinga
Greenspans enda voru orð hans
túlkuð sem viðvörun um að seðla-
bankinn gæti gripið til þess ráðs að
hækka vexti. Féll gengi ríkisverð-
bréfa umtalsvert og gengi hluta-
bréfa sömuleiðis, en þau tóku þó við
sér á nýjan leik er leið á daginn.
Dow Jones-vísitalan hafði fallið um
rámlega átta punkta við lokun
markaða á Wall Street í gær, eða
næstum 0,1 prósent.
114 ára en á
biðilsbuxum
Kaíró. Reuters.
EGYPSKUR bóndi, sem sagð-
ur er 114 ára gamall, hyggst
kvænast sautján ára gamalli
stúlku þrátt fyrir harða and-
stöðu ættingja sinna og af-
skipta lögreglunnar.
Gamlinginn spræki, Fayez
Sultan, sem býr í Sohag-hér-
aði, um 400 kílómetra suður af
Kaíró, á sjö böm og fjörutíu
og fimm barnabörn. Sögðu
heimildarmenn innan lögregl-
unnar í Egyptalandi í gær að
Mohamed, áttræður sonur
Sultans, hefði kvartað við yfir-
völd vegna áætlana fóður sins
um að gefa væntanlegri eigin-
konu býli sitt og bústofn í stað
þess að arfleiða Mohamed að
öllu saman.
Albright segir áfanga-
samkomulag í höfn
mbouillet. Reuters.
FRESTURINN sem Tengslahópurinn svokallaði
gaf stríðandi fylkingum í Kosovo til að semja um
frið í héraðinu rann út um miðjan dag í gær án
þess að samningar væru undirritaðir. Að sögn fuil-
trúa Tengslahópsins lá hins vegar fyrir munnlegt
samkomulag um sjálfstjórn til handa Kosovo-Al-
bönum. Bæði Serbar og Kosovo-Albanar settu þó
fyrirvara við samkomulagið. Vildu hinir síðar-
nefndu fá tíma til að ráðfæra sig við sitt fólk og
Serbar, sem sögðust sætta sig við að Kosovo fengi
sjálfstjóm, kröfðust þess að í endanlegu sam-
komulagi yrði sjálfstæði til handa Kosovo útilokað.
Gert er ráð fyrir að fulltrúar stríðandi fylkinga
hittist að nýju 15. mars í Frakklandi og ljóst er að
enn á eftir að leysa erfið ágreiningsefni.
Fulltrúar Tengslahópsins, sem stýrðu viðræðun-
um í Rambouillet í Frakkíandi sem stóðu sam-
fleytt í sautján daga, fóru fram á tafarlaust vopna-
hlé í Kosovo. „Við væntum þess að deilendur virði
að fullu og þegar í stað það vopnahlé sem nú á að
hafa tekið gildi í Kosovo," sagði í yfirlýsingu hóps-
ins. Kom engu að síður til átaka í Kosovo í gær og
særðust fimm serbneskir lögi'eglumenn, auk
blaðaljósmyndara Associated Press.
Robin Cook, utanríkisráðherra Bretlands, viður-
kenndi að ekki hefði reynst gerlegt að ná endan-
Reuters
UTANRÍKISRÁÐHERRAR Frakklands og
Bandaríkjanna, Hubert Vedrine og Made-
leine Albright, ræðast við í gær.
legu samkomulagi í viðræðunum en kvað góðan ár-
angur hafa náðst í átt að lýðræðislegri sjálfstjórn
Kosovo. Kom fram í máli hans að Tengslahópurinn
gerði ráð fyrir að bæði Serbar og Kosovo-Albanar
yrðu búnir að undirrita samninginn er þeir kæmu
aftur saman til fundar 15. mars.
Madeleine Albright, utaimkisráðherra Banda-
ríkjanna, tók í sama streng og sagði áfangasam-
komulagi hafa verið náð. Hún bætti hins vegar við
að hótun Atlantshafsbandalagsins (NATO) um að
efna til loftárása á Serbíu, samþykktu Serbar ekki
endanlegt samkomulag, væri enn í fullu gildi. Al-
bright ítrekaði hins vegar að Kosovo-Albönum
bæri einnig að samþykkja samninginn að fullu.
Þrátt fyrir yfírlýsingar Tengslahópsins virtist
sem deilendur hefðu þegar snúið baki við sam-
komulaginu er á leið daginn. Sagði Milan
Milutinovic, forseti Serbíu, að með samningnum
væri í raun verið að breiða yfir „mistök". Hasim
Thaqi, fulltrúi Frelsishers Kosovo (UCK) í Ram-
bouillet, hreykti sér síðan af því í sjónvarpsviðtali
að hafa ekki skrifað undir neinn samning. Hvatti
hann íbúa Kosovo til að gera sér ekki miklar vonir
um árangur af frekari viðræðum og bað fólk um að
styðja vel við bakið á UCK því frelsisbaráttu
Kosovo-Albana væri ekki lokið.
UCK átti fjóra fulltrúa í viðræðunum og mun
helst hafa strandað á hinum 29 ái-a gamla Thaqi.
Hvað svo sem sáttasemjarar reyndu tókst þeim
ekki að fá hann til að skrifa undir þann samning
sem var á borðinu. Mun Thaqi hafa óttast að félag-
ai' sính’ í UCK teldu hann hafa svikið málstaðinn.