Morgunblaðið - 24.02.1999, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Utanríkisráðherra segir ísland stefna að því að gerast aðili að Kyoto-bókuniimi síðar
Ætla ekki að undir-
rita Kyoto-bókunina
RÍKISSTJÓRNIN hefur ákveðið
að Island undirriti ekki Kyoto-bók-
unina að sinni. Halldór Ásgrímsson
utanríkisráðherra segir að íslensk
stjómvöld stefni engu að síður að
því að gerast aðilar að bókuninni.
Óll ríki OECD hafa undirritað bók-
unina nema Island.
„Við stóðum frammi fyrir tveim-
ur kostum. Annars vegar gátum við
undirritað þessa bókun og fullgilt
hana síðar. Hins vegar gátum við
verið í flokki ríkja sem stefna að því
að gerast aðilar að bókuninni án
þess að undirrita hana núna, en
gerst aðilar að henni síðar með svo-
kallaðri aðild. Það er enginn munur
á réttarstöðu ríkja eftir því hvor
leiðin er farin. Við getum því gerst
stofnaðilar að bókuninni síðar.
Ríkisstjómin stefnir að því að ís-
land gerist aðili að bókuninni, en
vill tryggja að við getum áfram nýtt
endumýjanlegar orkulindir lands-
ins og lagt þannig okkar af mörkum
í baráttunni gegn gróðurhúsaáhrif-
um í heiminum," sagði Halldór.
Undirritun fallin til að veikja
samningsstöðu Islands
Halldór sagði að það væri mat
ríkisstjórnarinnar að undirritun
bókunarinnar við núverandi að-
stæður væri til þess fallin að veikja
tiltrú viðsemjenda okkar á því, að
viðunandi útfærsla á hinu svokall-
aða íslenska ákvæði væri forsenda
fyrir aðild okkar að bókuninni síð-
ar. Islenska ákvæðið svokallaða
fjallar um rétt smárra hagkerfa til
að fara út fyrir ramma bókunarinn-
ar ef um stór iðnaðarverkefni er að
ræða. Ekki náðist að ljúka umfjöll-
un um þetta ákvæði á umhverfis-
ráðstefnunni í Buenos Aires, en
stefnt er að því að ljúka umfjöllun
um það síðar á þessu ári.
„AUt frá lokum Kyoto-ráðstefn-
unnai- hafa íslensk stjómvöld lýst
því yfir að viðunandi útfærsla ís-
lenska ákvæðisins sé forsenda fyrir
aðild okkar að bókuninni síðar. Það
myndi draga úr trúverðugleika
okkar í málinu ef við undirrituðum
núna. Við getum ekki fullyrt um
það á þessu stigi hvað verður um
það sérákvæði sem við viljum að
gildi um minni efnahagskerii,"
sagði Halldór.
Halldór sagði að við hefðum
nokkur ár til stefnu. Ekkert ríki
hefði enn staðfest bókunina og
staðfestingarferillinn tæki nokkur
ár. Engar líkur væru á að Banda-
ríkin yrðu með nema samkomulag
tækist um að þróunaiTÍkin tækju á
sig vissar skuldbindingar.
Nýting vetnis gæti
gjörbreytt stöðu okkar
Aðspurður ítrekaði Halldór að
ríkisstjórnin stefndi að því að Is-
land gerðist aðili að bókuninni.
Hann lagði jafnframt áherslu á að
við yrðum að vinna að því að draga
úr losun gróðurhúsalofttegunda í
samgöngum og í fiskveiðum. Rann-
sóknir á nýtingu vetnis gætu gjör-
breytt stöðu okkar í þessum mál-
um.
Þjóðverjar á göngu-
skíðum yfir hálendið
Ekkert
spurst til
ferðalang-
anna í viku
TVEIR Þjóðverjar um þrítugt, sem
lögðu af stað á gönguskíðum 16.
febrúar frá Hrauneyjarhálendis-
miðstöð, þvert yfir hálendi íslands,
áleiðis til Akureyrar, hafa ekkert
látið í sér heyra eftir vikulangt
ferðalag.
Að sögn Einars Brynjólfssonar í
svæðisstjórn Landsbjargar á Hellu,
sem liðsinnti þeim við að komast af
stað, er ekkert sem bendir til þess
að neitt ami að mönnunum, heldur
þvert á móti, að þeir hafi það gott,
enda sé vaninn sá að ferðalangar
láti ekki í sér heyra fyrr en eitthvað
ami að. Þeir eru með talstöð og
GSM-síma og ferðaáætlun liggur
fyrir hjá Landsbjörg á Hellu og á
Akureyri. Þeir áætla að vera komn-
ir til Akureyrar 10. mars. Þeir
reyndu að komast yfir hálendið í
fyrra, en urðu þá frá að hverfa.
Skipulags- og umferðarnefnd falið að
skoða tengingu yfír Miklubraut
Borgaryfírvöld
og íbúar fari yfír
fjármögnun
UNDIRSKRIFTIR um 2.000 íbúa
Háaleitis- og Hvassaleitishverfis,
þar sem þess er óskað að byggð
verði göngubrú yfir Miklubraut
vestan Háaleitisbrautar hafa verið
lagðar fram í borgarráði og var
samþykkt að skipulags- og umferð-
arnefnd skoðuðu hvemig tenging-
unni yrði háttað. Að sögn borgar-
stjóra munu borgaryfirvöld ásamt
íbúum fara yfir hvemig fjármagna
megi framkvæmdina.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri segir að þetta sé skilj-
anleg ósk frá íbúunum, þar sem
Fimm bfla
árekstur
FIMM bíla árekstur varð í
Hafnarfirði í gær á Reykjanes-
brautinni á móts við Asvelli.
Engan sakaði en eignatjón
varð nokkurt.
Slæm færð var í Hafnarfirði
í gær og olli því að bílarnir óku
hver aftan á annan.
Mikill erill var hjá lögregl-
unni í Hafnarfirði í gær og
sinna varð yfir tug árekstra, en
meiðsli á fólki urðu ekki í nein-
um tilvikum teljandi.
Miklabraut kljúfi óneitanlega
hverfið í sundur, sem eitt þjónustu-
hverfi. „Þetta er eins og stórfljót,
sem verður að brúa einhvern veg-
inn en hins vegar er ekki gert ráð
fyrir svona tengingu inni á aðal-
skipulagi Reykjavíkur í dag,“ sagði
hún. „Það þyrfti því að fara til
skoðunar hjá skipulags- og umferð-
amefnd hvernig þessari tengingu
yrði háttað.“
Leið til ljármögiiunar
Borgarstjóri sagði að ennfremur
yrði að finna leið til að fjármagna
framkvæmdina. „I raun eru svona
tengingar undir eða yfir stofn-
brautir fjármagnaðar af ríkinu,“
sagði hún. „A vegaáætlun hvers
árs er ekki nema ein eða í besta
falli tvær slíkar gönguþveranir fyr-
ir allt höfuðborgarsvæðið. Ennþá
er göngubrúin yfir Kringlumýrar-
braut til móts við Kirkjutún og
Laugarneshverfið í skuld hjá rík-
inu og við geram ráð fyrir að borg-
in láni að einhverju leyti fyrir
göngubránni sem á að koma yfir
Miklubraut til móts við Grandar-
gerði. Þannig að það verður að
finna einhverja leið til að íjár-
magna framkvæmdina og það var
eiginlega ákveðið á þessum fundi
sem ég átti með íbúunum að við
myndum skoða það í sameiningu.“
Morgunblaðið/Ingvar
LOKA varð fyrir umferð um Hellisheiðina meðan lögregla vann á vettvangi slyssins við Litlu kaffistofuna.
Slys varð í ofsaveðri á Suðurlandsvegi síðdegis í gær
Klemmdist á milli bifreiða
KARLMAÐUR var fluttur á slysa-
deild með sjúkrabifreið eftir slys á
Suðurlandsvegi við Litlu kaffistof-
una um klukkan 17 í gær þegar
hann klemmdist á milli tveggja bif-
reiða. Hann var með nokkra áverka
á baki og í kviðarholi en er ekki í
lífshættu. Hann var lagður inn á
skurðdeild Sjúkrahúss Reykjavíkur
að loknum rannsóknum.
Lögregla frá Reykjavík var um 20
mínútur að komast á slysstað vegna
afleitra akstursskilyrða á Suður-
landsvegi, en þar var mjög blint og
8-9 vindstig af suðaustri. Lokaði
lögreglan Hellisheiðinni í tæpar
tvær klukkustundir á meðan unnið
var á vettvangi.
Tildrög slyssins voru þau að bif-
reið ók út í vegkant og festist, en
ökumaður á aðvífandi bifreið hugðist
aðstoða ökumanninn við að losa bif-
reiðina og er verið var að festa taug
á milli bifreiðanna kom enn önnur
bifreið og ók aftan á bifreiðina sem
átti að draga hina, með þeim afleið-
ingum að hún kastaðist á manninn,
sem klemmdist á milli bifreiðanna.
Allar bifreiðirnar skemmdust
talsvert og voru fluttar með krana
til Reykjavíkur.
Lögreglan í Kópavogi sendi lög-
reglumenn til aðstoðar vegna slyss-
ins og sinnti ennfremur nokkram
ökumönnum, sem lent höfðu í vand-
ræðum með bifreiðir sínar í óveðrinu
og varð að kalla út varalið til að sinna
útköllum í Kópavogsbæ á meðan.
Samkvæmt veðurspá átti vindur
að snúast til suðvesturs í nótt með
allhvassri eða hvassri suðvestanátt í
morgun.
^Jtlorjj'unl
l / UR l mm
► VERIÐ segir í dag frá mikilli sölu Vinnslustöðvarinn-
ar hf. á fiskafurðum til Skandinaviu og mikilli sókn okk-
ar á Flæmska hattinn. Jafnframt er fiskvinnslan Höfði á
Hofsósi heimsótt.
i SÍDUR
4SÍDUR
4 SÍDDR
Guðmundur
þjálfar
Dormagen
„Ekki
verðlauna-
sjóður"
Atak um
gerð
sparkvalla
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is