Morgunblaðið - 24.02.1999, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVTKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1999 11
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Kristinn
UNGIR sem aldnir sóttu afmælishátíðina.
EFNT var til skemmtunar í Breiðholtsskóla á laUgardag
í tilefni af 30 ára afmæli skólans.
Tillaga nefndar
íj ármálaráðherra
Ríkið noti
greiðslukort
við innkaup
NEFND sem fjármálaráðherra
skipaði til að kanna notkun
greiðslukorta í ríkisgeiranum legg-
ur eindregið til að tekin verði upp
slík kort við innkaup undir 50 þús-
und krónum og þannig verði hægt
að ná fram umtalsverðum spamaði.
Þetta kemur fram í grein Geirs
H. Haarde fjármálaráðherra á nýrri
heimasíðu Heimdallar. Geir segir að
aðalávinningurinn felist í því að
færslum fækki ásamt því að lág-
marka megi meðhöndlun gagna hjá
þeim sem koma að innkaupum. Er-
lendar kannanir sýni að sparnaður
við umsýslukostnað nemur 55-75%.
Fljótlega verði farið af stað með til-
raunaverkefni þar sem valdar stofn-
anir verði þátttakendur.
í grein Geirs kemur einnig fram
að ríkissjóður hafí í síðustu viku
greitt upp tíu ára gamalt erlent lán
að upphæð 150 milljónir þýskra
marka, eða rúmlega 6 milljarðar ís-
lenskra króna. I næsta mánuði sé
áætlað að greiða upp annað erlent
lán að upphæð 65 milljónir sviss-
neskra franka, eða um 3,3 milljarð-
ar íslenskra króna.
Fjölsótt afmælishátíð Breiðholtsskóla
FAGNAÐ var 30 ára afmæli
Breiðholtsskóla í Reykjavfk síð-
astliðinn laugardag en hann hóf
starfsemi 24. september 1969.
Foreldrafélagið stóð ásamt skól-
anum fyrir afmælisfagnaðinum
sem samanstóð af fjölbreyttri
dagskrá og kaffisölu og var hann
íjölsóttur.
Nemendur voru í upphafi 690 í
27 bekkjardeildum og kennarar
22. f dag eru nemendur 570 í 28
bekkjardeildum, kennarar 47 og
aðrir starfsmenn á skólatima 21.
Skólinn er nú einsetinn. Núver-
andi skólastjóri er Ragnar Þor-
steinsson en sá fyrsti var Guð-
mundur Magnússon.
Sýnd voru verk nemenda í 1.
til 7. bekk, foreldrafélagið sá um
leiki og skemmtun, Lúðrasveit
Árbæjar og Breiðholts lék og síð-
an var íjöltefli, sýning á gömlum
bekkjarmyndum og fleira. Gefíð
var út afmælisrit þar sem greint
er frá þróun skólans í þijá ára-
tugi.
Morgunblaðið/Sigurgeir Sigurjónsson
YFIR 90% af nýliðun heiðagæsastofnsins er hér á Islandi að sögn Dr. Anthony Fox fuglafræðings, og því
þarf að skoða breytingar hérlendis í samhengi við stofninn annars staðar í heiminum.
Heimdall-
ur leggur
áherslu á
frelsið
HEIMDALLUR, félag ungra
sjálfstæðismanna í Reykjavík,
stendur í dag og næstu tvo daga
fyrir átaki þar sem vakin er at-
hygli á nokkrum málum sem fé-
lagið telur að hægt sé að færa
til betri vegar með auknu frjáls-
ræði. Einkunnarorð verkefnis-
ins eru „lausnarorðið er frelsi“.
Ingvi Hrafn Oskarsson, for-
maður Heimdallar, sagði að fé-
lagið ætlaði á þessum þremur
dögum að vekja athygli á
ákveðnum afmörkuðum málum
þar sem auðvelt væri að færa
mál til betri vegar með auknu
frjálsræði. I þessum málum
hefðu stjórnvöld kosið að fara
leið ríkisafskipta. I þeim birtist
ákveðinn hugsunarháttur sem
miðaði að því að takmarka svig-
rúm einstaklingsins. I því sam-
bandi nefndi hann m.a. einka-
sölu ríkisins á áfengi og rekstur
ríkisins á Ríkisútvarpinu.
Ingvi sagði að vakin yrði at-
hygli á þessum málum með
auglýsingum og greinaskrifum
í blöð. Á morgun yrðu Heim-
dellingar í Kringlunni með bás
þar sem m.a. yrði boðið upp á
RÚV-brauð.
Á morgun stendur Heimdall-
ur einnig íyrir fundi um jafn-
réttismál þar sem þeirri spurn-
ingu verður velt upp hvort rík-
isafskipti séu svarið. Fnim-
mælendur verða Helgi Tómas-
son dósent, Elsa B. Valsdóttir
læknir og Guðný Guðbjörns-
dóttir alþingismaður.
Heimdallur opnar
heimasíðu
Heimdallur opnaði í gær
nýja heimasíðu. Ingvi sagði að
stefnt væri að því að á síðunni
yrði haldið uppi umræðu með
reglulegum greinaskrifum.
Markmiðið væri að heimasíðan
yrði í framtíðinni eins konar
fjölmiðill.
Vefslóð heimasíðunnar er
www.frelsi.is.
Seljandi greiði bætur
vegna leynds galla í bíl
Dr. Anthony Fox um íslensk-
grænlenska heiðagæsastofninn
Röskun hérlendis
þarf að skoða í al-
þjóðlegu samhengi
DR. ANTHONY Fox, fuglafræðing-
ur frá dönsku rannsóknarstofnun-
inni um umhverfismál, benti á á ráð-
stefnu hjá Skotvís, Skotveiðifélagi
Islands, um helgina að öll röskun
sem ætti sér stað hérlendis á bú-
svæðum íslensk-grænlenska heiða-
gæsastofnsins skipti miklu máli fyr-
ir afkomu tegundarinnar í heimin-
um. Yfír 90% af nýliðun stofnsins
væri á íslandi og því yrði að skoða
breytingar hérlendis í samhengi við
stofninn annars staðar í heiminum.
„Það má segja að helstu skilaboð
dr. Fox hafi verið þau að Island
gegni lykilhlutverki fýrir heiðagæsa-
stofninn og allt sem gert er á íslandi
hafi áhrif á afkomu tegundarinnar í
heiminum," sagði Kristinn Haukur
Skarphéðinsson fuglafræðingur uni
erindi dr. Fox. Fox fjallaði einnig um
mikilvægi einstakra svæða á Islandi
fyrir stofninn og benti á að mikil-
vægi t.d. Þjórsárvera fyrir stofninn
væri alþjóðlega viðurkennt.
Dr. Fox leiddi líkur að því að
heiðagæsastofninn hefði náð há-
marki og gæti farið að minnka á
næstu árum, en stofninn hefur vaxið
stöðugt undanfarin ár.
Á ráðstefnunni héldu auk dr. Fox
Kristinn Haukur og Arnór Þ. Sig-
fússon fuglafræðingar erindi. Krist-
inn Haukur reyndi að gera grein
iyrir þeim áhrifum sem breytingar á
búsvæðum heiðagæsastofnsins muni
hafa á stofninn. Kristinn sagði í
samtali við Morgunblaðið að mjög
erfitt væri að gera sér grein fyrir
áhrifum miðlunarlóna á Eyjabökk-
um og í Þjórsárverum á heiðagæsa-
stofninn þar sem ekki væri hægt að
styðjast við nein sambærileg dæmi
þar sem svo stór svæði hefðu verið
tekin frá stofninum.
Kristinn Haukur sagði óvíst hve
mörg hreiðurstæði gætu eyðilagst af
völdum virkjanaframkvæmda á
næstu áratugum en honum sýndist
að um 10% heiðagæsahreiðra gætu
farið í kaf á næstu áratugum ef af
virkjunarframkvæmdum á hálend-
inu yrði. „Þetta er sagt með mikilli
óvissu þar sem ekki er vitað hve
mikið af fugli er í lónstæðunum. En
það má segja að tíminn hafi unnið
með heiðagæsastofninum þar sem
menn hafa að mestu lagt þær stór-
karlalegu virkjanahugmyndir sem
áður voru áberandi á hilluna og miða
nú að því að byggja umhverfisvænni
virkjanir," sagði Kristinn Haukur.
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dæmdi á mánudag mann í Reykja-
vík til að greiða Garðbæingi rúm-
lega 60 þúsund krónur með drátt-
arvöxtum frá því í október 1997
fyrir að hafa leynt vitneskju um
galla í bíl sem mennirnir áttu við-
skipti með.
Garðbæingurinn keypti fimm ára
gamlan jeppa af Reykvíkingnum.
Asett verð var 2.380 þúsund krónur
en kaupverð var ákveðið 1.965 þús-
und krónur. I dóminum kemur
fram að ástæða fyrir lækkuðu sölu-
verði var m.a. sú að bifreiðin fór
ekki alltaf í gang og töldu aðilar að
orsök þess væru lélegir rafgeymar.
Kaupandinn lét ástandsskoða bif-
reiðina fyrir kaupin.
Um hálfum mánuði síðar var
seljandanum tilkynnt að kaupand-
inn teldi startai'a bílsins bilaðan og
vildi að seljandinn greiddi viðgerð-
arkostnað. Seljandinn hafnaði því
en bauð að kaupin gengju til baka.
Síðar kom í ljós bilun í legum í
gírkassa og krafðist kaupandinn
einnig bóta vegna þess, samtals um
97 þúsund króna.
Kaupandinn studdi kröfu sína
með því að gallarnir væru slíkir að
seljanda hafi borið að láta vita.
Seljandinn hafi látið skoða bflinn á
verkstæði um 2 mánuðum fyrir
kaupin og þá hefði komið fram að
skipta þyrfti um startara, kúp-
lingu, startkrans og segulrofa.
Seljandinn krafðist sýknu enda
hélt hann því fram að kaupanda
hafi verið kunnugt um að startari
hafi ekki verið í fullkomnu lagi og
hafi bfllinn verið seldur á afar lágu
verði. Einnig hafnaði maðurinn
ábyrgð á göllum í gírkassa, en hluti
kröfu kaupandans var vegna við-
gerðar á legum í gírkassa, sem
seljandinn sagði hafa verið í full-
komnu lagi við afhendingu.
Þá hafi kaupandinn látið
ástandsskoða bílinn fýrir kaup og
undirritað afsal þar sem fram hafi
komið að bíllinn seljist í núverandi
ástandi, sem kaupandi hafi kynnt
sér og sætt sig við.
Var kunnugt um
ástand startara
í niðurstöðum Eggerts Óskars-
sonar héraðsdómara segir að fyrir
liggi samkvæmt gögnum máls að
seljanda var kunnugt um athuga-
semdir verkstæðis sem gerðar
höfðu verið um ástand startara bif-
reiðarinnar nokkru áður en hún
var seld kaupandanum. Var þar
tekið fram að skipta þyrfti um
startara, kúplingu, startkrans og
segulrofa. „Þá var stefnda um það
kunnugt að fyrir gat komið að
starta þurfti bifreiðinni ítrekað við
gangsetningu. Um þessa ágalla var
ekkert upplýst við sölu bifreiðar-
innar og töldu aðilar að erfiðleikar
við gangsetningu bifreiðarinnar,
sem áttu sér stað er hún var til
sölumeðferðar, stöfuðu eingöngu af
lélegu ástandi rafgeyma bifreiðar-
innar. Þegar þetta er virt verður að
telja að stefndi beri bótaábyrgð
gagnvart stefnanda vegna viðgerð-
ar á startara bifreiðarinnar,“ segir
í dóminum.
Hins vegar sýknaði dómarinn
manninn af kröfu um bætur vegna
viðgerðar á gírkassa enda væri
ósannað að hann hefði orðið var við
galla á gírkassa áður en bíllinn var
seldur og krafa um greiðslu vegna
þess komi ekki fram fyrr en eftir
að viðgerð hafði farið fram.
Seljanda bflsins var því gert að
greiða þær rúmlega 60 þúsund
krónur, sem kostaði að skipta um
startara í bílnum og ber fjárhæðin
dráttarvexti frá því í október 1997.
Hvorum aðila málsins var hins veg-
ar gert að bera sinn kostnað af
rekstri þess.
Sveinn Sveinsson hrl. flutti málið
fyrir hönd kaupandans en Leifur
Árnason hdl. var lögmaður seljand-
ans.