Morgunblaðið - 24.02.1999, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Morgunblaðið/Silli
MEÐAL þeirra sem fluttu erindi á ráðstefnunni var Omar
Ragnarsson, fréttamaður.
Ráðstefna á Húsavík
um umhverfísmál
KARL Jóhannsson heldur á finnskum bláref sem ætlaður er til
kynbóta á þeim fslenska.
Húsavík - Ráðstefna um umhverf-
ismál á Húsavík var haldin á Hótel
Húsavík um síðustu helgi og fluttu
þar fyrirlestra landsþekktir fræði-
merin.
Arni Sigurbjörnsson setti ráð-
stefnuna og sagði tilgang hennar
vera m.a. að vekja áhuga Húsvík-
inga og annarra Þingeyinga á um-
hverfismálum og að fá fram mis-
munandi sjónarmið á sviði um-
hverfismála.
Um þróun Húsavíkurlands og
skipulag ræddi Reynir Vilhjálms-
son, landslagsarkitekt. Þröstur
Eysteinsson, aðstoðarskólastjóri,
ræddi um framtíð landnýtingar á
Húsavíkurlandi, dr. Haraldur 01-
afsson ræddi um skjólbelti og
staðbundna vinda, Olafur Arnalds,
náttúrufræðingur, talaði um
ástand lands í Þingeyjarsýslu og
ábyrgð sveitarfélaga og Hreinn
Hjartarson, bæjarverkfræðingur,
ræddi um umhverfisvæna orku-
kosti í nágrenni Húsavíkur.
Framsöguerindum lauk með er-
indi Omars Ragnarssonar, frétta-
manns, sem hann nefndi A háum
sjónarhóli og ræddi þar um umtal-
aðar virkjanir á hálendi íslands.
Erindi þessi voru hin fróðleg-
ustu og á eftir voru nokkrar um-
ræður, skipst á skoðunum og fyr-
irspurnum svarað.
Refír
fluttir inn
frá Finn-
landi
Egilsstöðum - Karl Jóhannsson
og Svanfríður Oladóttir, bændur
á Þrepi í Eiðaþinghá, hafa í fé-
lagi við Tómas Jóhannsson á
Grenivík keypt til sín blárefí og
silfurrefi af finnsku kyni. Refim-
ir eru 66 talsins og komu í beinu
flugi til Egilsstaða frá Vaasa í
Finnlandi. Markmiðið með inn-
flutningnum er að kynbæta eigin
stofn, en refastofn Karls og
Svanfríðar er um 300 dýr. Auk
þess eru þau með um 360 minka.
Þessir finnsku refir eru stærri
en hinir íslensku og hárið á þeim
bæði þéttara og lengra. Líkams-
þyngd þeirra er um 16-18 kg, en
hinn íslenski vegur 10-12 kg.
Þannig gera þau ráð fyrir að fást
muni töluvert hærra verð fyrir
feldinn. Refirnir eru í sóttkví og
verða það í eitt ár að sögn Karls.
Hann sagði markmiðið ennfrem-
m- vera að kynbæta íslenska ref-
inn á fleiri stöðum á íslandi þeg-
ar þeir losna úr sóttkví.
Karl sagði það hafa tekið
þónokkurn tíma að ná því í gegn
að fá að flytja refína til landsins.
Verð á skinnum hafi í millitíðinni
lækkað verulega en þau hafi þó
ákveðið að halda sínu striki og
flytja dýrin inn. Verð á skinnum
hefur farið lækkandi síðustu
misseri og er núna í lágmarki en
íslenskir loðdýrabændur eru að
fá á milli 1.500 og 1.700 krónur
fyrir skinnið. Fyrir fjórum áram
voru greiddar allt að 8.000 kr.
fyrir skinnið. Karl og Svanfríður
selja öll skinn á markað til Finn-
lands.
Menningarvið-
urkenningar
í Húnaþingi
Morgunblaðið/Karl Á. Sigurgeirsson
AFHENDING úr Menningarsjóði. Frá vinstri: Gísli Jón Magnússon,
Páll Sigurðsson og Guðmundur Jóhannesson.
Hvammstangi. Morgunblaðið.
PALL Sigurðsson, sparisjóðsstjóri
Sparisjóðs Húnaþings og Stranda,
afhenti hinn 8. febrúar sl. tveim að-
ilum viðurkenningar úr Menning-
arsjóði sparisjóðsins. Þeir eru Gísli
Jón Magnússon, Stað í Hrútafirði
og Guðmundur Jóhannesson, f.h.
Björgunarsveitarinnar Káraborgar
á Hvammstanga.
Gísli Jón er landsþekktur
júdómaður og í landsliði Júdósam-
bands Islands. Hann hefur verið
valinn júdómaður Islands tvö síð-
astliðin ár, unnið til gulls á nokkr-
um erlendum mótum og m.a. ís-
landsmeistari í þungavigt árið
1998. Gísli Jón er með gráðu 1. dan
- svart belti - og keppir hann í
+ 100 kg þyngdarflokki. Þegar
dagskrá Gísla Jóns er skoðuð, sést
að frá 12. febrúar til 7. október
1999 mun hann keppa á 10 mótum,
flestum erlendis og enda á heims-
meistaramóti í Birmingham á
Englandi 7.-10. október. Að sögn
Gísla er tíminn sem fer í mót og
æfíngar svo mikill, að stopull tími
gefst til að stunda hefðbundna
vinnu. Hann er nú að leita eftir
fjárhagsstuðningi við keppnis- og
mótadagskrá sína.
Notað til kaupa
á björgunarbáti
Að sögn Guðmundar Jóhannes-
sonar, formanns Káraborgar, er
stuðningur Menningarsjóðsins við
björgunarsveitina í tilefni kaupa
sveitarinnar á björgunarbát á liðnu
ári. Báturinn er af gerðinni Atlant-
ic 21 RNLI, 7 metra langur með
tveim Johnsson 50 ha utanborðs-
vélum. Verð bátsins er nær 2 millj-
ónir króna. Að sögn Guðmundar
hafa fjölmargir aðilar styrkt sveit-
ina í þessu mikilvæga verkefni.
Báturinn gerir sveitina mun örugg-
ari og öflugri til að gegna sínu hlut-
verki við björgunarstörf.
Að sögn Páls Sigurðssonar
sparisjóðsstjóra var Menningar-
sjóður sparisjóðsins stofnaður árið
1993 og hlaut staðfestingu árið
1994. Veittar hafa verið um tvær
milljónir króna úr sjóðnum á liðn-
um fímm árum. Stjórn Menningar-
sjóðsins er hin sama og stjórn
sparisjóðsins. Formaður stjórnar
er Egill Gunnlaugsson á Hvamms-
tanga.
Hraðkaup
opnað á
Egilsstöðum
Egilsstaðir - Hraðkaup hefur
opnað verslun á Egilsstöðum.
Verslunin er til húsa í nýju versl-
unarhúsi á Miðvangi 1-3 á Egils-
stöðum. Að sögn Þorkels Hróars
Björnssonar vcrslunarstjóra er
lögð áhersla á að bjóða lægsta
verð á Austurlandi og vera ávallt
með lægra verð en samkeppnis-
aðilinn. Mikil áhersla er lögð á að
neytendur fái nýja og ferska
vöru og hraða og góða þjónustu.
Verslun Hraðkaups er opin
alla daga vikunnar, frá kl. 9 á
virkum dögum en 10 um helgar
og er opin alla dagana til kl 20.
Morgunblaðið/Anna Ingólfs.
VERSLUN Hraðkaups er í nýju verslunarhúsnæði á Miðvangi 1-3 á Egilsstöðum.
Morgunblaðið/Friðrik J. Hjartar
FRIÐGERÐUR Pálsdóttir og
eiginmaður hennar Magnús
Snorrason í blómaversluninni.
Blómaverk
í Ólafsvík
flytur
Ólafsvík - Friðgerður Pálsdóttir
hefur flutt verslun sína,
Blómaverk, í eigið húsnæði að
Ólafsbraut 24 í Ólafsvík.
Friðgerður hefur um þessar
mundir rekið verslunina
Blómaverk í þrjú ár og má því með
sanni segja að versluninni hafi
vaxið fiskur um hrygg á liðnum
árum.
Verslunin er nú í nýlegu
verslunarhúsnæði við aðalgötu
bæjarins þar sem eru góð bílastæði
og greið aðkoma. Auk blóma og
blómaskreytinga er þar einnig
boðið upp á ýmsar gjafavörur.
Friðgerður hannaði sjálf í
samvinnu við iðnaðarmenn
staðarins útlit og innréttingar
verslunarinnar en Elsa
Bergmundsdóttir, sem er lærður
útstillingamaður, annaðist
gluggaskreytingar og var með í
ráðum varðandi uppstillingar f
versluninni.
Margft fólk kom til að skoða hina
nýju verslun á opnunardaginn sl.
laugardag.