Morgunblaðið - 24.02.1999, Page 16
16 MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1999
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Seðlabankinn hækkar vexti í viðskiptum sínum við lánastofnanir
Liður í því að halda
verðbólgu í skefjum
BANKASTJÓRN Seðlabanka ís-
lands hefur ákveðið að hækka vexti í
viðskiptum bankans við lánastofnan-
ir, og hækkar ávöxtun í endurhverf-
um viðskiptum um 0,4% á næsta
uppboði, ávöxtun daglána hækkar
nú þegar um 0,4% og vextir af inn-
stæðum lánastofnana í Seðlabank-
anum um 0,4%. Pá hyggst bankinn
leggja lausafjárkvöð á lánastofnanir
og verða reglur um hana settar á
næstu dögum.
Að því er fram kemur í tilkynn-
ingu frá Seðlabankanum hafa þessar
aðgerðir þann tilgang að hamla
gegn miklum vexti innlendrar eftir-
spurnar, styrkja gjaldeyrisforða,
draga úr útlánaaukningu og draga
úr áhættu tengdri fjármögnun
bankakerfisins.
Birgir Isleifur Gunnarsson seðla-
bankastjóri segir að þessar aðgerðir
séu fyrst og fremst varúðarráðstöf-
un, en ekki sé verið að bregðast við
neinni stórhættu sem Seðlabankinn
sjái nú í augnablikinu.
„Þessar ákvarðanir eru búnar að
vera í þróun hjá okkur í nokkuð
langan tíma og þetta er fyrst og
fremst varúðarráðstöfun til að auka
frekar aðhald í peningamálunum.
Við höfum haldið uppi mjög aðhalds-
samri stefnu og höfum boðað að við
myndum gera það og þetta er liður í
því að við getum staðið við markmið
okkar að halda verðbólgunni hér í
skefjum og í þeim dúr sem við höf-
um stefnt á að hún yrði á þessu ári,“
sagði Birgir Isleifur.
I tilkynningu Seðlabankans segir
að innlend eftirspurn hafi vaxið
hratt að undanfömu og endur-
speglist m.a. í miklum innflutningi.
„Við þau skilyrði sem nú ríkja í
þjóðarbúskapnum, sem einkennast af
hárri nýtingu framleiðslugetu og litlu
atvinnuleysi, gæti áframhaldandi
mikill eftirspm'narvöxtur raskað
þeim verðstöðugleika sem hér hefur
ííkt að undanfórnu. Vöxtur peninga-
stærða og útiána gefur vísbendingu
um undirliggjandi vöxt eftirspurnai'
en kyndir um leið undir honum. í
desember spáði Þjóðhagsstofnun því
að draga myndi úr vexti eftirspumar
á þessu ári. Enn sem komið er bendir
fátt til þess að hann sé tekinn að
hjaðna í þeim mæli sem spáin gerði
ráð fyrir og útlán vaxa enn hratt. Því
telur bankastjóm Seðlabankans
óhjákvæmilegt að auka enn aðhald í
peningamálum með aðgerðum sem
m.a. gætu dregið úr útlánagetu lána-
stofnana, a.m.k. um hríð,“ segir í til-
kynningu Seðlabankans.
í frétt frá Búnaðarbankanum seg-
ir að ákvörðun Seðlabankans sé aug-
ljóslega ætlað að slá á mikla þenslu í
þjóðfélaginu og verja gengi íslensku
krónunnar, en gengisvísitala hennar
hafi sveiflast umtalsvert síðustu
daga. Þá sé ekki ólíklegt að Seðla-
bankinn hafi áhyggjur af þeirri
áhættu sem fjármálastofnanir hafi
tekið á verðbréfamarkaði, en þær
hafi nýtt sér endurhverf lán Seðla-
bankans til spákaupmennsku með
því að nota þau til enn frekari kaupa
á langtímaverðtryggðum bréfum og
veðja á frekari vaxtalækkun á mark-
aði. Með því að gera þessi lán dýrari
vonist Seðlabankinn til að slá á eftir-
spurn eftir þeim, en heildarfjárhæð
endm-hverfra viðskipta lánastofnana
við Seðlabankann hafi farið allt upp í
25 milljarða króna sem verði að telj-
ast hátt hlutfall miðað við umfang
bankakerfisins.
Bíí
Hjá okkur finnur
þú m.a. ferðabækur
barnabækur • handbækur
Ijóð • hestabækur
spennusögur • ævisögur
myndabækur • ættfræðirit
fræðsluefni • spennuefni
afþreyingu • skáldskap • skemmtun
útivist • dulspeki • tækni
landkynningarefni • ferðalög • íþróttir
• matreiðslubækur og margt fleira.
I Bókamarkaðurinn stendur
^ aöeins yfir i nokkra daga.
—t Ekki láta þetta
fJjL einstaka tækifæri
framhjá þér fara.
P i: R L A N
Hinn árlegi bókamarkaður Félags íslenskra bókaútgefenda
stendur nú yfir i Perlunni, Reykjavík og Frostagotu 3-c*, Akureyri
Simar: 562 9701 Reykjavik og 4614742 Akureyri.
*(flður Plastiðjan Bjarg)
Hagnaður Kögunar hf. 43 milljónir króna í fyrra
KHmm hf Samstæðureikningur
■VwJJIIII III ■ l.okt. 1997-30. sept. 1998
Rekstrarreikningur 1998 1997 Breyting
Rekstrartekjur Milljónir króna Rekstrargjöld 275,9 243,0 225,7 193,1 +22% +26%
Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði Fjármunatekjur 32,9 4,3 32,5 4,6 +1% -6%
Hagnaður fyrir skatta 37,2 37,1
Hagnaður tímabilsins 42,7 23,2 +84%
Efnahagsreikningur 31/12 >98 31/12 '97 Breyting
| Eignin |
Fastafjármunir Milljónir króna 38,4 61,7 -38%
Veltufjármunir 212,9 150,2 +42%
Eignir samtals 251,2 211,9 +19%
| Skuldir og eigið fé: Eigið fé 160,7 118,2 +36%
Langtímaskuldir 0 5,0
Skammtímaskuldir 70,9 78,0 -9%
Skuldir og eigið fé samtals 251,2 211,9 +19%
Kennitöiur 1998 1997 Ðreyting
Eiginfjárhlutfall 67% 60%
Veltufjárhlutfall 3,0 1,9
Arðsemi eigin fjár 34% 23%
Arðsemi
eigin fjár
var 34%
HAGNAÐUR Kögunar hf. á síð-
asta ári var 42,6 milljónir króna
eftir skatta í samanburði við 23,2
m.kr. árið áður. Hluta hagnaðarins
má rekja til sölu hlutabréfa í ágúst
sl. þegar félagið seldi hlutabréf fyr-
ir 18,5 milljónir króna. Arðsemi
eigin fjár á árinu var 34%. Rekstr-
artekjur námu 276 milljónum
króna og jukust um 22% á milli
ára. Samkvæmt fréttatilkynningu
hefur verið ákveðið að sækja um
skráningu hlutabréfa félagsins á
Verðbréfaþingi Islands og er verið
að leggja lokahönd á gerð skrán-
ingarlýsingar þessa dagana.
Meðal verkefna félagsins á síð-
asta ári var þróunarvinna við nýtt
hermiforrit fyrir loftvarnakerfi. Að
sögn Gunnlaugs M. Sigmundsson-
ar framkvæmdastjóra er þeirri
þróunarvinnu að ljúka og er búnað-
urinn, sem hefur hlotið vinnuheitið
GSSG (Graphical Simulation Scen-
ario Generator), tilbúinn til sölu og
búist við að hann skili Kögun aukn-
um tekjum á þessu ári. Kerfið má
nýta sem sjálfstæða viðbót við loft-
varnakerfi, líkt og það sem félagið
annast fyrir Nato á Keflavíkurflug-
velli, auk þess sem einnig má
tengja það flugumferðarstjómar-
kerfum til þjálfunar flugumferðar-
stjóra.
Starfsmenn Kögunar eru nú um
50, að stærstum hluta tölvunar-,
keifis- og verkfræðingar sem eink-
um fást við hátæknilega þróunar-
vinnu. Samkvæmt rekstraráætlun-
um er gert ráð fyrir áframhaldandi
vexti fyrirtækisins á þessu ári og
er útlit fyrir aukin verkefni bæði
heima og erlendis.
Miklar duldar eignir hjá Pharmaco hf.
Eignarhlutur í Opnum
kerfum vanmetinn
ANDRI Sveinsson, verðbréfamiðl-
ari hjá Búnaðarbanka íslands, segir
að í ársreikningum Phai'maco hf.
komi fram í óreglulegum tekjum fé-
lagsins að það eigi ennþá miklar
duldar eignir. Segir hann að eignar-
hlutur þess í Opnum kerfum sé
verulega vanmetinn.
Að sögn Sindra Sindrasonar,
framkvæmdastjóra Pharmaco, á fé-
lagið tæplega 13% í Opnum kerfum.
Markaðsverðmæti Opinna kerfa er
fjórir milljarðar króna og er eignar-
hlutur félagsins því um hálfur millj-
arður króna. Bókfærður eignarhlut-
ur Phannaco í öðrum félögum er
130 milljónir og segir Andri að
þarna séu því duldar eignir upp á
tæplega 400 milljónir króna, eða
270 milljónir að teknu tilliti til
skatta.
„Þrátt fyrh' þetta er eiginfjárhlut-
fall félagsins 46% og veltufjárhlut-
fall 2,3, þannig að félagið gæti borg-
að allar skuldir sínar með veltufjár-
munum. Ef áætlanir félagsins fyi'ir
yfírstandandi ár ganga eftir, þar
sem gert er ráð fyrir töluverðum
vexti og 500 milljóna veltuaukningu,
þá erum við að horfa á spennandi
kost að teknu tilliti til þeirra duldu
eigna sem eru í félaginu. Það er
starfandi á markaði sem við sjáum
aukinn vöxt í, bæði vegna aukinnar
lyfjanotkunar og einnig vegna
breyttrar aldursdreifingar þjóðar-
innar," sagði Andri Sveinsson.
Rífleg verðlagning
á hlutabréfum
Heiðar Már Guðjónsson, verð-
bréfamiðlari hjá viðskiptastofu Is-
landsbanka, sagði að Pharmaco
hefði verið með arðbærustu fyrir-
tækjum á Verðbréfaþingi Islands
undanfarin ár og væri það enn.
Hann teldi þó verðlagningu á hluta-
bréfum félagsins vera þó nokkuð
ríflega og virðast gera ráð fyrir
hagræðingarmöguleikum sem væru
þó vart fyrir hendi nema með
frekara samstarfi eða sameiningu
við samkeppnisaðila.
„Pharmaco er með um 45% hlut-
deild á lyfsölumarkaði sem er 2/3
rekstrarins. Fjárfestingar í hluta-
bréfum annarra félaga, svo sem Op-
inna kerfa, hafa gefið af sér góðan
arð og að mínu viti gæti verið
hyggilegt að innleysa nokkuð af
þeim hagnaði og fjárfesta frekar í
eigin rekstri, eða hagræðingu. Eig-
infjárhlutfall félagsins er mjög ríf-
legt og hægt væri að auka arðsemi
eigin fjár með ódýrari fjármögnun í
gegnum lækkun eigin fjár. Áætlanir
næsta árs gera enn ráð fyrir tals-
verðri veltuaukningu og að hagnað-
ur verði um 150 milljónir ki'óna eftir
skatta. Miðað við núverandi rekstur
er erfitt að sjá að inni í þeim hagn-
aði verði ekki óreglulegar tekjur, til
dæmis söluhagnaður eigna. Því
bæri að mínu viti að fagna,“ sagði
Heiðar Már.