Morgunblaðið - 24.02.1999, Síða 18

Morgunblaðið - 24.02.1999, Síða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1999 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Ocalan birt landráðaákæra Flóð í Rín og Mósel suðvesturhluta Þýzkalands ollu rigningar þó því að bæði Rín og Reuters Mósel flæddu yfir bakka sína, eins og sést hér á „Deutsches Eck“ við Kobíenz, þar sem fljótin tvö renna saman. Vatnamælinga- menn sögðu að héidist veður kalt, eins og spáð hefur verið næstu daga, mætti búast við því að vatnsliæðin sjatni. Reuter YFIRMAÐUR Interpol, Paul Higdon, og innanríkisráðherra Búrma, Tin Hlaing, takast í hendur við opnunarathöfn 4. alþjóðlegu eiturlyfja- ráðstefnunnar á vegum Interpol í Rangoon í gær. Umdeild eiturlyfiaráðstefna Interpol Tyrkir neita að heimila alþjóðlegt eftirlit Ankara. Reuters. KÚRDALEIÐTOGINN Abdullah Öcalan var í gær, frammi fyrir tyrkneskum dómara, ákærður formlega fyrir landráð og tilraunir til að kljúfa Tyrkland. Öcalan, sem er í varðhaldi á Imrali- fangelsiseyjunni í Marmarahafi, á yfir höfði sér dauðadóm ef hann verður fundinn sekur í réttarhöldum sem líklegt er að verði í aprfl næstkomandi. Hafa tyrknesk stjóm- völd alfarið hafnað beiðni utanríkisráð- hen-a Evrópusam- bandsins (ESB) frá því á mánudag um að al- þjóðlegum eftirlitsaðil- um verði leyfður að- gangur að réttarhöld- unum. I yfirlýsingu Tyrk- landsstjórnar segir að „tillögu ESB um að senda alþjóðlega eftirlitsað- ila [...] er hafnað". Þar segir enn- fremur, að einstakir eftirlitsaðilar sem ekki væru viðurkenndir af dómnum, gætu fylgst með málinu að því tilskildu að dómararnir sam- þykktu það. Hópur 15 tyrkneskra lögmanna mun verja Öcalan í rétt- arhöldunum sem líklega verða haldin á Imrali-eyju. Ekki hefur enn verið tilkynnt um hvenær þau verða. Líkur eru taldar á að málið verði flutt fyrir nokkurs konar her- rétti sem í eiga sæti 3 dómarar og mun einn þeirra verða foringi í tyrkneska hemum. Hámarksrefsing fyrir landráð er dauðadómur í Tyrklandi. Slíkum dómum hefur ekki verið framfylgt í Tyrklandi síðan 1984 og ef Öcalan yrði dæmdur til hengingar, verður löggjafarþing Tyrklands að sam- þykkja þann dóm. Þingkosningar verða í Tyrklandi snemma í vor. Herinn bælir niður mótmæli Tyrkneskar hersveitir hafa fellt 14 liðsmenn úr skæruliðahópi Öcal- ans í suðausturhluta Tyrklands undanfarna daga. Atökin áttu sér stað í Siirt- og Sirnak-héraði en þar hefur verið lýst yfir herlögum og hefur erlent íjölmiðlafólk því Abdullah Öcalan engan aðgang að vettvangi at- burða. Lögregluyfirvöld í Istanbúl handtóku 57 manns í tengslum við sprengjutilræði í borginni. Hafa fylgjendur Öcalans verið sagðir ábyrgir fyrir tilræðunum. Und- anfama daga hafa tyrkneskar herþyrlur dreift áróðursbækling- um yfir Kúrdabyggðir. A þeim eru liðsmenn V erkamannaflokks Kúrdistans (PKK) hvattir til uppgjafar. Hefur þingið lýst því yfir að þeim „uppreisn- armönnum" sem leggi niður vopn, verði veitt viss uppgjöf saka eftir þingkosningamar. Alda mótmælaað- gerða Kúrda í kjölfar handtöku Öcalans í Kenýa í síðustu viku hafa haft eftirköst víðs vegar um Evrópu. I gær hittust innanrík- isráðhemar 11 ESB-ríkja í Bonn í Þýskalandi og ræddu um aðgerðir til að spoma við ofbeldisfullum mótmælum. VATNAVEXTIR héldu í gær áfram í vatnsföllum sem eiga upptök sín í Ölpunum vegna hinnar miklu úrkomu sem steypzt hefur yfir þann hluta Evrópu að undanförnu. Kólnandi veður varð þó til þess að hamla gegn meiri vexti Rínarfljóts. í Eþíópíumenn blása til sóknar Asmara. Reuters. STJÓRNVÖLD í Eritreu sögðu í gær, að Eþíópíuher hefði hafið mikla sókn í Badme-héraði, 400 ferkm svæði, sem bæði ríkin gera tilkall til. Beitir hann að sögn fjöl- mennu fótgönguliði, studdu skrið- drekum, stórskotaliðsvopnum og flugvélum. Atökin milli Eritreu og Eþíópíu hófust 6. febrúar sl. eftir átta mán- aða hlé og hafa staðið með litlum hvíldum síðan. Er barist á þrenn- um vígstöðvum en fyrir sóknina í gær héldu Eþíópíumenn uppi mik- illi stórskotaliðshríð á stöðvar Eritreumanna. Talsmaður Eþíóp- íustjórnar staðfesti í gær, að her- inn hefði blásið til sóknar en mark- miðið með henni er augljóslega að ná Badme-héraði, sem Eritreu- menn lögðu undir sig í maí í fyrra. Enginn sáttahugur Tilraunir til að bera klæði á vopnin hafa engan árangur borið. Eritreustjórn hefur hafnað áætlun Einingarsamtaka Afríkuríkja, sem gerir ráð fyrir, að hún dragi her sinn frá umdeilda svæðinu áður en viðræður hefjist og Eþíópíustjórn beitir flughernum þótt hún hafi fallist á það í júní í fyrra fyrir milli- göngu Bandaríkjastjórnar að gera það ekki. Stjórnvöld í Evrópulöndum gagnrýnd fyrir ráðleysi Láta sér gengislækkun evrunnar vel líka London, Bonn. Daily Telegraph, Reuters. GENGI evrunnar féll mjög gagn- vart dollara og pundi á mánudag og hefur það vakið mikla óánægju meðal fjáífesta og fjármálamanna. Saka þeir fjármálaráðheira G-7- ríkjanna, einkum evrópsku fulltrú- ana, um ráðleysi, jafnt í efnahags- sem gengismálum. Gengisfall evrannar olli því, að stofnanafjárfestar seldu mikið af gjaldmiðlinum en þeir hafa áhyggj- ur af efnahagsþróuninni á evra- svæðinu og ekki síður því „af- skiptaleysi", sem þeim finnst ríkis- stjómir í Evrópu sýna gengisþró- uninni. Fjárfestar töldu, að evran yrði þeim sami bakhjarl og dollar- inn en nú hefur allt annað orðið uppi á teningnum. Fjárfestingar þeirra í evram hafa rýrnað um 7,5% gagnvart dollara og 6,5% gagnvart pundi á sex vikum og eiga líklega eftir að rýma enn meira. EVRÓPA^ Veik evra leysir ekkivandann Paul Meggyesi, hagfræðingur hjá Deutsche Bank í London, sagði í fyrradag að evrópskir stjórnmála- menn hefðu gefið í skyn, að þeir hefðu ekkert á móti því að gengi evrannar lækkaði nokkuð, en ef það gengi of langt myndi það valda veralegum vandræðum. Þá benda aðrir á, að veik evra muni ekki leysa vandann í evrópsku efna- hagslífi, heldur ákveðnar aðgerðir til að auka eftirspum. Frammi- staða evrannar varpaði líka nokkram skugga á þá áætlun bresku stjórnarinnar að taka hana upp að undangenginni þjóðarat- kvæðagreiðslu. Gengislækkun evrannar kom í kjölfar frétta um 0,4% samdrátt í þýsku efnahagslífi á síðasta árs- fjórðungi liðins árs, þann mesta í sex ár, og hins vegar frétta um 1,2% hagvöxt í Bandaríkjunum á sama tíma. Talsmenn þýzku ríkisstjórnar- innar bentu í gær á annað atriði sem stefndi í að veikja evruna. Næðust ekki fljótlega samningar milli ríkisstjórna aðildarlanda ESB um uppstokkun á landbúnaðar- og byggðasjóðakerfi sambandsins sé hætt við að gengi evrannar taki nýtt stökk niður á við. Talsmenn- irnir sögðu Gerhard Schröder kanzlara munu vekja máls á þessu á aukafundi leiðtoga ESB í Bonn á föstudag. Flest vestræn ríki fjarri Bangkok, Rangoon. Reuters. FULLTRUAR Bandaríkjanna og flestra Evrópulandanna mættu ekki á alþjóðlega ráðstefnu um heróínvandann á vegum Interpol, sem hófst í Búrma í gær. Þótti staðsetningin ekki við hæfi þar sem Búrma er talið það ríki sem framleiðir hvað mest af heróíni í heiminum í dag. Ákvörðunin um að sniðganga ráðstefnuna hefur verið gagnrýnd af fulltrúum Sameinuðu þjóðanna, Interpol og ríkisstjórn Búrma þar sem þeir segja alþjóð- lega samvinnu vera forsendu fyrir því að lausn finnist á vandanum. Á ráðstefnunni er fjallað um framleiðslu á heróíni og dreifingu þess m.a. í Asíu, Bandaríkjunum og Evrópu. Fulltráar Bandaríkj- anna og þeirra Evrópuþjóða sem sniðgengu ráðstefnuna sögðust óttast að herstjórnin í Búrma kæmi til með að nýta sér staðsetn- ingu ráðstefnunnar til að hylma yf- ir það hversu lítið hefur verið gert til að koma í veg fyrir eiturlyfja- framleiðslu í landinu. En ríkis- stjóm Búrma hefur verið gagn- íýnd fyrir að sýna eiturlyfjafram- leiðendum linkind auk þess sem hún hefur verið ásökuð um tengsl við eiturlyfjamarkaðinn. Bágt ástand mannréttinda í landinu var einnig ástæða margra fyrir að mæta ekki. Engin lausn Christian Kornevall, fulltrái Lyfjaeftirlitsnefndai- Sameinuðu þjóðanna (UNDCP), sagði að þrátt fyrir að ríkisstjóm Búrma hafí ekki staðið við skuldbindingar um að minnka framleiðslu eiturlyfja í landinu, væri alþjóðleg samvinna forsenda þess að eiturlyfjavandinn yrði leystur. Því væri sniðgangan ekki til að vekja vonir manna um árangur. Innanríkisráðherra Búrma, Tin Hlaing og Paul Higdon, yfirmaður Interpol, tóku í svipaðan streng, en Hlaing sagði ennfremur að í Bandaríkjunum og Bretlandi væra „stærstu heróín- markaðirnir“ og bæri ríkjunum því sérstök skylda til að vinna að lausn vandans í samvinnu við önnur ríki.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.