Morgunblaðið - 24.02.1999, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 24.02.1999, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1999 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Reuters Tony Blair hvetur til markviss undir- búnings EMU-aðildar Bretlands Bretar haldi val- kostum Lundúnum. Reuters. TONY Blair, forsætisráðherra Bret- lands, lýsti því yfir í neðri deild brezka þingsins í gær að Bretar yrðu að hefja fyrir alvöru undirbúning fyi’ir þátttöku í Efnahags- og mynt- bandalagi Evrópu (EMU). Hags- munum þjóðai'innar væri bezt borgið með því að efnahagslífið væri undir það búið að taka upp hinn sameigin- lega Evrópugjaldmiðil með skömm- um fyrirvara, ef ákvörðun yrði tekin um inngöngu landsins í EMU. Blair kynnti í þingræðunni í gær opinbera undii'búningsáætlun stjóm- arinnar f\TÍr EMU-aðild. Hann ít- rekaði þá skoðun sína, að byðu efna- hagsaðstæður upp á það ætti Bret- land að stíga skrefið til fulls og skipta sterlingspundinu út fyrir evruna. Sagði hann að samkvæmt undirbún- ingsáætluninni væri gert ráð fyrir að opnum þessi umskipti gætu komist til fullra framkvæmda á tveimur árum eftir að ákvörðun yrði tekin um aðild Bret- lands. Akvörðunina sjálfa sagði Blair þó ekki stjórnarinnar að taka; hana yrði þjóðin að taka í þjóðaratkvæða- greiðslu. „Það sem ég tilkynni í dag er ekki stefnubreyting, aðeins gírskipting," sagði Blair. „Ef við viljum halda kostinum á [EMUj-þátttöku opnum, verðum við að undirbúa okkur,“ sagði hann. Hann nefndi þó enga dagsetningu sem hann teldi rétt að stefna að í þessu sambandi. Hann nefndi heldur ekkert um hvort stjórnin hygðist stefna að því að tengja gengi pundsins gengi evrunn- ar, sem talið er vera grundvallar- ski-ef í aðlögun brezks efnahags að evru-svæðinu. Jeltsín vottar hermönnum virðingu Rússar enn sakaðir um vopnasölu til Iraks BORÍS Jeltsín, forseti Rúss- lands, og Jevgení Prímakov, for- sætisráðherra, vottuðu föllnum hermönnum virðingu sína við hátíðlega athöfn í gær, og lögðu blómakrans að leiði „óþekkta hermannsins“ í Kreml. 23. febr- úar er árlega haldinn hátíðlegur í Rússlandi til minningar um „þá sem börðust fyrir föðurlandið", en dagnrinn var áður kallaður „Dagur Rauða hersins". Jeltsin bar sig bærilega þrátt fyrir veikindi sín, en þui-fti stuðning Prímakovs er hann Amman, The Daily Telegraph. BRYNVARÐIR vagnar fóru eftir- litsferðir um Bagdað í gær þar sem undanfarna þrjá daga hefur komið til átaka milli öryggislögreglunnar og shíta-múslima. Frést hefur af miklum óeirðum sem raktar eru til morðsins á erkiklerknum Ayatollah Mohammed Sadiq al-Sadr, trúar- leiðtoga Shíta-múslima, og sonum hans sl. föstudag. Atökin brutust út á laugardag þegar fréttirnar um morðin bárust til Bagdað og sást til mikils viðbún- aðar öryggislögreglu á staðnum. Erlendum fréttamönnum var ekki hleypt inn á svæðið. Iraska upplýs- ingaráðuneytið sagði í gær að allt væri með kyrrum kjönim en tajs- menn shíta-múslima í Teheran í Ir- an sögðust giska á að 300 hefðu fall- gekk upp þrepin að leiðinu. Vegna veikinda Jeltsíns hefur dagleg stjórn verið í höndum Prímakovs. Fréttaskýrendur telja að með því að koma fram opinberlega sé Jeltsín að reyna að treysta völd sín og gera lítið úr veikind- um sínum og slæmri stöðu efna- hagsmála í landinu. Jeltsín var viðstaddur jarðarför Husseins Jórdaniukonungs fyrir skemmstu, en þurfti þá að halda fljótlega heim á leið sökum heilsuskorts. ið í Bagdað og 18 í borginni Nasiri- ya. Andstæðingar íraksstjórnar telja að Sadiq al-Sadr og synir hans hafi verið myrtir af stjórnvöldum til að fyrirbyggja að messur erkiklerks- ins, sem jafnan drógu að sér mikinn mannfjölda, kyntu undir ólgu í land- inu. Morðið á klerknum er hið síð- asta 1 röð dularfullra andláta trúar- leiðtoga shíta-múslima í Irak en þarlend stjórnvöld eru talin hafa það að stefnu að halda ólgu niðri í suðurhluta landsins, þar sem shíta- múslimar eru fjölmennastir. Sjónvarpsstöðvar í Irak reyndu að gera lítið úr átökunum með því að sýna venjulegar götumyndir af þeim hverfum þar sem átökin voru sögð hafa verið mest. Bagdað, London. Reuters, Daily Telegraph. EINN íraskur borgari særðist í árás bandarískra og breskra her- flugvéla á skotmörk í norðurhluta Iraks í gær, að sögn þarlendra stjómvalda. Talsmenn Bandaríkja- stjórnar sögðu í gærdag að banda- rískar oiTustuþotur hefðu varpað 900 kg þungum hitastýrðum sprengjum á stjórnstöðvar íraks- hers í norðurhluta landsins. Arásin í gær er önnur árásin í þessari viku. í frétt Daily Telegraph í gær er sagt frá nýbirtri bandarískri skýrslu sem styður fyrri fréttir blaðsins um að Rússar hafi að und- anfórnu útvegað Irökum vopn í trássi við ályktanir öryggisráðs Sa- meinuðu þjóðanna. Skýrslan er sögð styðja fyrri frétt blaðsins um að rússneskir stjórnarerindrekar hafi samið við Tareg Aziz, aðstoð- arforsætisráðherra Iraks, um sölu á vopnum og vopnabúnaði fyrir um 7 milljarða kiúna, skömmu áður en loftárásir Bandaríkjamanna og Breta hófust um miðjan desember sl. Rússar hafa harðneitað öllum slíkum fullyrðingum. Hluti vopnabúnaðarins talinn vera í írak í skýrslunni er því haldið fram að 4 rússneskir vopnaframleiðend- ur hafi nýlega samið við stjórn Saddams Husseins um sölu á fiug- skeytum, land-eldflaugum og stýri- búnaði í orrustuþotur. í öllum til- fellum er um að ræða búnað sem Loftárásum bandamanna haldið áfram Irakar gætu notað við að skjóta niður bandarískar og breskar þot- ur á eftirlitsflugi yfir flugbanns- svæðinu í norður- og suðurhluta Iraks. Er talið að sumu af búnaði þessum hafi þegar verið komið fyr- ir í Irak. Er talið að íússnesku fyr- irtækin Techmashimport, Vnesh- technika, Mashinoimportvest og Ramenskoe, séu framleiðendurnir sem um ræðir. Asakanirnar eru ekki taldar líklegar til að bæta samskipti Bandaríkjastjómar og Rússa hvað málefni Iraks varðar. Sérfræðingar staðfesta aðstoð Rússa í síðustu viku greindi Daily Tel- egraph frá fundi Tareq Aziz og háttsettra rússneskra embættis- manna þar sem gengið hefði verið frá samningi þess efnis að Rússar aðstoði Iraka við að stórbæta loft- varnir sínar. Olli fréttin hörðum mótmælum rússneskra stjómvalda sem sögðust standa fullkomlega við allar skuldbindingar sínar um við- skiptabann á írak og að þau hefðu ekki selt írökum vopnabúnað síðan í september 1990. Nú hafa rúss- neskir hermálasérfræðingar stað- fest frétt blaðsins og benda meðal annars á að orrustuvélafloti Iraka, sem samanstendur af rússneskum MiG 23, 25 og 29 orrustuþotum, sé í ágætu ástandi. Slíkt sé illmögu- legt án þess að vélarnar væm í reglulegu viðhaldi, sem aftur kalli á rússneska varahluti og aðstoð rúss- neskra tæknimanna. Hafa sérfræðingarnir rússnesku einnig varpað ljósi á það hvernig viðskiptin hafi farið framhjá ströngu eftirliti Sameinuðu þjóð- anna. Utflutningur og millifærslur era í höndum banka og pappírsfyr- irtækja, staðsettra í Tyrklandi, Jórdaníu og á Balkanskaga. Rúss- neskir kaupsýslumenn era einnig taldir leita fanga í vopnabúram fyi-rverandi Sovétlýðvelda og Aust- ur-Evrópuríkja. Ríkja sem halda enn góðum tengslum við stjórnvöld í Moskvu. Er greint frá tíðum ferð- um lússneskra og íraskra samn- inganefnda til Búlgaríu og Tyrk- lands - allt frá um 1994, þegar Rússar fyi’st viðraðu hugmyndir sínar um tilslökun viðskiptabanns- ins á Irak. Ahugi íraka á samstai’fi við Rússa er ekki talinn vera einskorð- aður við hefðbundinn vopnabúnað. Því til stuðnings er bent á að Ah- med Murtada Ahmed Kamil, nú- verandi ráðherra samgönguamála í Irak, og fyrrverandi yfirmaður þróunarsviðs lífefnavopna innan íraska hersins, hafi verið einn þeirra sem fylgdu Aziz í samninga- fórinni til Moskvu í desember síðast liðnum. 300 sagðir fallnir í mótmælum í Bagdað Sá sem stal „Ópinu“ handsamaður á ný Ósló. Kcutcrs. NORSKA lögreglan hafði á mánu- dag á nýjan leik hendur í hári mannsins sem stal „Ópinu“, meist- araverki norska málarans Edvards Munchs, en hann hafði sloppið úr höndum laganna varða fyrir tólf dög- um. Var maðurinn, Paal Enger, grip- inn glóðvolgur á lestarstöðinni í Moss, suður af Ósló, en hann var á leiðinni til Kaupmannahafnar. Hann var í dulargervi, með ljósa hárkollu og sólgleraugu, en tókst samt ekki að villa lögreglunni sýn enda þótti mörgum grunsamlegt að maður gengi með sólgleraugu um miðja nótt í febrúar. „Ðulargervi hans var í raun alveg fáránlegt," sagði Jon Granrud, yfir- lögregluþjónn á lestarstöðinni í Moss. Enger hafði reyndar lofað því í sjón- varpsviðtali að hann myndi gefa sig fram við yfirvöld en þó ekki fyrr en eftir „langt íri'“. Hann hefur tvisvai’ sinnum áður strokið úr fangelsi. „Ópinu“ yar rænt úr Þjóðarlista- safninu í Ósló árið 1994 en fannst aftur þremur mánuðum síðar með aðstoð bresku lögreglunnar. Enger hefur haldið fram sakleysi sínu en norskir dómstólar töldu sannað að hann ætti aðild að ráninu. Var Enger dæmdur til sex og hálfs árs fangels- isvistar og á enn eftir að afplána fimmtán mánuði. Reuters ÞJÓFURINN Paal Enger og „Ópið“, meistaraverk Munchs. Ný hnatt- flugstilraun BRETARNIR Andy Elson og Colin Prescott, sem hófu fyrir viku nýja tilraun til að verða fyrstu mennirnir til að fljúga viðstöðulaust umhverfis jörð- ina, era nú staddir yfir Mið- Afríku og stefna áleiðis aust- ur. I gær tókst þeim að kom- ast aftur í háloftavindstreng sem bar þá aftur hraðar áfram í rétta átt, en þeir höfðu áður látið sig síga niður úr slíkum vindstreng þar sem hann var farinn að bera þá af leið. Tvímenningarnir hyggjast vera komnir yfir Indland á föstudagsmorgun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.