Morgunblaðið - 24.02.1999, Side 22

Morgunblaðið - 24.02.1999, Side 22
22 MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1999 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Hver seg- ir að ég sé ekki þú? __________MYJVPLIST_________________ Listasafn íslands LJÓSMYNDIR INEZ VAN LAMSWEERDE Til 14. mars. Opið þriðjudaga til sunnudaga frá kl. 12-18. Aðgangur kr. 300. Sýningarskrá kr. 500. INEZ van Lamsweerde kom, sá og sigraði hinn vestræna listheim árið 1992, þegar hún hlaut Ljós- myndaverðlaun hollenska ríkisins og Evrópuverð- laun Kodak. Arið 1995 var Jean Clair búinn að veiða hana á stórsýningu sína „Identitá e Alteritá“ - Samsemd og frábrigði - í Palazzo Grassi í Feneyj- um, en þá var hún búin að hasla sér völl beggja vegna Atlantsála. Stórar cibachrome-ljósmyndir hennar þóttu væg- ast sagt sláandi vegna myndefnis sem sýndi með kaldhömruðum og fullkomlega hlutlægum hætti þau frávik sem fínna má í mannlífínu. Mönnum varð hugsað til bandaríska ljósmyndarans Diane Arbus, sem svipti sig lífí í byrjun 8. áratugarins, eftir að hafa gert sér með undarlegum næmleik mat úr ýmsum utangarðsfyi’irbærum. Van Lamsweerde er þó frábrugðin forvera sínum með því að myndir hennar eru fráleitt eins augljós- ar. Hún er öðru fremur að vekja athygli okkar á þeim sannindum að allir eru frábrugðnir; að það sem einum finnst ofur „eðlilegt" er í augum náung- ans frávik af versta toga. Anorexíufyrirsætur hennar og tildurrófusmábörn lýstu meira en náttúrulegum frávikum. Olíkt ásköp- uðum framandleik - vanþroska í vexti eða sinni - voru hér komin fómarlömb tísku- og auglýsingaiðn- aðarins með öllum sínum áunna afbrigðileik; lifandi dæmi um gervigildi og hundarök sýndarmennsk- unnar. En Inez van Lamsweerde er ekki að prédika. Slíkt væri eins og að eltast við skottið á sér því að hvergi er til menning fullkomlega laus við gervi- gildi. Hvarvetna stöndum við frammi fyrir Jerík- ómúrum sýndarmennsku og tilgerðar ef við brýnum sjónina nógu vel. En ekkert er eins slappt og það að fárast yfír flísinni í auga náungans án þess að gera sér grillu út af bjálkanum í eigin tóftum. Því virðist van Lamsweerde nú stefna í átt til ákveðnari og dýpri sálarspeglunar þar sem „Eg“ skoða mig í „Þér“. Hún lætur fyrirsæturnar hírast í of litlu fleti með höfuðið reigt fram svo það stækkai- og bólgnar meðan kroppurinn skreppur saman. Með slíku móti og ögn af brúnleitum farða í framan dregur hún fram sálrænar víddir þess fólks sem hún þekkir reyndar afar vel. Móður sína í einni myndinni fékk hún til að hugsa um ömmu sína, móður hennar, meðan hún sjálf tók myndina og sá sig speglast nær ævikvöldi í harð- neskjulegu andliti þessa nánasta ættingja. Ef til vill er það einmitt þessi tilraunakennda áræðni frammi fyrir viðfangsefninu sem gerir verk van Lamsweer- de svo spennandi sem raun ber vitni. Halldór Björn Runólfsson Páttur um Halldór Laxness í franska sjónvarpinu ÞÁTTUR um líf og störf Hall- dórs Laxness verður sýndur í franska ríkissjónvarpinu, rás 8, í kvöld. Þátturinn er liður í þáttaröð um 250 merkustu rit- höfunda 20. aldarinnar, að mati aðstandenda raðarinnar. Þáttur- inn er 45 mínútur að lengd. Beatrice Korc, höfundur þáttarins um Halldór, segir hugmyndina hafa kviknað þegar hún var stödd í sumarfríi á íslandi 1995. „Með í för var ein bóka Halldórs, sem mér hafði verið bent á að lesa, og ég veit eig- inlega ekki hvort heillaði mig meira bókin, sem var frá- bær, eða landið. Mér fannst því tilvalið að gera þátt um Halldór enda er hann svo til óþekktur í Frakklandi. Ekki minnkaði áhuginn þegar ég fór að lesa fleiri bækur eftir skáldið - allt sem ég komst yfír. Það opnað- ist fyrir mér nýr heimur. í dag er Halldór án efa einn af mín- um uppálialds rithöfundum.“ Korc bar hugmyndina undir aðstandendur þáttaraðarinnar og fylgdi henni eftir með ítar- legri greinargerð. Reyndist málið auðsótt. Korc sótti ísland tvívegis heim á liðnu ári til að safna heimildum. Segir hún einn mann, öðrum fremur, hafa greitt götu sína, Halldór Guð- mundsson, útgáfustjóra hjá Máli og menningu. „Hann hjálpaði mér ekki aðeins við að safna heimildum heldur einnig við að skilja verk Halldórs Laxness og menn- ingu þjóðarinnar." Korc styðst við margvíslegt efni í þættinum. Rætt er við fólk um skáldið og verk þess, meðal annars Halldór Guðmundsson og Steinunni Sigurðar- dóttur rithöfund, sýnd stutt brot úr sjónvarpsviðtölum við Halldór sjálfan og lesið úr verkum hans, svo fátt eitt sé nefnt. Þá eru fjöl- margar gamlar myndir sýndar í þættinum, einkum úr safni Osvalds Knudsens. „Það er víða komið við,“ segir Korc, „en markmið- ið er að gefa fólki einhverja tilfínningu fyrir Islandi og veita því innsýn í verk Hall- dórs, einkum Heimsljós, en það er ein fárra bóka hans sem þýddar hafa verið á frönsku. Sjálfstætt fólk er ekki einu sinni til í franskri þýðingu. Vonandi verður þessi þáttur því til þess að ýta undir frek- ari þýðingar á verkum þessa mikla höfundar hér í Frakk- landi.“ Sýning þáttarins hefst kl. 23.05 að staðartíma. Halldór Laxness Gulrótarhaus kemst í álnir KVIKMYJVDIR Stjörnuhiú STJÓRNARFORMAÐURINN „THE CHAIRMAN OF THE BOARD" ★ Leikstjóri: Alex Zamm. Handrit: Turi Meyer og A1 Septien. Aðalhlutverk: Scott Thompson, Larry Miller, Court- ney Thorne Smith, Raquel Welch, Jack Warden. 1998. ENN koma heimskra manna gamanmyndir í bíóin í þetta sinn furðuverkið Stjómarformaðurinn eða „The Chainnan of the Board“ um brimbrettakappa, sem er álíka greindur og brettið hans en verður fyrir undarleg atvik stjórnarfor- maður og eigandi stórfyrirtækis. Sá sem fer með aðalhlutverkið er eldrauðhærður og kallar sig Car- rot Top eða Gulrótarhaus. Erfitt er að fínna hentugra orð yfir leik- araleysu þessa. Myndin fjallar um Gulrótar- Fréttir á Netinu S' mbl.is _/U-LTAf= eiTTHXTA-a A/ÝTT hausinn í hlutverki uppfinninga- manns gersamlega vonlausra heimilistækja. Hin heimskulega hamagangsfyndni myndarinnar snýst mikið til um hans frjóa en hvimleiða ímyndunarafl. Tilraunir hans til þess að haga sér eins og Jim Carrey í sínum heimsku- myndum eni fremur aumingjaleg- ar og þótt telja megi marga brandara í myndinni eru þeir al- flestir vondir. Einstaka hlátur er að hafa af keppinauti Gulrótarhaussins hjá stórfyrirtækinu en hann er sá eini í myndinni sem heíúr raunveralegt skopskyn og er skemmtilega kvik- indislegur. Hann stelur senunni en það er auðvelt þegar Gulrótar- hausinn á í hlut. Arnaldur Indriðason Frönsk kvikmynd KVIKMYNDIN „On connait la chanson" eftir Alan Resnais verður sýnd í Kvikmyndaklúbbi Alliance Frangaise, Austurstræti 3, miðviku- daginn 24. febrúar kl. 21. Myndin hlaut sjö Césarverðlaun, þau merk- ustu innan franskrar kvikmynda- gerðar. Með helstu hlutverk fara Lambert Wilson, André Dussollier, Pierre Arditi, Sabine Azéma og Jane Birkin. Aðgangur er ókeypis. Myndin er ótextuð. vill Kári sjá? Hvað MYIYDLIST G e r ð n b e r g MÁLVERK ÝMSIR Sýningin stendur til 28. febrúar og er opin alla daga frá kl. 9-21. Fös. 9-19. 12-16 um helgar. í GERÐUBERGI hefur fólk verið duglegt við að brydda upp á nýjungum í fjöragu listastarfí. Þar hafa til dæmis verið haldin undan- farin ár Sjónþing sem miða að því að kynna rækilega einn listamann í einu með sýningum og málþingi þar sem listamaðurinn gerir grein íyrir ævi sinni og starfí í samræð- um við kunnuga menn og áhorf- endur, auk þess sem gefín hafa verið út fróðleg hefti að Sjónþing- unum loknum. Nýjasta uppátækið í sýningar- haldi í Gerðubergi er röð mynd- listarsýninga sem allar eiga að bera yfírskriftina ,Þetta vil ég sjá“. Hugmyndin hér er að fá mann utan úr bæ - og þá einhvern sem þekktur er af öðru en afskipt- um af myndlist - til að velja sam- an myndir á sýningu. Kári Stef- ánsson, forstjóri íslenskrar erfða- greiningar, ríður á vaðið og velur verk á fyrstu sýninguna. Á sýningu Kára er að finna verk eftir aðeins þrjá listamenn, þá Kristján Davíðsson (f. 1917), Magnús Kjartansson (f. 1949) og Sigtrygg Bjama Baldvinsson (f. 1966). Það má segja vel hugsað að takamarka úivalið við þrjá því sýningarpláss í Gerðubergi er af skornum skammti og nokkuð erfítt, jafnvel þegai’ allt tiltækt rými er nýtt eins og hér er gert. Með þessu móti fæst allgóð mynd af því sem hver listamaður er að fara með verkum sínum og sýn- ingin verður furðulega heildstæð jafnvel þótt hún teygi sig um ganga og sali. Val þessara þriggja listamanna gefur líka góða yfirsýn yfír málaralist síðustu fímmtíu ára, þótt auðviðað sé stiklað á stóru, og era þeir allir verðugir fulltráar sinnar kynslóðar. Magnús Kjartansson hefur reyndar ekki verið virkur þátttak- andi í sýningarhaldi hin alh’a síð- ustu ár og nýjustu myndimar sem hann sýnir hér era frá árinu 1994. Þær voru þá sýndar á Kjarvals- stöðum og vöktu mikla athygli, bæði gagnrýnenda og almennings. Myndimar hafa síðan farið víða og alls staðar verið vel tekið. í hvert skipti sem þessar myndir eru sýndar minnir það á hve mikill missir það væri íyrir íslenskt lista- líf ef Magnús drægi sig alveg í hlé. Segja má að verk Kristjáns Da- víðssonar myndi uppistöðuvefínn í þessari sýningu og er það ekki óeðlilegt þar sem hann á að baki fímmtíu ára feril svo af mörgu er að taka. Það skemmtilegasta við sýninguna - að framlagi hinna ólöstuðu - er einmitt að hér gefst tækifæri til að skoða á einum stað myndir frá flestum helstu tímabil- um í listsköpun Kristjáns. Þama má sjá verk frá 1949 þegar Krist- ján málaði í Art Brut-stíl, eins konar naíf eða prímitífar myndir, myndir málaðar með lakki á pappír í svokölluðum slettu-stíl sem Pollock átti frumkvæði að og vakti athygli listamanna á fslandi á síðustu árum sjötta áratugarins, akrílverk á pappír frá 1972 sem ber keim af villta máverkinu frá sjöunda áratugnum, og svo mætti lengi telja. Stæm verkin á sýn- ingunni eru reyndar flest nýleg en mikið er af smærri myndum sem sýna glögglega feril og þroska- sögu Kristjáns. Sýningin minnir þannig á að löngu er orðið tíma- bært að stóru söfnin hugi að yfír- litssýningu á verkum hans með tilheyrandi skráningu og útgáfu. Myndir Sigti'yggs B. Baldvins- sonar geta við fyrstu sýn virst stinga nokkuð í stúf á sýningunni, enda skilja mörg ár á milli hans og Magnúsar, hvað þá hans og Krist- jáns þar sem aldursmunurinn er tæp hálf öld. Sigtryggur nam við Myndlista- og handíðaskóla ís- lands og hélt síðan til framhalds- náms í Strasbourg. í myndum hans má sjá stílbrögð sem njóta hylli í Frakklandi um þessar mundir, en Kári lýsir þeim nokkuð vel í sýningarskrá þegar hann seg- ir Sigtrygg „bráa bilið milli þeirrar fegurðar sem ég er á höttum eftir í myndlist og konseptlistar, sem mér þykir yfírleitt fremur leiði- gjöm“. Falleg áferð og hrein fonn kallast á við konseptkennda út- víkkun á málverkinu sem stundum nær að sameina húmor og ádeilu eins og í myndinni „Mýs yfírgefa sökkvandi málverk“. Tilraunin í Gerðubergi hefur heppnast ágætlega að þessu sinni og það verður fróðlegt að fylgjast með framhaldi þessarar sýningar- aðar. Jón Proppé

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.