Morgunblaðið - 24.02.1999, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1999 25
STARINN
p/)x)
Suzuki Vitara jepparnir
voru þeir vinsælustu og
mest keyptu í Evrópu árið
TÓXIJST
Geisladiskar
NIKOSSKALKOTTAS
Nikos Skalkottas: Maígaldur - hljóm-
sveitarsvíta, Konsert fyrir kontra-
bassa og hljómsveit, Þrír grískir
dansar. Einsöngvari: Þóra Einars-
dóttir (sópran). Einleikari: Vassilis
Papavassiliou (kontrabassi). Hljóm-
sveitarstjóri: Nikos Christodouiou.
Hljómsveit: Sinfóníuhljómsveit ís-
lands. Útgáfa: BIS-CD-954. Lengd:
61’39. Verð: 1.499 kr.
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ís-
lands er farin að láta að sér kveða svo
um munar.
I haust kom út fyrsta geislaplatan í
röð hljóðritana á sinfóníum og öðrum
hljómsveitarverkum Sibeliusar fyrir
Naxos-útgáfuna. Hljómsveitin hefur
þegar lokið upptökuvinnunni og við
biðum með óþreyju eftir útgáfu seinni
diskanna. Aður hefur SI m.a. hljóðrit-
að fyrir Chandos 9 diska á verkum
Madetoja, Rachmaninoffs, Alfvéns,
honum er fólgin, nam ríflega þriðj-
ungi af allri frumorku sem til ráð-
stöfunar var á íslandi árið 1996 eða
36,7%. En þá er ekki nema hálf
sagan sögð. Aætlað er að aðeins sé
búið að virkja um það bil einn
hundraðasta hluta af nýtanlegri
jarðhitaorku í landinu.
Jarðhitinn er að langmestu leyti
nýttur til húshitunar eða að þrem-
ur fjórðu hlutum. Fjárhagslegur
ávinningur af nýtingu hans er því
ómældur auk þess sem honum
fylgir minni mengun en ella væri
ef notað væri annað eldsneyti.
Reiknað hefur verið út að á árun-
um 1991-1995 hefði upphæðin á
hitareikningi landsmanna numið
samtals 13 milljörðum króna að
meðaltali á ári ef öll hús hefðu
verið kynt með olíu. Sala á heitu
vatni var að meðaltali hálfur sjötti
milljarður árlega á sama tímabili.
Mismunurinn, um 7,5 milljarðar
króna, er þá sú upphæð sem spar-
ast hefur á hverju einasta ári þessi
fimm ár eða um 30 þúsund krónur
á hvert mannsbarn í landinu ár-
lega. Lætur nærri að sá sparnaður
samanlagður jafngildi útflutnings-
verðmæti botnfisksaflans árið
1994 ... Ef olía væri notuð til upp-
hitunar í Reykjavík og nágrenni í
stað heita vatnsins væri mengun
af völdum koltvíildis álíka mikil og
frá þremur álverum eins og í
Straumsvík.“
Auk aðfaraorða ráðherra, rit-
stjóra og höfundar skiptist bók
þessi í XVI kafla. Fyrst er gerð
grein fyrir jarðhita almennt. Þá er
kafli sem ber heitið Hagnýting
jarðhitans í þúsund ár. Er í þeim
kafla á mörgu gripið eins og að lík-
um lætur. Kafli er um brenni-
steinsnám og saltverkstilraunir.
Stuttur kafli fjallar um híbýlahætti
og húshitun. I fjórða kafla er getið
brautryðjenda og verka þeirra, s.s.
Stefáns B. Jónssonar, Erlendar á
Sturlureykjum og Sigurjóns á Ala-
fossi. Allir fundu þeir leiðir til að
nota hverahita. í VII. kafla er þró-
unin orðin meiri. Þá koma til sög-
unnar fyrstu gróðurhúsin, sápu-
gerð, fiskþurrkun, ostagerð,
mjólkurbú við jarðhita, þang-
þurrkun og ullarþvottur, heilsu-
hæli á heitum stöðum og farið er
að hita upg fyrstu húsin með
hveravatni. I áttunda og níunda
kafla víkur sögunni til Reykjavík-
ur. Þar segir frá Laugaveitu og
Reykjaveitu og er það mikil og
merkileg saga. í tíunda kafla er
greint frá fyrstu hitaveitum utan
Reykjavíkur, þ.e. í Ólafsfirði,
Hveragerði, Sauðárkróki og hita-
veitu KA á Selfossi. Síðan er kafli
sem heitir Hitaveita Reykjavíkur
1945-1971. Kafli er um virkjun há-
hitasvæða. Langur kafli er um
hitaveitur utan Reykjavíkur,
sautján alls, og um félagssamtök
hitaveitna. Þá víkur sögunni að
jarðhita og iðnaði. I bókarlok er
útdráttur á ensku. Tilvísanaskrá
og heimildaskrá er geysilöng.
Skrár era yfir ljósmyndir, en af
þeim er mikill fjöldi, skýringar-
myndir og töflur og að lokum er
nafnaskrá.
Að mínu viti er þetta með merk-
ari fræðibókum sem ég hef lengi
lesið. Lítið geri ég úr því þó að ég
hafi rekist á stöku prentvillur og
eitthvað sé um ónákvæmni í stað-
arheitum. I heild sinni er prýðilega
frá þessari bók gengið, texti vand-
aður og skýi’ingarmyndir margar
með hinum mestu ágætum. Bókán
hlýtur að teljast mikill fengur öll-
um sem vilja kynna sér þetta mikil-
væga efnissvið.
Sigurjón Björnsson
Ötroðnar slóðir
Klaamis, Sibeliusar, Griegs, Svend-
sens, Páls Isólfssonar, Arna Björns-
sonar, Karls 0 Runólfssonar og Jóns
Leifs. BlS-útgáfan sænska hefur
einnig gefíð út tvo diska með hljóðrit-
unum á verkum Jóns Leifs og í síð-
ustu viku kom út plata á vegum sömu
útgáfu þar sem heyra má í fyrsta sinn
á geislaplötu þrjú verk gríska tón-
skáldsins Nikos Skalkottas. Fram-
hald verður á hljóðritunum á verkum
beggja þessara tónskálda á vegum
Sinfóníuhljómsveitarinnar og BIS.
Undirritaður þekkti lítið til verka
Skalkottas en það verður að segjast
eins og er að þessi tónlist kemur veru-
lega á óvart og venst geysilega vel.
En fyrst nokkur orð um tónskáldið
Skalkottas sem margir hafa vafalaust
heyrt um en fæstir heyrt nokkuð eft-
ir. Asamt þeim Xennakis og
Theodorakis mun Skalkottas teljast
eitt höfuðtónskálda Grikkja á þessari
öld. Hann sýndi snemma óvenju-
mikla tónlistarhæfileika. Hann lauk
námi í fiðluieik við Tónlistarháskól-
ann í Aþenu 16 ára og stundaði siðan
framhaldsnám í Berlín. Hann fór
hins vegar ekki inn á braut einleikar-
ans heldur sneri sér að tónsmíðum
sem hann nam m.a. hjá Arnold
Schönberg. Hann sneri heim til
Aþenu 1933 þar sem hann svo starf-
aði sem fiðluleikari í ýmsum sinfóníu-
hljómsveitum auk þess að vera stór-
virkur í tónsmíðunum - samdi alls
um 110 tónverk af öllum hugsanleg-
um gerðum.
í tónsmíðum sínum var Skalkottas
einfari og honum mætti gjarnan
sinnuleysi og hlaut hann sinn skerf af
óvæginni gagnrýni um ævina.
Nýstárlegt tónmál hans var gagn-
rýnt harðlega og ef hann hefði ekki
samið Grísku dansana 36 væri hann
sjálfsagt öllum gleymdur. Skalkottas
notaðist gjarnan við þjóðlegan grísk-
an efnivið í verkum sínum, jafnt þeim
sem byggðust á raðtækni, tónteg-
undaleysi og þeim sem voru tónteg-
undabundin. Stundum blandaði hann
saman þessum ólíku stflum og innan
sama tónverks sveiflast hann hik-
laust á milli stfltegunda, sem má telj-
ast mjög óvenjulegt.
Þannig er t.d. um Maí-galdur sem
er meginverkið á þessum nýja geisla-
diski SÍ. Til dæmis er hinn mjög svo
rytmíski og glæsilegi Alfadans (nr. 3)
saminn í tóntegundaleysi og minnir
tónmálið um margt á tónlist nýklass-
ísku tónskáldanna, svo sem Igors
Stravinskys. í 5.-8. kafla svítunnar
er tónlistin þjóðleg og tóntegunda-
bundin og virðist að sumu leyti skyld
tónlist Rúmenans Enescus. Aðrir
kaflar eru byggðir á raðtækni - oft-
ast mjög rytmískri. Þetta er stór-
glæsilegt verk, ákaflega vel leikið af
SI og vandasamt einsöngshlutverk
Þóru Einarsdóttur í Söng Argyro
(nr. 5) og Þjóðvísu (nr. 7) mjög fal-
lega sungið.
Annars er það Kontrabassakonsert-
inn sem eiginlega „stelur senunni”.
Það er ekki hlaupið að því að semja
konsert íyrir einleiksbassa og stóra
hljómsveit. En það hefur Skalkottas
svo sannarlega tekist: verkið er sér-
lega vel samið og lokakaflinn er sann-
ast sagna „algjört dúndur" - þar guð-
ar Stravinsky einnig svolítið á glugg-
ann. Tæknimenn hefðu reyndar gjam-
an mátt lyfta kontrabassanum aðeins
framar í hljóðmyndina svo að hreint
óaðfinnanlegur hljóðfæi-aleikur Vassil-
is Papavassiliou fengi notið sin til
fullnustu.
Diskinum lýkur svo á þremur
Grískum dönsum fyrir strengjasveit,
gullfallegum og velhljómandi tón-
smíðum. Aftm’ dettur mér Enescu í
hug.
Að vanda er upptaka BIS í hæsta
gæðaflokki - þrátt fyrir ofangreindar
aðfinnslur. Tónmeistara RÚV, Vig-
fúsi Ingvarssyni, hefur, ásamt Steph-
an Reh, tekist að beisla hinn mikla
enduróm Hallgrímskirkju. Arangur-
inn er hljómmikil og hlý hljóðritun.
Ég vil hvetja alla tónnstarannend-
ur til að eignast þennan nýja geisla-
disk og styðja þannig við bakið á
metnaðarfullri útgáfustarfsemi SÍ. í
leiðinni geta menn svo kynnst ákaf-
lega áhugaverðu tónskáldi sem hafði
greinilega margt að segja en fékk
sjaldnast að koma þvi á framfæri í lif-
anda lífi.
Valdemar Pálsson
SUZUKI BÍLAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
Heimasíða: www.suzukibilar.is
Grand Vitara 2,0L 2.179.000 kr.
Grand Vitara
Exclusive 2,5L, V6 2.589.000 kr.
Vitara JLXSE, Sd 1.830.000 kr.
Vitara Diesel Sd 2.180.000 kr.
$ SUZUKI
-##—-----