Morgunblaðið - 24.02.1999, Page 26
26 MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
NÝSKÖPUN ’99
Samkeppnin um gerð viðskiptaáætlana
Hugarfóst-
ur á hug-
myndastigi
Síðasta námskeiðið af þremur sem haldin
voru í tengslum við samkeppnina Ný-
sköpun ‘99 um gerð viðskiptaáætlana fór
fram miðvikudagskvöldið 17. febrúar síð-
astliðinn. Námskeiðin voru haldin fyrir
þátttakendur í samkeppninni, en mun fleiri
skráðu sig til keppninnar en aðstandendur
höfðu þorað að vona. A námskeiðinu voru
Morgunblaðið/Golli
PÁLL Kr. Pálsson svarar fyrirspurnum þátttakenda í Nýsköpun ‘99.
þátttakendur í Nýsköpun ‘99 settir inn í
ýmis atriði varðandi gerð viðskiptaáætlun-
arinnar, en nú hafa þátttakendur í sam-
keppninni frest til 25. mars til að skila inn
viðskiptaáætlun sinni. Sverrir Sveinn
Sigurðarson var á staðnum og hitti
nokkra leiðbeinendur og þátttakendur
að máli í lok námskeiðsins.
TILGANGUR samkeppn-
innar Nýsköpun ‘99 er sá
að hvetja frumkvöðla sem
hyggjast hasla sér völl í
rekstri með vöru eða þjónustu til að
setja fram vel unna viðskiptaáætlun
og veita væntanlegum frumkvöðlum
kennslu í hvernig best sé að standa
að gerð slíkrar áætlunar.
Það er von aðstandenda sam-
keppninnar að framtak þetta megni
að hvetja menn og konur til dáða,
sem gengið hafa með áhugaverðar
hugmyndir eða jafnvel áform um at-
vinnustarfsemi í kollinum, en hugar-
fóstrin ekki enn náð að komast á
legg. Aðstandendur keppninnar
vilja einmitt að hugmyndir sem þá
gi-unar að liggi víða faldar komist
upp úr skúffunum og í raunhæfa úr-
vinnslu.
Þeir telja að vandlega unnin við-
skiptaáætlun sé fyrsta skrefíð til að
gera alvöru úr hlutunum, og vonandi
að stofna til arðbærra fyrirtækja um
nýjar hugmyndir í íslensku atvinnu-
lífi.
Óljóst er með öllu hverjh- þátttak-
enda í samkeppninni munu á endan-
um stofnsetja og byggja upp blóm-
leg fyrirtæki. En reynslan sýnir að
mjór getur verið mikils vísir, og sú
aðstoð og leiðbeining sem þessir
væntanlegu frumkvöðlar í íslensku
atvinnulífi fá mun án efa skipta
miklu.
Keppnin Nýsköpun ‘99 er haldin
af Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins,
Morgunblaðinu, Viðskiptaháskólan-
um í Reykjavík og Endurskoðunar-
og ráðgjafarfyrirtækinu KPMG.
Kennsla fór fram í húsnæði Við-
skiptaháskólans _ í Reykjavík og
Verslunarskóla Islands í Reykjavík.
Einnig fengu atvinnuráðgjafar á ell-
efu stöðum á landsbyggðinni sendar
myndbandsupptökur af fyrirlestrun-
um, þar sem notkun fjarfundatækni
gekk ekki sem skyldi meðan á nám-
skeiðinu stóð.
Blaðamaður hitti fyrst að máli þá
Jón Garðar Hreiðarsson og Ingva
Þór Elliðason. Þeir eru ráðgjafar
hjá KPMG og höfðu fyrr um kvöldið
INGVI Þór Elliðason og Jón Garðar Hreiðarsson.
frætt þátttakendur í samkeppninni
um gerð viðskiptaáætlunar í tveim-
ur nánast fullum fyrirlestrasölum í
húsum Viðskiptaháskólans og Versl-
unarskólans.
-Fannst ykkur þið heyra í fyrir-
lestrunum að margir hefðu álitlegar
viðskiptahugmyndir?
JGH: Ég kalíaði nú svolítið eftir því
hverjir ætluðu bæði að skila áætlun-
um og hverjir hefðu hugmyndir að
rekstri. Það voru flestir með hug-
myndir og flestir byijaðir að vinna
áætlunina áðm- en þeir komu hingað.
Ég kallaði líka eftir hvort einhver
Ellert B. Schram
forseti ÍSÍ
„ Verstur er þó hlutur öryrkj-
arma, sem aldrei hafa beðið
um sína örorku en eru háðir
þeim smánarskammti sem
hrekkur af borðum allsnægt-
arinnar."
Október 1998.
L/r iui y»iuyitfin Lsays>.
„Aðeins lítið brot af öllum þeim milljörðum sem ríkissjóður hefur bætt
við sig í skatttekjum á þessu ári og því næsta myndi duga til að gera
hér nauðsynlegar úrbætur."
Desember 1998.
Úr forystugrein Morgunblaðsins:
„í Ijósi réttsýni og sanngirni ertímabært, að ekki sé fastar að orði
kveðið, að endurskoða stöðu öryrkja, sérstaklega þeirra
sem urðu öryrkjar ungir."
Desember 1998.
• • /
Oryrkjabandalag Islands
vildi segja frá sinni hugmynd, og það
kom ekki eitt einasta hljóð frá einum
eða neinum. Sem betur fer kannski
fyrir viðkomandi.
-Hvaða máli skiptir að ykkar mati
fyrir frumkvöðul að setja fram vel
unna viðskiptaáætlun?
IÞH: Hún bæði gagnast viðkom-
andi og minnkar líkurnar á að farið
sé út í eitthvað sem ekki er vænlegt.
Það lágmarkar áhættuna af öllu
verkefninu og eykur í rauninni verð-
mæti hugmyndarinnar þegar kemur
að því að ná sér í fjármagn.
JGH: Það er nokkuð hægt að gefa
sér að það er ekki hægt að ná til
hugsanlegra fjárfesta nema með við-
skiptaáætlun.
-Nú á að skila inn viðskiptaáætlun-
um í keppnina hinn 25. mars. Eiga
þáttta kendur mikla vinnu fyrir
höndum?
IÞH: Það veltur á því hversu mik-
ið hann er búinn að gera nú þegar
og hversu vel mótuð hugmyndin er.
Ef hann er búinn að vinna sínar
markaðsrannsóknir og skoða innviði
fyrirtækisins sem á að fara að stofna
þá er það að skrifa upp viðskiptaá-
ætlunina tiltölulega lítið mál. Aðal-
vinnan liggur í grunnvinnunni.
-Nú verða ekki allar hugmyndir til
fjár. Hvaða vonir bindið þið við
þessa keppni?
JGH: Eg held að þetta verkefni
geti orðið til þess að það komi fram
fleiri hugmyndir þótt það hækki
kannski ekki hlutfall þeirra hug-
mynda sem munu njóta velgengni.
Það gæti þýtt að fleiri stíga þessi
undirbúningsskref og sjá að þetta
er ekki raunhæf hugmynd og hætta
við, í stað þess að stinga sér til
sunds, hugsanlega með kostnaðar-
sömum afleiðingum fyrir sig og
sína.
IÞH: Við höfum reynt okkar
besta til að gera fólk sjálfbjarga, og
það er undir einstaklingunum kom-
ið hversu langt þeir komast með
þetta.
JGH: Einn af jákvæðu punktun-
um við þessi námskeið er kannski
þessi þekkingarflutningur frá okkur
yfir til þeirra sem eru með við-
skiptahugmyndir. Þeir eru væntan-
lega eftir þetta betur í stakk búnir
til að gera meira sjálfir.
Jón Garðar og Ingvar Þór töldu
að þær móttökur sem Nýsköpun ‘99
hefði fengið væru hvatning til að
halda svipaða samkeppni síðar.
Vildu þeir þakka öllu því fólki sem
hafði tekið þátt í þessu með þeim, og
einnig samstarfsaðilunum sem hefðu
lagt hönd á plóg við að gera þetta
framtak að því sem það er. Þeir
töldu það vænlegt að leiða aðila af
þessum toga saman í framtíðinni til
að koma góðum málum áleiðis.
Blóð, sviti og tár
I lok námskeiðsins var haldinn
spjallfundur í matsal Viðskiptahá-
skólans þar sem Páll Kr. Pálsson
svaraði spurningum þátttakenda
um ýmis atriði sem vörðuðu sam-
keppnina. I lok þess fundar stóð
einn þátttakendanna upp og sagði
að hann teldi að stærstu verðlaunin
í þessari samkeppni væru ekki
verðlaunin sjálf, sem óljóst væri
hverjir myndu hljóta á þessari
stundu. Stærstu verðlaunin væru
hins vegar veitt fyrirfram og væru
fólgin í því að koma á fyrirlestra af
þessum toga og taka þátt í sam-
keppninni þar sem fólk myndi upp-
skera eins og til væri sáð, enda
væru margir sem gætu haft mikið
gagn af fræðslunni og að komast í
frjótt andrúmsloft.
Páll Kr. Pálsson, framkvæmda-
stjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífs-
ins, sagðist myndu vilja taka þessi
orð og gera að lokaorðum sínum. „Ég
vil nota þessi orð til þess að hvetja
ykkur til að gefast ekki upp núna.
Núna reynir í raun og veni mest á
ykkur að fara heim og segja við ykk-
ur sjálf: Nú ætla ég að láta hendur
standa fram úr ermum og vinna
þetta verkefni og eyða í það næstu
helgum. Því fylgir auðvitað blóð, sviti
og tár eins og öllum svona verkefn-
um. En það sjálfstraust sem þið sýn-
ið með því að klára svona viðskiptaá-
ætlun og skila henni inn til Nýsköp-
unarsjóðs og fá kvittun fyrir að þið
hafið skilað inn í keppnina áætlun
sem þið trúið að feli í sér tækifæri og
bjarta framtíð fyrir þann sem að
henni hefur komið - með því er hálf-
ur sigur unninn og þið hafið rétt á að
fagna öll sem klárið þann áfanga,“
sagði Páll Kr. Pálsson í lokaorðum
sínum til keppenda.
Áætlað er að veita verðlaunin í
samkeppninni Nýsköpun ‘99 upp úr
miðjum maí, þó að endanleg dag-
setning sé ekki komin.