Morgunblaðið - 24.02.1999, Síða 27

Morgunblaðið - 24.02.1999, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1999 27 NÝSKÖPUN ’99 Opnar nýj ar víddir Helgi Kristófersson Halla Jónsdóttir Ásgeir Hannes Eiríksson Anna F. Gunnarsdóttir um stfl,“ sagði Helgi. Helgi sagði að til þess að koma hugmyndinni verulega í gang þyrfti hann að tala við aðra aðila. Það hafi verið ástæðan fyrir því að hann kom á námskeiðin, til að kynna sér hvemig hann ætti að snúa sér í svona málum. Helgi vildi það um hugmynd sína segja að hún væri á sviði stórfram- kvæmda á sviði bygginga. Um námskeiðin vildi Helgi segja að fyrirlestr- arnir hefðu verið góðir. Hins vegar hefði mátt vera betra skipulag að því leyt- inu til að í fyrri fyrirlestrin- um höfðu þátttakendur ekki glærurnar í höndunum sem fyrirlesarinn flutti. En því hefði verið kippt í liðinn með seinna failinu í þeim síðári. „En það var eins og svart og hvítt hvort maður hafði þetta í höndunum og gat punktað við glærurn- ar,“ sagði Helgi. Helgi var því næst inntur eftir því hvort hann hefði lært eitthvað í fyrirlestrun- um sem hann liafði ekki áttað sig á áður, en sá að myndi skipta máli við gang- setningu fyrirtækis? „Já, og reyndar kom svo margt til uppfyllingar sem maður vissi kannski að einhverju leiti áður, en skorti fyllri upplýsingar sem kom sér mjög vel,“ sagði Helgi. ÞÁTTTAKENDUR í sam- keppninni Nýsköpun ‘99 koma úr ýmsum áttum, en eiga það sammerkt að vilja ganga úr skugga um hvort raunhæft sé að gera alvöru úr viðskiptahugmynd, sem þeir í sumum tilvikum hafa fóstrað í hugskoti sínu ár- um saman. Blaðamaður ræddi við fjögur þessara og innti þau eftir þátttöku þeirra í keppninni. Helgi Kristófersson er fertugur að aldri. Hann sagði að tilgangur þátttöku hans í þessari keppni væri að koina sér inn í þessar hugleiðingar. Hann kvaðst bæði vera að vinna að ýms- um málum og að kenna, og væri á þessum stað til að fræðast. Helgi sagðist vera með eina hugmynd sem væri reyndar það stór að hann sæi ekki fram á að hann næði að skila henni í þessa keppni. En þetta myndi allavega koma honum í gang. Stórframkvæmd á byggingasviði „Hugmyndin er eiginlega í kollinum ennþá, en ég er búinn að sjá hana fyrir mér mjög lengi og er eiginlega mest hissa á að það skyldi enginn annar hafa gert eitthvað í svipuð- 'jgt/INNLENT Jafnræðis sé gætt í greiðslum hlunn- inda og styrkja ÞRÍR þingmenn jafnaðai'manna, þau Jóhanna Sigurðardóttir, Rannveig Guðmundsdóttir og Lúðvík Bergvinsson, hafa lagt fram á Alþingi tillögu til þingsá- lyktunar um að fjármálaráðherra verði falið að láta fara fram heild- arendurskoðun á greiðslum hlunn- inda og bifreiðastyrkja í ríkiskerf- inu með það að markmiði að jafn- ræðis sé gætt í slíkum greiðslum milli kynja og að virt séu jafnrétt- islög í því efni. I greinargerð hennar kemm- fram að í svari viðskiptaráðherra, Finns Ingólfssonar, við fyrirspurn í febrúar árið 1998 um bifreiða- styi'ki og stöður í bankakerfinu hafi komið fram að mjög hallaði á konur í yfirmannastöðum innan bankakerfisins. „Af svarinu mátti líka draga þá ályktun að kerfi fastra bifreiðastyrkja væri notað til að hygla körlum á kostnað kvenna í sambærilegum stöðum, sérstaklega innan Landsbankans og Búnaðarbankans. Bæði þing- flokkur jafnaðarmanna og Sam- band íslenskra bankamanna fóru þess á leit við jafnréttisráð í kjöl- far þessarar niðurstöðu að kannað yi-ði hvort um væri að ræða brot á jafnréttislögum." í greinargerð segir að niður- staða kærunefndar jafnréttismála hafi verið sú að afgerandi munur væri á bifreiðastyrkjum til karla annars vegar og til kvenna hins vegar innan Landsbanka Islands og Búnaðarbanka fslands og bryti það í bága við jafnréttislög. Segja þingmennirnir að ætla mætti að þessi úrskurður hafi fordæmisgildi fyrir aðrar ríkis- stofnanir. „Full ástæða er til þess að í kjölfar hans fari á vegum fjármálaráðuneytisins fram gagn- ger endurskoðun innan alls ríkis- kerfisins á bifreiðastyrkjum og nefndarþóknunum hjá B-hluta ríkisstofnana." „Þegar Iitið er til bifreiða- styrkja, en lokaðir aksturssamn- ingar undanskildir, vekur sér- staka athygli að af um 74 milljóna króna greiðslum fengu 487 karlar tæplega 66 milljónir ki'óna, en 265 konur rúmar 8 milljónir ki-óna,“ segir í greinargerð. „Meðalbif- reiðastyi’kui' til karla var þvi rúm- lega 135 þúsund krónur á árinu 1996 en meðalstyrkur til kvenna rúmlega 30 þúsund krónur. Einnig kom fram mikill og afger- andi munur á greiðslum til kynj- anna vegna fastra nefndarláuna og þóknana, en 83% þessara greiðslna runnu til karla, 17% til kvenna. Þessar tölur kalla á skýi’- ingar. Margt bendir til að hér sé einnig um brot á jafnréttislögum að ræða.“ Efri sérhæð í Hafnarfirði Til sölu góð 3ja—4ra herbergja íbúð við Reykjavíkurveg. Stærð 107 fm. Byggt 1959. Suðursvalir. Verð 6,8 millj. Ámi Gunnlaugsson hri., Austurgötu 10, sími 555 0764. Næsti viðmælandi var Halla Jónsdóttir og er hún 32 ára að aldri. Halla sagðist vera í við- skipta- og markaðsnámi við end- urmenntunardeild Háskóla Is- lands. Þetta væri hluti af því námi, og eins væri hún með hug- mynd sem hana langaði að gera að veruleika. Tengir umhverfi, byggingariðnað og tómstundir Aðspurð sagði Halla að hennar hugarfóstur væri enn á hug- myndarstiginu, og væri hún að leita að samstarfsaðilum og þekk- ingu á þeim sviðum sem hún hefði ekki þekkingu á. Þetta væri hugmynd sem hún hefði verið að gerja með mér mjög lengi," „Hugmyndin mín tengist um- hverfi, byggingariðnaði og tóm- stundum og sameinar þetta þrennt," sagði Halla. Á þessu námskeiði sagðist Halla ekki hafa lært mikið í sjálfu sér því hún væri í námi sem væri á þessu sviði. Engu að síður væri ávinningur fyrir hana að taka þátt því að þarna væri mikið efni samþjappað og tekið fyrir á stutt- um tíma, sem væri þægilegt. Halla sagði að samkeppnin væri áhugaverð og mætti gjarnan end- urtaka hana að ári. Horfir til Eystrarsaltsríkja Ásgeir Hannes Eirfksson er 51 árs og var hann næstur til skrafs. Ásgeir Hannes sagðist hafa fengist töluvert við að gera áætlanir, hag- kvæmnisathuganir og skylda vinnu. Þegar hann sá að fólki gafst kostur á að taka þátt í samkeppni þótti honum það skemmtilegt framtak og ákvað að taka þátt. Ásgeir Hannes kvaðst hafa lært heihnikið á þessu námskeiði, enda hafi nvjög vel verið að því staðið. Ásgeir sagðist vera að þróa mörg raunhæf verkefni úti í Eystra- saltsríkjunum, á ýmsum sviðum fjárfestinga. „Eg hef veitt fólki ákveðna fyrirgreiðslu sem hefur áhuga á að fjárfesta, eða er með verkefni og er að leita að fjárfest- um,“ sagði Ásgeir Hannes. Aðspurður sagði Ásgeir Hann- es að það væri engin spurning að námskeiðið hefði staðfest margt sem hann vissi, og bætt verulega við í öðrum tilvikum. „Það var mjög ítarlegt. Allir sem að þessu standa hafa gert það af mikilli rausn“, sagði Ásgeir Hannes. Viðskiptahugmynd á hugbúnaðarsviði Anna F. Gunnarsdóttir er 36 ára. Anna sagðist vera á þessu námskeiði til að læra að búa til viðskiptaáætlun og skoða fjár- festingarmöguleika í sambandi við hugmyndir. Aðspurð sagðist Anna vera að þróa eigin við- skiptahugmynd sem væri á sviði hugbúnaðar, og væri hún á samn- ingsstigi og nálgaðist gangsetn- ingu. Sagðist Anna hafa haft hug- myndina í maganum í þrjú ár. Anna sagði að námskeiðið hefði opnað henni nýja sýn á margt. „Það voru margar gloppur sem ég þarf að athuga sem ég hafði kannski ekki gert mér grein fyrir varðandi það hversu vandasamt er að útbúa viðskiptaáætlun. Þetta opnaði alveg nýja vídd,“ sagði Anna. Anna vildi segja að lokum að fyrirlestrarnir hefðu verið mjög góðir og fræðandi í alla staði. ’Lágmúla. 9 • Símí 581 3730 Innritun er hafin! FRÁ TOPPI TIL TÁAR i Námskeið sem hefur veitt ótalmörgum konum frábæran árangur. Þetta kerfi er eingöngu ætlað konum, sem beijast við aukakílóin. Uppbyggilegt, lokað námskeið. Fimm tímar í viku, níu vikur í senn. Góður matarkúr sem fylgt er eftir daglega með andlegum stuðningi, einkaviðtölum og fyrirlestrum um mataræði og hollar lífsvenjur. Heilsufúndir þar sem farið er yfir forðun, klæðnað, hvernig á að bera líkamann og efla sjálfstraustið. FRÁ TOPPI TIL TÁAR ll - framhald Námskeið fyrir þær sem vilja halda áfram í aðhaldi. Fijálsir tímar, 13 vikur. Fundir lx í viku í 9 vikur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.