Morgunblaðið - 24.02.1999, Side 36

Morgunblaðið - 24.02.1999, Side 36
^36 MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1999 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ SIGURÐURINGVI THORSTENSEN + Sigurður Ingvi Thorstensen var fæddur í Reykjavík 3. des. 1940. Hann lést á Landspítalanum 14. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Tryggve Dani- el Thorstensen prentari, f. 11. okt. 1914, d. 25. nóv. 1986, og Anna S. Thorstensen, sem vann í Ráðherrabú- staðnum, f. 8. júní 1918, d. 11. febrúar 1996. Systkini Sigurðar eru Sonja Thorstensen verslunar- maður, f. 9. maí 1938, og Tryggve D. Thorstensen vél- tæknifræðingur, f. 20. des. 1945. Eftirlifandi eiginkona Sig- urðar er Guðríður Vestmann Guðjónsdóttir hjúkrunarfi æð- ingur, f. 9. júlí 1943 á Akranesi, og eru börn þeirra: 1) Anna Margrét, kennari, f. 26. ágúst 1965. Sambýlismaður hennar er Kveðja frá tengdaforeldrum Vort líf er svo ríkt af ljóssins þrá, að lokkar oss himins sólarbrá, og húmið hlýtur að dvína, er hrynjandi geislar skína. Vor sál er svo rík af trausti og trú, að trauðla mun bregðast huggun sú. Pó ævin sem elding þrjóti, guðs eilífð blasir oss móti. Vort hjarta er svo ríkt af hreinni ást, að hugir í gegnum dauðann sjást. - Vér hverfum og höldum víðar, en hittumst þó aftur - síðar. (Jóhannes úr Kötlum) Margrét Vestmann og Magnús A. Magnússon. Hann Ingvi okkar er látinn. Það er svo ótrúlegt og óraunverulegt fyrir okkur sem eftir sitjum að við skulum ekki eiga eftir að sjá glað- legt bros þessa góða drengs eða heyra hnyttin og stundum óvænt tilsvör hans. Við finnum til mikillar sorgar og saknaðar ásamt fjöl- skyldu hans allri. Nú þegar hann er allur þá '•'streyma minningabrotin fram í huga okkar frá þeim mörgu, góðu árum sem okkur var auðið að þekkja Ingva. Eitt af því fyrsta sem kemur í huga okkar er nokkuð sem Ingvi henti oft gaman að á síðari árum, en það var þegar Gurrý kom fyrst með hann heim í litla húsið okkar í Kópavoginum til að kynna hann fyr- ir móður sinni og fjórum systrum. Hann var þá liðlega tvítugur að ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Stapahrauni 5, Hafnarfirði, sími 565 5892 Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Sverrir Olsen, Sverrir Einarsson, útfararstjóri útfararstjóri Útfararstofa íslands Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300 I Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/ Ágúst Gunnarsson, bóndi og smiður, f. 19. sept. 1963, og eiga þau tvo syni, Sigurð Ingva, f. 19. apríl 1995, og Guð- jón, f. 1. nóv. 1996. 2) Tryggvi Daniel, iðnaðarmaður, f. 18. nóv. 1967. 3) Kristín, ferðamála- ráðgjafi, f. 12. júlí 1972. Sambýlismað- ur hennar er Vil- helm Gunnarsson prentsmiður, f. 19. febr. 1969, og eiga þau einn son, Viktor Einar, f. 16. nóv. 1998. Sigurður tók gagnfræðapróf, lærði flug og tók atvinnuflug- mannspróf. Einnig iærði hann flugumferðarstjórn og starfaði sem flugumferðarsljóri frá 1963. Jafnframt var hann flug- maður Flugmálastjórnar og kenndi flug. Útför Sigurðar fer fram frá Kópavogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. aldri og frekar feiminn. Hann sagði okkur að tilfinning hans hefði verið eins og að hann sæti fyrir rann- sóknarrétti því við hefðum allar sest í kringum hann og skoðað hann eins og haukar skoða bráð sína. En hann Ingvi stóðst skoðun- ina og við treystum honum fyrir elstu systurinni og hann sýndi og sannaði að hann var traustsins meira en verður. Annað sem við minnumst vel var eitt af því sem Ingvi var óvanur og leist ekki mjög vel á þegar hann sameinaðist fjölskyldu okkar. Það var kossagleðin sem tilheyrði henni. Hann varð feiminn og fór hjá sér að allir skyldu kyssast þegar heilsast var og kvatt og lét sem honum lík- aði það ekki. En við vissum að á bak við látalætin sló viðkvæmt og hlýtt hjarta og smám saman lét hann af látalátunum og varð einn sá fyrsti til að bera sig eftir kossunum þegar komið var saman. Ingvi var duglegur og samvisku- samur til vinnu og gerði allt vel sem hann tók sér fyrir hendur, eins og húsið þeirra nýja og garðurinn í Kópavoginum bera vitni um, en í það lagði hann óhemju mikla vinnu stuttu áður en hann veiktist. Hann fór vel með það sem hann átti og var mikið snyrtimenni sem vildi hafa röð og reglu á hlutunum í kringum sig og gerði sömu kröfur til annarra sem umgengust það sem hann átti. Yngvi og Gurrý voru mjög sam- hent og náin hjón. Hann hafði orð á því oftar en einu sinni í samtölum að það besta sem hefði hent hann í líf- inu hefði verið að kynnast Gurrý. Hann sagði að hún væri ekki bara eiginkonan sem hann elskaði, held- ur líka besti vinur hans. Honum fannst mikið til hennar koma og við vitum að í hans huga komst engin með tærnar þar sem hún hafði hæl- ana. Sömu sögu hefur hún að segja um hann og er því missir hennar svo óendanlega mikill. Yngvi var líka góður faðir. Börnin hans og fjölskyldur þeirra voru hon- um afar kær. Hann vildi þeim öllum það besta og skildi mikilvægi þess að hafa jafnvægi á milli þess að styðja við bakið á þeim og að of- dekra þau ekki því honum var það efst í huga að þau yrðu sönn, heið- virð, sjálfstæð og sjálfbjarga. Hann var dulur á sínar dýpstu tilfinningar og gott dæmi um það er að áður en barnabörnin komu til sögunnar þá lét hann stundum sem hann væri ekkert spenntur fyrir að eignast þau. En montnari afi hefur varla sést. Hann átti erfitt með að fela hversu mjög honum þótti koma til litlu drengj- anna þriggja sem fengu, því mið- ur, svo allt of stuttan tíma til að kynnast afa sínum. Okkur þótti mjög vænt um Ingva og finnum því sárt til nú þegar hann er horfinn okkur og við finnum að fjölskyldan verður fátækari án hans og lífsgangan tómlegri. Við þökkum góðum dreng samfylgdina og trúum á von um endurfundi síðar. Elsku Gurrý, Anna Gréta og fjöl- skylda, Tryggvi, Kristín og fjöi- skylda og aðrir ástvinir, við finnum svo til með ykkur. Við biðjum góðan Guð að styrkja ykkur í sorg ykkar og söknuði og vonum að minningin sem þið eigið um Ingva verði ávallt sem ljós í hugum ykkar sem gefur ykkur birtu til að halda göngunni áfram. _ Ásta og Björgvin, Magnea, Elín og Óli og fjölskyldur. Fallinn er frá, langt um aldur fram, mágur og svili, Sigurðui- Ingvi Thorstensen. Ingvi minn, en það varst þú alltaf kallaður í fjölskyldunni, við áttum ekki von á því að þú værir að kveðja okkur svona skjótt. Þú hafðir sýnt hetjulega baráttu við illvígan sjúk- dóm og varst búinn að sigra, þegar kallið kom. Nú ríkir mikið tómarúm í okkar fjölskyldu. Þú lést til þín taka, og varst hrókur alls fagnaðar. Þín verður sárt saknað úr hópnum. Það er margs að minnasfy þegar kveðja þarf góðan dreng. Eg var barn að aldri þegar Ingvi giftist systur minni henni Gurrý, svo að við höfum átt margar góðar stundir saman. Ég passaði fyrir þau á fyrstu árunum. Ég bjó um skeið í kjallaranum hjá þeim í Skólagerð- inu. Minnisstæðastar eru stundirn- ar sem við áttum saman heima í stofu eða í sumarbústað, þar sem setið var og spjallað og allir höfðu skoðanir á öllu. Kæri svili, ég vil þakka þér fyrir að kynna fyrir mér þann starfsvett- vang sem við unnum saman við í um aldarfjórðung. Ég veit að oft voru samræður okkar einhæfar fyrstu árin þegar fjölskyldur okkar komu saman, því flugið og flugumferðar- stjórn bar oft á góma hjá okkur. Ég leitaði oft til þín mér til fróðleiks og skemmtunar vegna starfsins. Þú varst mjög fær flugumferðarstjóri, sérstaklega veðurglöggur og ráða- góður þeim sem við erfiðar aðstæð- ur nutu leiðsagnar þinnar við aðflug bæði til Reykjavíkur- og Keflavík- urftugvalla. Byggðist sú færni m.a. á því að þú sjálfur varst flugmaður og flugkennari og skildir til fulls út á hvað hlutirnir gengu. Ég naut einnig tilsagnar þinnar í flugi er við á árum áður flugum um landið í lít- illi flugvél sem þú áttir ásamt félög- um þínum, og margoft er þú varst flugmaður á flugvél Flugmála- stjórnar. Ég er glaður yfir því að hafa kynnt fyrir þér sveitamanninn í mér. Síðustu tíu til fimmtán ár höf- um við átt okkar bestu samveru- stundir á haustin vestur í Lokin- hömrum í Arnarfirði, gömlu sveit- inni minni, sem þú kynntist er ég útvegaði Tryggva syni þínum sveitapláss hjá Sigurjóni bónda. Nærri hvert haust höfum við farið saman ásamt fleiri „smölum“ og hjálpað til við smalamennsku. Og eins og fyrr þá varst þú foringinn og hrókur alls fagnaðar. í þínum erfiðu veikindum undanfarin tvö ár hvfldir þú oft hugann með að láta hann dveljast með okkur Lokin- hamrasmölum og rifja upp góðar stundir í stórbrotinni náttúru Vest- fjarða. Þú varst einstakur fjölskyldu- maður. Oft þegar þú vegna starfs þíns varðst að dvelja stutta stund úti á landi eða þurftir að skreppa til útlanda, þá var það venja þín að senda Gurrý þinni póstkort, þó að viðskilnaðurinn væri aðeins dag- stund. Það er skarð fyrir skildi í okkar fjölskyldu, og viljum við biðja góðan Guð að varðveita Gurrý og fjöl- skyldu hennar, og styrkja þau á þessari sorgarstund. Anna Jóna og Þorbjörn. Margar minningar streymdu um hugann þegar andlátsfrétt Sigurð- ar barst mér. Baráttan við sjúk- dóminn var hetjuleg, en að lokum sigraði sá sem sigrar okkur öll. Við vorum ekki háir í loftinu þeg- ar kynni okkar hófust og ævintýra- ferðirnar byi’juðu frá húsinu á Leifsgötunni _þar sem við áttum báðir heima. Á þeim tíma var landið hersetið og hermannabúðir í ná- grenninu. Dátamir vom góðir við litlu ki'flin sem komu í heimsókn og yfirleitt vora vasarnir fylltir af góð- gæti áður en heim var farið. Það lýsir Sigurði vel að oftast var hann fararstjóri í þessum ferðum þótt yngri væri. Hann var hugmynda- ríkur, skemmtilegur og óbanginn við að troða nýjar slóðir. Ungur flutti hann með fjölskyldu sinni til Vesturheims og dvaldi þar í nokkur ár. Aftur lágu leiðir saman eftir heimkomuna. Þau settu sig niður á Hagamelnum í Reykjavík og ég var fluttur 1 Vesturbæinn. Sigurður var þá unglingur og byrjaður að hugsa til framtíðarinnar. Flug átti hug hans allan og lauk hann ýmsum flugprófum sem ungur maður. Það átti þó ekki fyrir honum að liggja að verða flugmaður að aðalstarfi. Hann réðst til Flugmálastjórnar og starfaði við flugumferðarstjóm ævilangt. Sigurður var mjög fær í starfi. Reynsla hans af flugi, metn- aður og gott vald á ensku hafði sitt að segja. Lengst af starfaði hann á Reykjavíkurflugvelli en einnig um tíma í flugturninum á Keflavíkur- flugvelli. I tæp fjörutíu ár spiluðum við badminton saman ásamt félögum okkar. Þar var alltaf líf og fjör í kringum Sigurð, hann spilaði til vinnings og gaf sig hvergi. Seinni árin tókum við að stunda skíði og fóram ófáar skíðaferðir innanlands og utan. Hann hafði unun af því að renna sér niður brekkurnar á fljúgandi ferð og enginn skyldi verða fyrstur niður nema hann. Hamingjan í lífi Sigurðar var Guð- ríður kona hans. Þau vora einstak- lega samrýnd og undu sér vel sam- an. Þau voru skemmtilegir ferðafé- lagar, bæði létt og kát á góðri stund. Við Didda kveðjum góðan vin og vottum þér, Gurrí mín, og börnun- um ykkar, dýpstu samúð. Megi Guð blessa ykkur í sorginni. Björn Nielsen, Góður vinur og félagi hefur kvatt þessa jarðvist. Sigurður Ingvi Thorstensen gekk jafnan undir nafninu Siggi Thorst. meðal félaga sinna. Við kynntumst þegar ég hóf störf við flugumferðarstjórnina í Reykjavík árið 1965, en þá hafði Siggi hafið þar störf nokkram árum áður. Við voram síðan vinnufélagar í flugstjórnarmiðstöðinni og flug- turninum í Reykjavík í yfir tuttugu ár, en starfstími Sigga hjá Flug- málastjórn var farinn að nálgast fjöratíu ár þegar hann lést eftir erf- ið veikindi, aðeins fimmtíu og átta ára að aldri. Það má segja að það sé kaldhæðni örlaganna að svo skuli hafa farið, því að Siggi lifði heil- brigðara lífi og hugsaði betur um heilsuna en við flestir hinir. Hann stundaði alla tíð sund, lék badmint- on, renndi sér á skíðum, tór í langar göngur og hjólreiðatúra og hafði gaman af og naut þess að taka á. Hann hafði gaman að ferðalögum og oft á áram áður fóra hann og Guðríður kona hans ásamt börnum þeirra þá ótroðnar slóðir í sumarfr- íum til útlanda. Einu sinni nutum við Anna þess ásamt börnum okkar að við fengum að nota sumarleyfispakkann sem Siggi hafði verið að skipuleggja yfir veturinn. Hann hafði fundið mjög góðan fjölskyldustað í sumarbúðum við Adríahafið og þangað fóram við báðir með fjölskyldum okkar og vorum þar samtíða. Við keyrðum frá Lúxemborg með viku millibili og aðstoðaði Siggi okkur við að skipuleggja ferðina sem var okkar fyrsta ökuferð um Evrópu, en Siggi var öllum hnútum kunnugur og hafði þá töluverða reynslu af slík- um ferðalögum. Ég starfaði við flugumferðar- stjórnina í tuttugu og tvö ár og all- an þann tíma var Siggi Thorst. ein- hvers staðar nálægur. Hann átti að vísu tölvuerðar útrásir, því auk þess að vera flugumferðarstjóri, var hann atvinnuflugmaður og flug- kennari. Hann hafði verið við flug- nám í Bretlandi áður en hann hóf störf við flugumferðarstjórn og flugið heillaði hann alla tíð. Hann tók sér leyfi frá flugumferðar- stjórninni og stundaði flugkennslu og leiguflug hjá flugskólanum Þyt og þar tók ég örfáa flugtíma hjá honum. í Þyt háðum við líka mjög skemmtileg einvígi í borðtennis, en þar var Siggi mjög skæður og harð- ur í horn að taka. Siggi Thorst. var einnig flugmaður og flugstjóri á flugvél Flugmálastjórnar um margra ára skeið og var sérstak- lega menntaður í flugprófunum á flugleiðsögutækj um. Flestar minningar mínar um hann eru þó tengdar vinnunni og af samstarfi okkar um langa tíð. Við vorum lengi vaktfélagar bæði í flugstjórnarmiðstöðinni og í flug- tuminum á Reykjavíkurflugvelli. Hann var samviskusamur í öllum sínum störfum og mikill fagmaður. Oft gekk mikið á, menn þurftu að taka skjótar ákvarðanir og mönn- um gat hitnað í hamsi. Siggi var alltaf rólegur og æðrulaus, hafði gaman af starfinu og var umfram allt jákvæður og traustur vinnufé- lagi. Hann sá ávallt björtu hliðarn- ar á hverju máli og það var létt yfir honum og stutt í brosið. Eins og honum var líkt tók hann veikindum sínum af æðruleysi. Hann hélt þeim fyrir sig og vildi ekki ræða þau. Ég hitti hann ekki alls fyrir löngu og ég spurði hvernig hann hefði það, en þá var hann bara að flýta sér og var rok- inn af stað. Nú er þessi ágæti vin- ur horfinn til austursins eilífa og leggur nú út á nýjar brautir. Við sem eftir stöndum biðjum hinn hæsta höfuðsmið að blessa hann og veita Guðríði og börnum þeirra og allri fjölskyldunni styrk í sorg- inni. Siguijón G. Sigurjönsson. Ljúflingurinn Sigurður I. Thorstensen er látinn eftir hetju- lega og langvarandi baráttu við skæðan vágest sem læknavísindin ráða oft ekki við. Mig setti hljóðan við þessa frétt, hann var svo bjartsýnn er ég ræddi við hann síðast, búinn að sigrast á berklunum fyrir fáeinum árum, komst aftur til starfa sem flugum- ferðarstjóri eftir krabbameinsmeð- ferð og vonglaður var hann er hann mætti á vikulegan fund okkar eftir- launa flugumferðarstjóra til að end- urnýja gömul og góð kynni. Fyrir ári dimmdi aftur yfir og læknameðferð tók enn við og þetta síðasta ár varð honum erfitt. Tómið sem við tekur er góður vinur og félagi hverfur okkur svo skyndilega er erfitt að fylla og við finnum sárt til saknaðar, en andlát- ið er jafnframt fæðing til annarrar og bjartari tilvera og meiri þroska guðs um geim. Ég kynntist honum Sigurði fyi-st er hann var í bóklegu námi til flug- mannsréttinda. Fyrst til einkaflug- manns, þá atvinnuflugmanns, blindflugsréttinda og loks loftsigl- ingafræði sem tók heilan vetur með stjörnufræði og þeim flóknu vinnu- brögðum, sem enginn notar lengur síðan spútnikar og gervitungl tóku á rás um lofthjúp jarðar til að auð- velda staðsetningu og fjarskipti flugsins. Élugið altók huga hans, hann lauk öllu þessu bóklega og verklega námi áður en hann náði lögaldri til flugréttindanna. Atvinnutækifærin fyrir unga atvinnuflugmenn voru fá um þetta leyti, flugumferðarstjórn var líka áhugavert starf og honum, með sinn góða undirbúning, gafst kostur á að læra það starf og hóf verklega námið 4. febrúar 1963. Honum sóttist námið vel og hann lauk fljótlega öllum tilskildum rétt- indaprófum. „Nýi flugturninn", þ.e. núverandi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.