Morgunblaðið - 24.02.1999, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 24.02.1999, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1999 41 MINNINGAR + Sigurður Óskar Bárðarson fæddist í Reykjavík 19. september 1915. Hann lést á Sjúkra- húsi Reykjavíkur hinn 14. febrúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Grensáskirkju 23. febrúar. Hratt flýgur stund og menn vakna upp við það að árin líða og ald- urinn færist yfir. Mönnum áskotnast mislöng ævin hér á jörðu og stund- um kemur kallið of fljótt. Þegar það gerist fyllumst við sorg og reiði og spyrjum hvers vegna. Kallið til Sigga frænda kom eng- um að óvörum enda átti hann að baki langa og stranga ævi. Hann var maður sem alltaf tókst á við hina straumhörðu á lífsins. Hann var kjarkmikill, fágaður og traust- ur maður. Hann var maður sem ekki þurfti að undirrita samninga við, heldur dugði heiðursmanna- samkomulag innsiglað með þéttu handtaki. Þegar maður hugsar til systkina- hópsins, Geira Bárðar, Dúddu, Sigga Bárðar, Söllu, Jóns Bárðar, pabba og Steina, og sér að eftir lifa aðeins þeir tveir bræð- umir, Jón Bárður og Steini, sést glöggt hvað árin líða hratt. Það var aðeins um mánuður á milli and- láts þeirra systkina, Söllu og Sigga. Það vom oft gleði- fundir þegar Siggi kom í heimsókn í Stangarholtið til fjöl- skyldu okkar og þá gjarnan á sunnudags- morgnum. Það voru miklir kærleikar á milli þeirra bræðra, föður míns og Sigga. Hann kom gjarnan á glæsilegum vörabíl sem virtist vera splunkunýr úr kassan- um eins og sagt var, þó svo að hann væri 2ja til 3ja ára. Svo vel var hugsað um hlutina að enginn gat séð mun þar á. Það sópaði að Sigga frænda og við systkinin fimm í Stangarholti bárum mikla virðingu fyrir föður- bróður okkar og var hann aufúsu- gestur. Honum var ævinlega tekið vel enda þótti mömmu mjög vænt um öll systkini pabba og hafði oft orð á því hvers konar kvenskörang- ur Guðbjörg tengdamamma sín væri. Það vora hátíðastundir þegar Siggi frændi kom í heimsókn. Ég fylltist stolti þegar ég fékk að setj- ast undir stýri í vörubílnum. í þá daga voru æðstu draumar mínir sem lítils drengs að verða vörubíls- stjóri. Fyrir um tuttugu áram síðan bað ég konu minnar og gifting var í vændum, og svaramann vantaði þar sem faðir minn var fallinn frá. Mér fannst enginn koma betur til greina en Siggi frændi, enda sá ég margt í fari hans sem minnti mig á pabba heitinn. Eins og ævinlega þegar leitað var til Sigga brást hann ljúf- lega við þeirri bón. Beinn í baki, virðulegur ásýndar stóð hann mér við hlið og innsiglaði hamingju mína við altarið. Þær eru margar minningarnar sem rifjast upp þegar litið er til baka og ánægjustundirnar að Bugðulæk sem var nokkurs konar fjölskyldumiðstöð hér á árum áður tengjast gjarnan þeim. Eitt er víst að þar vora gleðistundir eins og þegar Dúdda frænka spilaði á fóts- tigna orgelið og sungið var undir. Þá lék amma Guðbjörg á als oddi og einhverju góðgæti vai- gaukað að okkur ömmubörnunum. Við kveðjum góðan dreng og vottum Ingu konu hans, sem stóð svo vel við hlið mannsins síns, og börnum hans innilegustu samúð okkar. Ég er viss um að það ríkja fagnaðarfundir hjá þeim fjölskyldu- meðlimum sem nú hittast á æðra tilverastigi. Guð blessi minningu góðs drengs. Sigurbjörn Bárðarson (Diddi) og ijölskylda. SIGURÐUR OSKAR BÁRÐARSON ÓLAFUR ÞORSTEINN STEFÁNSSON + Ólafur Þorsteinn Stefánsson var fæddur á Sauðanesi á Langanesi 30. janúar 1917. Hann lést á Sjúkrahúsi Reykja- víkur 13. janúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Egils- staðakirkju 30. janúar. Til Óla afa. Kæri afi minn, mikið fannst mér gaman að við skyldum geta gripið í tafl núna eftir jólin og mikið þurft- um við að hugsa. Þú kenndir mér hversu landið okkar væri fagurt þegar fór að vora og þegar við skoðuðum Dettifoss var Otta amma svo hrædd um okkur en þú kenndir mér að vara mig. Þegar ég svaf heima hjá þér í síðasta sinn var Stína amma á sjúkrahúsinu en þú varst til í að fara í fallegan Bar- bieleik með mér og mikið varstu duglegur að klæða dúkkurnar fyrir mig í fötin en ég greiddi þeim og gerði þær fínar. Þú varst svo dug- legur að skoða útsýnið og kenna mér um steinana og blómin, og feg- urðina af fjallgarðinum, þú varst svo glaður með landið ykkar ömmu. Þú sagðir alltaf að ég væri prúð og góð stúlka, vona ég að ég haldi því áfram, svo þú verðir stoltur af mér. Núna máttu fylgjast með mér alla mína ævi og leiðbeina mér. Ég mun sakna þess sárt að fara ekki meira í Miðvang til ykkar ömmu, en gott var þó að fá að kynnast ykkur svona vel. Líði þér vel hjá guði elsku afi minn og ég bið að heilsa Stínu ömmu og gangi ykkur vel og haldið verndarhendi yfii- fjölskyldu ykkar. Kveðja frá Ai-nari bróður og fjöl- skyldu minni. Þín langafastelpa, Sigríður Erna, 7 ára. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordper- fect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfsíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdafaður og afa, EIÐS BERGMANNS HELGASONAR, Hlíðargerði 3. Valborg Sveinsdóttir, Frosti Bergmann Eiðsson, Sólveig Haraldsdóttir, Logi Bergmann Eiðsson, Ólöf Dagný Óskarsdóttir, Hjalti Bergmann Eiðsson, Sindri Bergmann Eiðsson og barnabörn. t Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur hlýhug og veittu ómetanlega hjálp við andlát og útför EINARS HALLDÓRSSONAR frá Holti, Hrafnakletti 4, Borgarnesi. Brynja Gestsdóttir, Þorgeir Einarsson, Anna Einarsdóttir, Guðmundur V. Guðsteinsson, Helga Einarsdóttir, Óskar I. Þorgrímsson, Brynjar, Írís, Soffía og Rakel. t Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug í orði og verki við andlát og útför okkar heittelskaða sonar, eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, METÚSALEMS JÓNSSONAR KJERÚLF, Reyðarfirði. Lára Ó. Kjerúlf, Ingeborg H. Beck, Jón Lárus Kjerúlf, Björnfríður Fanney Þórðardóttir, Hans Friðrik Kjerúlf, Lára Kjerúlf, Guðni Rafn Guðnason og barnabörn. TILBOÐ / UTBOÐ I I I F.h. Orkuveitu Reykjavíkur er óskaö eftir tilboðum í rafskautsketil ásamt tilheyrandi búnaði og uppsetningu. Ketilkerfið miðast við 12 bar yfirþrýsting og 3 MW afköst. Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar. Opnun tilboða kl. 11.00 18. mars 1999 á sama stað. ovr 19/9 INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Sími 552 58 00 - Fax -NUN . )RGAR - Fax 562 26 16 M A T VIISIISIU H U SIM Æ Ð I Iðnaðarhús? Til leigu strax ódýrt 335 m2 iðnaðarhús. Einnig með vorinu til leigu 340 m2, 400 m2 og 500 m2 vel einangrað og upphitað. 80 km frá Rauðavatni j Árnessýslu. Hentar undir margskonar starfsemi. íbúð geturfylgt. Símar 557 1194, 897 1731. Húsnæði óskast Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Reykjanesi leitar eftir kaupum á 500—600 fermetra iðnað- ar- eða verslunarhúsnæði fyrir dagvistun fatlaðra í Kópavogi. Nauðsynlegt er að húsnæðið sé á jarðhæð og allt aðgengi í góðu lagi með tilliti til fatlaðra. Tilboð er greini staðsetningu, stærð, afhend- ingartíma og söluverð, sendist eignadeild fjár- málaráðuneytisins, Arnarhvoli, 150 Reykjavík, fyrir 12. mars 1999. Fjármálaráðuneytið, 23. febrúar 1999. STVRKIR Styrkir til tungumálakennara Tungumálakennarar á grunn- og framhalds- skólastigi eiga kost á styrkjum frá SÓKRATES/ LINGUA til endurmenntunar eftir 1. júní í ein- hverju ESB-landi í 2—4vikur. Umsóknarfrestur rennur út 1. mars nk. Upplýsingar í síma 525 5813, netfang rz@hi.is. Landsskrifstofa SÓKRATESAR, Ragnhildur Zoega, Neshaga 16, 107 Reykjavík, fax 525 5850. HÚSIMÆBI DSKAST íbúð með húsgögnum óskast Traustur aðili óskar eftir 2ja—4ra herb. fallegri íbúð til leigu, með húsgögnum, í nokkra mánuði, á Reykjavíkursvæðinu. Þyrfti að vera laus fljótlega. Leiga greidd fyrirfram. Góð um- gengni. Upplýsingar veitir Ragnar í síma 896 2222. KEIMIMSLA SOS - Hjálp fyrir foreldra Sex vikna námskeið dr. Lynn Clarks hefst þriðju- daginn 9. mars. Námskeiðinu er ætlað að kenna foreldrum að hjálpa börnum sínum að bæta hegðun sína og stuðla að tilfinningalegri og félagslegri aðlögun. Aðferðirnar sem eru kenndar nýtast fyrir börn upp að tólf ára aldri. Námskeiðið er einnig fyrir starfsfólk sem vinn- ur með börn eða foreldrum. Leidbeinandi er dr. Gabríela Sigurdardótt- ir, atferlissálfræðingur. Skráning og upplýsingar í síma 562 0086 hjá Vitund ehf. „SOS er sérstaklega yfirgripsmikil og frábær bók. Við mælum með henni." Journal of Clinical Psychology.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.