Morgunblaðið - 24.02.1999, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 24.02.1999, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1999 43 Námskeið um gæði grænmetis NÁMSKEIÐ um gæði grænmetis verður haldið í Gai'ðyi'kjuskóla rík- isins á Reykjum í Ölfusi föstudag- inn 26. febrúar kl. 13-16. Ólafur Reykdal verkefnisstjóri og Valur N. Gunnlaugsson mat- vælafræðingur munu kynna niður- stöður úr verkefninu „Gæði gi'æn- metis á íslenskum markaði“, sem er samstarfsverkefni nokkurra að- ila, m.a. Garðyrkjuskólans, Efna- greininga Keldnaholti (RALA), Manneldisráðs, Geislavarna ríkis- i ins, Sambands garðyrkjubænda, Sölufélags garðyi'kjumanna og Agætis. Sveinn Aðalsteinsson fjall- ^ ar um nokkur atriði sem snúa að garðyrkjubændum. Verkefnið er styi'kt af RANNÍS og hefur að markmiði að bera sam- an, m.a. með efnagreiningum og skynmati, gæði og hollustu græn- metis á íslenskum markaði. Borið er saman íslenskt og erlent græn- meti, grænmeti ræktað við raflýs- Iingu o.s.frv. Á eftir verða umræður. Skráning og nánari upplýsingar fást á skrifstofu Garðyi’kjuskólans. Rabb um kvennarann- sóknir og kvennafræði IRAGNHEIÐUR Elfa Þorsteins- dóttir lögfræðingur verður með rabb á vegum Rannsóknastofu í kvennafræðum við Háskóla íslands fímmtudaginn 25. febrúar kl. 12-13 í stofu 201 í Odda. Fyrirlesturinn fjallar um hvern- ig femínískar lagakenningar end- urspeglast í mannréttindaumræð- unni, einkum að því er varðar hvort alþjóðleg mannréttindaákvæði gagnist konum í baráttu þeirra. ÍJafnframt um þá staðreynd að fræðimenn eru ekki sammála um hversu langt eigi að ganga til að mæta þörfum kvenna með lagaá- kvæðum. Kvöldvaka Ferðafélagsins FERÐAFÉLAG íslands efnir til Ikvöldvöku miðvikudagskvöldið 24. febrúar kl. 20.30 í Ferðafélagssaln- um að Mörkinni 6. Þar fjallar Aðalsteinn Ingólfs- son, listfræðingur, um upphaf landslagshefðarinnar í íslenskri málaralist, hvernig hún endur- speglar þjóðarímyndina og sjálf- stæðisbaráttuna við upphaf aldar- innar og þær breytingar sem verða bæði á þesasri hefð og ímynd þjóð- arinnar á þriðja og fjórða tug ald- Iarinnar, með sérstökum viðauka um Jóhannes Kjarval og „heild- rænar“ landslagsmyndir hans. Myndagetraun og kaffíveitingar verða um kvöldið. Gengið á milli hafna HAFNARGÖNGUHÓPURINN Istendur fyrir gönguferð í kvöld, miðvikudagskvöld, úr gömlu höfn- inni inn í Sundahöfn. Farið verður frá Hafnarhúsinu að vestanverðu kl. 20 og gengið með höfninni og ströndinni inn á Laugarnestanga og áfram inn í vestanverða Sundahöfn. Hægt er að koma í gönguna við Listasafn Sigurjóns Ölafssonar kl. 20.45. Skoðuð verður mannvirkjagerð á svonefndu Klettssvæði en þar er Ífyrirhugað að gera brimvarnar- garð og nýjan hafnarbakka við Skarfaklett. Að því loknu gefst kostur á að ganga til baka niður í Hafnarhús eða fara með SVR. Allir velkomnir. BJÖRGUNARSVEITARMENN við skoðun á snjóalögum. Ráðstefna í snjó- flóðum og björg’iin RÁÐSTEFNA í snjóflóðum og björgun úr snjóflóðum verður haldinn dagana 26.-28. febrúar á vegum Björgunarskóla Lands- bjargar og Slysavarnafélags ís- lands. Aðalfyrirlesari ráðstefnunn- ar verður prófessor Bruce Ja- mieson við Háskólann í Calgary, Kanada en hann er meðal helstu sérfræðinga Norður-Ameríku í snjóflóðum. Undanfarið hefur hann rannsak- að orsakir snjóflóða er urðu í Quiebec á nýársdag. Sérstaða pró- fessor Jamieson er að auk þess að vera fræðimaður á sínu sviði er hann einnig mikill útivistar- og skíðamaður. Auk Jamiesons munu ýmsir innlendir aðilar flytja erindi á ráðstefnunni. I fréttatilkynningu kemur fram að ráðstefnan er ætluð öllum þeim sem ferðast um snjóflóðasvæði hvort sem er í starfi eða leik t.d. fjallamenn, fólk sem ferðast á vélsleðum, björgunarsveitarmenn, starfsmenn veitustofnana og fleiri. Sérstakir styrktaraðilar ráð- stefnunnar eru: Vegagerð ríkisins og Ólafsfjarðarbær. Ráðstefnan er haldin í húsnæði skólans að Stang- arhyl 1, Reykjavík. Frekai'i upp- lýsingar og skráning er hjá björg- unarskólanum. Skaðabætur verði ekki teknar vegna lífeyrisréttar FRAMKVÆMDASTJÓRN Verka- mannasambands íslands hefur gert eftirfarandi samþykkt: „Stjórn Verkamannasambands Islands telur löngu tímabært að gerðar verði réttlátar breytingar á skaðabótalögum þannig að öllum verði tryggðar fullar skaðabætur eftir slys og tekur undir umsögn Alþýðusambands íslands þar sem þeim breytingum er fagnað. Stjómin mótmælir því hins veg- ar harðlega að skaðabætur til launafólks sem verður fyrir alvar- legum slysum verði skertar vegna lífeyrisréttar þess í lífeyrissjóðum verkalýðshreyfingarinnar og bóta- réttar úr sjúkrasjóðum hennar. Lífeyris- og sjúkrasjóðir launa- fólks geyma sparnað launafólks, eru hluti af umsömdum launum og er ætlað að veita félagsmönnum verkalýðsfélaganna stuðning ef þeir verða fyrir alvarlegum slys- um. Það er óþolandi að launafólki verði hegnt fyrir þessa forsjálni og sparnað af lágum launum með því að lækka réttlátar skaðabætur úr hendi tryggingafélaganna vegna lífeyris- og sjúkrasjóðsréttinda.“ Samræming fjölskyldulífs og atvinnu- þátttöku OPINN fundur verður á vegum Menningar- og friðarsamtaka ís- lenskra kvenna kl. 20 að Vatnsstíg 10 (bakhús) fimmtudaginn 25. febr- úar. Þetta er þriðji fundurinn í vet- ur í þemanu um samræmingu fjöl- skyldulífs og atvinnuþátttöku. Á þessum fundi verður einkum fjall- að um þarfir grur.nskólabarna, skólagöngu og foreldra á vinnu- markaði. Erindi flytja: Guðrún Ebba Ólafsdóttir, kennarþ varaformaður Kennarasambands Islands, Jónína Bjartmarz, lögmaður, formaður landssamtaka Heimili og skóli. Ténleikar Tónskóla Aust- ur-Héraðs DAGUR tónlistarskólanna verður haldinn hátíðlegur um land allt laugardaginn 27. febrúar. Tónlist- arskóli Austur-Héraðs heldur upp á þann dag með tónleikum á Hall- ormsstað í kvöld, miðvikudag kl. 20.30. Þetta eru fyrstu tónleikar nýstofnaðs skóla á Austur-Héraði. Þátttakendur eru nemendur úr skólunum þremur: Egilsstöðum, Eiðum og Hallormsstað. Fræðslufund- ur um bein- þynning-u HALDINN verður fræðslufundur á Hótel Selfossi kl. 20, fimmtudag- inn 25. febrúar, á vegum Bein- verndar á Suðurlandi. Dr. Jens A. Guðmundsson, sérfræðingur í inn- kirtlakvensjúkdómum, flytur fyrir- lestur. Þar mun hann fjalla um horm- óna og áhrif þeirra á beinmyndun. Eftir tíðahvörf raskast hormóna- jafnvægi hjá konum en sú röskun getur leitt tO beinþynningar. Fundm-inn er öllum opinn. Kynning á kennslugögnum fyrir fólk með dyslexíu STARFSMENNTAÁÆTLUN Evrópusambandsins Leonardo da Vinci hefur styrkt nokkur verkefni sem varða dyslexíu. Fimmtudaginn 25. febrúar kl. 20.30 í Tæknigarði, Dunhaga 5, Reykjavík, fer fram kynning á niðurstöðum úr tveim verkefnum sem styrkt hafa verið. Verkefnin sem verða kynnt eru: „Dyslexia - Awareness and Train- ing Access“ og „Support for Young Adults with Dyslexia". I fyrra verkefninu var útbúinn geisladiskur með leiðbeiningum og aðferðum til að létta nám. Verkefn- ið var unnið undir verkefnisstjóm breska háskólans í Sunderland og mun verkefnisstjórinn Beverly Morgamn kynna verkefnið. I seinna verkefninu vom unnar leiðbeiningar fyrir ungt fólk í starfsnámi um það hvernig það gæti tekist á við námsörðugleika sína. Verkefnið var unnið undir verkefnisstjórn Islenska dyslexíu- félagisns og munu Margrét Sigrún Sigurðardóttir, verkefnisstjóri verkefnisins, og Aðalheiður Guð- björnsdóttir kynna verkefnið. Góugleði í Gjábakka EINS og undanfarin ár mun eldra fólk í Kópavogi fagna komu Góu og gera sér glaðan dag. Góugleðin verður í Gjábakka fimmtudaginn 25. febrúar og hefst kl. 14. Meðal efnis á dagskránni er að Jónína Magnúsdóttir fer með gam- anmál, Kvennaskólakórinn syngur undir stjóm Sigurðar Bragasonar og Guðlaug Erla Jónsdóttir verður með skemmtilegt úr handraðanum, segir í fréttatilkynningu. Söngfugl- arnir taka lagið og að endingu verður stiginn dans í umsjón Þor- geirs og Margrétar. Enginn aðgangseyrir og allir em velkomnir á meðan húsrúm leyfir en vöfflukaffi verður selt á vægu verði. Unnið að jafn- rétti kynjanna á sviði land- búnaðar LANDBÚNAÐARRÁÐUNEYTIÐ hefur ráðið í þjónustu sína starfs- mann, Önnu Margréti Stefánsdótt- ur, sem starfar tímabundið við það verkefni að útfæra framkvæmdaá- ætlun ríkisstjórnarinnar um að ná fram jafnrétti kynjanna á málasviði ráðuneytisins. I fyi'rnefndri framkvæmdaáætl- un, sem nú er í gildi fyrir tímabilið frá upphafi árs 1998 tíl loka árs 2001, skuldbindur landbúnaðar- ráðuneytið sig til að vinna að eftir- farandi þáttum: Félagslegum og efnahagslegum réttindum kvenna í bændastétt. Könnuð verði ýmis ákvæði um eignaraðild í landbúnaði og bú- rekstri og réttindi og skyldur henni samfara. Gerðar verði tillög- ur til úrbóta þar sem þess gerist þörf með það að markmiði að jafna hlut karla og kvenna. Fræðslu fyrir konur og karla í bændastétt. Unnið verði upplýs- inga- og fræðsluefni um réttindi og skyldur kvenna og karla í bænda- stétt. Þar verði gerð grein fyrir fé- lagskerfi landbúnaðarins, stai'fi hagsmunasamtaka bænda og fé- lagslegum réttindum sem varða konur og karla í bændastétt, ásamt upplýsingum um jafnrétti kvenna og karla almennt. Atvinnumálum kvenna á lands- byggðinni. Landbúnaðarráðuneyt- ið beiti sér fyrir því að fullt tillit verði tekið til stöðu kvenna sem búa í dreifbýli og kvenna í bænda- stétt í öllum þeim sérstæku verk- efnum sem unnin verða samkvæmt þessari framkvæmdaáætlun og varða stöðu kvenna á vinnumark- aði og möguleika þeirra til eigin at- vinnurekstrar og endurmenntunar. Fjölgun kvenna í stjórnun og ráðum sem varða landbúnaðarmál. Sérstakt átak verði gert til að fjölga konum í stjórnum, nefndum og ráðum þar sem stefnumótun varðandi framtíð landbúnaðarins á sér stað og ákvarðanir eru teknar. Þetta átak taki bæði til opinberra nefnda og ráða á vegum ríkisvalds- ins og félags- og hagsmunasam- taka bændastéttarinnar. ■ Jafnrétti innan ráðuneytisins og stofnana þess. Könnuð verði staða jafnréttismála í ráðuneytinu og stofnunum þess og gerð áætlun um hvernig rétta skuli hlut kynjanna þar sem þess er þörf. Leiðrétt Björg er Bjamadóttir RANGT var farið með fóðurnafn Bjargar Bjarnadóttur, foi-manns Félags íslenskra leikskólakennara, í frétt í blaðinu í gær og er beðist velvirðingar á því. Rangt félag I leiðara blaðsins síðastliðinn sunnudag var sagt að Skógræktar- félag Islands stæði nú í samningum við Félag íslenzkra tónlistarmanna um hátíðahöld í tilefni 100 ára skipulegrar skógræktai' á Islandi, sem haldið verður hátíðlegt í ár. Hið rétta er að félagið, sem Skóg- ræktarfélagið er að semja við er Félag íslenzkra hljómlistaimanna. Beðizt er velvirðingar á þessari villu, sem leiðréttist hér með. Bengt Lindquist umboðsmaður fatlaðra hjá Sameinuðu þjóðunum „Þó að íslenska ríkisstjórnin hafi verið ein sú fyrsta sem lét þýða Grundvallarreglur Sameinuðu þjóðanna um málefni fatlaðra, þá er ekki nóg að þýða þær. Það þarf líka að framfylgja þeim." Desember 1997. Úr fréttabréfi Biskupsstofu: „Helmingur skjólstæðinga Hjálparstarfsins eru öryrkjar. Eru þetta sæmandi kjör í velferðarsamfélagi á tímum hagvaxtar og afgangs á fjárlögum? Vissir þú að öryrkjar á fslandi eru aðeins 7.776 talsins? Getur verið að það sé hagkerfinu ofviða að bæta kjör þessa hóps?" Janúar 1999. • • / Oryrkjabandalag Islands
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.