Morgunblaðið - 24.02.1999, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 24.02.1999, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1999 45 BRÉF TIL BLAÐSINS Að gleyma stjörnunum Fvá Ólafí H. Hannessyni: MÖRG hundruð manns komu saman á glæsilega móttökuhátíð á 100 ára afmæli KR 16. febrúar 1999 í Ráðhúsi Reykjavíkur. Hlýtt var á snjallar ræður Kristins Jónssonar formanns KR, Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur borgarstjóra, Björns Bjarnasonar menntamálaráðherra og Ellerts Schram forseta ÍSÍ, sem vitnaði m.a. í Jónas Guðmundsson rit- höfund, sem lýsti því á sinn snjalla hátt hvernig faðir hans gat séð á göngulagi Jóns í Stóra-Skipholti hvort KR hefði gengið vel eða illa. Jón stakk við öðrum fæti og þegar KR gekk illa dróst Jón draghaltur heim af Melavellinum út á Grandaveg, en þegar KR vann gekk Jón ímarreistur og óhaltur heim. Jón var nefnilega faðir fjög- urra drengja sem allir léku í KR og spiluðu allir í meistaraflokki. Eftir ræðui'nar og kaffisamsæti tók við úthlutun á silfri, gulli og stóri'iddarakrossum til stjórna, nefnda og sjálfboðaliða, sem vinna ómetanlegt stax-f í þágu félagsins og var upptalningin og afhending- in löng og mannmörg. En eitthvað vantað. Hvar voru stjörnurnar? Hvar var Þórólfur Beck, ein- hver snjallasti knattspyrnumaður íslands, mai'kmannaskelfii'inn óg- urlegi, sem var svo snjall að lands- liðsmarkmenn urðu skelfíngu lostnir eins og selir eða sæljón sem sjá háhyrningavöðu tilsýndar, þegar Þórólfur nálgaðist óðfluga með knöttinn? Hvar var Ellert Schram, þi'umuskyttan og skallamaðurinn góði, sem vann mai'ga leiki upp á sitt eindæmi og gafst aldrei upp? Hvar var Garðar Ái-nason, tengiliðurinn fí'ábæri, sem hafði svo góða knattmeðferð, að sumir sögðu að hann væri með franskan rennilás á fótunum, svo vel hélt hann boltanum? Hann gaf snilld- arsendingar á ft-amhex'ja og skoi-aði sjaldan sjálfur, en átti þátt í ansi möi’gum mörkum. Einu sinni þó í landsleik lék hann upp hægi'i kant, leitaði að samhei'ja, fann engan og endaði með því að senda knöttinn glæsilega yfir mai-kmanninn í bláhornið fjær. Þegar félagar hans fögnuðu hon- um sagði hann við Bjai-na Felix- son: „Hvað átti ég að gera? Það voi'u allir dekkaðir, svo ég vai'ð að skjóta sjálfur." Hvar var Bubbi Morthens sem samdi KR-lagið fí-æga „Við enxm KR - allir sem einn,“ sem hljómar alltaf á heimaleikjum KR og verð- ur önigglega spilað þegar KR vinnur IslandsmeistaratitOinn eft- irsótta? Þetta lag er stemmnings- lag ekki ósvipað fí’anska þjóðsöngnum, sem var saminn af frönskum Bubba á göngunni til Mai'seille og var eina lagið sem fótgönguliði þessi samdi á ævinni. Hvar var Gísli Halldói'sson, arkitektinn sem teiknaði og byggði alla velli og hús félagsins í áratugi? Hvar voru bræðurnir fjórh' fí'á Stóra-Skipholti: Hákon, Sigui'jón, Guðbjöi-n og Óli B., snjallasti og besti knattspyrnuþjálfai-i KR fyrr og síðar? Þeir voru þai'na allir og hurfu hljóðir á braut. Þessa menn alla átti að kalla upp á svið, veita þeim viðurkenn- ingu og leyfa hinum almenna KR- ingi að sjá og hylla þessa menn, sem sköpuðu KR og ei-u saga KR. Láta kastljósið leika um þá og leyfa okkur að njóta minninganna um frábæra sveit vaskra drengja. Sjálfboðaliðar ei-u ómissandi í hvei’ju félagi og vinna ómetanlegt starf. En það eru stjörnurnar sem eiga að fá að skína. An þeiri'a væi'i kvöldhiminninn dapur á veti'ar- síðkvöldum. Allir þekkja og dá Halldór Kilj- an, en enginn man blýsetjai'ana, prentarana, bókbindarana, prófarkalesar-ann Hai'ald Sigurðs- son, sem gerður var að heiðurs- doktor, né Jón Helgason pi'ófessor í Kaupinhöfn („vogrekið sprek á annarlegi'i sti'önd" eins og hann orðaði það sjálfui'). Ailh- þessir menn voi'u þó nauðsynlegir við gerð bóka Nóbelskáldsins. Jón las yfir síðustu pi'ófórk af öllum bókum Laxness og ekkert fór í prentun nema Jón sæi það áður. Það var líka þessi sami Jón sem lokkaði Kiljan xh' klausti-inu í Clervaux með freistandi sögum af glæsimeyjum sem biðu hans í Kaupmannahöfn. Og Halldór hélt áfi'am að ski'ifa. Það enx nefnilega bara stjöi'n- urnar sem skína og skipta máli. Við hin ei'um bara stjömui'yk. ÓLAFUR H. HANNESSON, Snælandi 4, Reykjavík. verður haldin í sal bóknámshúss Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, Sauðárkróki, föstudaginn 26. febrúar kl. 13.30 Framsöguerindi flytja: Bjarki Jóhannesson, forstöðumaður þróunarsviðs Byggðastofnunar. Eyþór Arnaids, framkvæmdastjóri hjá OZ. Fríður Finna Sigu rðardótti r, nemandi í FNV. Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra. Hermann Guðjónsson, forstjóri Siglingastofnunar íslands. Ingimar Hansson, spáfræðingur. JÓn Þórðarson, forstöðumaður sjávarútvegsdeildar Háskólans á Akureyri. María Hildur Maack, fræðsluskrifstofunni Kríu. Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri. Að loknum framsöguerindum setjast fyrirlesarar í pallborð og svara fyrirspurnum. Að pallborði loknu verður spástefnugestum gefið færi á að taka þátt í umræðum. í lok spástefnunnar verða meginatriði hennar dregin saman. Gert er ráð fyrir að spástefnunni Ijúki ekki síðar en kl. 18.00. Spástefnan er öllum opin og fólk hvatt til að mæta því hér er á dagskrá mál sem varðar okkur öll. i Ræðuklúbbur Sauðárkróks, Verkalýðsfélögin Aldan og Fram í Skagafirði, Atvinnumálanefnd Skagafjarðar, Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra, Sauðárkróki, Þróunarsvið Byggðastofnunar Sauðárkróki.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.