Morgunblaðið - 24.02.1999, Side 52

Morgunblaðið - 24.02.1999, Side 52
. 52 MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1999 i ... MORGUNBLAÐIÐ . •..HÁSKOLABIÖ HASKOLABIO ■ W PeterStormar Hannerbúinn að undirbúa sig aila ævi og nú er kallið Komið. Skemmtileg rómantísk gamanmynd frá fólkinu sem gerði Sleepless in Seattle Sýndkl. 5, 7.20, 9 og 11. frá hofundum Toy Story Kvikmyndir.is PIXAR www.samfilm.is Elísabet Davíðsdóttir á tískuvikunni í London Aðaláherslan á ný andlit Tískumyndir berast daglega frá Reuters- fréttastofunni enda Tískuvikur í gangi í stórborgum heimsins. Dóra Ósk Halldórs- dóttir rak augun í mynd af íslensku fyrirsætunni Elísabetu Davíðsdóttur og tók upp símann að bragði. Reuter ELISABET Davíðsdóttir í fatnaði frá írska hönnuðinum Lainey Keogh, en sýn- ingin var á sunnudaginn var. ELÍSABET Davíðsdóttir var ný- komin af tískusýningu Robert Carrie Williams þegar náðist í hana í Lundúnum. „Hann er nýr breskur hönnuður sem er með mikið af leðurfötum og rennilásar og sérkennileg efni eru áberandi hjá honum. „Ég var á tískuvik- ' unni í New York í síðustu viku og síðan kom ég hingað og héðan fer ég til Mílanó í viku og enda í París. En á sýningunni í dag [þriðjudag] tók Eva Dögg Guð- mundsdóttir einnig þátt en þetta er fyrsta sýningin sem við höfum starfað að saman.“ - Er að taka þátt í þcssum tísku- sýningum ekki gott tækifæri til að kynna sig enn frekar? „Jú, þetta er fastur hluti af starfí fyrirsaetunnar og getur skipt sköpum ef fá á góð ljós- myndaverkefni. En reyndar er mikil áhersla á ný andlit í dag og núna er ég t.d. ekki jafn nýtt and- lit og áður, og það gæti haft ein- hver áhrif á hvaða verkefni ég fæ núna þegar sýningunum er lokið. Núna er mjög mikið af nýjum stelpum á sýningunum og talsvert erfítt að þurfa að fara nánast dag- lega í „áheyrnarprufu" fyrir verk- efni.“ - En nú varstu á forsíðu Vogue í nóvember. Hefur það ekki gert róðurinn léttari? „Reyndar var ég svolítið óheppin með tímasetninguna á þeirri for- síðu, því þá voru tískusýningarnar nýbúnar og lítið að gera í auglýs- ingabransanum. Þannig að þegar næsta vertíð hófst núna hefur sú myndbirting kannski ekki jafn mikið að segja og maður hefði haldið. Maður þarf bara stöðugt að vera að fiska eftir góðum verkefn- um. Það þýðir ekkert að slaka á í því.“ - En er þetta ekki mikil vinna að fara svona á milli borga með sýn- ingar? „Jú, þetta er algjör keyrsla í einn og hálfan mánuð. Maður slappar ekkert af. Ég flaug frá New York klukkan 11 eitt kvöldið og lenti í London eldsnemma um morguninn og gat bara sofíð í þrjá tíma og þá hófst vinnan. Vinnudag- urinn getur orðið mjög langur og stundum er maður að frá klukkan fímm á morgnana til ellefu á kvöld- in. Og ekkert frí er um helgar.“ -Ertu þá ekki útkeyrð eftir svona törn? „Ég læt það nú alveg vera. Það eru margar fyr- irsætur hérna sem eru með mun stífari dagskrá en ég, kannski með nokkrar sýningar á dag. En eins og í dag var bara þessi eina sýning, svo ég kvarta ekki,“ segir Elísa- bet og hlær. - En þessi tískuheimur virðist breytast ört? „Já, fyrir nokkrum ár- um snerist allt um svokall- aðar „ofur“-fyrirsætur, síðan tóku við fleiri en vel þekktar fyrirsætur, en núna virðist allt snúast um ný andlit. Til dæmis er ný stelpa framan á ítalska Vogue í hveijum mánuði og þær sem kynna sig þannig eru oft þær sem fá mjög mikið að gera á komandi tískusýningum og auglýsingamyndatök- um. Ég hugsa líka að pen- ingar spili inn í þessa áherslu, því óþekktar íyr- irsætur fá ekki jafn mikið greitt og þær sem þekkt- ari eru. Hins vegar kemur þetta illa út fyrir fyrirsæt- ur, því þegar næsta sýn- ingartímabil hefst era þær nýju frá því síðast ekki lepgur nógu spenn- andi. Ég vona að þetta eigi eftir að breytast.“ -Hvað tekur við eftir sýningarnar í París? „Ég ætla að vera í svolítinn tíma í Pan's og kanna markaðinn þar, enda hef ég aldrei verið þar áður og margir spennandi ljósmyndarar og hönnuðir sem starfa þar. Þar er ég líka minna þekkt en á mörgum öðr- um stöðum svo ég verð með nýtt andlit þar,“ segir Elísabet að lokum. , , _ bíó^ÐSÓKN UðSOKM 1 íBandanW\unum Wrikiununi ■ ——m TitilL \ottie artian SaMinj i private Rj an bíóaðsókn iRandariW\unumJ BÍÓItOi i Bandari’ i_vjka 719 m.kr. A0,3m$ 700 m.kr. 484 m-kr. Wý 413 m.kr- 5.9 m$ 409 m.kr- 408 m.kr. 370 m.kr. 296 m.kr. I96m.kr. 169mJ«i 5,8 m$ 5,8 m$ 5,3 m$ 4,2 m$ 2,8 m$ 2,4 m$ MJs 51,im$ 32,4 m$ 19,9 m$ 5,9 m$ 16,5 m$ 54,1 m$ 49,4 m$ 4,2 m$ 9,8 rn$ 20322$ Hasar á toppnum „SKULDADAGAR“ eða „Pa- yback“ var mest sótta myndin vestanhafs um síðustu helgi, en myndin er hasarmynd með Mel Gibson í aðalhlutverki. Á sunnudag leit út fyrir að myndin í öðru sæti, „Flösku- skeyti" eða „Message in a Bottle" myndi deila efsta sætinu með Gibson með þeim Kevin Costner og Paul Newman í aðalhlutverkum. En þegar tölur helgarinnar voru gerðar upp á mánudag kom í ljós að hasarinn með Mel Gibson í fararbroddi hafði vinninginn. MEL Gibson og leikkonan Maria Bello á frumsýningu „Skuldadaga" en þau fara með aðalhlutverkin í myndinni. KEVIN Costner og Robin Wright-Penn á frumsýningu „Flöskuskeytis“, 8. febrúar sl. í Los Angeles.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.